Morgunblaðið - 03.12.1992, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1992
3
íþessari viðamiklu
og vönduðu bók
er stuðst við dýrmœtar
heimildir sem ekki
hafa komið fram áður
- þar á meðal minnisbækur
Ásgeirs Ásgeirssonar og
drög að endurminningum
hans, að ógleymdum
bréfum Ásgeirs
sjálfs sem hann skrifaði
Dóru Þórhallsdóttur
á meðan þau
voru trúlofuð.
Þetta er ítarlegt,
skemmtilegt og heillandi
verk um einn af merkustu
sonum þjóðarinnar.
>>v ,
ilifl
Þórhallsdóttur og alla tíð nutu
þau mikillar hylli þjóðarinn-
ar. Þetta er persónusaga
í orðsins besta skilningi,
en endurspeglar jafn-
framt helstu viðburði ls-
landssögunnar ó þessari
öld, þv! í þrjá áratugi var
Asgeir einn áhrifamesti
stjómmálamaður þjóðarinnar.
Gylfi Gröndal ritar sögu Ásgeirs og
dregur upp ógleymanlega mynd af
vitrum og farsælum leiðtoga.
4>
FORLAGIÐ
LAUGAVEGI 18
SÍMI 2 51 88
Ásgeir Asgeirsson var kjörinn
forseti árið 1 952 gegn
valdi og vilja forystu-
manna tveggja stærstu
stjórnmálaflokka landsins.
Þar varð þjóðarviljinn
flokksvaldinu yfirsterkari.
Hann sat á forsetastóli í
sextán ár með dyggum
stuðningi konu sinnar, Dóru