Morgunblaðið - 06.09.1992, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 1992
7
Fær bamið þitt ekki tækifæri til
að njóta sín í skólanum?
Rannsóknir sýna að börn sem fá staðgóðan
morgunverð ná betri árangri í námi.
Niðurstöður rannsóknar sem gerð var á
skólabörnum leiða í ljós að vinnuhraði barn-
anna sem hófu daginn með hollum morgun-
verði var tæplega 10% meiri, þau sýndu 40%
betri árangur í samlagningu, 30% betri árangur
í margföldun og 13% betri árangur í rökhugsun.
ímyndunarafl þessa hóps var mun auðugra, þau
reyndust hugmyndaríkari, frjórri, úthaldsbetri
og höfðu mun meiri einbeitingarhæfileika en
börnin sem fengu kjamlítinn morgunverð.
Niðurstöðurnar sýna ótvírætt mikilvægi þess að börn
fái staðgóðan morgunverð og hollt nesti með sér í
skólann - einkum þegar haft er í huga að þau verja
allt að fjórðungi sólarhringsins í skólanum!
Rannsóknina gerði Dr. David P. Wyon, atferlisfræð-
ingur, að tilhlutan sænska mjólkuriðnaðarins. Kemur
þar skýrt fram hve námsgeta barnanna er nátengd
undirstöðumáltíð dagsins. Stillt var upp tveimur
samanburðarhópum þar sem börnin í hópunum
fengu ýmist kjarnlítinn morgunverð sem samanstóð
t.d. af tei og ristuðu brauði
með marmelaði, eða hollan
og uppbyggjandi morgun-
verð, s.s. mjólk eða mjólk-
urmat, korn, ávaxtasafa og
brauð með hollu áleggi.
Staðgóður morgunverður er forsenda þess að blóð-
sykurinn haldist í jafnvægi. Hér má sjá hvernig góður
og slæmur morgunverður hefur áhrif á líðan barn-
anna með tilliti til blóðsykurs.
Blóðsykurmagn
Blóðsykurmagn
f Eðlilegt magn ► Tími Eðlilegt magn
. Tími
Ófullnœgjandi morgunverður
veldurþví að blóðsykurmagn-
ið eykst snögglega en snar-
minnkar aðskammri stundu
liðinni og kemst langt niður
fyrirþað sem eðlilegt getur
talist.
Staðgóður morgunverður
eykur blóðsykurinn jafnt
ogþétt og heldur honum í
jafnvœgi í mun lengri tíma.
Foreldrar geta haft mikil áhrif á líðan barna sinna í
leik og starfi með því að sjá þeim fyrir staðgóðum
morgunverði. Skólanestið er ekki síður mikilvægt
forðabúr dagsins. Leggja ætti áherslu á hollan mat og
ósæta drykki sem veganesti barnanna út í lífið.
Skólamjófkin er tif í handhægum um-
búðum sem barnið getur gripið til
hvenær sem er. Mjólkin er ein kalk-
ríkasta fæða sem við neýtum að jafnaði,
hún er auk þess auðug af próteini,
fosfóri, ýmsum B-vítamínum, zinki,
magníum og kalíum og gefur einnig
A-vítamín o.fl. efni sem eru iíkamanum
nauðsynteg.
MJOLKURDAGSNEFND
HVlTA HÚSIÐ / SlA