Morgunblaðið - 28.11.1992, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1992
7
Reykjadaiur
Góður árangnr þegar
borað var eftir vatni
Buðardal.
Á UNDANFÖRNUM árum hefur verið leitað að heitu vatni í
Reykjadal í Dalasýslu. Sá dalur gengur inn úr Miðdölum milli
Fellsenda og Grafar. Hann dregur nafn sitt af heitri uppsprettu,
sem nefnist Grafarlaug og er þekkt frá gamalli tið. Við hana er
gömul sundlaug, sem Miðdælingar byggðu fyrr á öldinni. Þarna
hefur þótt vænlega horfa til frekari vatnsöflunar og þess vegna
hefur svæðið verið sérstaklega kannað af visindamönnum Orku-
stofnunar. Má þar einkum nefna
ing,
í fyrstu varð árangur heldur lít-
ill af jarðborun á þessu svæði og
í annan stað urðu ýmis óhöpp og
tafir við verkið. Voru sumir að því
komnir að gefast upp og örvænta.
Þó var ráðist í að heíja nýja sókn
á þessu hausti. Ákvað héraðsnefnd
Dalasýslu að gera úrslitatilraun
og láta bora nýja holu. Gekk nú
allt eins og í sögu.
Holan er 1280 m djúp. Hún
gefur um 23 lítra pr. sek. af 82°
heitu vatni sjálfrennandi. Er nú
framkvæmdum lokið í bili. Þarf
nú að rennslismæla í vetur og láta
svæðið svara fyrir sig, hvemig það
er í raun og veru. En hvað sem
því líður er hér um mikinn og
Kristján Sæmundsson jarðfræð-
góðan árangur að ræða, sem náðst
hefur fyrir þrautseigju og dugnað
heimamanna í samvinnu við hina
hæfustu vísindamenn okkar á
þessu sviði og nokkum opinberan
stuðning sem veittur hefur verið
í þessum efnum. Á það má benda,
að lengi hefur verið talið, að Dala-
sýsla væri „kalt svæði“. Þar væri
ekki um neinn vemlegan jarðhita
að ræða nema á Laugum í
Hvammssveit. Nú er sú mynd ger-
breytt. Það er mikið fagnaðarefni,
heitt vatn er fundið fé, hvemig
sem nýtingu þess kann að vera
hagað í framtíðinni.
- Kristjana.
Morgunblaðið/Hallgrímur Magnússon
VERTU VIÐBUINN
VETRINUM
Með vel hönnuðum og slitsterkum
vinnufatnaði frá Fristads heldur þú
kuldanum úti og hitanum inni.
Létt og þægileg föt sem gefa
hámarks hreyfingarfrelsi.
NYTT NYTT!
Undirföt frá Fristads fyrir veturinn.
Virka eins og gömlu góðu
ullarnærfötin nema þau
stinga ekki, halda
líkamanum þurrum
Og hlýjUm. Gæði ■ Velliðan* Notagildj
Kuldalegur farþegi
Undanfarna daga hefur þessi snjókarl trónað á palli bíls eins í Gmndar-
firði. Hann er klæddur í frystihúsjakka og úr fjarlægð gæti virst sem
hér væri verkamaður á ferð ef ekki væri þessi snjóhvíti litarháttur.
Skemmuvegur 6L • Pósthólf 9330 • 129 Reykjavík
Sími 670 880 • Fax 670 885
Aldraðir
í Kópavogi
stofna
leikhóp
STOFNAÐUR var leikhópur
eldri borgara í Kópavogi 30.
september sl. og voru stofnfélag-
ar 28. Leikhópurinn hlaut nafnið:
Nafnlausi leikhópurinn.
í stjóm vom kjörin: Valdimar
Lámsson, formaður, Sólrún Yngva-
dóttir, ritari, Rannveig Löve, gjald-
keri, og varaformaður Guðrún Þór.
Meðstjómendur em: Sigríður
Steindórsdóttir og Indriði Guðjóns-
son.
Stofnun leikhópsins hafði verið
undirbúin af 5 manna undirbún-
ingsnefnd undir stjóm Ásdísar
Skúladóttur leikara. í tilefni þess
að 20 ár vom liðin frá stofnun Fé-
lagsmálastofnunar Kópavogs, þann
12. júní sl., var svo haldin nokkurs
konar afmælissýning og boðið var
helstu frammámönnum bæjarins og
mökum þeirra. Meðal sýningaratr-
iða var leikgerð eftir smásögu Fríðu
Á. Sigurðardóttur, Speglinum, unn-
in af Ásdísi Skúladóttur sem einnig
var leikstjóri.
Þar sem leikhópurinn hefur verið
formlega stofnaður og raddir hafa
heyrst um að fleiri hafi áhuga á
að sjá þessa sýningu hefur stjóm
leikhópsins ákveðið að hafa sýningu
á þessari fmmraun hópsins sunnu-
daginn 29. nóvember nk. í Félags-
heimili Kópavogs kl. 15, en ekki
hefur verið ákveðið hvort um fleiri
sýningar verður að ræða. Þetta á
að vera fjölskylduskemmtun þar
sem öll tjölskyldan getur sameigin-
lega notið góðrar skemmtunar og
látið sér líða vel, segir í frétt frá
leikhópnum.
(F réttatilkynning)
... ♦ ♦ ♦----
Happdrætti
Vinahjálpar
VINAIIJÁLP verður með happ-
drætti sunnudaginn 29. nóvem-
ber kl. 2 síðdegis í Fóstbræðra-
heimilinu, Langholtsvegi
109-111.
Þar verða meðal annars margir
fallegir handunnir munir og eins
og áður fyrr verður ágóðanum var-
ið til líknarstarfa. Kaffi verður á
könnunni.
HEFST Á MORGUN
Aldrei glæsilegri skreytingar.
Njótið aðventunnar, fyrsta hluta jólaundirbúningsins.
Blómaval hefur aldrei óður boðið viðskiptavinum sínum jafn glæsilegar
aðventu- og jólaskreytingar og nú.
Verið velkomin, sjóið glæsilegar skreytingar
eftir færustu skreytingameistara landsins.
BÚK> SJÁLF HL ADVENTU-
SKREYT1NGARNAR.
Gerð eigin aðventuskreytinga er í auknum mæli
upphaf jólaundirbúningsins hjá mörgum
fjölskyldum.
Eigum nú gífurlegt úrval af allskonar efni til
skreytinga: Greni, könglar, skreytingamosi, kúlur,
kerti, silkiborðar o.fl.
Landsins mesta úrval af kertum.
Mjög gott verð.
Opið alla daga frá kl. 9-22. Sími 689070