Morgunblaðið - 06.09.1992, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 1992
11
Fram kemur að yf irvinna við f íknief narannsóknir
hafi verið skorin niður um f jórðung fró því í
ógúst ó síöasta óri, vegna sparnaðar í ríkis-
rekstri, og vegna þess að starf smenn fíkniefna-
deildarinnar hafa verið lótnir vinna við önnur
verkef ni, til dæmis löggæslu í Reykjavík um
helgar, og vinnu við komu erlendra þjóðhöfðingja
stakkur sem deildinni sé skorinn með
starfsskipulag hafí teflt málum í tví-
sýnu. í skýrslu sem stjórn Lögreglu-
félags Reykjavíkur kynnti fyrir rúm-
um þremur árum og kallaði svörtu
skýrsluna var því haldið fram að iðu-
lega ynnu lögreglumenn í fíkniefna-
deild að rannsókn mála launalaust í
frístundum sínum vegna þess að
ekki fengjust nægar fjárveitingar.
Að sögn lögreglumanna í fíkniefna-
deild hefur þetta lengi tíðkast og er
jafnvel talinn allt að því óhjákvæmi-
legur fylgifiskur þessa starfs, eink-
um meðan mál séu á frumstigi og
verið sé að afla upplýsinga til að
ákveða hvort fylgja eigi máli eftir.
Sambönd við upplýsingaaðila séu
persónulegs eðlis, ræktun þeirra
tímafrek og erfitt að framselja þau
til annarra. Fjölmörg mál bæði fyrr
og síðar hefði aldrei tekist að upp-
lýsa án þess að fram hefði verið lögð
launalaus vinna, og eigi það meðal
annars við um kókaínmálið sem nú
er til meðferðar.
Þegar rætt er um íjárhagslegt og
stjórnunarlegt sjálfstæði fíkniefna-
lögreglu vísa lögreglumenn gjarnan
til máls frá því í vor þegar fíkniefna-
lögregla vildi senda tvo lögreglu-
menn til Hollands að fylgjast þar
með manni sem talið var að ætlaði
að kaupa fíkniefni. Talið var nauð-
synlegt að senda tvo menn til að
fylgjast með ferðum mannsins allan
sólarhringinn þannig að öryggis væri
gætt og komast að því hveijum hann
fæli að flytja efnið til landsins. Ekki
fékkst leyfí til utanfararinnar og
ekki hefur tekist að sanna að viðkom-
andi maður eigi þátt í aukinni eftir-
spurn á LSD á götum borgarinnar í
vor.
Fjárveitingar skornar niður í
fimm ár
Aðspurður hvort meira hefði verið
skorið af yfírvinnu fíkniefnalögreglu
en annarra deilda embættisins sagði
Böðvar Bragason að sú væri raunin
þegar litið væri til lengri tíma og það
ætti sér einfaldlega þær skýringar
að þar hefði verið meiri yfirvinna en
annars staðar. Undanfarin fímm ár
hefðu fjárveitingar til löggæslu í
borginni stöðugt farið minnkandi.
Hann staðfesti að upplýsingar um
fjórðungs niðursKurð til deildarinnar
á síðastliðnu ári væru nærri lagi.
Böðvar kvaðst vera ábyrgur fyrir
fjármálum embættisins og vegna
þeirrar ábyrgðar hefði hann á stund-
um orðið að leggjast gegn útgjöldum
sem Björn Halldórsson hefði viljað
ráðast í sem yfirmaður fíkniefna-
deildar en sagði þó að sem stjórn-
andi þeirrar deildar væri það Björn
Halldórsson sem tæki ákvarðanir um
hvernig verkefnum deildarinnar væri
raðað í forgangsröð, hvaða mál væru
rannsökuð og hver ekki.
Er hægt að ná árangri?
En er — burtséð frá skipulagi
fíkniefnarannsókna — raunhæft að
gera ráð fyrir því að hægt sé að ná
árangri í baráttu við vímuefni með
því að koma á fót einhveiju skipu-
lagi og vetja til þess miklum íjármun-
um? Er jafnvel raunhæft að setja sér
markmið um að draga úr fíkniefna-
vandanum eða uppræta hann hér á
landi?
Allir þeir sem málið var borið und-
ir voru sammála um að síðastnefnda
markmiðið væri óraunhæft og einn
viðmælandi gat þess að nú þegar
væri tollskoðun og tollleit, einkum í
farþegaflugi, víðtækari á íslandi en
í flestum öðrum löndum. Flestir voru
þó á því að betri viðspymu mætti
ná. Böðvar Bragason lögreglustjóri
sagði að hann teldi mest um .vert á
þessu sviði að efla fræðslu þannig
að fólk væri sér betur meðvitað um
hugsanlegar afleiðingar þess að láta
tilleiðast að fikta við fíkniefni. Málið
yrði aldrei leyst með löggæsluleiðum
einungis heldur þyrfti að huga að
ýmsum öðrum þáttum. Hann kvaðst
þegar hafa reifað hugmyndir við ijár-
veitingarvaldið um að með fjölgun
um átta stöðugildi til embættisins
mætti efla eftirlit sýnilegu löggæsl-
unnar, sem beindist aðallega að neyt-
endum og götunni en auk þess eins
og fyrr var rakið vinnur hann að til-
lögum um framtíðarskipulag lög-
gæslu í nefnd á vegum dómsmála-
ráðuneytisins.
Björn Halldórsson lögreglufulltrúi
í fíkniefnadeild sagði að ef menn
vildu takast á við fíkniefnamálin og
ná árangri í því að gera innflutning
og dreifingu fíkniefna til landsins
erfiðari og áhættusamari þyrfti að
byija á því að hefjast handa við að
kanna hve umfangsmikið vandamálið
væri orðið, með því að áætla fjölda
neytenda, hve mikið af hvernig fíkni-
efnum sé í umferð á hveijum tíma,
breytingar á márkaði, og inna af
hendi aðra þá vinnu sem nauðsynleg
sé til að gera sér ljóst umfang vanda-
málsins. I framhaldi af því beri að
ákveða hvað sé til ráða, marka stefnu
út frá því og fela einhveijum aðila
að framfylgja þeim markmiðum.
Björn kvaðst hafa efasemdir um það
að þyngja refsingar almennt en beita
mætti refsingum öðruvísi og til
greina kæmi að sínu mati að að
þyngja refsingar við dreifingu fíkni-
efna í grennd við skóla og samkomu-
staði unglinga. Auk þess þyrfti að
sjá fyrir því að starfhæfar væru þær
stofnanir í þjóðfélaginu sem þyrftl
til að takast á við hinar ýmsu afleið-
ingar vímuefnanotkunar.
Þórarinn Tyrfíngsson formaður
SAA sagðist aðspurður telja að til
að ná árangri í baráttu við fíkniefni
þyrfti að leita fanga víða. Á stundum
virtist þó gleymast í umræðunni að
ýmis konar árangur hefði þegar
náðst og þótt staðfest virtist að
neyslan væri að aukast í yngri ald-
urshópum þá sýndu tölur svo ekki
yrði um villst að meðferð bæri mik-
inn árangur í aldurshópum eldri neyt-
enda en 25 ára, þar sem ekki yrði
séð að neytendum amfetamíns hefði
ijölgað frá'1985. Að sumu leyti virt-
ist sér sem eina breytingin á þessu
sviði sem orðið hefði síðan þá og
hönd væri á festandi væri sú að fjöl-
miðlaumræða væri miklu meiri og
opnari. Þegar rætt væri um frekari
aðgerðir mætti vissulega gera sér
vonir um frekari árangur en þá þyrfti
að huga að ýmsum þáttum, bæði
skynsamlegri löggjöf og löggæslu,
meðferðarúrræðum, félagslegri þjón-
ustu að lokinni meðferð, svo og for-
vörnum í víðtækum skilningi, en með
þeim mætti ef til vill fækka svoköll-
uðum tilraunaneytendum.
Þórarinn sagði að við umtal um
aukinn niðurskurð til mála af þessu
tagi setti að sér ugg, þar sem ljóst
væri að frekari niðurskurður bitnaði
á engu nema þjónustunni og kvað
fólk sem starfaði að þessum málum
biði spennt eftir því að fjárlagafrum-
varp ríkisstjórnarinnar yrði lagt fram
í október.
OKKAR METNAÐUR
ER ÞINN ÁRANGUR!
Fjölbreyttir og vandaðir tímar við allra hæfi. Frjáls mæting. Takmarkaður fjöldi í tíma.
STÚDÍÓ JÓNÍNU & ÁGÚSTU
Skeifan 7, 108 Reykjavík, sími 689868
MÁNUD./MIÐVIKUD.
9.00-10.00 FITUBR.1
10.00-11.00 FITUBR.LOK
10.10-11.00 MR8.LT
11.00-11.50 MR8.LT
12.07-13.00 TRÖ.HRING
12.07-13.00 ÞREKHR.
14.00-15.00 FITUBR. 2
14.50- 15.00 MR<
15.00-15.50 MR<
15.00-16.00 FITUBR.LOK
16.30- 17.30 FITUBR.1
16.35-17.25 MR<
17.00-17.50 MR&L
17.25- 18.15 MR<
17.30- 18.30 FITUBR.2
18.15- 19.25 ÞR.HR.
18.30- 19.50TRÖ.HR.
19.00-20.00 FITUBR.1
19.25- 20.15 MR<
19.50- 20.50 FITUBR.LOK
20.00-21.00 FITUBR.1
20.15- 21.15 KARLARLOK
20.50- 21.50 FITUBR.2
ÞRIÐJUD./FIMMTUD.
SÍMAÞJÓNUSTA HEFST
KL 10.30
11.00-11.50 MR<
12.07-13.00 KARLAR LOK
14.00-14.50 MR<
14.10- 15.10 TRÖPPUR 1
14.50- 15.40 MR<
15.10- 16.10 FITUBR.2
16.30- 17.30 TRÖPPUÞR.1
17.00-18.00 FITUBR.1
17.25- 18.25 ÞR.HR+TRÖ.
17.30- 18.30 FITUBR.2
18.00-19.00 FITUBR.1
18.25- 19.15 MR<
18.30- 19.30 FITUBR.2
19.00-19.50 BARNSHAF.
19.15-20.05 MR<
19.30- 20.30 TRÖ.HRI.
20.00-20.50 MR&L
20.05-21.05 KARLAR LOK
20.30- 21.30 FITUBR.LOK
20.50- 21.50 FITUBR.1
FÖSTUD.
9.00-10.00
9.20-10.10
10.00-11.00
10.10-11.00
12.07-13.00
12.07-13.00
14.00-15.00
15.00-16.00
16.25-17.15
16.30-17.20
16.35- 17.35
17.15-18.20
17.35- 18.35
17.45-18.55
18.20-19.10
18.55.19.55
19.10-20.00
TRÖ.HRI.
MR<
FITUBR.LOK
MR<
ÞR.HR.
TRÖPPUR
TRÖPPUR
FITUBR.LOK
MR<
MR&L
TRÖPPUÞR.1
ÞR.HR.
FITUBR.1
FITUBR 2+
MR<
FITUBR.FUNK
MR<
LAUGARD.
9.30-10.30
10.00-10.50
10.30- 11.30
11.00-12.00
11.30- 12.30
11.45- 12.35
12.00-12.50
12.30- 13.30
12.50- 13.40
12.50- 13.50
13.30- 14.30
13.45- 14.45
14.30- 15.15
15.15-16.00
16.00-16.45
FITUBR.LOK
MR<
FITUBR.1
ÞR.HR+TRÖ.
FITUBR.2
BARNSHAF.
MR<
FITUBR.LOK
MR<
KARLAR LOK
TRÖ.HRING
TRÖPPUR
BÖRN 10-12
BÖRN 7-9
BÖRN 5-6
FITUMÆLINGAR
BARNAGÆSLA: MÁND. OG
MIÐD. 9.00-12.00 OG
14.00-16.00, ÞRID. OG
FIMD. 14.00-16.00.
FÖSD. 9.00-11.00 OG
14.00-16.00.
MR<=Magi, rass og læri i tækjum. Styrkjandi æfingar í
tækjasal fyrir byrjendur. Leiðbeinandi stýrir hópnum.
ÞR.HR.+TRÖPPUR=Tækjaleikfimi og tröppujjrek í
bland. Stöðvaþjálfun. Hörkutimar. Enginn dans!
MR&L=Magi, rass og læri. Styrkjandi æfingar fyrir
byrjendur.
TRÖPPUHRINGUR= stöðvaþjálfun með tröppum.
Hörkutímar fyrir fólk í gððu formi.
FITUBR.FUNK=Oúndur funk fitubr. funk tónlist.
TRÖPPUPREK1 =Góðir tímar fyrir þá sem eru að bytja í
tröppuþreki.
FIRJBR.LOK=Lokuð 8 vikna námskeið með fræðslu og
aðhaldi.
FITUBR.2=Meiri hraði, mjúkt og hart eróbikk, mikil
fitubrennsla.
TRÖPPUÞREK 2=Fyrir lengra komna, meiri hraði, mikil
brennsla, góð styrking.
FITUBR.1 =Mjúkt eróbikk, mikil fitubrennsla, 10 mín gólfæf.
ekkert hopp.