Morgunblaðið - 06.09.1992, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 1992
29
Minning
Þorgerður Þórarins-
dóttír frá Gottorp
Fædd 30. nóvember 1918
Dáin 30. ágúst 1992
Þorgerður Þórarinsdóttir,
tengdamóðir mín til 30 ára, lést
hinn 30. ágúst í Landspítalanum.
Þorgerður náði ekki tiltakanlega
háum aldri en varð að lúta í lægra
haldi fyrir lungnameini af flokki
sjúkdóma, sem við ráðum ekki
nægilega vel við enn sem komið er.
Þorgerður fæddist á Blönduósi ann-
að af fimm börnum Sigurbjargar
Jóhannsdóttur og Þórarins Þorleifs-
sonar á Skúfi í Norðurárdal. Þórar-
inn var mannkostamaður í héraði
og landskunnur hagyrðingur. Móðir
Þórarins var Steinvör Gísladóttir,
systir séra Skúla á Breiðabólsstað
og Árna sýslumanns í Skaftafells-
sýslu en þau voru börn Ragnheið-
ar, dóttur Vigfúsar Thorarensens á
Hlíðarenda og séra Gísla Gíslasonar
í Vesturhópshólum. Sigurbjörg var
af rótgrónum húnvetnskum bænda-
ættum.
Árin upp úr heimsstytjöldinni
fyrri voru mörgum erfið í landi
okkar. Því olli róttæk uppflosnun
og röskun á mannlífi víða um land.
Alls staðar blasti við stöðnun í við-
skipta- og atvinnulífi þjóðarinnar
ásamt almennu peningaleysi og í
mörgum dæmum vöntun á jarð-
næði. Á þessum árum kom vel á
daginn hinn sérkennilegi flutningur
íslendinga milli stétta eða öllu held-
ur hið almenna stéttleysi í landinu.
Ættsterkir menn af eignafólki voru
nú blásnauðir margir hverjir og
urðu að leggja nýjan grunn að
bættum efnahag. Éoreldrar Þor-
gerðar áttu hvorki jörð né fastan
samastað á fyrstu búskaparárum
sínum en börnin komu í heiminn
hvert af öðru. Þorgerður, sem var
annað í röðinni barna þeirra, var
látin í fóstur til góðvina og frænd-
fólks í Gottorp en þau voru Ásgeir
Jónsson og Ingibjörg Björnsdóttir.
í Gottorp var lítið en ákaflega vand-
að bú því Ásgeir var afburðamaður
um ræktun og umhirðu búfjár. í
Gottorp elst Þorgerður upp við hinn
óbreytta heim hins íslenska hjarð-
lífs og síðar meir átti hugur hennar
sér aldrei traustari huggara en
minningarnar um svipfrítt fé og
fjöruga hesta. Hin vandvirku hjón
í Gottorp lögðu rækt við uppeldi
Þorgerðar og annarrar fósturdótt-
ur, sem var Stefanía Jónsdóttir.
Þorgerður var send í Kvennaskól-
ann á Biönduósi og mátti þá heita
vel gert um fóstur hennar. Þessi
var umgjörðin um líf Þorgerðar
framan af ævinni og dugði henni í
hina klassísku og upphöfnu mynd
hinnar íslensku sveitasælu.
Upp úr 1930 ræðst sem kaupa-
maður í Gottorp bróðursonur Ás-
geirs, Steinþór, nýútskrifaður frá
Hólum og Haukadal. Þeir frændur
voru báðir niðjar Ásgeirs Einars-
sonar á Þingeyrum. Samdráttur
verður milli Þorgerðar og Steinþórs
og ganga þau í heilagt hjónaband
árið 1938. Hefst nú nýr kafli í ævi
Þorgerðar, ákaflega ólíkur hinum
fyrsta. Hún sogast nú inn í ókyrrt
og öfgafullt líf hinnar vaknandi
höfuðborgar Islands.
Hvað gerum við í áttavillu hinnar
óræðu tilveru? Margir leita til trúar-
bragða, aðrir í mannasetningar, þar
á meðal pólitísk byggingarverk.
Allt er þetta fallva.lt og verður að
lokum að myllusteini eða steinbarni
vegna þess að kerfin eru ósveigjan-
leg og megna ekki að umlykja hið
kvika og síbreytilega sannleiksverk
lífsins. Þorgerður fékk að reyna
þetta biturlega þegar haldreipi
hennar í heimi pólitískra kenninga
tók að trosna og slitna að lokum.
í tilveru Þorgerðar mátti greina
tvö höfuðskaut. Annað þeirra var
heimilið og þau traustu gildi sem
héldu því uppi en hitt var hin sterka
pólitíska sannfæring hennar sótt í
smiðju marxista. Hafi trúin á
óskeikulleik rauða kversins ein-
hvern tímann séð framan í svo sem
eina veikburða efasemd verður slíkt
aldrei sagt um óbilandi staðfestu
hennar gagnvart skyidum húsmóð-
ur og eiginkonu. Líkt og aðrar vitr-
ar konur gerði Þorgerður sér grein
fyrir því að viðspyrnan á heimili og
umráðin yfir búlyklunum veita
handhafanum óvinnandi vígstöðu.
Á þessum palli vann Þorgerður
mörg sín fegurstu verk og hafi
hugtakið gestrisni búið við óvissu
um skeið hlaut það í höndum Þor-
gerðar fulla uppreisn. Vinir og niðj-
ar hafa löngum gert sér tíðförult á
heimili Þorgerðar og Steinþórs.
Húsmóðirin og ættmóðirin var þá
ekki sein á sér að bera fram veiting-
ar enda sá Steinþór um að ekkert
skorti. Samtímis gerði Þorgerður
gestinn að vitsmunaveru með áleit-
inni umræðu um hin ólíkustu efni.
Gat mönnum þá ekki dulist að Þor-
gerður var um margt óvenju vel
lesin á íslenskt efni, bæði í bundnu
og óbundnu máli, enda var daglegt
málfar hennar nær óaðfinnanlegt.
Á æviferil sem um margt ein-
kennist af velgengni þeirra Stein-
þórs lagðist dimmt sorgarský er þau
misstu eina son sinn, Ásgeir Þór,
en hann lést úr bráðri heilahimnu-
bólgu aðeins fimm ára gamall árið
1946. Mér býður í grun að þetta
áfall hafí breytt persónuleika Þor-
gerðar dýpra og varanlegar en
venjulega gerist við svona missi;
ekki er laust við að nokkurrar
kergju hafi stundum gætt í fari
hennar og ekki laust við biturleik.
í Reykjavík eignast þau fjölda
vina og taka upp spilamennsku í
frístundum. Þau urðu með tímanum
slyngir bridsspilarar og Þorgerður
Islandsmeistari oftar en einu sinni
og seinast er hún stóð á sjötugu
árið 1988.
Þegar Ásgeir og Ingibjörg hætta
búskap í Gottorp kaupa Þorgerður
og Steinþór jörðina enda gegnir
Gottorp miklu hlutverki í sögu og
tilfinningalífi þeirra beggja. Er
skemmst frá því að segja að í Gott-
orp hafa þau varið tíma, fyrirhöfn
og miklum íjármunum þannig, að
nú blunda á jörðinni miklir mögu-
leikar til búskapar og veiðimennsku
ef ötular og hugmyndaríkar mann-
eskjur koma þar að. Um tíma gengu
í Gottorp hundrað hestar enda bæði
hugur og dugur til að hafa þar
mikið umleikis. Annir í borginni og
þó nokkur vegalengd norður að
Hópi drógu úr möguleikanum til
þess að gefa búskapnum þá um-
hirðu sem nauðsynleg er og því
seglin dregin saman nú seinni árin.
Ferðir í Gottorp hafa þó ávallt ver-
ið tiðar og vandamenn hvattir til
að gista staðinn sem oftast.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
GUÐJÓN J. BRYNJÓLFSSON
blikksmíðameistari,
Fannborg 8,
lést í Borgarspítalanum 4. september.
Sigri'ður G. Steindórsdóttir,
Bryndís F. Guðjónsdóttir, Hafsteinn Þ. Stefánsson,
Steindór V. Guðjónsson, Erla Mari'a Eggertsdóttir,
Jófri'ður Guðjónsdóttir, Gunnar Randver Ingvarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför ömmu
okkar
HÓLMFRÍÐAR SIGURJÓNSDÓTTUR
frá Siglufirði.
Sérstakar þakkir eru færðar forstöðukonu og starfsfólki Hrafn-
istu, Hafnarfirði, fyrir góða umönnun.
Hólmfríður Magnúsdóttir,
Gunnlaugur Jón Ólafur Magnússon,
Jóhann Magnússon.
Þorgerður, líkt og margir sem
hafa lifað tvenna tíma í landinu,
átti ekki alltaf gott með að samsam-
ast hugmyndum borgarbúans;
sveitin átti óafmáanleg ítök í hug
og hjarta. Hinar meitluðu skoðanir
Þorgerðar ollu stundum nokkurri
gliðnun milli hennar og sumra nán-
ustu ættingjanna sem hún bar þó
mjög fyrir brjósti. Þetta kom þó
ekki niður á dótturdóttur hennar,
Þorgerði, sem þau Steinþór tóku í
fóstur tveggja ára gamla. Hafa þau
alið upp þetta barnabarn sitt af
slíkri kostgæfni og umhyggju að
einstakt má teljast. Hún hefur ekki
brugðist vonum þeirra en sýnt í
verki að hún kann að meta þá mikiu
alúð sem þau hafa lagt við uppeldi
hennar.
Að leiðarlokum verður ekki ann-
að sagt en að Þorgerður hafi búið
við talsvert veraldarlán. Hafi gert
vart við sig sársauki vegna viðskiln-
aðar við rétta foreldra hefur hann
orðið að engu því hvort tveggja
var, að fósturforeldrar Þorgerðar í
Gottorp veittu frænku sinni gott
og kærleiksríkt uppeldi sem og hitt,
að snemma mynduðust sterk tengsl
við foreldra og systkini í Skúfi.
Hefur Þorgerður sýnt systkinum
sínum og börnum þeirra hina mestu
velvild og látið þau njóta risnu sinn-
ar og mannkosta. I lífshlaupi Þor-
gerðar má greina mikla sam-
kvæmni þvi gildismatið var höggvið
í stein en baksviðið var ávallt dýrð-
arljómi æskudaganna. Og hvers
mun Þorgerður fremur óska sér í
Paradís en að líta friðsælar hjarðir
frjár á beit og nokkru fjær hóp
hrossa að leik. Yfir sviðinu skín sól
æskuáranna og baksvið sumra von-
brigða sjást nú í nýju ljósi. Á himn-
um er pólitíkin allt öðruvísi en á
jörðinni og fyrirgefning aldrei langt
undan, bæði veitt og þegin.
Hinar mörgu dyggðir Þorgerðar
og fórnfúst starf fyrir heimili og
eiginmann vega þungt í mal hennar
við Gullna hliðið.
Emil AIs.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé iof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin strið.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,.
hafðu þökk fyrir allt og allt.
'Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Elsku amma, Þorgerður Þórar-
insdóttir, er dáin.
Okkur langar til að minnast
hennar með nokkrum orðum. Upp
í hugann koma margar hjartfólgnar
minningar.
Minningarnar um fyölmennu að-
fangadagskvöldin hjá ömmu og afa
á Kleppsveginum eru ofarlega í
huga. Þá gat barnssálin glaðst yfir
ævintýraljóma jólanna innan um
fjölda af frændum og frænkum.
Þennan ljóma átti amma mestan
þátt f að skapa. Hún sá um matseld-
ina af mikilli röggsemi og það var
ekki til betri matur en hjá ömmu.
Annað heimili ömmu og afa var
Gottorp. Þangað var alltaf gott að
koma og höfðum við krakkamir
alltaf nóg fyrir stafni. í þessum
unaðsreit dunduðum við okkur við
hornsílaveiðar í bæjarlæknum á
milli þess sem farið var út að Hópi
að vitja um, en það fannst okkur
mest spennandi. Amma matreiddi
síðán veiðina á sinn meistaralega
hátt.
Amma var fastheldin í skoðunum
sínum og gaf lítið eftir í rökræðum.
Að vinna og láta ekki undan síga
þótt eitthvað bjátaði á var stór þátt-
ur í lífskoðun hennar. Að gera gagn
var það sem skipti máli.
Það er gott að eiga góðar minn-
ingar og minningin um yndislega
ömmu lifir í hjörtum okkar. Guð
blessi minningu hennar.
Elsku afi, við biðjum guð að
styrkja þig í sorg þinni.
Imba, Gauti, Steinþór,
Einar og Ásgeir.
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð
og vináttu við andlát og útför hjónanna,
ÁSTU KARÓLÍNU GUÐJÓNSDÓTTUR
og
MAGNUSAR HARALDSSONAR.
Fyrir hönd ættingja og vina,
Díana Bjarney Magnúsdóttir,
Þyríí. Magnúsar Warner,
Guðmundur T. Magnússon,
Sigurbjörg Guðjónsdóttir
Ólafi'a Guðlaug Guðjónsdóttir,
Þórunn Helga Guðjónsdóttir.
J
I Yri DÁ\ I33KOJ
j'JJÓDDJi Ij IJ
J
□ Samkvœmisdansar
□ Gömludansarnir, tjútt og swing
□ Barnadansar
fyrir byrjendur og lengra komna
Ðarna- unglinga og
fullorðinshópar
Hulda og Logl
F.f.D. — Félag fslenskra danskennara D.f •
ÞAKABAKKA 3.109 REYKJAVÍK
Innritun og upplýsíngar stendur yfir
í símum 670636 og 42335
milll kl. 13—19.
Kennsla hefst fimmtudagfnn 10. sept.
Dansráð íslands fjölsylduafsláttur