Morgunblaðið - 03.12.1992, Qupperneq 4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1992
Hlaut verðlaun á
Ítalíu fyrir tilviljun
Á 22. alþjó^legxi kvikmyndahátíðinni á Ítalíu sem bar yfirskrift-
ina „Náttúran, maðurinn og umhverfi hans“ 9.-14. nóvember sl.,
hlaut myndin „Villi Knudsens Iceland" sérstök verðlaun. Veitti
dómnefnd þau sem viðurkenningu fyrir fagmannlega vinnu kvik-
myndahöfundarins Vilhjálms Knudsens, sagt að hann sýni á fag-
mannlegan hátt sérstöðu íslands frá sjónarhorni náttúrunnar,
umhverfisins og mannlifsins. En myndin er alíslensk, öll vinna
unnin á íslandi. Séra Jakob Rolland, sem hér var og nú starfar
1 Vatikaninu, veitti verðlaununum móttöku fyrir hönd Vilhjálms
Knudsens á lokahátiðinni i konungssal Príorihallar í nágrenni
Rómarborgar.
Kvikmyndin er 63 mínútna löng
og gerð frá nokkuð öðru sjónar-
homi en íslandsmyndir yfirleitt.
Hún tengir saman mannlíf og
náttúru landsins. Vilhjálmur
Knudsen hefur allt frá 1986 verið
að vinna hana og var hún fullgerð
í enskri franskri og þýskri útgáfu
í vor. I sumar sýndi Vilhjálmur
myndina í sal sínum í Hellusundi
og víðar og fór hún svo vel í er-
lenda gesti að hann setti hana á
fasta dagskrá. Ekki hefur hann
enn sent hana á kvikmyndahátíð-
ir, en á hátíðinni „La Natura,
l’Uno e il suo ambiente“ lenti hún
fyrir skrýtna tilviljun. Vilhjálmur
hafði sent séra Jakobi Rolland
vini sínum eintak á myndbandi
að gjöf. Matsveinn í Vatikaninu,
sem er doktor í jarðfræði og starf-
ar einnig með forstjóra hátíðar-
innar, prófessor Carlo Savini,
sýndi honum myndina og þeir
drifu hana inn. Þessi kvikmynda-
hátíð hefur verið haldin síðan
1970 og er ein af mikilvægustu
hátíðum sinnar tegundar. Hún er
-tmdir vemd forseta Ítalíu og að
henni standa ríkistjórn Ítalíu,
Sameinuðu þjóðimar, Evrópu-
bandalagið, UNESCO og alþjóð-
leg vísindanefnd undir stjóm pró-
fessors Carlo Savini. í dómnefnd-
inni, sem veitti þessi sérstöku
verðlaun, em margir frægir menn
svo sem David Attenborough, sem
er íslendingum kunnur af frábær-
um náttúmmyndum í sjónvarpi.
íslandsmynd Villa er að öllu
leyti unnin á íslandi og af íslensk-
um aðilum. Sjálfur tekur hann
myndirnar og skrifar textann,
Magnús Blöndal Jóhannsson
Vilhjálmur Knudsen með verð-
launaskjöldinn og kvikmyndina
á myndbandi.
samdi tónlistina, klippivinnu ann-
aðist Guðmundur Bjartmannsson,
tónvinnsluna Sigfús Guðmunds-
son og myndin er unnin í íslensku
fyrirtækjunum Saga Film og
Verksmiðjunni.
Þess má geta að William A.
Henry III, einn aðalgagnrýnandi
Time Magazine, sem unnið hefur
Pulitzer-verðlaunin tvisvar svo og
Emmy-verðlaunin, skrifar mjög
lofsamlega um hana í löngu máli.
Þar segir hann m.a. að þótt þessi
mynd væri aðeins frásögn og sam-
safn af liðnum verkum höfunda,
væri hún samt eitthvað alveg sér-
stakt vegna kappsfullrar, skap-
andi og iðulega hættulegrar kvik-
myndunar Knudsens-feðganna á
eldfjöllum, jarðskjálftum og öðr-
um jarðfræðifyrirbrigðum á ís-
landi síðan 1947... „Island Villa
Knudsens er stórkostlega saman-
sett og ákaflega skemmtilegt
listaverk, melódramatískt inni-
hald hennar oft sett fram í sam-
hljómi við þurra hnittni og hóg-
væran frásagnarmáta. Þemað að
baki lýsir hvernig íbúum þessa
hamslausa lands tekst að lifa eðli-
legu lffi þrátt fyrif sífellt yfirvof-
andi möguleika á stórslysum."
Hann segir ennfremur að e.t.v.
sé það besta dæmið um afrek
Vilhjálms Knudsens að honum
hafi tekist að gera sögu þar sem
óeldfimir þræðir gagntaki mann
ekki síður þegar allt kemur til
alls. „Þetta er metnaðarfullt verk
mikils listamanns, (mature work
of a master craftsman)" segir
hann í lokin.
VEÐUR
/ DAG kl. 12.00
Heimíld: Veðurstofa íslands
(Byggt á veðdrspá kl. 16.151 gær)
VEÐURHORFUR I DAG, 3. DESEMBER
YFIRLIT: Um 200 km suðaustur af Hornafiröi er 958 mb. lægð sem
þokast austur en yfir Grænlandi er vaxandi hæðarhryggur. Yfir Skot-
landi er vaxandi 967 mb. lægð ó leið norð-norð-austur.
SPÁ: Norðlæg átt, víða allhvöss norðanlands og austan, með éljagangi
norðan til, en slydduéljum fyrir austan. Norðan kaldi eða stinningskaldi
og skýjað með köflum eða lóttskýjað um landið sunnanvert.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FÖSTUDAG, LAUGARDAG OG SUNNUDAG: Norðanátt,
lengst af nokkuð hvöss. Eljagangur um landíð norðanvert en bjart veður
syðra. Frost 3-10 stig.
Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30,
22.30.Svar8Ími Veðurstofu Islands — Veðurfregnir: 990600.
-P- -&
Heiöskírt Léttskýjað
r r r * / *
r r * /
r r r r * r
Rigning Slydda
&
Hálfskýjað
* * *
* *
* * *
Snjókoma
Skýjað Alskýjað
V $ V
Skurir Slydduél Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
og fjaðrimar vindstyrk,
heil fjöður er 2 vindstig.
10° Hitastig
V Súld
= Þoka
dig..
FÆRÐA VEGUM: (Kl. 17.30 (gær)
Vetrarfærð er nú á flestum þjóðvegum iandsins, en þeir yfirleitt færir.
Fært er um Hellisheiði og Þrengsli, um vegi á Suðurlandi og með suður-
ströndinni austur á Austfirði. Fært er um vegi í Borgarfirði, ó Snaefells-
nesi og um Dali í Reykhólasveit. Fært er frá Brjánslæk til Patreksfjarðar
og þaðan til Bíldudals. Frá Bolungarvfk, er fært um Isafjarðardjúp og.,
Steingrímsfjarðarheiði til Hólmavíkur og þaðan suður til Reykjavíkur.
Greiðfært er um Holtavörðuheiði og um Norðurland svo sem til Siglu-
fjaröar, Ólafsfjarðar og Húsavíkur, en þaðan er fært í Mývatnssveit og
með ströndinni til Vopnafjarðar. Vegir ó Austufjörðum eru yfirleftt færir,
en Möðrudalsöræfi eru þungfær. Mjög vfða um land er hálka á vegum.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti f síma 91-631600 og
f grænni línu 99-6315. Vegagerðin.
VEÐUR VIÐAUMHEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
hltt veöur
Akureyrl +3 anjókoma
Reykjavlk 1 léttskýjaS
Bergen 8 rigning
Helsinkl 6 rigníng
Kaupmarmahöln 6 skýjað
Narssaresuaq +11 Iétt8kýjað
Nuuk +S skýjað
Osló 8 rigning
Stokkhólmur 7 skýjað
Þórshöfn 1 alydda
Algarve 17 þokumóöa
Amsterdam 10 rigning
Barcelona 16 jiokumóða
Berlín 7 þokumóða
Chicago 1 anjókoma
Feneyjar 10 þokumóða
Frankfurt 13 þokumóða
Glasgow 9 rigning
Hamborg 8 skýjað
London 12 rigning
Los Angeles 11 alakýjað
Lúxemborg 10 rígning
Madrid 12 alskýjað
Malaga vantar
Mallorca 18 skýjað
Montreal 2 alakýjað
NewYork 6 skýjað
Orlando 6 léttakýjað
Parfs 11 rigning
Madelra 20 skýjað
Róm 18 rlgning
Vín 1 alskýjað
Waahlngton 0 alskýjað
Winnipeg +8 alskýjað
Neytendasamtökin
Spurst fyrir um
verðhækkanir
fer ðaskr ifstofa
Dæmi um hækkun eftir gengisfellingu
þrátt fyrir fyrirframgreidslu
FJOLDI fyrirspurna hefur borist til Neytendasamtakanna vegna
verðhækkunar á ferðum til útlanda vegna gengisfellingarinnar.
Að sögn Elfu Bjarkar Benediktsdóttur hjá Neytendasamtökunum
eru fyrirspurnirnar tengdar því að verð á ferðum hefur hækkað
eftir að gengið var fellt, enda þótt þær hafi verið greiddar að
mestu fyrir gengisfellinguna.
Elva Björk sagði að slík af-
greiðsla væri ekki í samræmi við
þá túlkun sem Neytendasamtökin
hafí á þriðju grein í skilmálum
Félags íslenskra ferðaskrifstofu-
eigenda. Þar sé tekið fram að sé
búið að greiða 50% eða meira inn
á ferð sé sá hluti verðtryggður sem
greiddur hafi verið. Þetta komi
fram í öllum bæklingum frá öllum
ferðaskrifstofum.
Tilteknu máli af þessum toga
hefur verið beint til Neytendasam-
takanna en formleg kæra ekki
borist. Þau svör fengust hjá sam-
tökunum að ef umrædd ferðaskrif-
stofa leiðrétti þetta mál ekki sjálf
yrði það tekið fyrir hjá kvörtunar-
nefnd um ferðamál, sem Neytenda-
samtökin reka í feamvinnu við Fé-
lag íslenskra ferðaskrifstofueig-
enda og samgönguráðuneytið.
Tugur fyrirspuma um svipuð mál
hefur borist Neytendasamtökun-
um.
Elfa Björlq sagði að íjölmargar
fyrirspumir hefðu borist til Neyt-
endasamtakanna eftir £engisfell-
inguna og augljóst væri að neyt-
endur væru vel á verði gagnvart
verðbreytingum.
Vakiiaði við að mús
nagaði höndina
Miðhúsum.
í ÓVEÐRINU í síðustu viku var mikið að gera hjá starfsmönn-
um Orkubús Vestfjarða, en mikið var um bilanir á Gilsfjarð-
ar- og Vestfjarðalínu.
Einn starfsmaður Orkubús-
ins, rafvirki frá Búðardal, var
búinn að leggja nótt við dag
eins og aðrir starfsmenn við að
berja klaka af línum og hengja
þær slitnu upp. Hann hugðist
nú hvíla sig um stund í stöð
Orkubúsins í Geiradal en þar er
aðstaða til að leggja sig. Þar sem
loftræsting er þar léleg sklldi
hann eftir smá rifu á hurðinni
svo loftskipti yrðu næg. Þar sem
þreytan var orðin mikil sofnaði
starfsmaðurinn fast og þá
dreymdi hann að hann væri að
stinga hendinni inn í skáp og
þá biti stór padda í hönd hans.
Við þetta vaknaði hann og sá
að mús var byrjuð að naga hönd
hans.
Starfsmaðurinn brá skjótt við
og drap músina. Hann sýndi
lækni bitið því að bit nagdýra
geta verið hættuleg vegna þess
að þau lifa á öllu sem tönn á
festir og geta því verið sýklaber-
ar.
Hér vestur frá er mikið um
mýs og meira en ætla má eftir
frekar kalt og rakt sumar. Hins
vegar eru mýs afar fijósamar.
Meðgöngutími þeirra er 24 dag-
ar og eiga þær fjóra til sex unga
í einu og kynþroska eru þær
fjögurra vikna.
- Sveinn