Morgunblaðið - 06.09.1992, Qupperneq 43
MÖRGÍÍnBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 1992
43
Morgunblaðið/UG
Hákonarhöll: Það er ekki að sjá að 12 hæða blokk kæmist í einu
lagi'inn í skautahöllina, sem að stórum hluta er neðanjarðar.
rjóðar kinnar inn á aðalgötuna í
Lillehammer, vopnaður kúabjöllu og
stólkolli, og lætur bjóða í bol. A
hann er letrað hversu margir dagar
eru fram að leikunum. Ýmist fyrir-
tæki eða einstaklingar bjóða í bolinn
og verðið getur rokið upp úr öllu
valdi. Daginn þann sem íslenskir
blaðamenn voru á ferð var bolurinn
sleginn konu á um 20.000 kr.
Það vekur athygli þegar farið er
um Lillehammer og nágrannabæina
hversu lítið rask er vegna undirbún-
ingsins. Þess hefur verið gætt að
þau mannvirki sem verið er að reisa
falli vel inn í umhverfið og að þau
megi nýta að leikunum loknum.
Dæmi um þetta er skautahöllin í
Lillehammer, Hákonarhöll, gríðar-
lega stórt hús sem lætur þó ekki
mikið yfir sér. Hefur höllin verið
grafin að stórum hluta niður, svo
að gengið er inn á efstu röð áhorf-
endabekkjanna. Bobsleðabrautinni
sem reist var í nágrenni Albertviile
var einna helst líkt við vistfræðilegt
stórslys. Norðmenn hafa gætt sín á
þvi að það endurtaki sig ekki og
þegar horft er upp í hlíðina sem
geymir brautina er ekkert að sjá,
utan hvað glittir í húsið sem lagt
er af stað úr. Það er ekki fyrr en
komið er upp að brautinni að hún
sést, svo vel gegna hávaxin greni-
trén hlutverki sínu.
Umhverfis- og
menningarleikar
En um hvað snúast svo
Vetrarólympíuleikarnir í
hugum Norðmanna ef frá
eru taldar íþróttir? „Við stefnum að
því að halda menningarólympíu-
leika,“ segir Osmund Ueland, fram-
kvæmdastjóri við leikana. Lögð verð-
ur áhersla á nýtingu mannvirkjanna
eftir leikana og að ólympíuleikja-
haldið valdi sem minnstu raski.
Norðmenn munu nota tækifærið til
að kynna Noreg og norska menn-
ingu, enda einstæður möguleiki sem
þeir telja að gefist tæplega aftur.
„Þetta verður í fyrsta sinn sem
sérstök áhersla verður lögð á um-
hverfisþáttinn og með því vonum við
að lögð sé línan fyrir framtíðina, að
þeim sem halda leikana í framtíðinni
verði ekki stætt á öðru en að taka
fullt tillit til umhverfisins. Steinn og
viður verða aðalbyggingarefnin. Þá
verður ein skautahöllin sprengd inn
í fjall, svo að eini hlutinn sem sést
utan frá verður inngangurinn. Um-
ferð einkabifreiða verður ekki leyfð
í Lillehammer meðan á leikunum
stendur, þátttakendur og gestir
munu nota almenningsvagna og lest-
ir. Þar sem gistirými er takmarkað
í Lillehammer og nærsveitum er
gert ráð fyrir að stór hluti áhorfenda
gisti í Ósló og verða lestarferðir á
milli Óslóar og Lillehammer á 10
mínútna fresti á meðan leikunum
stendur en lestarferðin sú tekur um
tvo tíma. Flest húsin í Ólympíu- og
fréttamannaþorpunum hafa nú þeg-
ar verið seld og verða flutt burt að
leikunum loknum," segir Ueland.
Rétt eins og við íslendingar, beij-
ast Norðmenn við hátt verðlag.
Reynt verður eftir megni að halda
því niðri og koma í veg fyrir að
menn sjái skjótfenginn gróða í því
að leigja húsnæði og selja mat á
uppsprengdu verði enda muni slíkt
sjá til þess að ferðamennirnir leggi
ekki leið sína til Noregs að nýju.
Hellaristur í nútímabúningi
Þegar farið var að leggja
WtMk drög að kynningarefni Vetr-
arólympíuleikanna var
ákveðið að leggja áherslu á þjóðlega
þáttinn en einblína ekki eingöngu á
nýjustu stefnur og strauma í hönn-
un. Litaval í öllu kynningarefni var
sótt í norska arfleifð, m.a. textíl.
„Lukkdýr" leikanna eru að þessu
sinni börn, Hákon og Kristín, nefnd
eftir konungssyni og -dóttur sem
uppi voru á 13. öld. Tákn hverrar
íþróttagreinar eru byggð á steinrist-
um sem fundust á Rödöy í Norður-
Noregi og talið er að séu um 4.000
ára. Þær eru elstu myndimar sem
vitað er um af mönnum á skíðum
og því vel við hæfi að tengja þær
Vetrarólympíuleikum. Merki leik-
anna eru norðurljós yfir snjódrífu.
„Þemað í vinnu okkar var ná-
lægð; nálægð milli manna og milii
manns og náttúru," segir Petter
Glaðhlakkalegur Lillehammer-
búi býður upp bol dagsins, þar
sem tilgreint er hversu margir
dagar eru fram að Ólympíuleik-
unum.
Keppnisgreinar
og íþróttamannvirki
í litlum bæ á borð við Lillehammer voru nær engin íþróttamannvirki
sem standast kröfur Alþjóða ólympíunefndarinnar. í Lillehammer og
nágrenni verða byggðar fimm skautahallir, ein sleðabraut og tveir stökk-
pallar, auk þess sem leggja eða bæta þarf skíða- og göngubrautir.
Skiðastökk: Tveir stökkpallar, 90 og 120 m, 1,1 milljarður kr.
Brun karla og risasvig: 3.150 m braut, 1,2 milljarðar kr.
Brun kvenna, stórsvig og svig: Brautir alls 22 km, 770 milljónir kr.
Sleðakeppni: 1.365 m sleðabraut, 1,9 milljarðar.
Íshokkí: Hákonshöil og höllin í Gjövik (sprengd inn í bergið), 3,3 millj-
arðar.
Listhlaup og skautahlaup: Tvær skautahallir í Hamar, 3,1 milljarður.
Skíðaganga, skíðaskotfimi: Brautir alls 35 km, 780 milljónir kr.
Skíðafimi: 175 milljóna kr. braut.
Vetrar-
ólympíu-
leikarnir í
tölum
Það getur verið fróðlegt að
velta fyrir sér nokkrum upphæð-
um sem tengjast Ólympíuleikun-
um. Gert er ráð fyrir að:
■ Keppendur verði 1.800
■ Þjálfarar og fararstjórar
verði 1.500
■ Fréttamenn verði 7.000
■ Seldar verði 1,6 milljónir
miða á leikana.
■ Lögregluþjónar verði 3.000.
■ Áhorfendur verði allt að
100.000.
■ Sjónvarpstökuvélar verði
170.
■I Bornar verði fram 2 milljón-
ir máltíða.
■ Miði á dýrasta viðburðinn,
opnunar- og lokahátíðir,
kosti um 8.000 kr.
■ Rekstur leikanna nemi um
40 milljónum króna.
■ Opnunar- og lokaathöfn
muni kosta að minnsta kosti
850 milljónir.
■ Sá hluti leikanna sem snýr
að menningu nemi um 2,5
milljörðum.
■ Kostnaður við íþróttamann-
virki verði um 15 milljarðar.
■ Tekjur nemi 27 milljörðum,
þar af 14 milljörðum fyrir
sjónvarpsrétt og 3,3 millj-
örðum frá stuðningsaðilum.
RYM
NYR LISTASKOLI
í REYKJAVÍK
er til húsa í Listhúsinu i Laugardal
Engjateigi 17 til 19
teiknun \
mólun
skúlptúr
grafík
blönduð tækni
skjúlist
veggmyndagerð
umhverfislist
glerlist
kvikmyndun
i tölvugrafík
fyrirlestrar
Moshus, hönnunarstjóri leikanna.
„Við hönnunina leituðum við til nátt-
úru og menningararfleifðar bæði
hvað varðar form og efnivið. Sem
dæmi má nefna skautahöllina í Ham-
ar. Grunnhugmyndin að henni er
víkingaskip á hvolfi en í Hamar
hafa fundist leifar nausts frá tímum
víkinga. Aðalbyggingarefni hallar-
innar er límtré. Okkur er í mun að
samræmi sé í allri hönnun sem teng-
ist Ólympíuleikunum, t.d. minjagrip-
um. Þeir eiga að vera vandaðir, við
viljum ekki bjóða upp á ódýra plast-
kveikjara með merki leikanna, held-
ur minjagripi sem eru úr náttúruleg-
um efnum.“
Menning og íþróttir
Eiga menning og íþróttir
saman? Skipuleggjendur
Ólympíuleikanna eru þeirrar
skoðunar og telja að 2,5 milljörðum
sé vel varið til að kynna norska
menningu. Tónlist, myndlist, leiklist,
bókmenntir, listaverk við helstu
byggingar leikanna, norræn goða-
fræði og ævintýri skipa veglegan
sess á Vetrarólympíuleikunum. „Við
byggjum á þremur þáttum sem við
höfum kosið að nefna „vetrargarð-
inn“, ,jarðarber undir snjónum" og
„isjakahlaup“. Vetrargarðurinn er
grunnurinn, þar sem rækt verður
lögð við norska menningu. Jarðarber
undir snjónum tákna það óvænta;
uppákomur fyrir gesti, svo sem götu-
leikhús. ísjakahlaup er gömul íþrótt
sem er tákn dirfsku, tákn þess sem
ekki hefur verið gert áður,“ segir
Tor Kristian Simonsen, sem hefur
yfirumsjón með vali og uppsetningu
listaverka í tengslum við leikana.
Opnunar- og lokaathöfnina vilja
menn vissulega hafa sem vegleg-
asta, svo fremi sem kostnaðurinn
fari ekki fram úr áætlun. Hafa tölu-
verðar deilur risið vegna þessa, þar
sem stjórnandi athafnanna taldi úti-
lokað að framkvæma þær fyrir
minna en einn milljarð. „Við munum
ekki feta í fótspor Spánverja, sem
fengu fjölda alþjóðlegra listamanna,
höfunda og listamenn til að koma
fram við opnunar- og lokaathöfn-
ina,“ segir Simonsen. „Við viljum
leggja áherslu á Noreg og það sem
norskt er þó að þar með sé ekki
sagt að við útilokum aðra en Norð-
menn. Við erum vissulega lítil þjóð
en stolt af arfleifðinni og Vetrar-
ólympíuleikarnir eru gullið tækifæri
til að kynna okkur.“
Myndmenntaskóli
Verkstæði Gallerí
Kennsla hefst 28. september
Innritun er hafin í síma 30840
^ Til frambúðar
S8BA þakrennur
Litir:
Hvítt, svart,
rautt, brúnt
Sænsk
gæða
framleiðsla
Galvanhúðað stál gefur styrkinn og litað
plasthúðað yfirborð ver gegn ryði og tæringu.
Fagmenn okkar veita ráðleggingar. Hagstætt verð.
ISVOR
BYGGINGAREFNI
Dalvegur 20. Box 435 202 Kóp. Simt 641255, Fax 641266
Bókhalds-
nám
Markmið námsins er að þátttakendiu*
verði fullfærir um að starfa sjálfstætt
við bókhald og annast það allt árið.
de#H e&éC
<Z QftUKiuUUKA&eCÓl.
Á námskeiðinu
verður eftirfarandi kennt:
Almenn bókhaldsverkefni
★ Launabókhald
★ Lög og reglugerðir
★ Virðisaukaskattur
★ Raunhæf verkefni, fylgi-
skjöl og afstemmingar
★ Tölvubókhald:
Fjárhagsbókhald
Viðskiptabókhald
Launahókhald
Námskeiðið er 72 klst.
Innifalin er 15.000,- kr. ávísun til
kaupa á bókhaldshugbúnaði.
Innritun er þegar hafin.
Bjóðum upp á bæði dag- og kvöld-
námskeið.
Tölvuskóli Reykiavíkur
Borgartúni 28, sími 91-687590