Morgunblaðið - 26.11.1992, Page 43
MORGUNBLAÐÍÐ FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1992
43
Um Símatorgið
Frá Hrefnu Ingólfsdóttur:
Í Morgunblaðinu 6. nóvember eru
settar fram nokkrar spumingar um
Símatorg sem er þjónusta sem Póst-
ur og sími býður þeim aðilum sem
vilja veita upplýsingaþjónustu í
gegn um símakerfið.
1. Nú er boðið upp á 4 mismun-
andi verðflokka fyrir þjónustuna
þar sem verðið er kr. 16,60, 24,90,
39,90 og 66,40 á mínútu með vsk.
og fljótlega verður í boði einn ódýr-
ari flokkur. Póstur og sími hefur
ekki eftirlit með því efni sem þama
er boðið og er það alfarið á ábyrgð
þeirra sem bjóða þjónustuna fram.
I reglum sem settar hafa verið um
Símatorgið er hins vegar tekið fram
að efnið megi ekki bijóta gegn al-
mennum siðgæðisreglum. Ekki er
vitað um að kvartanir hafi borist
frá notendum um efnið sem er í
Símatorgi.
2. Mögulegt er að loka öllum sím-
um þannig að einungis sé hægt að
hringja staðarsímtöl úr þeim, þeir
em þá einnig lokaðir fyrir símtölum
út á land og í farsíma auk Síma-
torgs. í stafræna símakerfinu er
Athugasemd
Frá Guðna Björgólfssyni:
Tilvitnun verjanda í svokölluðu
kókaínmáli í góða dátann Sveik til
skýringar og útlistunar á orðinu
tálbeita er beinlínis röng þar sem
Brettschneider var leynilögreglu-
þjónn í ríkislögreglunni og var því
einungis að gegna embættisskyldu
sinni er hann hleraði tal manna á
kaffihúsinu Bikarnum.
GUÐNI BJÖRGÓLFSSON
Kirkjubraut 25, Akranesi
hins vegar hægt að loka sérstaklega
fyrir hringingar í Símatorg en rétt
tæp 50% símnotenda á íslandi em
með síma úr því kerfi.
3. Sama verð er á símtölum í
Símatorg hvaðan af landinu sem
hringt er.
4. Fyrirtæki og stofnanir hafa
oftast innanhússímakerfi þar sem
hægt er að loka fyrir það að starfs-
fólk hringi í Símatorgið. Sú lokun
er í flestum tilfellum gerð í einka-
búnaði fyrirtækjanna sjálfra en ekki
í almenna símakerfínu.
5. Eins og áður sagði er miðað
við að efnið bijóti ekki gegn al-
mennum siðgæðisreglum og er erf-
itt að fella stjömuspár undir það.
Nú birtast stjörnuspár í flestum
blöðum og tímaritum eins og hver
önnur dægradvöl og vonandi er lítil
hætta á því að kristin trú og siðgæð-
isvitund víki; kjölfarið eins og bréf-
ritari hafði áhyggjur af.
6. Greinin sem birtist í Morgun-
blaðinu undir yfirskriftinni „Emm
að gefa dreifikerfí símans nýtt líf“
var viðtal við starfsmann Miðlunar
þar sem hann kynnti hlut Miðlunar
í því að koma af stað þessari nýju
tegund símaþjónustu sem Símatorg
er. Dreifikerfí símans er síður en
svo lasburða enda er forsenda fyrir
því að hægt sé að koma með nýja
þjónustu á kerfínu að það geti tek-
ið á móti aukinni símaumferð.
7. Miðlun hefur um þriggja ára
skeið rekið upplýsingasímann
99-1000 og hefur verið litið á þann
rekstur sém tilraun. Nú er hins
vegar svo komið að þjónustu hlið-
stæð við Símatorg er veitt hjá öllum
símastjórnum í V-Evrópu og er eðli-
legt m.a. með tilliti til aukinnar
samvinnu í Evrópu að þjónustu-
framboð hér verði svipað og í öðrum
VELVAKANDI
TÝND LÆÐA
ÁTTA mánaða gömul læða týnd-
ist frá Möðrufelli 1 15. nóvem-
ber. Hún er ómerkt, svört með
hvítar lappir og með hvíta höku
og niður á bringu. Vinsamlegast
hringið í síma 79321 ef sést hef-
ur til hennar.
BROTÁ
STJÓRNAR-
SKRÁNNI
Ingimundur Sæmundsson,
Sörlaskjóli 56 Reykjavík:
ÞJÓÐIN vildi fá að greiða at-
kvæði um EES-málið, en ríkis-
stjórnin treystir henni ekki til
þess að segja sitt álit. En þjóðin
kýs þessa þingmenn og vonast
eftir því að þeir vinni landi og
þjóð til heilla og blessunar. Þá
hefur ríkisstjómin brotið vilja
þjóðarinnar með því að vilja ekki
leyfa henni að kjósa. Þetta er
mesta mál sem þarf mikillar
gætni og athugunar við þegar
stórveldi eiga í hlut. Svo halda
margir því fram að þetta sé brot
á stjórnarskránni sem þingmenn
skrifa undir. Þess vegja álít ég
að stjórnin ætti að segja af sér,
úr því að hún vildi ekki fara eft-
ir vilja þjóðarinnar. Þetta er mik-
ið mál, það er erfitt að leyfa stór-
veldi inní landhelgina til að veiða,
það mun ekki fara eftir lögum
sem því verða sett þegar fram í
sækir. Þjóðin er búin að fá nóg
af þorskastríði.
ÁSMUNDUR
VERÐIÁFRAM
Kristjana Alexandersdóttir:
ÉG er eindregið fylgjandi því að
Ásmundur Stefánsson verði
áfram formaður ASÍ. Hann hefur
mikla reynslu og er manna fæ-
rastur til að hafa yfírstjórn á
þessum erfiðu tímum.
TREFILL
TREFILL úr þvottabjarnarskinni
tapaðist við Skúlagötu á sunnu-
dag. Finnandi er vinsamlegast
beðinn að hringja í síma 11467.
LYKLAR
HÚSLYKLAR fundust á Sel-
tjamamesi merktir: „Lára Krist-
ín 9a.“ Upplýsingar í síma
611310.
GLERAUGU
KARLM ANN SGLER AUGU í
brúnni umgjörð töpuðust í októ-
ber. Finnandi er vinsamlegast
beðinn að hringja í síma 34668.
HÁLSMEN
HÁLSMEN, sem er silfurkross
með áritaðri bæn, fannst fyrir
utan Setbergsskóla. Upplýsingar
í síma 652133.
ÚR
SEIKO quartz karlmannsúr
fannst á göngustíg í Elliðaárdal
á laugardagsmorgun. Upplýs-
ingar í heimasíma 677575 eða
vinnusíma 609828.
TÝNDUR
FRESSKÖTTUR
SVARTUR og hvítur fressköttur,
ársgamall, fór að heiman að
framnesvegi 36 á föstudag og
hefur ekki sért síðan. Hann er
ómerktur með hvítan blett á baki.
Vinsamlegast hringið í síma
13959 ef hann hefur fundist.
löndum. Mörg fyrirtæki sem starfa
á íslandi em alveg eða að hluta til
í eigu erlendra aðila og hefur Póst-
ur og sími ávallt veitt þessum fyrir-
tækjum sömuu þjónustu og öðmm
fyrirtækjum. Óeðlilegt væri að fara
að mismuna fyrirtækjum nú eftir
eignaraðild þegar líklegt er að
samningur EES taki gildi hér á
landi en með honum er slík mismun-
un bönnuð.
8. í tekjuáætlun Pósts og síma
era tekjur af símtölum í Símatorg
ekki aðgreindar frá öðmm tekjum.
9. Hlutur Pósts og síma af tekjum
vegna símtala í Símatorg er kr.
6,60-17,00 á mínútu.
10. Öðm hvora berast kvartanir
frá notendum sem telja símareikn-
inga sína vera óvenju háa en ekki
er hægt að rekja það beint til hring-
inja í Símatorgið. Nú er verið að
útbúa nýjar reglur um Símatorg
sem gefnar verða út á næstu vikum
og í framhaldi af útgáfu þeirra verð-
ur væntanlega lokað fyrir hringing-
ar í dýrastu flokka Símatorgsins
úr eldra símakerfinu. Notendur
stafræna kerfisins geta látið loka
fyrir hringingar í Símatorgið þó
handhafí símans geti opnað fyrir
þjónustuna með leyninúmeri. Einn-
ig geta þeir fengið sundurliðun sím-
tala þar sem öll símtöl dýrari en
staðarsímtöl verða tilgreind með
verði eða þeir geta fengið uppgefíð
hve stór hluti símareiknings er
vegna símtala í Símatorg. Notendur
í eldra kerfinu sem vilja halda þeim
möguleika að geta hringt í Síma-
torg geta sótt um flutning (númera-
skipti) yfir í stafræna kerfið. Slíkum
beiðnum er hægt að sinna strax frá
notendum á flestum stærri stöðum
á landinu og er stefnt að því að
fyrir lok næsta árs verði hægt að
sinna flutningsbeiðnum frá notend-
um hvar á landinu sem er.
Fyrir hönd póst- og símamála-
stjóra,
HREFNA INGÓLFSDÓTTIR
Pennavinir
Frá Alsír skrifar 27 ára kona sem
skrifar á ensku og frönsku og hefur
áhuga á fólki af ólíku þjóðemi:
Aissa Taibaoui,
P.O. Box 138,
C.P. 28300,
Sidi Aissa,
Algeria.
Tólf ára frönsk stúlka vill eign-
ast 12-13 ára pennavinkonur með
það fyrir augum að skiptast á frí-
merkjum:
Fanny Le Clec’h,
1007 BD “Grand Parc“,
14200 Herouville St.Clair,
France.
Tékknesk 21 árs stúlka er vinnur
við fatasauma og er mikill náttúra-
unnandi:
Bohdana Kolarova,
Trebcin 193,
78342 Slatinice,
Czechoslovakia.
Frá Ghana skrifar 25 ára kona
með áhuga á útivist, skák o.fl.:
Elizabeth Harper,
P.O. Box 813,
Coronation Street,
Cape Coast,
Ghana.
Frá Ghana skrifar 27 ára kona
með áhuga á tónlist, bréfaskriftum,
kvikmyndum og ferðalögum:
Rebecca White,
P.O. Box 663,
Cape Coast,
Ghana.
LEIÐRÉTTING
Guðjón en ekki
Gunnar
í frétt Morgunblaðsins um at-
hugun á stöðu Lífeyrissjóðs borg-
arstarfsmanna í gær misritaðist
nafn tryggingarfræðingsins sem
vann athugunina. Hann heitir
Guðjón Hansen, en ekki Gunnar
eins og stóð. Er beðist velvirðing-
ar á þessum mistökum.
JOLABJAllAN 1992
HANDMALAÐ POSTULIN.
SAFNGRIPUR FRÁ HUTSCHENREUTER.
VERÐ KR. 1.950,-
SILFURBÚÐIN
KRINGLUNNI 8-12. SÍMI 689066.
Vantar þig
nýtt sjónvarp??
Eigum ennþá eftir örfá litsjónvarps-
tæki á alveg frábæru verði!!
20" litsjónvarpstæki
m/fjarstýringu.
Verð frá
kr. 25.900,- stgr.
Hágæða myndband m/fjarst. + 2 stk. 3ja
tíma spólur. Verð aðeins kr. 25.900,- stgr.
Þú fínnur varla betra verð!!!
□ Vasaútvarp m/heyrnatólum kr. 800
U Vasadiskó kr. 1.440
U Vasadiskó m/útvarpi kr. 1.990,-
U Útvarpsklukkur frá kr. 1.400
□ Útvarpsklukkur m/segulbandi frá kr. 3.400
□ Heyrnartól frá kr. 200
□ Bíltæki m/segulbandi frá kr. 3.900
□ Bíltæki með geislaspilara kr. 26.900
U Bílahátalarar frá kr. 1.600 parið
U Bílamagnarar frá kr. 3.500
U Hljómtæki án geislaspilara frá kr. 13.900
□ Hljómtæki með geislaspilara frá kr. 19.900
□ 14" sjónvörp m/fjarstýringu kr. 24.600
U 20" sjónvörp m/fjarstýringu kr. 29.900
U 21" sjónvörp m/fjarstýringu og textavarpi kr. 49.900
U Ferðatæki (útvarp - segulband) frá kr. 3.900
U Ferðaútvörp frá kr. 1.300
Hefur þú efni á að sleppa þessu?
TÓNVER
Þýskt
gæðamerkí
Garðastræti 2, sími 627799.
Sendum hvert á land sem er.
Munalán
Ábyrgð
i lifc
to 00 tri CO Gódcin daginn!