Morgunblaðið - 08.10.1992, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 1992
33
>
I
Sólanín er efni sem myndast í
venjulegum kartöflum og er neyt-
endum hættulaust í litlu magni.
Samkvæmt fræðibókum efnafræð-
innar er sólanín neytendum skað-
laust í litlu magni eða frá 20 mg/kg
til 100 mg/kg. Sé sólanínmagnið
um og yfir 200 mg/kg fer það að
hafa óheppileg áhrif, en nái það 600
mg/kg veldur það alvarlegum eitr-
unum.
Eitrunareinkenni koma fram í
magaverkjum, þarmabólgum, liða-
verkjum, ógleði, uppköstum, eyði-
leggingu rauðra blóðfruma, röskun
á blóðrás og öndunarstarfsemi,
röskun á starfsemi taugakerfisins,
fyrst krampi og síðan lömun. Slík
hætta -getur stafað af ungum
óþroskuðum kartöflum og grænum
eða gömlum kartöflum sem hafa
spírað, en í þessum kartöflum getur
sólanínmagnið farið upp í 600
mg/kg.
| Til að forðast eitrun af sólaníni
er neytendum ráðlagt að afhýða vel
grunsamlegar kartöflur sem eru
með grænu hýði, þ.e. að skera þykkt
hýðið þar sem sólanín efnið er, aðal-
lega við yfirborð kartöflunnar. Þær
á síðan að sjóða í miklu vatni og
hella soðinu.
Sólanín í fóðri getur
verið skepnum skaðlegt
Athyglisvert er að sólanín og
áhrif þess hafa aðallega verið rann-
sökuð af dýralæknum en sólanín
eitrið er ekki síður skaðlegt dýrum
en mönnum.
Grænar kartöflur á markaði
Lítið er vitað um sólanín innihald
íslenskra kartaflna, rannsóknir
hafa verið í gangi en niðurstöður
liggja ekki fýrir ennþá.
I gegnum árin hafa grænar kart-
öflur verið algeng sjón í matvöru-
verslunum hér. Kartöflur í gulu
plastpokunum hafa líka oft verið
grænar. Guli litur pokanna villir
fyrir neytendum enda ætlað að
fegra innihaldið. Plastpokarnir eru
sagðir tilkomnir vegna kvartana
kaupmanna um sóðaskap af papp-
írspokunum með loftgluggunum
sem áður voru notaðir. Nú mun
vera í undirbúningi að taka pappírs-
poka í notkun aftur - jafnvel e.t.v.
á næsta ári - kannski.
M. Þorv.
I.O.O.F. 5 = 174108872 = F.L.
St.St. 5992100819 VII
D HELGAFELL 5992100819
IVW
I.O.O.F. 11 = 17410088V2 =
B.K.
Hvítasunnukirkjan
Völvufelli
Samkoma í kvöld kl. 20.30.
Allir hjartanlega velkomnir.
I kvöld kl. 20.30 er almenn sam-
koma í Þríbúðum. Mikill almenn-
ur söngur. Ræðumaður Brynj-
ólfur Olason. Kaffi að lokinni
samkomu. Allir velkomnir.
Samhjálp.
Orð lífsins,
Grensásvegi8
Almenn samkoma í kvöld
kl. 20.30.
Allir hjartanlega velkomnir.
Hjálpræöis-
herinn
Kirkjustrcti 2
kvöld kl. 20.30: Almenn sam-
koma. Flóamarkaðsbúðin í
Garðastræti 2 er opin kl. 13-18.
V
7
KFUM
V
ADKFUM
Fyrsti fundur vetrarins verður í
kvöld kl. 20.30. Andrés Jónsson
og Ragnhildur Ásgeirsdóttir
fjalla um efnið: „í krafti Krists".
Allir karlmenn velkomnir.
Aðalfundur
sunddeildar KR
Aðalfundur sunddeildar KR verð-
ur haldinn ( fundarsal KR (
Frostaskjóli fimmtudaginn 15.
október kl. 20.30.
Stjórnin.
UTIVIST
Hallveigarstig l • simi G14330
Um næstu helgi
9. -11. okt. Hrunórkrókur - Lax-
argljúfur. Gengið niður með
Stóru-Laxá í Hreppum. Farar-
stjóri: Kristinn Kristjánsson.
10. -11. okt. Fimmvörðuháls.
Gengið upp með Skógá, gist (
Fimmvörðuskála. Á sunnudag
er gengið yfir Hálsinn og niður
í Bása á Goöalandi. Fararstjóri:
Bóthildur Sveinsdóttir. Nánari
uppl. og farmiðasala á skrifst.
Dagsf. sunnud. 11. okt.
Kl. 10.30: Fjörugangan 4. áfangi.
Útivist.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 • SÍMI 682533
Laugardagur 10. okt.
Kl. 9 - Straumfjörður á Mýrum.
Litast um á ströndinni við
Sraumfjörð og víðar á strand-
lengjunni við Mýrar. Þarna eru
m.a. söguslóöir kvikmyndarinn-
ar „Svo á jörðu sem á himni".
Verð 2000,- kr.
Sunnudagsferðir
11. okt.
Kl. 13.00 - 1. Selatangar, fjöl-
skylduferð. 2. Núpshlíðarhóls,
fjallganga. Brottför í ferðirnar
frá BS(, austanmegin (stansað
við Mörkina 6).
Helgarferð 9.-11. okt.
Haustferð á fullu tungli, Farið
um Kjalarsvæðið. Gist á Hvera-
völlum. Uppl. og farm. á skrifst.,
Mörkinni 6.
Gerist félagar í Ferðafélaginu.
Ferðafélag (slands.
Bjórhátíð að hætti Þjóðveija
VIKING Brugg hf., framleiðandi Löwenbrau- og Viking-bjórs á
íslandi, stendur þessa dagana fyrir miklum hátíðarhöldum til þess
að kynna bjór og bjórhátíðir. Fyrirmyndin er sótt til Þýskalands,
nánar tiltekið Miinchen, þar sem
Októberfest er 16 daga hátíð
sem ölgerðarhúsin þýsku standa
fyrir. Þessi hátíð á sér langa sögu
og er samtvinnuð þýskri menn-
ingu. Hátíð sú sem Viking Brugg
hf. stendur fyrir ber yfirskriftina
Októberfest '92 og er víðs vegar
Októberfest er haldið árlega.
í miðbæ Reykjavíkur, á Akureyri,
Seltjamarnesi og í Hafnarfirði.
Grunnurinn hefur verið lagður
að því að Októberfest geti fest
rætur hér á Fróni með tilkomu
sérstaks Októberbjórs sem fram-
leiðsla er hafín á hér á íslandi, hjá
Viking Bmgg hf. Þessum árstíða-
bundna bjór verður fylgt úr hlaði
með níu daga dagskrá í október
þar sem þýskir hljómlistarmenn
munu skemmta á ýmsum stöðum
á höfuðborgarsvæðinu ásamt ís-
lenskum starfsbræðrum þeirra.
Hátíðin verður formlega sett á
Eiðistorgi laugardaginn 10. októ-
ber kl. 22.00.
(Úr fréttatilkynningu.)
Vegna mikillar eftirspurnar
verður
verksmiðjuútsala
Árbliks
opnuð á ný
dagana 8.-18. október
Höfum fengið inn mikið úrval af
- dömu- og herrapeysum
- barnapeysum
- síðum útprj ónspeysum
á aðeins kr. 1.500-2.990
Einnig ódýran fatnað
s.s.
buxur, jakka, skyrtur o.fl.
Opið mánudag - föstudags
frá kl. 12.00-18.00.
Laugardag kl. frá 10.00-16.00.