Morgunblaðið - 03.10.1992, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1992
47
HANDKNATTLEIKUR / EVROPUKEPPNIN
Frændur eru
frændum verstir
FH-INGAR fóru illa með Færeyj-
armeistara Kyndils í síðari leik
liðanna í 1. umferð Evrópu-
keppni meistaraliða í Hafnarfirði
i'gærkvöldi. Þeir léku af öryggi
í fyrri hálfleik og voru með átta
marka forskot í leikhléi, og
brugðu því á leik í þeim síðari
áhorfendum til ánægju. Fyrri
leikinn unnu FH-ingar með sjö
marka mun og þann síðari með
níu mörkum, 29:20.
Hafnfirðingar byijuðu leikinn af
krafti, skoruðu þrjú fyrstu
mörkin en slökuðu síðan aðeins á og
hleyptu Kyndils-
mönnum inn í leik-
. Stelán inn. Þegar staðan var
Eiríksson 7:3 komu þijú fær-
skrifar eysk mörk í röð og
skyndilega munaði aðeins einu marki
á liðunum. Hafnfirðingar ræstu því
vélina að nýju og skoruðu sjö mörk
það sem eftir lifði hálfleiksins, án
þess að Kyndilsmenn næðu að svara
fyrir sig.
Síðari hálfleikur var að mestum
hluta helgaður áhorfendum, en FH-
ingar reyndu hvað þeir gátu að bjóða
þeim upp á einhver skemmtilegheit,
því ekki var spennunni íyrir að fara.
Það tókst nokkrum sinnum, .þó svo
Færeyingarnir gerðu hvað þeir gætu
til að koma í veg fyrir það. FH-ingar
breyttu hvað eftir apnað um leik-
skipulag og allir fengu að spreyta
sig, enda skoruðu allir útileikmenn-
irnir mark nema einn; þjálfarinn
Kristján Arason.
„Áherslan var lögð á að ná góðu
forskoti í fyrri hálfleik, því við ætl-
uðum að reyna ýmislegt í þeim síð-
ari. Ég vona að við höfum náð að
sýna skemmtilegan leik og að áhorf-
endur hafi skemmt sér,“ sagði Krist-
ján Arason þjálfari og leikmaður FH
eftir leikinn.
Gunnar Beinteinsson sýndi oft
skemmtileg tilþrif í leiknum sem og
Hálfdán Þórðarson og Guðjón Árna-
son.
Morgunblaðið/Þorkell:
Gunnar Beinteinsson var markahæstur { liði FH með 9 mörk og er eitt þeirra hér í uppsiglingu.
Útlitið dökkt hjá Víkingum
VÍKINGAR eru svo gott sem
úr leik f Evróþukeppni félags-
liða eftir 9 marka tap, 14:23,
gegn norska liðinu Runar í fyrri
leik liðanna sem fram fór í
Sandefjörd í Noregi í gær-
kvöldi. Víkingar léku mjög vel
í fyrri hálfleik og höfðu þá
tveggja marka forystu, 9:7. í
síðari hálfleik hrundi leikur
liðsins og náðu Víkingar aðeins
að gera eitt mark á móti 12
mörkum norska liðsins fyrstu
20 mínútur síðari hálfleiks.
| arkvörður Runar, Mats Frans
son átti stórleik, varði all
i varði 11 af 12 fyrsti
skotum fyrri hálf
leiks og þar af eit
víti frá Gunnai
Gunnarssyni. Vík
ingur spilaði rnjö:
- - fyrri hálfleik og mik
barátta var í liðinu. Víkingur réc
gangi leiksins og leikmenn Runa
virkuðu áhugalausir og voru greini
lega búnir að vinna leikinn áður e
hann hófst.
Erlingur
Jóhannsson
skrífar frá
Noregi
sterka vörn
Roger Carlsson, fyrrum landsliðs-
þjálfari Svía og nú þjálfari Runar,
messaði hraustlega yfír leikmönnum
sínum í hálfleik og það bar árangur.
Víkingar fengu þó tvö dauðafæri á
fyrstu mínútum síðari hálfleiks sem
misfórust. Eftir það hrundi leikur
liðsins. Leikmenn Runar voru eld-
fljótir í hraðaupphlaupum á meðan
Víkingar voru með stuttar sóknir
og ótímabær skot.
Sóknarleikur Víkings var af-
spyrnu einhæfur í seinni hálfleik þar
sem einstaklingsframtakið réð ríkj-
um. Víkingar hresstust örlítið undir
lok leiksins en þá var greinilegt að
leikmenn Runar slökuðu á. Birgir
Sigurðsson var besti leikmaður Vík-
ings og Alexander Revine stóð fyrir
sínu í markinu.
„Ég er mjög ánægður með fyrri
hálfleik en það var ekki heil brú í
leik okkar í síðari hálfleik. Það var
grátlegt að glopra þessu niður því
við höfðum tækifæri á að hafa
spennu í þessu í síðari leiknum,“
sagði Gunnar Gunnarsson, þjálfari
Víkings. „Við spiluðum eins og liðs-
heild í fyrri hálfleik. í seinni hálfleik
Birgir SlgurAsson var besti leik-
maður Víkings gegn Runar
réði einstaklingsframtakið ríkjum og
enginn gerði eins og við ætluðum
okkur, að spila langar sóknir og
komast hjá hraðaupphlaupum Run-
ar. Útlitið er slæmt en við stefnum
á að vinna seinni leikinn."
Víkingsstúlkur:
Átlu aldrei
möguleika
Norska kvennahðið Bekkelaget
burstaði íslandsmeistara
Víkings 30:13 í fyrri leik liðanna
í Evrópukeppni meistaraliða í Osló
í gærkvöldi. Staðan í hálfleik var
15:6 og voru yfirburðir norska liðs-
ins algjörir. Víkingsstúlkur gerðu
fyrsta markið þegar 13 mínútur
voru búnar og þá var staðan 7:1.
Theodór Guðfinnsson, þjálfari
Víkings, sagði að norska liðið hafi
verið í allt öðrum styrkleikaflokki
en Víkingur. „Við áttum aldrei
möguleika. Norska liðið gerði 10
mörk eftir hraðaupphlaup í fyrri
hálfleik. Þetta er eitt besta liðið í
Evrópu í dag og skipað hreint frá-
bærum leikmönnum. Við förum í
seinni leikinn með það hugarfar
að tapa með sem minnstum mun,“
sagði Theodór.
Mörk Víkings: Halla Marfa Helga-
dóttir 4, Valdís Birgisdóttir 3, Svava
Sigurðardóttir 2, Inga Lára Þónsdóttir,
Elísabet Sveinsdóttir, Svava Ýr Bald-
vinsdóttir og Hanna Einarsdóttir eitt
mark hver.
KORFUKNATTLEIKUR
Earvin „Magic" Johnson gerði þriggja ára samning við Los Angeles Lakers:
Fær andvirði 800 millj.
króna í grunnlaun í vetur
Hærri laun en nokkur íþróttamaður í hópíþrótt hefurfengið svo vitað sé
EARVIN „Magic“ Johnson, sem ákvað ívikunni að taka
keppnisskóna fram að nýju og byrja aftur að leika með Los
Angeles Lakers í NBA-deildinni, hefur gert þriggja ára samn-
ing við félagið. Og launin verða þau hæstu sem um getur í
sögu íþróttanna, þegar maður í liðaíþrótt á íhlut.
Johnson, sem hætti í fyrra eftir
að í ljós kom að hann er smit-
aður af HlV-veirunni, sem getur
leitt til alnæmi
Frá gerði þriggja át
Gunnari samning. Fyr
Valgeirssyni f fyrsta árið fa
Bandaríkjunum hann 146 mil]jón
bandaríkjadollara — um 800 mill
ónir ISK miðað við gengi dollarat
í dag, en það hefur lækkað mik
að undanförnu sem kunnugt e
Taiið er að Johnson taki þátt
um 50 af rúmlega 80 leikjum Iii
síns í vetur, og hann fær þá
292.000 dollara fyrir hvern leik:
urn 16 milljónir ÍSK. Sá sem var
efstur á listanum yfir launahæstu
leikmenn NBA-deildarinnar þar
til Johnson samdi nú var Patriek
Ewing, miðhetji New York
Knicks, sem fær 9,4 milljónir doll-
ara á ári, rúmum fimm milljónum
dollara (um 280 milljónum ÍSK)
minna en Johnson.
Fyrir annað og þriðja ár samn-
ingsins fær „Magic“ Johnson 2,6
milljónir dollara, hvort ár, sem er
Earvln „Magic“ Johnson ætti
að eiga fyrir salti í grautinn. Hann
fær 16 milljónir ISK fyrir hvern leik.
um 140 milljónir ÍSK. Fyrir
keppnistímabilin þrjú fær_ hann
því rúmlega einn milljarð ÍSK —
og hér er aðeins um grunnlaun
að ræða, vel að merkja. Uppbætur
fyrir árangur eru reyndar yfirleitt
ekki taldar mjög háar á mæli-
kvarða körfuknattleiksmanna,
vegna þess hve laun þeirra eru há.
Þess má svo geta í lokin að Ijóst
er, þar sem samningurinn er frá-
genginn og undirritaður, að það
er sama hvort „Magic“ verður
með í öllum leikjum Lakers-liðsins
þessi þijú ár eða einum — eða
leiki jafnvel alls ekki neitt — þá
fær hann alla þessa peninga í
vasann.
ÚRSLIT ^
FH - Kyndil 29:20
íþróttahósið Kaplakrika, Evrópukeppni
meistaraliða, síðari leikur í 1. umferð, fostu-
daginn 2. október 1992.
Gangur leiksins: 1:0, 4:1, 7:4, 7:6, 14:6,
14:7, 19:8, 22:12, 26:14, 27:18, 29:20.
Mörk FIl: Gunnar Beinteinsson 9, Hálfdán
Þórðarson 4, Guðjón Ámason 4, Sigurður
Sveinsson 4/1, Alexei Trúfan 4/2, Jóhann
Ágústsson 1, Arnar Geirsson 1, Ingvar
Reynisson 1, Svafar Magnússon 1.
Varin skot: Bergsveinn Bergsveinsson
10/1 (þar af 2, sem.fóru aftur til mót-
heija), Jónas Stefánsson 7 (þar af eitt sérh"
fór aftur til mótheija).
Utan vallar: 12 mínútur.
Mörk Kyndils: Birgir Hansen 5, Kári Niels-
en 3, Andreas F. Hansen 3, Hans A. Midj-
ord 3/1, Bárður Johanessen 2, PeturPeters-
en 2/1, Sophus Dal-Christiansen 1, Jónieif
Sólsker 1.
Varin skot: Regin Jakobsen 12 (þar af 5,
sem fóru aftur til mótheija).
Utan vallar: 8 minútur.
Dómarar: Charles Pedersen og Stiig Host
(Danmörku), ágætir.
Ahorfendur: 380 greiddu aðgangseyri.
Víkingur - Runar 14:23
Runarhallen í Sandefjörd i Noregi, Evrópu-
keppni.félagsliða - fyrri leikur í 1. umferð
(heimaleikur Víkings), fostudaginn 2. októ-
ber 1992.
Gangur leiksins: 0:2, 3:3, 4:3, 6:7, 9:7,
10:8, 10:17, 12:20, 14:23.
Mörk Víkings: Birgir Sigurðsson 6/1, Árni
Friðleifsson 5/1, Kristján Ágústsson 2 og
Dagur Jónasson 1.
Varin skot: Alexander Revine 16/1.
Mörk Runar: Tollessen 6. Tonning 6/2,
Kjendalen 4, Eirksen 3, Lundeberg 2, Vaj-
eröd 2.
Varin skot: Mats Franson 25/2 (þar af
varði hann 12 skot af línu).
Dómarar: Lorentsen og Lövquist frá Dan-
mörku. Voru mjög slakir.
Áhorfendur: 750.
1. deild kvenna:
Stjarnan - Grótta.................21:18
RSigrún Másdóttir gerði 7 mörk og Guðný
Gunnsteinsdóttir 6 mörk fyrir Stjömuna en
Laufey Sigvaldadóttir var markahæst í liði
Gróttu með 9 mörk.
2. deild karla:
HKN - ÍH..........................20:26
Blak
íslandsmótið, 1. deild karla:
HK - Þróttur Nes....................3;0
(15:6, 15:3, 15:7)
KA - Þróttur R......................2:3
(16:14, 15:11, 14:16, 8:15, 9:15)
Knattspyrna
Þýskaland
Úrslit i þýsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi:
Ucrdingen — Bayer Leverkusen....2:1
(Sassen 32., Sassen 84.) - (Kirsten 88.).
10.000.
Schalke — Karlsruhe................2:2
(Bueskens 14., Mihajlovic 67.) - (Kiijakow
21., Krieg 46.). 34.100.
Hamburg — Bochum....................2:0
(Hartmann 14., Bester 89.). 16.650.
FELAGSLIF
Uppskeruhátíð HK
Uppskeruhátíð og haustfagnaður knatt-
spyrnumanna HK í Kóvavogi fer fram á í
das í félagsheimili Sjáifstæðisflokksins í
Kópavogi, Hamraborg 5. Kl. 13.30 verða
veittar viðurkenningar fyrir alla flokka fé-
lagsins, en um kvöldið, kl. 21, er fagnaður
fýrir félagsmenn og velunara á sama stað.