Morgunblaðið - 06.09.1992, Síða 41
,01 JUUU/UTW '.!:-)r!A(!'!’/>rtJf> AMeXBASMVmm’A
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 1992
J.HVIUDHOM
Minning
Friðjón Sigfússon
frá Norðfirði
Fæddur 22. febrúar 1923
Dáinn 25. ágúst 1992
Hinn 25. ágúst sl. lést í Landspít-
alanum kær frændi, Friðjón Sigfús-
son frá Norðfirði. Útför hans fór
fram frá Fossvogskapellu 1. sept-
ember í kyrrþey, skv. ósk hans.
Við fráfall Friðjóns rifjast upp
margar minningar frá bernskudög-
um okkar á Norðfirði, bæði ljúfar
og sárar. Feður okkar voru bræð-
ur, Þorbjörg amma okkar á heimili
foreldra minna, stutt á milli Sigfús-
arhúss og Stjörnu, svo heimilin voru
í daglegu sambandi á uppvaxtarár-
um okkar.
Friðjón fæddist á Norðfirði 22.
febrúar 1923. Foreldrar hans voru
hin mætu hjón Sigfús Sveinsson,
kaupmaður og útgerðarmaður, d.
1935, og Ólöf Guðmundsdóttir, d.
1964. Friðjón var yngstur 6 bamá
þeirra hjóna, en þau voru: Guð-
mundur, kvæntur Sigríði Jónsdótt-
ur, bæði látin; Sveinn, látirin,
kvæntur Nönnu Þormóðs; Aðal-
björg, látin, gift Arne Voss; Jó-
hanna, gift Aage Schiöth, bæði lát-
in; og Friðný, látin.
Verslun Sigfúsar Sveinssonar,
Norðfirði, var á uppvaxtarárum
Friðjóns eitt stærsta og blómlegasta
verslunar- og útgerðarfyrirtæki
landsins með fjölda fólks í vinnu.
Sigfús var glæsilegur maður, virðu-
legur í fasi, mikill athafnamaður,
gætinn og forsjáll og reksturinn,
sem foreldrar hans höfðu lagt
grunninn að dafnaði í höndum hans.
Olöf móðir Friðjóns var ekki síður
glæsileg kona, vel að sér til munns
og handa. Móðir mín sem ung að
árum kynntist .henni sagði hana
hafa verið þá almyndarlegustu og
nýtnustu konu sem hún hefði
kynnst. Ólöf var glaðsinna, rösk og
dugleg kona sem stjórnaði sínu
stóra heimili af miklum skörungs-
skap, hún var einlæg og sterk trú-
kona, sem innrætti börnum sínum
Guðs trú og góða siði, sem markaði
þau og fylgdi þeim alla tíð. En Ólöf
var ekki ein við heimilishaldið, Stína
mín Dan gleymist ekki þeim, sem
heimilinu kynntust. Kristín Daníels-
dóttir hét hún, var hægri hönd Ólaf-
ar, ekki síður myndarleg og með
afar létta lund, má segja að hún
hafí verið sem önnur móðir allra
barnanna, svo vænt þótti henni um
þau og þeim um hana, náði hún
einnig að taka þátt í uppeldi barna
og bamabarna Guðmundar, elsta
sonarins.
Á þessu myndarheimili ólst Frið-
jón upp, átti góða bernsku og hlaut
þá það veganesti sem dugði honum
vel. Hann tók þátt í ýmsum störfum
úti og inni eins og títt var með
börn og unglinga, því að nóg var
að gera. Það var honum mikið áfall
er faðir hans lést, þegar hann var
aðeins 11 ára. Tók þá Guðmundur
elsti bróðirinn við rekstri fjölskyldu-
fyrirtækisins.
Friðjón fór í Menntaskólann á
Akureyri. Þar veiktist hann af
berklum, átti hann í þeim veikindum
í um það bil tvö ár, var ýmist á
Kristneshæli eða Landakotsspítala
og þó að hann næði aftur sæmi-
legri heilsu mun hann trúlega aldr-
ei hafa beðið þess bætur. Þessi veik-
indi bundu enda á frekari skóla-
göngu hans.
Ungur að árum flutti Friðjón til
Reykjavíkur, þar voru þá Sveinn
og Friðný sest að. Reykjavík varð
því aðalstarfsvettvangur hans.
Lengst af vann Friðjón hjá útgerð-
arfyrirtæki Tryggva Ófeigssonar,
Júpíter og Mars, við ýmiss konar
störf, m.a. bifreiðaakstur. Friðjón
var vel verki farinn, snyrtilegur og
samviskusamur og vel látinn í
vinnu. Síðustu starfsárin vann Frið-
jón hjá Eimskipafélagi íslands hf.,
en fýrir nokkrum árum varð hann
að láta af störfum sakir heilsuleysis.
Friðjón kvæntist ekki og eignað-
ist engin börn, í nokkur ár var
móðir hans hér í bænum og hélt
þá heimili fyrir hann. Lengst af
áttu þau samleið systkinin Friðný
og Friðjón, var mjög kært með þeim
og studdu þau hvort annað. Það var
því reiðarslag fyrir Friðjón er Friðný
lést 1982. Má segja að heilsu hans
hafí farið hrakandi ár frá ári frá
þeim tíma. Margar skurðaðgerðir
fór hann í á Borgarspítalanum á
undanfömum árum og að síðustu í
lungnaaðgerð á Landspítalanum í
apríl sl., en eftir þá aðgerð varð
ljóst hvað framundan var.
Friðjón átti góða íbúð á Austur-
brún 4, þar var allt snyrtilegt og
vel um gengið eins og hann hafði
vanist á bernskuheimili sínu. Því
miður dró hann sig mikið í hlé og
vildi lítið þiggja af öðrum. Hann
átti þó sína tryggu vini, sem fylgd-
ust með honum, höfðu samband við
hann og komu til hans í veikindum
hans. Mágur Friðjóns, Arne Voss,
sem búsettur er í Kaupmannahöfn,
var alltaf í góðu sambandi við Frið-
jón og skrifuðust þeir alltaf á.
Bræðrabörn Friðjóns fýlgdust vel
með honum og þá sérstaklega Jón
Guðmundsson, enda setti Friðjón
allt sitt traust á hann og er óhætt
að segja að hann brást því ekki.
Lífið er mikill reynslutími, þar
sem skiptast á skin og skúrir, Frið-
jón fékk sinn skerf af hvoru tveggja.
Alltaf hélt hann samt reisn sinni,
LEGSTEINAR
MOSAIK H.F.
Hamarshöfða 4 — sími 681960
var sama snyrtimennið og Ijúf-
mennið. Einn sannan trúnaðarvin
átti Friðjón, góða vinkonu Friðnýj-
ar, Pálínu Hafsteinsdóttur. Sumt
fólk hefur þann eiginleika öðrum
fremur, að jafnvel hinir allra lokuð-
ustu finna að þeim er treystandi
fyrir leyndustu hugsunum og til-
finningum þess. Þannig vinur var
Pálína, hún sat hjá Friðjóni tímun-
um saman í veikindum hans, keyrði
hann heim og um bæinn, þegar
hann langaði til og treysti sér til
þess. Við sem létum ökkur annt um
Friðjón þökkum henni af alhug. Ég
gleðst yfír því að þjáningum frænda
míns er lokið, ég er þess fullviss
að vel hefur verið tekið á móti hon-
um af ástvinum hans. Ég bið honum
Guðs blessunar, þakka honum sam-
fylgdina og sérstaklega „sunnu-
dagasímtölin“ okkar, ég mun sakna
þeirra.
Ingibjörg Jónsdóttir.
*-
4
ATILBOÐ í VIKU FERÐATILBOÐ í VIKU FERÐATILBOÐ í VIKl
RÐATILBOÐ í VIKU FERÐATILBOÐ í VIKU
BómuUarpeysur
iðiWr555,-
Feróatilbod
1.295,-
Flauelsbuxur
Áöur^S95,-
Feröatilboð
1.195,
Bamostígvél
Áöj£zO*295,-
Feröatilboö
Bamasokkabuxur
(1-6 drd)
Á&ur-499,-
Feröatitboö
Bamasokkdbuxur
(7-12 dra)
ÁðizriPý),-
Feröatitboö
Nú færöu ofangreindar vörur á einstöku ferðatilboöi í viku, sunnudag til laugardags.
Lyftu þér nú upp og nýttu þér ferðatilboð í verslunum Hagkaups í vikunni.
Ef Hagkaup er ekki í byggðarlaginu þá er hægt að notfæra sér þjónustu Póstverslunar Hagkaups,
grænt simanúmer 99 66 80. Tilboðið gildir á rneðan birgðir endast.
HAGKAUP
—alU í eintti ferð