Morgunblaðið - 08.10.1992, Blaðsíða 10
10
jy(U ífflílÖTXO ,fj HUDAtlU'IMMlH UKíAö814UOJ10M
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 1992
Fyrstu styrkir úr
Menningarsjóði VISA
Fyrsta afhending styrlga úr nýstofnuðum Menningarsjóði VISA
fór fram í Listasafni Siguijóns Ólafssonar á Laugarnesi við hátíð-
lega athöfn í gær. Veittir voru sex styrkir, samtals kr. 1.500.000,
á sviði leiklistar, ritlistar, tónlistar, vísinda og mannúðarmála.
Hver styrkþegi hlaut því kr. 250.000.
Eftirtaldir aðilar hlutu styrki:
Þorvaldur Þorsteinsson, myndlist-
armaður. Þorgrímur Þráinsson, rit-
höfundur. Áshildur Haraldsdóttir,
flautuleikari. íslenski leikhópurinn.
Bragi Ámason, prófessor í efna-
fræði við Raunvísindastofnun Há-
skóla íslands. Sophía Hansen,
snyrtifræðingur hlaut styrk á sviði
mannúðarmála. Að auki voru lagð-
ar fram kr. 250.000 til Málræktar-
sjóðs.
Menningarsjóður VISA var
stofnaður á aðalfundi VISA íslands
í mars síðastliðnum. Sjóðnum er
ætlað að vera til styrktar listum
og vísindum í landinu, einnig til
að veita fé til líknar- og velferðar-
mála. Um 95 þúsund Islendingar
nota VISA kort og hefur fjölgað
um 5 þúsund á þessu ári.
Einar S. Einarsson, fram-
kvæmdastjóri VISA gerði grein
fyrir stofnun sjóðsins í upphafi
athafnar og sagði meðal annars
að í vaxandi mæli væri leitað til
félagsins um stuðning. Því hefði
verið ákveðið að stofna sérstakan
listasjóð til að lista- og fræðimenn
sætu við sama borð. Alls bárust
sjóðnum 68 umsóknir um styrki
af margvíslegu tagi. í umsögn
sjóðstjómar um styrkþega segir
meðal annars:
Þorvaldur Þorsteinsson, mynd-
listarmaður er afkastamikill lista-
maður með margt í takinu. Mynd-
verk hans eru höggvin, klippt og
máluð. Einnig hefur hann sinnt
skáldskap og ritlist. í þessum mán-
uði kemur út bók eftir hann „Eng-
ill meðal áhorfenda." Og framund-
an hjá honum em margar sýning-
ar, meðal annars skúlptúrsýning í
Menningarmiðstöðinni Gerðubergi.
Um Þorgrím Þráinsson, rithöf-
und segir, að honum sé einkar lag-
ið að túlka sjónarmið unglinga,
setja sig inn í hugarheim persón-
anna og skapa raunsanna mynd
af íslensku æskufólki. Bækur hans
em á góðu máli og til þess fallnar
að auka áhuga ungmenna á bók-
menntum og lestri.
Áshildur Haraldsdóttir, flautu-
leikari hefur getið sér gott orð sem
einleikari bæði hér heima og er-
lendis. Hún hefur haldið fjölda ein-
leikstónleika og komið fram í út-
varpi og sjónvarpi á Norðurlöndum
og víðar. Einnig unnið til verðlauna
í norrænum og alþjóðlegum keppn-
um, síðast í sumar í Frakklandi,
þar sem hún vann 3 verðlaun.
Móðir Áshildar, Guðný Ýr Jóns-
dóttir, tók á móti styrknum fyrir
hönd dóttur sinnar.
íslenski leikhópurinn var mynd-
aður í samstarfí við Leikfélag
Reykjavíkur og Þjóðleikhúsið, til
að æfa og setja upp verkið „Ég
er meistarinn" eftir Hrafnhildi
Guðmundsdóttur Hagalín, í enskri
þýðingu á erlendri gmnd. Frum-
sýning verksins verður 17. nóvem-
ber næstkomandi í Lyrik Ham-
mersmith leikhúsinu í London.
Óskað hefur verið eftir að hópurinn
sýni verkið á fleiri listahátíðum á
næsta ári. Því var ákveðið að veita
leiklistarstyrkinn til þessa verkefn-
is sem er jafnframt liður í land-
kynningu. Gunnar Eyjólfsson leik-
ari tók á móti styrknum fyrir hönd
leikhópsins.
Sjóðsstjórnin var sammála um
að votta Sophíu Hansen virðingu
fyrir þá miklu þolinmæði og þraut-
seigju sem hún hefur sýnt við erfíð-
ar aðstæður. í umsögn segir, að
baráttuvilji Sophíu hafi vakið að-
dáun manna sem meta almenn
mannréttindi einhvers og vilja ekki
sjá þau fótum troðin. Einnig, að
íslendingar þurfí að standa saman
sem ein fjölskylda og veita Sophíu
alla þá fjárhagslegu aðstoð sem
nauðsynleg er til að fylgja málinu
fram til sigurs._
Um Braga Ámason, prófessor
segir: Bragi hefur lengst af starfað
við Háskóla íslands, bæði sem sér-
fræðingur, dósent og frá 1976 sem
prófessor í efnafræði. Helstu rann-
sóknarsvið hans eru á uppruna og
eðli grunnvatnskerfa landsins,
einkum jarðhitakerfa. Og frá 1978
rannsóknir á nýtingu innlendra
orkulinda, einkum á framleiðslu
og notkun innlends eldsneytis sem
gæti komið í stað innfluttrar olíu
og bensíns, hugsanlega einnig til
útflutnings.
Þegar haft er í huga, að ársinn-
flutningur íslendinga á bensíni og
olíuvörum er um 10 milljarðar,
sést hve miklir hagsmunir eru hér
í húfí. Sjóðsstjóm vill vekja at-
hygli á tengslum Háskóla íslands
og atvinnulífsins með því að veita
Braga styrk til áframhaldandi
rannsókna.
Úthlutun styrkja úr Menningar-
sjóði VISA fer fram að hausti og
umsóknarfrestur er til 30. ágúst.
Þjóðleikhúsið
Stræti frumsýnt í kvöld
Þau mistök urðu í vinnslu blaðs- fmmsýningin er í kvöld, fímmtu-
ins í gær að sagt var að breska dagskvöld 8. október kl. 20.30.
leikritið Stræti yrði fmmsýnt mið- Er beðist velvirðingar á þessum
vikudagskvöld. Hið rétta/er að mistökum.
011 01 07 A Þ’ VALDIMARSS0N framkvæmdastjori
k I I Vv'k I 0 / V KRISTINNSIGURJÓNSSON,HRL.loggilturfasteignasali
Til sýnis og sölu meöal annarra eigna:
Góð íbúð á góðu verði
Skammt frá „Fjölbraut í Breiðholti" 5 herb. íb. á 3. hæð, 104 fm. Vel
skipulögö. 4 svefnherb. Pvottaaðstaða á baöi. Góð sameign. Mikið
útsýni.
Skammt frá Álftamýrarskóla
Suðuríbúð 3ja herb. á 3. hæð, rúml. 80 fm. Góð sameign. Nýlega
endurbætt. Nýr bílskúr. Vinsæll staður.
Fyrir smið eða laghentan
3ja herb. rishæð í reisulegu steinhúsi í gamla austurbænum. 40 ára
húsnæðislán kr. 2,1 millj. Laus strax. Nánari uppl. aðeins á Skrifstof-
unni.
• • •
Miðsvæðis íborginni óskast
3ja-4ra herb. íbúð.
Skipti möguieg á sérhæð. ___________________________
Opið á laugardaginn. LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370
AIMENNA
FASTEIGNASAIAN
Þeir sem tóku á móti fyrstu styrkjum úr Menningarsjóði VISA Morgunbiaðið/Ámi Sæberg
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Sigurður Demetz ásamt nokkrum af nemendum og félögum sem hylltu hann á sönghátíðinni.
Sigurður Demetz hylltur
FJÖLDI manna var saman kominn í Þjóðleikhúsinu síðastliðið
þriðjudagskvöld, á hátiðartónleikum til heiðurs Sigurði Demetz,
söngkennara. Tilefnið var áttatiu ára afmæli Sigurðar, sem verð-
ur næstkomandi sunnudag, 11. október.
Sigurður kom hingað til lands
árið 1955 og hefur síðan stundað
hér söngkennslu og kennt flestum
þeim íslenskum söngvurum sem
hafa gert óperusönginn að aðal-
starfi á seinustu áratugum. Auk
þess hefur hann kennt fjölmörg-
um öðrum söngnemum sem njóta
sín í kórastarfi víðs vegar um
landið.
Með tónleikunum var verið að
reyna að gefa mynd af starfí Sig-
urðar hér og voru flytjendur um
hundrað; nemendur hans lengra
og skemmra komnir, meðal ann-
arra Sigríður Ella Magnúsdóttir
og Gunnar Guðbjörnsson, kórar
sem Sigurður hefur stjórnað,
Karlakór Keflavíkur og 24 MA-
félagar, auk þess sem fulltrúar
frá Óperusmiðjunni og íslensku
óperunni heiðruðu hann með
kvartett og sextett. Einnig foru
fulltrúar eldri kynslóðar söngvara,
þeir Kristinn Hallsson og Guð-
mundur Jónsson, mættir til leiks
og sungu dúett úr Rígólettó, en
þann dúett sungu þeir í uppfærslu
Þjóðleikhússins 1951.
Sigurður hefur í gegnum árin
haldið svokallaða „masterklassa"
erlendis og á tónleikunum í Þjóð-
leikhúsinu söng einn af erlendu
nemendunum hans, hollenska
söngkonan Viebke Göetjere. Mág-
kona Sigurðar, frá Suður-Týról,
kom og færði Sigurði útskorna
lágmynd frá ættingjum hans.
Tónleikunum lauk með því að
Sigurður fékk til liðs við sig þrjá
galvaska nemendur sína, þá Sig-
urð Bernhöft, Kolbein Ketilsson
og Gunnar Guðbjörnsson, til að
syngja saman „O sole mio“ við
gífurlegan fögnuð.
Stóri salurinn í Þjóðleikhúsinu var þéttskipaður fólki sem sýna vildi Sigurði þakklæti fyrir framlag
hans til íslenskra söngmála.