Morgunblaðið - 28.11.1992, Síða 45
MORGÚNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1992
‘45
UTSKRIFT
Konaí
hóp bakara
Bakarastéttinni bættust nýlega
tlu nýir liðsmenn er bakara-
sveinum var afhent sveinsbréf. Af
því tilefni buðu Landssamband bak-
arameistara og Bakarasveinafélag
íslands sveinunum til kaffisamsætis
að Hótel Holti í Reykjavík og var
myndin tekin við það tækifæri. Að
þessu sinni var ein kona í hópi bak-
arasveinanna, Kristín Ása Einars-
dóttir, en hún vinnur nú í bakaríi
Kaupfélags Skaftfellinga á Höfn í
Hornafirði. Kristín er ein fárra
kvenna í faginu. „Ástæða þess að
konur sóttu lítið í þetta starf var
hversu erfitt það var,“ segir hún.
„Það hefur hins vegar breyst mjög
mikið, þó að maður taki vissulega á.“
Kristín segist hafa leiðst út í bak-
aranámið af tilviljun. Hún starfaði
sem afgreiðslustúlka í bakaríi og
greip öðru hveiju í vinnu bakatil.
Svo fór að henni var boðinn samn-
ingur, hún ákvað að slá til og hefur
nú lokið tilskildu fjögurra ára námi.
„Þetta er skemmtilegt starf og vin-
nutíminn venst fljótt. Hér hefst
vinna á bilinu tvö til hálffimm að
Á myndina vantar einn bakarasveinanna, Sigurgeir Aðalsteinsson.
Auk hans útskrifuðust: Kristbjörn Þór Bjarnason, sem lærði í Mos-
fellsbakaríi, Sigurgeir J. Aðalsteinsson, Smárabakaríi, Benedikt
Áskelsson, Ragnarsbakaríi, Davíð Jóhannesson, Gullkorninu, Bjarni
Freysteinsson, Kaupfélaginu Fram á Neskaupstað, Kristin Ása Ein-
arsdóttir og Sigurður Þ. Jónsson, sem lærðu í Grensásbakaríi, Sigur-
jón Sigurðsson, Krás hf. Víðir Guðmundsson, Kaupfélagi Þing-
eyinga, Húsavík og Guðjón Jóhannesson, Bernhöftsbakaríi.
nóttu. Mér finnst gott að vera búin mína.“
að vinna snemma, legg mig á daginn En bakar þú einhvern tíma heima
og hef svo kvöldin fyrir mig og vini hjá þér? „Nei, aldrei."
KVIKMYNDIR
A
Islendingar slá Norðmönnum við
Itengslum við umsókn Norð-
manna um aðild að Evrópu-
bandalaginu hefur fjöldamörgum
atriðum samningsins verið velt
upp, meðal annars auknum
möguleikum á sviði kvikmynda-
gerðar. í nýlegri grein í norska
blaðinu Aftenposten er tekið
dæmi af íslendingum þegar rætt
er hvernig njóta megi góðs af
evrópskri samvinnu. „ísland er
komið fram úr Noregi“ segir í
fyrirsögn greinarinnar. „Þökk sé
evrópskum þróunarsjóðum og
-verkefnum, er kvikmyndafram-
leiðsla íslendinga, sem ekki eru
í EB, meiri en þær sjö norsku
myndir sem hafa verið gerðar á
þessu ári.“
Þegar greinarhöfundur Aften-
posten veltir fyrir sér skýringum
á þessu kemur ýmislegt til
greina. „Ef dæma á af leikslokum
á kvikmyndahátíðinni í Liibeck
er ljóst að ástæðan er ekki aðeins
sú að hinn nýi framkvæmdastjóri
Kvikmyndasjóðs, Bryndís
Schram, er af Hansaætt, aðlað-
andi og þar að auki gift utanríkis-
ráðherra landsins. Áhorfendur
eru einfaldlega hrifnir."
Nefnir
hann sérstak-
lega mynd
Ásdísar Thor-
oddsen, Ingu-
ló, sem hann
segir mynd
fulla af kímni og ítarlegum lýs-
ingum á íslandi nútímans.
Greinarhöfundur telur að það
borgi sig að feta í fótspor íslend-
inga. „Og þótt „félagsgjaldið“
fáist ekki til baka í framleiðslu-
kostnaði, eins og íslendingar
hafa margoft fengið, njótum við
góðs af þeirri þekkingu og því
kerfi sem þar hefur verið komið
upp og sem samsvarar kostnað-
inum margfalt."
Norgeer
overgátt
avJdand
Úr Inguló, mynd Ásdísar Thoroddsen, sem
greinarhöfundi Aftenposten finnst full af kímni
og vera ítarleg lýsing á Islandi nútimans.
Tannverndarráð
ráðleggur foreldrum að gefa börnum sínum
jóladagatöl
án sælgætis
- Veist þú að við búum öll yfir stórkostlegum
eiginleikum til að lækna okkur sjálf?
- Veist þú að með því að nýta okkur þessa eigin-
leika getum við einnig hjálpað öðrum?
- Vilt þú nýta þér þessa eiginleika?
- Reikinámskeið er ein af mörgum leiðum til þess.
Námskeið í Reykjavík:
1.-3. desember, kvöldnámskeið, 1. stig.
5.-6. desember, helgarnámskeið, 1. stig.
8.-10. desember, kvöldnámskeið, 2. stig.
Upplýsingar og skráning í síma 33934.
Guðrún Óladóttir, reikimeistari.
ISLENSK
HU8GÖGl\
MIKIÐ ÚRVAL AF HORNSÓFUM OG SÓFASETTUM.
SÉRSMÍDUM HORNSÓFA EFTIR MÁLI.
Verð frá kr. 77.400 stk.
% húsgögn
FAXAFENI 5, SÍMI 674080 - 686675
í tilefni af afmæli fullveldisins
er boðið til sýningar á
DUNGANON
þann 1. desember kl. 20
50% APSLÁTTUR
ALLRA SÍÐASTA SINN
SÍMI 680680
LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR • borgarleikhúsið