Morgunblaðið - 06.09.1992, Qupperneq 6
6 FRÉTTIR/INNLENT
2G r aaaMapriag .0 'A Jö/jrsmuv aiaAjanuoHOM
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 1992
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti
Ágreiningur um eign
araðild íþróttahúss
ÁGREININGUR er nú risinn milli Reykjavíkurborgar og Fjöl-
brautaskólans í Breiðholti vegna nafngiftar og eignaraðildar skól-
ans á Iþróttahúsinu Austurbergi. FB hefur því ekki staðið skil á
greiðslum og ákvað Reykjavíkurborg í kjölfarið að loka íþóttahús-
inu.
Að sögn Kristínar Arnalds,
skólameistara Fjölbrautaskólans í
Breiðholti, er skólinn ósáttur við
hvernig reikningurinn, greiðsla á
sameiginlegum rekstri íþrótta-
hússins, var settur upp af Reykja-
víkurborg. Nafnið íþróttahús Fjöl-
brautskólans í Breiðholti hefði ver-
ið tekið út en íþróttahúsið Austur-
bergi sett inn í staðinn. Þetta
væri því orðin spurning um eignar-
aðild skólans að húsinu. Kristín
vildi taka fram að málið snerist
ekki um að skólinn greiddi ekki
sína reikninga heldur væri málið
ágreiningur um nafngift og eign-
araðild.
í samtali við Markús Örn Ant-
onsson borgarstjóra kom fram að
samkvæmt samningi sem gildir
um rekstur íþróttahússins, milli
ríkis og Reykjavíkurborgar, hefði
skólaskrifstofa Reykj avíkurborgar
Sjómannasamband íslands
Utgerð sé ekki styrkt
með fjárframlögum
Sjómannasamband íslands samþykkti á fundi sínum á föstudag
ályktun þar sem mótmælt er þeim hugmyndum innan ríkissljórn-
arinnar að styrkja útgerðina með beinum peningaframlögum til
að mæta samdrætti í þorskveiðum á næsta fiskveiðiári.
í ályktuninni segir: „Á það skal
bent að tekjur sjómanna eru sam-
ofnar tekjum útgerðar og hefur
því samdráttur í þorskveiðum ekki
síður áhrif á tekjur þeirra. Með
Net í skrúfu
Grindvíking's
í gærmorgun festust veiðar-
færi í skrúfu Grindvíkings
GK er skipið var statt djúpt
út af Vestfjörðum.
Leitað var eftir aðstoð Land-
helgisgæslunnar, en skipveijum
tókst að losa úr skrúfunni áður
en aðstoð barst.
beinum peningaframlögum til út-
gerðarinnar er engin trygging fyr-
ir því að þeir peningar verði nýttir
til kaupa á aflaheimildum úr Hag-
ræðingarsjóði. Auk þess skal bent
á að Sjómannasamband íslands
hefur ávallt verið mótfallið hvers
konar sölum á aflaheimildum. Gild-
ir það hvort sem ríkissjóður á í
hlut eða einstakir útgerðarmenn.
Framkvæmdastjórn Sjómanna-
sambands Islands telur ekki koma
til greina annað en að aflaheimild-
um Hagræðingarsjóðs verði úthlut-
að beint í þessu skyni eins og áður
hefur verið gert við svipaðar að-
stæður. Jafnframt krefst SSÍ þess
að bætur til útgerðarinnar úr Hag-
ræðingarsjóði verði óframseljan-
legar.“
Bragi Krisijánsson fyrrv.
franik væm das tjóri látinn
Bragi Kristjánsson fyrrver-
andi framkvæmdastjóri póst-
málasviðs Pósts og síma lést á
Landakotsspítala föstudaginn
4. september 71 árs að aldri.
Bragi fæddist 27. ágúst 1921 í
Reykjavík, sonur hjónanna Krist-
jáns Helgasonar verkamanns þar
og Valgerðar Halldóru Guðmunds-
dóttur. Hann varð stúdent frá
Menntaskólanum í Reykjavík 1941
og stundaði nám í viðskiptafræði
við Háskóla íslands 1941-44.
Bragi var skrifstofustjóri Nýbygg-
ingaráðs 1944-47, Fjárhagsráðs
1947-53 og fjárfestingadeildar
Innflutningsskrifstofu 1953-60.
Hann var forstjóri rekstrardeildar
Pósts og síma 1960-77, viðskipta-
deildar sömu stofnunar frá 1977
og síðar framkvæmdastjóri póst-
málasviðs til ársloka 1991.
Bragi átti sæti í Ólympíunefnd
íslands frá 1951 og var formaður
hennar 1954-62. Hann var í stjóm
Fijálsíþróttasambands íslands
1951-53 og formaður 1952, J
stjórn íþróttasvæðanna í Reykja-
vík 1950-58 og varaformaður
íþróttaráðs Reykjavíkurborgar
1962-66. Hann var í fulltrúaráði
Knattspyrnufélagsins Vals frá
iiaöQf-áttUsæti-í.jþjóðhátíðarnefnd-
Bragi Kristjánsson
Reykjavíkur 1958-68, í stjórn
Bamavinafélagsins Sumargjafar
1965-80, þar af formaður 1974-80
og í skólanefnd Fósturskólans
1974-78. Bragi var sæmdur heið-
ursorðu forseta Austurríkis, heið-
ursorðu Íþróttasambands Islands
og gullmerki FRÍ.
Bragi lætur eftir sig eiginkonu,
Steinunni Snorradóttur, og þijú
-uppkoœin-börji,------------------
yfirumsjón með rekstri þess.
Eignaraðilarnir og íþróttafélögin
sem em með afnot af húsinu eiga
að taka þátt í rekstrinum og sér
skólaskrifstofan um að innheimta
greiðslur samkvæmt samningn-
um.
Borgarstjóri sagði að greiðslur
frá Fjölbrautaskólanum í Breið-
holti vegna afnota af íþróttahúsinu
hefðu ekki skilað sér í tvö ár, þrátt
fyrir allar ítrekanir og skuldin
næmi nú um 3,2 milljónir króna.
Hefði því verið nauðsyn að herða
innheimtuaðferðina og grípa til
þess örþrifaráðs að loka íþrótta-
húsinu, því ekki gætu málin þró-
ast svona áfram.
Markús taldi fráleitt að stjórn-
endur skólans skyldu ekki standa
í skilum vegna einhvers tilfinn-
ingamáls eða álitaefnis um hvað
húsið ætti að heita. Sagði hann
að skiptar skoðanir væri um nafn-
giftina og að þessi umræða ætti
að fara fram í gegnum mennta-
málaráðuneytið, sem yfirboðara
Fjölbrautaskólans, við Reykjavík-
urborg.
Markús sagði að íþróttahúsinu
Austurbergi væri ætlað það hlut-
verk að þjóna sem best þeim
íþróttafélögum sem þarna væru
og nemendum skólanna í kring,
Fjölbrautaskólanum, Hólabrekku-
skóla og Fellaskóla.
Lífríki Tjarnarinnar
Grágæsir setja mik-
inn svip á Tjöraina
- segir Ólafur Karl Nielsen líffræðingur
AÐ MATI Ólafs Karls Nielsen líffræðings er lífríki við Tjörnina
í þokkalegu meðallagi um þessar mundir. Helst verður vart mik-
ils vaxtar í grágæsastofni, sem hér er orðinn staðbundinn, og
hreiðrar um sig við Tjörnina og svæðum þar í kring. Það kom
einnig fram í máli hans að viðgangur annarra andategunda væri
í meðallagi.
„Við Tjörnina verpa fimm
andategundir að staðaldri og eru
af ættum gráanda annars vegar
og kafanda hins vegar. Stokk- og
gargendur eru af ætt gráanda en
duggönd, skúfönd og æður eru
kafendur." Það var mat Ólafs að
viðgangur þeirra hefði annað
hvort verið í meðallagi eða í slöku
meðallagi. Hann kvað síðustu ár
hafa verið afleit í vexti stofanna
að undanskildu síðasta ári en þá
var veðurfar sérstaklega hag-
stætt.
Aðspurður um ágang máva á
Tjörninni segir Ólafur þá stað-
reynd ekki hafa afgerandi áhrif á
uppkomu unga. Um sé að ræða
sílamáva, sem í flestum tilvikum
sæki einungis í brauðmat. Þessi
ágangur þeirra á Tjarnarsvæðinu
er árviss en varir þó aðeins vorið
og út sumarið þar til mávurinn
heldur suður á bóginn á ný.
Ólafur segir að gróður á Tjörn-
inni hafi allt frá upphafi byggðar
í Reykjavík verið á undanhaldi.
„Nú eru allar háplöntur á borð
við þráðnykru, síkjamari og tjarn-
arlauk horfnar úr Tjörninni en því
valda þau efni, sem maðurinn
veitir í vötn og sjó,“ segir ólafur.
„Það sem helst einkennir gróðurf-
ar í Tjörninni eru ýmsar tegundir
þörunga, sem þar eru oft í miklu
magni.“
„Eitt er það öðru fremur,“ seg-
ir Ólafur, „sem stendur upp úr
eftir sumarið og það er hinn mikli
fjöldi grágæsá, sem setur mikinn
svip á Tjarnarlífið." Stofninn, sem
aðallega heldur sig á Álftanesi,
telur nú um 12 hundruð einstakl-
inga en gæsirnar eiga varpstöðvar
sínar á Tjörninni.
Garðar á Álftanesi
Söluand-
virðið í
Kristnisjóð Þroskahjálp um Kópavogshælið
Allir vistmenn ættu
að búa á sambýlum
SOLUANDVIRÐI jarðarinnar
Garðar á Álftanesi, tæplega 50
miHjónir króna, rennur í Kristni-
sjóð þar sem Garðar er kirkju-
jörð. Landbúnaðarráðuneytið er
seljandi jarðarinnar fyrir hönd
ríkissjóðs, en allar jarðir í eigu
ríkisins heyra undir það.
Að sögn Jóns Höskuldssonar
deildarstjóra í landbúnaðarráðu-
neytinu var við söluna haft mið af
landsölum á höfuðborgarsvæðinu
undanfarin ár, og jafnframt tekið
mið af aðalskipulagi Garðabæjar.
Miðað hefði verið við 500 þúsund
krónur á hektarann á því svæði sem
ætlað væri undir íbúðabyggð, eða
50 kr. á fermetrann, en lægra verð
þar sem yrði útivistar- og náttúru-
verndarsvæði.
Landssamtökin Þroskahjálp hafa skrifað heilbrigðisráðherra bréf,
þar sem Iýst er áhyggjum vegna þess vanda sem blasir við heimilisfólki
á Kópavogshæli í kjölfar síðustu fregna um niðurskurð á þjónustu í
stofnuninni. Kemur fram að samtökin hafa lengi talið að allir vismenn
á Kópavogshæli ættu að búa í sambýlum. Er skorað á heilbrigðisráð-
herra að skipa hið fyrsta nefnd sem falli um framtíðarskipan hælisins.
Ennfremur segir í bréfi Þroska-
hjálpar til heilbrigðisráðherra:
„Fækkun starfsmanna um 11 mun
hafa veruleg áhrif á lífshætti fólksins
sem þar býr og mikilvæg starfsemi
sem snertir daglegt líf heimilismanna
ýmist lögð niður eða stórleg skert.
Má þar nefna rekstur leikfanga-
Biskup Islands vísiter-
ar Dali og Snæfellsnes
BISKUP íslands, hr. Ólafur Skúlason, mun á komandi haustdög-
um vísitera Snæfellsnes- og Dalaprófastsdæmi ásamt konu sinni,
frú Ebbu Sigurðardóttur. 6. til 10. september verða heimsóttar
kirkjur og stofnanir í fyrrum Dalaprófastsdæmi en síðan verður
vísitasiunni fram haldið um Snæfellsnesið í byrjun október.
Heimsóknin hefst sunnudaginn
6. september í Hvammskirkju í
Dölum. Þar verður messað kl. 14
en sama dag verður messað í
Staðarfellskirkju kl. 21.00. Mánu-
daginn 7. september verður mess-
að í Staðarhólskirkju kl. 14.00 og
Skarðskirkju kl. 21.00. Þriðjudag-
inn 8. september, kl. 11.00, munu
biskupshjón heimsækja dvalar-
heimili aldraðra í Búðardal en kl.
16.00 sama dag verður messað í
Dagverðarneskirkju.
Miðvikudag og fimmtudag
verður síðan fram haldið en
Snóksdalskirkja verður síðasta
kirkjan í Dölum sem biskup heim-
sækir að þessu sinni.
í för með biskupshjónunum
verða prófastshjónin séra Ingi-
berg J. Hannesson og frú Helga
Steinarsdóttir. (Fréttatilkynning)
safns, tómstundastarf, hæfingu og
fleira. Samtökin harma að skilningur
er ekki á því hjá yfirvöldum hversu
skerðingin er alvarleg og lýsa fullum
stuðningi við foreldra og starfsfólk
sem standa vilja vörð um hagsmuni
íbúanna. Samtökin krefjast þess að
nú þegar verði stöðvuð þessi atlaga
að lífskjörum faltaðra á Kópavogs-
hæli og að ráðuneytið beiti sér fyrir
því að fjárveitingar til stofnunarinnar
verði hækkaðar þannig að a.m.k.
óbreytt starfsemi geti farið þar fram.
Minnt er á að á Kópavogshæli býr
mikið fatlað fólk sem ekki getur
barist fyrir rétti sínum sjálft og brýn
þörf er á að bæta kjör þess en ekki
að skerða þau eins og nú er verið
að gera.
Samtökin vöktu á því sérstaka
athygli við umfjöllun um ný lög um
málefni 'fatlaðra á þessu ári að Kópa-
vogshælið er skilgreint sem sjúkra-
hús og þeir sem þar dvelja falla utan
laganna. Samtökin hafa lengi talið
að allir íbúar Kópavogshælis ættu
að flytja þaðan á sambýli þar sem
dvöl á stofnun sem þessari samrým-
ist ekki nútímaviðhorfum um málefni
fatlaðra. Þá lögðu samtökin til að í
lög um málefni fatlaðra yrði bætt
ákvæði um að állir íbúarnir útskrifist
af stofnuninni á næstu fjórum árum
og að samið yrði við Ríkisspítalana
—um-að-fltöðu^Idlfylgi-Mtmtim—-'