Morgunblaðið - 06.09.1992, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 1992
23
að lítið fari fyrir því. Búnaðurinn
og framkvæmdin við framleiðsluna
er mjög einföld. Allt sem þarf er
olía og fáein einföld efni, parafín og
eldur. Vöndur af þurrkuðum kóka-
blöðum er leystur upp í parafíni og
brennisteinssýru. Síðan er hann hit-
aður upp og hristur. Úr þessu verð-
ur til fyrrnefnt pasta sem síðar á
framleiðslustiginu er leyst upp ann-
aðhvort í eter eða asetoni og úr því
verður til hvítt kókaínduft eða svo-
nefnt kókaínklóríð.
Efnið gengur næst manna á milli
og má líkja ferlinu við pýramída.
Neðst í honum eru bændurnir sem
lifa einföldu lífí ræktandans og láta
afurðir sínar í hendur fjölda sölu-
manna, sem stig af stigi gerast rík-
ari í samræmi við aukna álagningu
og gróða. Á toppnum eru svo „kóka-
ínbarónar", vellauðugir sem standa
vörð um auðæfi sín með her líf-
varða, brynvarðar bifreiðar og af-
mörkuð virki.
Sé kókaín selt í Perú fást um tíu
dollarar fyrir grammið en þá er það
líka seit af sölumönnum sem teljast
neðarlega í pýramídanum. Toppmenn-
imir einbeita sér aðallega að útflutn-
ingi enda er gróðinn þar mestur.
Kókaínið lýtur sömu lögmálum
og til dæmis bensín og ál í alþjóðleg-
um viðskiptum. Verð þess er sveiflu-
kennt og ræðst af framboði og eftir-
spurn. I dag er verð á kókaíni frem-
ur lágt vegna gífurlegs framboðs á
heimsmarkaðinum. Einnig ræðst
verðið af hreinleika efnisins og auð-
vitað einnig af því hve mikið magn
er keypt í einu því gefinn er ríflegur
magnafsláttur. Sé keypt eitt kíló-
gramm af kókaíni í Perú kostar það
frá tvö til fimmþúsund dollara, en
eins og áður sagði kostar grammið
tíu dollara á götu sem er tvisvar til
fimm sinnum dýrara hvert gramm
ef það er keypt í svo litlu magni.
Efninu er svo smyglað til Norður-
Ameríku»og Evrópu. Stundum sem
mjólkurdufti, rottueitri eða þvottaefni.
Þegar kókaínið kemst á götur New
York kostar grammið sjötíu og fímm
til hundrað dollara og komið á götu
í Berlín kostar grammið hundrað til
tvö hundruð dollara og kíióið 41.000-
49.000 dollara, sem eru um 2,4-2,8
milljónir íslenskra króna.
Til að gera sér grein fyrir mögu-
legum fjárútlátum forfallins kóka-
ínneytanda eru til dæmi um menn
sem neyta allt að einu grammi á
sólarhring sem er andvirði átta til
sautján þúsund króna miðað við
gangverð hér á landi eða á bilinu
180-360 þúsund á mánuði. Það skal
þó tekið fram að neysla á slíku
magni getur ekki staðið yfir í langan
tíma án alvarlegra afleiðinga. Verðið
er eins og sjá má mishátt og ræðst
það af hreinleika efnisins.
Kókaín, ólyfjan eða lyf
Margir mætir og virtir menn hafa
stigið fram á sjónarsviðið og lofað
lækningamátt og hollustu kókaíns-
ins. Leo XIII páfi fór ekki dult með
neyslu sína á kókavíninu sem ítalsk-
ur vísindamaður hóf framleiðslu á í
nafni lækningamáttar á átjándu öld.
Bókmennta- og listaheimurinn tók
þessari „guðsgjöf" opnum örmum
og sem dæmi um það er afrakstur
sex daga neyslu rithöfundarins Rob-
erts Louis Stevensons á kókaínduft-
inu en þá skrifaði hann hina heims-
frægu skáldsögu um lækninn sem
varð geðklofi við neyslu undraefnis
og gekk undir nöfnunum Dr. Jekyll
og Mr. Hyde eftir því í hvaða ástandi
hann var.
Sir Arthur Conan Doyle lét sögu-
persónu sína, Sherlock Holmes neyta
kókaíns í sögum sínum sem hann
ritaði eftir 1890. Margir vildu taka
sér þennan gáfaða og útsjónarsama
spæjara til fyrirmyndar og auðvitað
töldu menn að kókaínið væri hluti
af leyndardómnum að baki visku
hans og ótrúlegri útsjónarsemi.
Sigmund Freud neytti kókaíns
rétt fyrir aldamótin síðustu en hætti
neyslu þess er hann gerði sér grein
fyrir hættunni sem af því stafaði.
Þó er eitthvert frægasta dæmi um
notkun og neyslu kókaíns sem „lífs-
bætandi" efnis, notkun þess í hinn
heimsfræga drykk Coca
Cola sem upphafiega var
settur á markað sem hress-
ingar og heilsubætandi
drykkur en fram til 1906
var kókaíni bætt í hann og
er þar komin ástæðan fyrir
nafninu „Coca“ Cola.
í dag er kókaín eitt af
vinsælustu og dýrustu eit-
utiyfjum í heiminum.
Uppræting
kókaíniðnaðarins
I Púnó sem er fylki í
suð-austurhluta Perú er
stór skagi sem nefnist
Capachica og er líkt og
fingur að lögun sem teygir
sig út í hið fræga Titicaca
vatn. Um þennan skaga
fara hvorki almennings-
vagnar né lestir. Þessi stað-
ur er algerlega úr sam-
bandi við umheiminn nema
þann hluta hans sem telst
til undirheima eiturlyfja-
verslunar. Rykugir vegirnir
sem liggja að Capachica
eru lokaðir með keðjum
sem á stendur „aðgangur
bannaður". Menn fara sér
hægt í nágrenninu. Enginn
vill eiga á hættu að styggja
þá sem handan keðjunnar
eru. Fyrir innan eru verk-
smiðjur kókaínbaróna, sem
framleiða undraefnið sem
færir framleiðendum þess
og sölumönnum gífurleg
auðæfi með því að leggja
líf manna í rúst og eyða.
Lögregla hefur ekki heimsótt
þennan stað í fleiri ár. Við síðustu
heimsókn hennar varð hún að flýja
undan vel skipulagðri mótspyrnu
sem hersveitir kókaínbarónanna
héldu uppi með leyniskyttum og
háþróuðum vopnum. Og það sem er
merkilegt er að síðan þetta g'erðist
hefur lögreglan í Púnó háft yfir
mjög miklu fjármagni að ráða sem
ekki kemur frá því opinbera og er
ekki heldur notað til þess að berjast
gegn framleiðendum eiturlyfja.
Af þessu er ljóst að það reynist
ekki auðvelt að uppræta ræktun og
sölu þessa eiturs sem leggur líf neyt-
enda þess í rúst og veldur félagsleg-
um glundroða í velferðarþjóðfélögum
Vesturlanda um leið og það „frelsar"
fátæka úr ánauð og veitir spilltum
embættismönnum gnægð fjár.
Smábóndinn í Perú stingur hand-
plóg sínum í jörðu, sáir fræum
kókaplöntunnar og efast ekki um
það í draumum sínum að þannig fái
hann kostaðar rafhlöður í litla út-
varpið sitt og einhverntíma seinna
þegar hann hefur aukið framleiðsl-
una geti hann ef til vill keypt sér
vörubíl, stöðutákn þess sem á pen-
inga í Andesfjöllum.
Höfundur starfar við
kvikmyndagerð og dvaldi
í Perú á síðasta ári.
Neysla kókaíns getur haft ófyrirsjáanleg-
ar afleiðingar, og fyrir suma reynist of
seint að leita sér hjálpar.
Ræktun og sala kókaplöntunnar fær
drauma móðurinnar til að rætast, drauma
um mannsæmandi líf fyrir sig og börnin.
Fyrirlestrar um jarðhita í Bandaríkjunum
JARÐHITASKÓLI Háskóla
Sameinuðu þjóðanna býður á
ári hveiju erlendum fræði-
manni til íslands til að flytja
fyrirlestra um jarðhita. Gesta-
fyrirlesari Jarðhitaskólans á
þessu ári er dr. Patrick Muffl-
er, jarðfræðingur hjá Jarð-
fræðistofnun Bandaríkjanna í
Menlo Park í Kaliforníu.
Muffler flytur fimm fyrirlestra
á ensku í fundarsal Orkustofnun-
ar, Grensásvegi 9, dagana 7,—11.
september nk. Fyrirlestrarnir hefj-
ast kl. 10.00. Efni fyrirlestranna
er eftirfarandi:
Mánudagur 7. september:
Magmatic contributions to hydrot-
hermal systems.
Þriðjudagur 8. september: Geo-
thermal resource assessment —
current perspectives.
Miðvikudagur 9. september:
The Geysers geothermal area in
the 1990’s.
Fimmtudagur 10. september:
Tectonics and geothermal resourc-
es of the Cascade Range.
Föstudagur 11. september: Ge-
othermal controversy in Hawaii.
Dr. Patrick Muffler hefur verið
í framlínu jarðhitarannsókna í
Bandaríkjunum sl. tvo áratugi og
m.a. verið yfírmaður í jarðhita-
og eldfjallarannsókna Jarðfræði-
stofnunar Bandaríkjanna. Hann
hefur skrifað fjölda fræðigreina í
alþjóðleg tímarit, m.a. um aðferðir
við jarðvarmamat fyrir heil héruð
og þjóðlönd. í einum fyrirlestranna
mun hann fara yfír hvernig hinar
ýmsu aðferðir við jarðvarmamat
hafa reynst. í síðasta fyrirlestrin-
um mun hann fjalla um deilur
milli umhverfísverndarmanna og
eigenda jarðgufuvirkjunar á
Hawaii-eyjum, sem leitt hafa til
tímabundinnar lokunnar virkjun-
arinnar.
Fyrirlestrarnir eru öllum opnir.
(Fréttatilkynning)
NAMSAÐSTOÐ
viú þá sem viCja ná vaíáL á námi sínu í skóía
- grunnskóCa - framhaídsskóía - háskóCa
FYRIR HVER|A? Námsaðstoð er t.d. t’yrir:
• þá sem þurfa að ná sér á strik í skólanámi
• þá sem hafa skipt um skóla og þurfa að ná
upp yfirferð í nýja skólanum
• þá sem vilja rifja upp námsefni fyrir frekari
skólagöngu eða til nota í d,aglega lífinu
10. bekkingar athugið!
Undirbúningur fyrir samræmd próf í ÍSLENSKU
STÆRÐFRÆDI, ENSKU og DÖNSKU!
• Stutt námskeið - misserisnámskeið
• Litlir hópar - einstaklingskennsla
• Reyndir kennarar með kennsluréttindi
• Mikið ítarefni - mikil áhersla lögð á námstækni
Strætisvagnaferðir eru úr öllum borgarhverfum,
Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði og Mosíellsbæ
Og hvað segja nemendurnir um þjonustuna?
"Ég vildi að ég hefði byrjað fyrr"
"Besta kennsla sem ég hef fengiö"
"Allt skýrt út fyrir mér á einfaldan hátt"
"Góður undirbúningur fyrir próf"
"Mjög góðir kennarar"
"Ég hækkaði mig um fimm heila í einkunn"
"Ég lærði þriggja ára námsefni á einu ári"
"Mjög vingjarnlegt andrúmsloft"
Skólanemar athugið! Námsaðstoð í byrjun
annar nýtist ykkur alla önnina. Geymið ekki
að undirbyggja nám ykkar þar til það er
orðið of seint. Munið að nám tekur tíma.
Upplýsingar og innritun kl. 14.30- 18.30
virka daga í síma 79233 og í símsvara
allan sólarhringinn. Fax: 79458
Nemendaþjónustan sf.
Þangbakka 10, Mjódd.
HAGKAUP
-aUt í einni Jerö
PÓSTVERSLUN - GRÆNT NÚMER 99 66 80