Morgunblaðið - 03.12.1992, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 03.12.1992, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR :i. UESEMBKR 1992 k Alþjóða nátt- úruverndar- samtökin WWF eftir Sturlu Friðriksson Alþjóðasamtök um náttúruvernd voru stofnuð árið 1961. Samtökin höfðu í upphafi einkum tvennt á stefnuskrá sinni: 1. að safna fé, sem varið skyldi til náttúruvemdar og 2. að vekja fólk til meðvitundar um mikilvægi þess að bjarga tegundum dýra og plantna frá útrýmingu. Brátt kom í ljós, að vistkerfi jarð- ar höfðu afgerandi þýðingu fýrir afkomu tegundanna. Fóm samtökin þá að láta sig varða vemdun heim- kynna þeirra tegunda, sem vom í útrýmingarhættu og að lokum tóku samtökin að sinna náttúmvemd almennt, þar sem sýnilegt var að vemdun umhverfís hefði veigamikla _ þýðingu fyrir velferð alls mann- kyns. Samtökin stuðla nú að vemdun ýmissa sjaldgæfra lífvera og bú- svæða þeirra eða séstæðra náttúm- undra og reyna að afla þekkingar á og stuðla að vemdun þýðingar- mikilla þátta í Iífheimi jarðar. Þau verja árlega miklu fé til styrktar rannsókna á þessum sviðum. Má nefna athuganir á dýmm í útrým- ingarhættu og könnun á lífheimi þeirra, á áhrifum mengunar í jarð- vegi, hafí og andrúmslofti og á stór- felldri röskun umhverfis af völdum eyðingar skóga eða uppþurrkun votlendis. WWF em alþjóðasamtök án ríkis- styrkja. Er um að ræða sjóð, sem veitir fé til umhverfisvemdar er byggir afkomu sína eingöngu á ftjálsum framlögum. Aðalstöðvar sjóðsins eru í Sviss, en víða um heim eru félög sem sjá um fjársöfn- un á afmörkuðum svæðum. Alls hefur sjóðurinn varið yfir 100 millj- ónum dollara (6.000 milljónum Kveikt á jólatré í Kringlunni TENDRUÐ verða ljósin á jóla- tré Kringlunnar, sem er mynd- arlegur þinur úr Hallormsstað- arskógi, fimmtudaginn 3. des- ember kl. 17.30. Byggingavöru- verslun Kópavogs gefur tréð. Böm úr fímm ára bekk ísaks- skóla verða við athöfnina og kveikja.á ljósunum á trénu. Einnig mun Skólakór Kársness syngja við jólatréð en stjómandi kórsins er Þórunn Bjömsdóttir. Þá verða full- trúum Bamaspítala Hringsins af- hentur afrakstur af smápeningum sem viðskiptavinir Kringlunnar hafa kastað í gosbrunna hússins á þessu ári. í desember verður afgreiðslu- tími Kringlunnar lengri en venju- lega og einnig er opið á sunnudög- um til jóla. Laugardaginn 5. og 12. desember verða verslanir opn- ar til kl. 18, sunnudagana 6., 13. og 20. desernber verður opið frá kl. 13 til 17. Laugardaginn 19. og þriðjudaginn 22. desember er opið til kl. 22. Á Þorláksmessu er opið til kl. 23 og á aðfangadag er opið frá kl. 9 til 12. Aðra daga í desember er opið í Kringlunni eins og venjulega þ.e. til kl. 18.30 mánudaga til fimmtudaga en föstudaga til kl. 19, Veitingastaðir hússins em alltaf opnir lengur en verslanirnar. (Úr fréttatilkynningu) króna) til náttúruvemdar og hefur hann styrkt yfír 400 verkefni í 130 löndum. Sjóðurinn er efldur á ýmsa vegu: Mesti hluti fjárins kemur frá al- menningi, sem gefur fé til sjóðsins með ýmsum hætti. Höfuðstöðvam- ar í Sviss voru til dæmis gjöf eins manns. Vísindamenn og uppfræðar- ar gefa vinnu sína af áhuga. Marg- ir listamenn gefa verk sín í þágu samtakanna. Hljómleikar eru haldnir og listaverk boðin upp til sölu í fjáröflunarskyni. Verksmiðju- Sturla Friðriksson eigendur og aðrir framleiðendur sjá sér hag í því að styrkja samtökin í að stuðla að myndun heilnæmara umhverfis ýmissa svæða og við- „Er því þakkarvert að Póstur og sími hér á landi gefur nú út þessi sérstæðu og eftirsókn- arverðu frímerki til ágóða fyrir gott mál- efni.“ skiptamenn vilja veita fé til verk- efna sem leitast við að bæta lífsaf- komu manna í framtíðinni. Mörg félög og aðilar sem fást við mennt- un og skólastörf styrkja þann þátt samtakanna sem lýtur að upp- fræðslu um umhverfísvemd. Þá hefur fjöldi framleiðanda gert samning við samtökin um að veita þeim hluta hagnaðar sem fæst við að varningur fær að nota nafn sam- takanna, WWF, og merkið, sem er mynd af Panda-bimi. Er af þessu samstarfí gagnkvæmur ágóði. Ríkisstofnanir geta óbeint styrkt WWF-samtökin með því að láta slá mynt eða prenta frímerki, sem höfða til náttúruverndar og selja á fijálsum markaði. Söfnurum út um allan heim þykja slíkir gripir sérlega eftirsóknarverðir og verðmætir. Eykur þessi samvinna sölu um- ræddrar vöm sem gefur framleið- anda góðan hagnað, en WWF fær sína þóknun fyrir framlagið á nafn- inu og merkinu. Á þann hátt hafa ýmsar þjóðir styrkt samtökin og um leið haft sinn ágóða af samstarf- inu. Aukinn áhugi fólks fyrir velferð umhverfísins veldur því að stöðugt fjölgar umsóknum til WWF-sjóðsins sem sýnir að mikil þörf er á því að samtökin séu efld. Er því þakkar- vert að Póstur og sími hér á landi gefur nú út þessi sérstæðu og eftir- sóknarverðu frímerki til ágóða fyrir gott málefni, verndun umhverfís til heilla öllu jarðlífí og þar með mann- kyninu. Höfundur er n&ttúrufræðingur og fulltrúi WWF-sjóðsins. • i tkWMH B*. » W |v m * > ) I I * t t t t » » » H 1 4 //»»»»»»#»»»* II 1 1 <////##»*»*#. 1' 1 1 ‘f V,....... I, I ’ A M B RA ÞAR SEM VERÐ OG GAEÐI FARA EKKI SAMAIU Þú færð mun meira en þú borgar fyrir þegar þú kaupir AMBRA tölvur, því þær eru vandaðri og öflugri en verðið gefur til kynna. Það er því engin furða hvað AMBRA hefur verið gríðarlega vel tekið, bæði af fyrirtækjum og einstaklingum. Komdu í Nýherja og kynntu þér hvað þú færð stórkostleg gæði fyrir skemmtilega lágt verð. LOKSINS FÆRÐU TÖLVU ÞAR SEM VERÐ OG GÆÐI FARA EKKI SAMAN v. Í||i ■V Tegund Örgjörfi Tiftiðni Minni Diskur Skjár Tengi- raufar Stgr. verð AMBRA Sprinta 386SX 25MHz 4MB (16MB) 80MB 14" SVGA 3 98.000 AMBRA Hurdla 386SX 25MHz 4MB (16MB) 160MB 14"SVGA 6 131.000 AMBRA Sprinta 486SX 25MHz 4MB (32MB) 106MB 14" SVGA 3 138.000 AMBRA Sprinta 486SX 25MHz 4MB (32MB) 212MB 14" SVGA 3 157.000 AMBRA Sprinta 486DX 33MHz 4MB (32MB) 106MB 14" SVGA 3 166.000 AMBRA Hurdla 486DX 33MHz 4MB (32MB) 106MB 14" SVGA 6 173.000 AMBRA Hurdla 486DX 50MHz 4MB (32MB) 106MB 14"SVGA 6 199.000 (D Wm' .4 A M B R'-A Raðgreiðslur KAUPLEIGUSAMNINGAR NÝHERJI SKAFTAHLlÐ 24 • SlMI 69 77 00 & 69 77 77 AUtafskrefi á undan

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.