Morgunblaðið - 06.09.1992, Síða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 1992
Vetrarólympíuleikarnir
verða haldnirí Lille-
hammerí Noregi eftir
tvö ár og undirbúningur
erí fullum gangi. Að
þessu sinni verður sér-
stök áhersla lögð á
umhverfismál og menn-
ingardagskrá í tengslum
við leikana.
Stórviðburður
í litlum bæ
eftir Urði Gunnarsdóttur
ÞAÐ ER mikill hug-
áiliÉiÉÉhBsaw.4''
ur í Norðmönnum.
Að tveimur árum
liðnum verður bær-
inn Lillehammer i
Upplöndum Noregs
vettvangur Olymp-
íuleika, leika sem
verða um margt
sérstakir. Undir-
búningurinn miðar
ekki ekki síður að
atriðum er varða
umhverfismál,
menningardagskrá
og útlitshönnun
leikanna en sjálfar
íþróttirnar. Brátt
geta íbúar Lille-
hammer því státað
af fleiru en því að
hafa fundið upp
ostaskerann.
í stað lukkudýra leik-
anna eru börn; Hákon
og Kristín.
Furðu lítið
jarðrask fylgir gerð sleðabrautarinnar í
Hunderfossen.
Hönnun skautahallarinnar í Hamar vísar
til víkingaskips á hvolfi.
vonir um að vegna þess hve skamm-
ur tími líði frá síðustu Vetrarólymp-
íuleikum muni margar af skærustu
stjörnunum frá leikunum í Albert-
ville stefna að því að vera með í
Lillehammer. íþróttamenn sem að
öðru jöfnu hefðu sest í helgan stein
að fyrrnefndu leikunum loknum.
Þegar gleðivíman rann af Norð-
mönnum á haustmánuðum 1988
kom fljótlega í ljós að bjartsýnin
hafði verið óhófleg við gerð fjár-
hagsáætlunar. í stað 10 milljarða,
hljóðaði fjárhagsáætlunin upp á 70
milljarða og mönnum varð smám
saman ljóst hversu gnðarlegt verk-
efni var framundan. Á þeim fjórum
árum sem liðin eru hefur mikið ver-
ið deilt um framkvæmdina, ekki síst
fjárhagshliðina. Sá möguleiki sem
Norðmenn sjá í landkynningunni
vegna Ólympíuleikanna vegur þó
þungt, og nú þegar eitt og hálft ár
er til stefnu virðist þjóðin einhuga
um að halda Ólympíuleikana sóma-
samlega. Raunar eru Norðmenn ekki
Fyrir réttum áratug stungu
nokkrir meðlimir norsku
Ólympíunefndarinnar upp á-
því að sótt yrði um að halda Vetrar-
ólympíuleikana. Þeir voru fullir
sjálfstrausts, fjárhagsáætlunin
hljóðaði upp á 10 milljarða íslenskra
króna og með það veganesti var
hugmyndin borin upp við norska
ráðamenn, sem tóku henni fagn-
andi. Hrint var af stað umfangsmik-
illi undirbúningsvinnu sem miðaði
að því að sækja um Vetrarólympíu-
leika árið 1992. Þrátt fyrir að þeir
leikar féllu öðrum í skaut var vindur-
inn langt i frá úr Norðmönnum og
áfram var unnið að því að fá leikana.
Óhætt er að segja að hjörtu Norð-
manna hafi slegið hraðar þegar
Samaranch, formaður Alþjóða
ólympíunefndarinnar, tilkynnti
ákvörðun nefndarinnar í Seoul 1988.
Ólympíuleikarnir árið 1994 Skyldu
haldnir í Lillehammer. Leikunum var
flýtt um tvö ár, svo að ekki yrðu
haldnir vetrar- og sumarólympíu-
leikar sama árið og verða ólympíu-
leikar hér eftir annað hvert ár, Vetr-
ar- og Sumarólympíuleikar til skipt-
is. Því er kominn glímuskjálfti í
Norðmenn, þó að Ólympíueldamir í
Albertville og Barcelona séu vart
kulnaðir. Gera mótshaldararnir sér
ókunnugir Ólympíuleikahaldi, því
leikarnir árið 1952 voru haldnir í
Ósló.
Heildarkostnaður um 110
milljarðar
Lillehammer er 23.000
manna bær, litlu stærri en
Akureyri og aðstæður á stöð-
unum að mörgu leyti líkar. Lilleham-
mer stendur við stærsta stöðuvatn
Noregs, Mjösa, sem er á við lengstu
firði og í hlíðunum fyrir ofan bæinn
eru kunn skíðalönd. Ölympíuleikarn-
ir verða haldnir á óvenjulitlu svæði,
sem nær 58 km út frá Lillehammer;
í bæjunum Gjövik og Hamar og á
útivistarsvæðunum í Hunderfossen,
Kvitfjell og Hafjell. Miðstöð leikanna
verður í Lillehammer og gert er ráð
fyrir að um 100.000 manns verði í
bænum hvern þann dag sem
Ólympíuleikarnir standa yfir.
Þrátt fyrir að kostnaður við leik-
ana sé áætlaður rúmir 70 milljarð-
ar, mun láta nærri að hann verði
um 110 milljarðar þegar tekinn er
inn í dæmið kostnaður við holræsa-
gerð, vega- og járnbrautalagningu
o.fl.
Niðurtalning
HAð ýmsu þarf að huga þegar
Ólympíuleikar eru undirbún-
ir. Norðmenn komu fljótlega
á fót kynningarmiðstöð í Lilleham-
mer, þar sem getur að líta allt milli
himins og jarðar, sem tengja má
Ólympíuleikum. Norskum afreks-
mönnum, s.s. skautadrottningunni
Sonju Heine eru gerð skil, keppnis-
búningar vel flestra norsku verð-
launahafanna á Ólympíuleikunum
hanga uppi, útskorin tréskíði blasa
við í inngangnum og kaffistofunnar
gætir ísbjörn, uppstoppaður, vel að
merkja.
í miðborg Lillehammer getur að
líta höggmynd með klukku, sem tel-
ur niður daga, klukkustundir og
mínútur þar til Vetrarólympíuleik-
arnir verða settir. Og á hveijum
degi kl. 13 gengur Norðmaður með