Morgunblaðið - 03.10.1992, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1992
13
Ingrar Jónasson
Atli Heimir Sveinsson
Sinfóníuhljómsveit íslands
Beethoven, Atli
Heimir og Sibelius
Tónlist
Ragnar Björnsson
Á leiðinni gegnum anddyri Há-
skólabíós, fetaði maður sig gegn um
vörusýningu, sýningu sem engin
tengsl hafði við þann tónlistarviðburð
sem fram átti að fara í tónleikasal
hússins. Minnti þetta mann enn einu
sinni á hversu brýn nauðsyn okkur
er tónlistarhús, hús sem eingöngu
er hannað til tónlistarflutnings. Það
er að verða okkur til mikils vansa
að tónlistin skuli ekki eiga þetta þak
yfir höfuðið. Tónlistin biður ekki um
stórhýsi, hún biður ekki um skraut-
hýsi, það þarf ekki endilega að vera
rokdýit, tónlistin biður um smekk-
lega byggingu sem hefur möguleika
til að skila afrakstri tónskálda og
annarra tónlistarmanna óbrenglaðri,
í átt við það sem til er ætlast. Á
göngunni milli vélahlutanna í and-
dyrinu að fatahengjunum, sem orðið
hafa að vílq'a í fyrri mynd, fyrir vöru-
sýningunum, datt manni í hug sagan
um kínverska keisarann sem fyrir-
skipaði að grafa tónlistina svo djúpt
að engin hætta væri á að hún risi
upp aftur. Heyrt hefi ég að Græn-
lendingar séu farnir að hyggja að
tónlistarhúsi og ef svo er, getum við
fallið undir þá gömlu speki sem seg-
ir að hinir síðustu verði fyrstir. Tón-
leikamir á sviðinu hófust með Pa-
storal-sinfóníunni eftir Beethoven.
Petri Sakari hefur margoft sýnt að
Vínarklassíkeramir em ekki hans
heppilegustu viðfangsefni og undir-
strikaði hann það enn einu sinni.
Fyrsta þátt vantaði alla ró og yfir-
vegun, blásaramir náðu ekki að spila
hreint, óbóið var t.d. strax óhreint
og náði einhvemveginn aldrei að
rétta sig af. Mótífin í þættinum ein-
hvemveginn keyrð áfram og fengu
aldrei að njóta sín, ónákvæmni í innri
ritma var of áberandi og vegna þess
að músíkin fékk ekki tíma til að
anda. Annar þáttur sinfóníunnar er
fingurbijótur fyrir marga stjómend-
ur. Stjórnandinn verður að þora að
slá rólega fjóra í takti og byija ekki
á að markera áttundupartana og
bremsa þanni gaf eðlilegt flæði lín-
unnar. Sakari byijaði einmitt á að
markera áttundapartinn og þar með
var rennsli lækjarins truflað og við
það varð þátturinn of hægur, en virk-
aði hraður og órólegur, svo mót-
sagnakennt sem þetta nú er. Sveita-
dansinn náði heldur engu flugi og
„Blitz und Donner" varð maður lítið
var við, og því varð sólaruppkoman
heldur tilkomulítil. Fyrsti homisti
náði meira að segja að klikka á síð-
ustu töktunum og hafði ég á tilfinn-
ingunni að hljómsveitin hafi lítið
fundið fyrir sveitasælunni. Þessi
umsögn um flutninginn er mér engin
ánægja, en ég nenni ekki að vera
óheiðarlegur og vona sannarlega að
margir hafi verið mér ósammála og
notið flutnings þessa sköpunarund-
urs Beethovens. Ég ætla að halda
áfram heiðarieikanum og viðurkenna
að ég treysti mér ekki til þess að
meta að neinu viti víólukonsert Atla
Heimis, til þess þyrfti ég að heyra
hann miklu oftar, svo hlaðinn er
hann af hugmyndum. Erfitt er einn-
ig að dæma leik Ingvars Jónassonar
því maður gerði meira að sjá hann
spila, en heyra, svo þykkur var tón-
bálkurinn á bak við hann. En Wagn-
er henti það líka að skrifa svo mikið
í hljómsveitina að söngvararnir sáust
syngja, en heyrðust ekki. Að vlsu
ætlaðist hann ekki endilega til þess
að þeir kæmu sérstaklega út úr
hljómsveitinni, en féllu inn í hana
eins og hvert annað hljómsveitar-
hljóðfæri. En nú fór sólin að skína.
„Kristján konung II“, milliþáttamús-
ik, eftir Sibelius er í flestu ólík því
sem ég hef heyrt eftir þann snilling.
Kannske ekki merkilegasta tónsmíð
sem hann hefur látið frá'sér, en full
af finnskum trega, sjarma og „genia-
liteti" og hér var Sakari á heimaslóð-
um, hljómsveitin vaknaði, loftið byij-
aði að titra, 13 fyrstu fiðlur spiluðu
áberandi vel, sellóin svolítið f áliðuð
á móti, og kveikjan að þessum flutn-
ingi var Sakari.
Barnaleik-
sýningar á
Vesturlandi
Möguleikhúsið er á leikferðalagi
með barnasýninguna TVO MOGU-
LEG ÆVINTÝRI. Sýningar verða
á Akranesi og Borgarnesi á laug-
ardag.
Leiksýningin er byggð á tveimur
sögum úr ævintýrabók Möguleik-
hússins og ætluð fyrir þriggja til tíu
ára börn.
Fyrri sagan segir frá Fríðu fítu-
bollu og hreklqusvíni. Fríða lærir um
síðir, að til að eignast góðan vin
verður hún að hegða sér betur. Grím-
ur og galdramaðurinn nefnist seinni
sagan. Grímur heldur að það sé allt
í lagi að skrópa í skólanum, en
galdramaðurinn í skóginum breytir
viðhorfum hans.
Leikarar eru Alda Arnardóttir,
Stefán Sturla Sigurjónsson í hlut-
verki Gríms
Bjami Ingvarsson, Pétur Eggerz og
Stefán Sturla Siguijónsson.
I Borgamesi er sýnt í félagsmið-
stöðinni kl. 14.00. Á Akranesi í Bíó-
höllinni kl. 17.00. Báðar sýningar
eru í dag, laugardag.
I dag er
langur
laugardagur
á Laugavegi
Framvegis verður fyrsti laugardagur
hvers mánaðar kallaður langur
laugardagur hjá okkur á Laugavegi.
Þennan fyrsta langa laugardag
veráa verslanir vib Laugaveg og Bankastræti
opnar til kl. 17.00.
Laugavegsleikur
í dag á milli kl. 13.00 og 17.00
verÖur þessi myndarlegi bangsi, sem
segist heita Bangsi bestaskinn, staddur í
sýningarglugga einnar verslunar við
Laugaveg eSa Bankastræti.
Takið þátt í einföldum leik.
Finnið bangsann og skráið nafn
verslunarinnar á þar til gerS eySublöS.
Þau fást afhent í öllum verslunum viS
Laugaveg og Bankastræti.
Verslanir taka allar við svörunum.
Dregiö verður úr réttum lausnum.
u..
Vimuiigar í Laugavegsleik
1. Vöruúttekt kr. 10.000,- Herrahúsið Adam.
2. Vöruúttekt kr. 10.000,- Sportvöruv. Sparta.
3. Vöruúttekt kr. 10.000,- Verslunin Karel.
4. Vöruúttekt kr. 10.000,- Verslunin Englabörn.
5. Vöruúttekt kr. 10.000,- Gleraugnamiðstöðin.
50 aukavinningar Mirabell konfektkassar
frá Hans Peterssen
FRITT I ALLA STOÐUMÆLA
ALLA LAUGARDAGA ALLT ARIÐ
Við Laugaveg og Bankastræti eru um 200 verslanir,
veitinga- og kaffihús í tugatali.
■
.
Verið velkiMiiin
áLaugaveginn
vinalega og langa vershmargötu.
f M I
M1092