Morgunblaðið - 03.10.1992, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 03.10.1992, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER }992 23 Boeing-þotur koma best út BOEING-þotur hafa mest aðdráttarafl í augum fjárfesta og fjármögn- unarfyrirtækja, samkvæmt niðurstöðum könnunar sem birtist í nýj- asta hefti tímaritsins Airfinance Journal. Könnunin var gerð í yósi þess að offramboð er á mörgum flugvélategundum og þar af leiðandi verðfall, m.a. vegna gjaldþrota flugfélaga. Af þeim sökum hefur at- hygli beinst að gæðum fjárfestingar hjá flugfélögum, að sögn blaðsins. Tímaritið spurði 100 helstu fyrir- 767-300 í efsta sæti í öllum flokk- tæki og aðila sem stunda flugvéla- kaup eða fjármögnun viðskipta af því tagi. Þeir voru beðnir að gefa flugvélum einkunn á kvarðanum 0-10 eftir því hvaða aðdráttarafl þær hefðu sem fjárfesting, hveijir mögu- leikar á endursölu þeirra væru og hvert væri lokavirði þeirra þegar þær hefðu verið svo til alveg afskrifaðar, þ.e. hversu mikið væri notagildi þeirra að afskriftartíma liðnum. í öllum tilvikum raða Boeing-þot- ur sér í efstu sæti og er Boeing um. Hefur mest aðdráttarafl sem fjárfesting, fær einkunnina 8,64 miðað við að 747-400 fær einkunn- ina 8,20, 757-200 einkunnina 7,60 og 737-400 fær 6,68. Airbus A320- 200 kemur þar skammt á eftir með -6,54 og A300-600R með 6,50 en aðrar þotutegundir fá lægri einkunn. Hvað endursölumöguleika varðar hefur Boeing 767-300 mikla yfir- burði, fær einkunnina 7,90 en síðan kemur 757-200 með einkunnina 6,82, þá 747-400 með 6,62, 737-400 með 6,30, 737-300 með 6,00 og síð- an Airbus A320-200 með 5,96. Sömuleiðis er notagildi Boeing 767-300 þotunnar mest að mati að- spurðra þegar afskriftum er lokið, fær einkunnina 8,08. Næst koma Boeing 747-400 með einkunnina 7,60, þá 757-200 með 7,18, 737-400 með 6,24, Airbus A320-200 með 5,84 og 737-300 með 5,62. Hvað varðar nýjar flugvélateg- undir sem enn eru meira og minna á hönnunarstigi er Boeing-777 þotan í efsta sæti í flokkunum sem fjalla um aðdráttarafl fjárfestingar og lokavirði en Airbus-þoturnar A-330, A-321, A-319 og A-340 eru í næstu sætum. Airbus A-321 þykir hins vegar hafa mesta endursölumögu- leika, þar er B-777 í öðru sæti. B/LALE/GA Úrval 4x4 fólksbfla og statlon bfla. Pajero jeppar o.fl. teg. Pickup-bllar með einf. og tvöf. húsi. Minibussar og 12 sæta Van bílar. Farslmar, kerrur f. búslóðir og farangur og hestakerrur. Reykjavík 686915 inierRent Europcar BÍLALEIGA AKUREYRAR Fáðu gott tilboð! Rúmfatasett hönnuð af: Collier Campbell, Eileen West og Louis Nichole Hlífðarlök, koddar, yfirdínur. Teygjulök og pífulök í mismunandi litum. Lungnamjúk amerísk handkiæði. Höfðagaflar, náttborð, kommóður, speglar o.fl. Amerískar rúmdínur í miklu úrvali. 3% verðlækkun á öllum vörum vegna niðurfellingar jöfnunargjalds. Marco 1 Langholtsvegi 111, sími 680 690. Spenna eykst milli Qatar og Saudi- Arabíu SPENNA jókst í gær í sam- skiptum Qatar og Saudi-Arabíu en yfirvöld í Qatar héldu því fram að saudi-arabískar her- sveitir hefðu ráðist öðru sinni á landamærastöðina Khofous. Fyrri árásin var gerð á miðviku- dag en Qatarbúar héldu því fram í gær að önnur hefði ver- ið gerð á fimmtudagskvöld og þá hafi Saudar tekið stöðina með áhlaupi. Af hálfu yfirvalda í Riyadh hefur lítið verið gert úr þessum ásökunum og því haldið fram að verki hafi verið sveitir bedúínskra hirðingja sem þeir hafi engin yfirráð yfir. Afvötnun fyrir uppskurði? ÁKVEÐIÐ hefur verið á amt- sjúkrahúsinu í Herlev, skammt fyrir utan Kaupmannahöfn, að kanna hvort rétt sé að biðja sjúklinga sem neyta of mikils áfengis að láta flöskuna eiga sig síðustu fjórar vikumar fyrir uppskurð á skeifugöm eða endaþarmi. Ástæðan er að sögn Berlingske Tidende að yfirvöld vilja kanna hvort hægt er að lækka tíðni fylgikvilla en áfeng- issjúklingar eiga mjög á hættu að fá blóðeitrun, blæðingar og hvers kyns bólgur. Að auki komast þessir sjúklingar oft í lífshættu vegna lungna- eða hjartakvilla eftir aðgerð. Onæmiskerfi áfengissjúklinga ræður ekki yfir nægilega mörg- um frumum er hafa það hlut- verk að drepa bakteríur. Lækn- irinn sem annast rannsóknir á málinu, Hanne Tonnesen, segir að ónæmiskerfi þeirra sé oft eins og hjá alnæmissjúku fólki. Tonnesen segir ekki vitað hvort ráðleggja eigi áfengissjúku fólki að hætta drykkjunni fyrir aðgerð og þess vegna verði gerð tilraun með nokkum hóp til samanburðar. START- samningur staðfestur Öldungadeild Bandaríkja- þings staðfesti í gær START- samkomulagið svonefnda um fækkun langdrægra kjarna- vopna með 93 atkvæðum gegn 6. Samningurinn var undirrit- aður í fyrrasumar af George Bush Bandaríkjaforseta og Míkhaíl Gorbatsjov þáverandi Sovétforseta og kveður á um að hvor aðili eyðileggi 10.000 langdrægar kjamorkuflaugar. Síðar skuldbatt Rússland og þijú önnur samveldisríki sig til að virða samninginn. 7,5% atvinnu- leysi í Banda- ríkjunum Atvinnulausum fækkaði lít- ilsháttar í Bandaríkjunum í september en þá mældist at- vinnuleysi 7,5% en hafði verið 7,6% í ágústmánuði. Vora 12,7 milljónir Bandaríkjamanna án atvinnu í síðasta mánuði og hafði fækkað um 164.000 frá ágúst. Átök og pústrar ímiðborg Rómar Helstu verkalýðsfélög opinberra starfsmanna á Ítalíu efndu til fjöldagöngu um miðborg Rómar í gær til að mótmæla aðhaldsaðgerðum og ríkisstjórnarinnar. Fámennur andófshópur herskárra vinstrimanna reyndi að tvístra göngunni. Myndin var tekin, þegar óeirðalögregla réðst til atlögu við andófsmennina. Könnun Airfinance Journal á gæðum fiárfestingar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.