Morgunblaðið - 03.12.1992, Síða 34

Morgunblaðið - 03.12.1992, Síða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LIF FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER Bróðum komo. . . Borðin svigna undan gimileg- um réttum á jóla- hlaðborðum. Alls staðar er síld og hangikjöt ásamt öðra lostæti frá ýmsum löndum. Jólahlaðborð glæða miðbæinn lífi MARGIR veitingastaðir í gamla bænum halda þeirri venju að bjóða jólahlaðborð í desember. Alls staðar er fjölskrúðugur matseðill, en þó misjafn eins og verðið, sem er frá 1.250 til 2.340 kr. Síldarréttir og eftirréttir eru alls staðar á borðum. Af gefnu tilefni skal tekið fram að hér er hvorki um verð- né gæðakönnun að ræða, heldur upplýsingar til þeirra sem hyggjast setjast að jólahlaðborði í hjarta Reylqavíkur. «*SKÓLABRÚ Alþjóðlegt hlaðborð: Pate, sjávar- og fiskréttir eru m.a. á borðum. Sænsk jólaskinka, hangilqot og grísakjöt framreitt á ýmsa vegu, auk 5 tegunda af ostum og öðru eins af ostakökum. Boðið er franska upp- skeruvínið frá Beaujolais. í hádegi: 1.595 kr. Á kvöldin 2.195 kr. LÆKJARBREKKA Jólamatur frá Norðurlöndum er fyrirferðarmestur á þar er m.a. er hangikjöt, danska svínasteik og sænskan jólagraut auk margra kjöt- og fiskrétta. Píanóleikari leikur á flygil og ýmsar uppákomur verða með reglulegu millibili. Frítt fyrir 6 ára og yngri. Hálft gjald fyrir 7-12 ára í hádegi: 1.290 Á kvöldin: 1.890 NAUSTIÐ Um helgar er leikið fyrir dansi að lokinni máltíð. Jólahlaðborðið er með íslensku ívafí, sviðasulta og hangi- kjöt eru meðal rétta ásamt villigæsa- leggjum, kjötbollum og ýmsum rétt- um úr svínakjöti. I hádegi: 1.650 Á kvöldin: 2.340 JÓNATAN MÁVUR Jólasveinn gefur yngstu gestunum smágjafir og tónlistarmenn á staðn- um annast tónlistina. Á hlaðborði er t.d. reyksoðinn fiskur, loðna og sard- ínur, hangikjöt, pottréttir úr villi- bráð, kjötbollur og kalkúnn. Boðið er uppá snaps af ákavíti. í hádegi: 1.500 kr. Á kvöldin 2.100 kr. GAUKUR Á STÖNG Hlaðborðið er fimmtud.-sunnud. og ber danskan svip, skinku, andapate, kanínu-og svínasultu svo eitthvað sé nefnt. Boðið er uppá jólapúns og eplaskífur. Tilboð á mat og miða á sýningu Alþýðuleikhússins, Hræðileg hamingja, sem sýnd er í Hafnarhús- inu, er 2.440 kr. Á kvöldin: 1.490 CAFE ÓPERA Pate, pasta og hangilqot eru með- al rétta. Hreindýrabuff og villibráð eru líka á borðum ásamt roastbeefi, kalkúnabringum og reyktu grísalæri svo eitthvað sé nefnt. Boðið er uppá jólaglögg. I hádegi: 1.250 Á kvöldin: 1.950 HÓTEL HOLT Ekki er eiginlegt hlaðborð á Hótel Holti, en í desember er jólahádegis- verður. Máltíðin er þríréttuð og má velja milli §ögurra forrétta, 5 aðal- rétta og tveggja eftirrétta. Meðal forrétta er Anda-terrine, en lunda- bringur, hreindýrasmásteik og steiktur búri eru meðal aðalrétta. Boðið er uppá jólapúns. I hádegi: 1.395 kr. BT ■ Á TILBOÐSSTALLI matvöru- verslana kennir ýmissa grasa nú i jólamánuðinum. Hér eru tekin nokkur dæmi um vörur, sem eru á helgartilboðum mat- vöruverslana þessa dagana og hægt er að gera góð kaup í. BÓNUS SS piparnautasteik...1.079 kr./kg Sykur, 1 kg....................34 kr. Nopa-þvottaefni, 3 kg.....255 kr. SS-pylsupakki með 20 pylsum, 10 brauðum, SS-sinnepi og Heinz-tóm- atsósu........................749 kr. FJARDARKAUP Nautaþakk.....................495 kr./kg Kjúklingar....................495 kr./kg Lambakótilettur...............595 kr./kg Nóa-konfekt, 1 kg.......1.795 kr. MIKLIGARDUR Nautagúllas...................695 kr./kg Better Value jarðarbeijasulta, 900 g..............................99 kr. Juvel-hveiti, 2 kg.............54 kr. Cirkil, dansktgæðakaffi, 500 g .........................128 kr. HAGKAUP Rækjur frá Dögun.....469 kr./kg íslenskt hvítkál.....79 kr./kg Hreins sápukrem, tvö saman 199 kr. Þijár gerðir af Frón-jólasmákökum .....................129 kr. KAUPSTADARBÚÐIRNAR Pólsk jarðarber, heildós.....79 kr. Hytop-ferskjur, heildós.....139 kr. Ritzkex......................69 kr. Panda-konfekt, 600 g........896 kr. Kaupstaðarbúðirnar og 11-11- búðimar bjóða síðan upp á eitt ákveðið kjöttilboð á hveijum föstu- degi í desember sem forsvarsmenn verslananna hafa ákveðið að upp- lýsa ekki um fyrr en á fimmtudags- kvöldum. ■ Hert eftirlit með innflutningi smokka LANDLÆKNISEMBÆTTIÐ vinnur að því að gera eftirlit með innflutningi smokka virkara en nú er. Hefur það óskað eftir við tollayfirvöld að sérstakt tollnúmer verði tekið upp fyrir smokka, en nú eru smokkar tollflokkaðir með öðrum gúmmí- vörum sem gerir eftirlit með innflutningi þyngra í vöfum. Engar gæðaprófanir eru gerð- ar á smokkum og hafa innflytj- endur það í hendi sér hvaða teg- undir þeir setja á markað. „Við vitum ekki til að hér séu seldir smokkar sem hafa ekki erlenda viðurkenningu, engar kvartanir hafa borist. Fundir voru með innflytjendum þegar alnæmi fór að gera vart við sig og varð að samkomulagi að menn héldu sig við viðurkennd vörumerki með öruggan gæðastimpil. Síðan hafa þeir sent embættinu gæða- vottorð frá viðurkenndum stofn- unum erlendis. Rætt er um að fá sérstakt tollnúmer yfír smokka svo að ekki séu fluttir inn smokkar, sem standast ekki gæðastimpla,“ segir Matthías Halldórsson, að- stoðarlandlæknir. Neytendastofnanir víða á Vesturlöndum hafa gert gæðak- annanir á smokkum og hafa þær komið misvel út. Franska heilbrigðisstjómin bannaði 6 tegundir eftir gæðakönnun neytendasamtak- anna þar. Alþjóða- neytendasamtökin gerðu rannsókn á yfír 100 tegundum í 7 löndum fyrr á þessu ári. Hún sýndi að margar tegundir veita ekki áreiðan- lega vöm gegn alnæmi. Þetta átti einkum við um smokka á markaði í löndum þriðja heims- ins. Ástandið reyndist best í Hollandi. „Aðalatriðið er að á komist á virkt eftirlit með inn- flutningi smokka svo neytendur séu tryggðir gegn tegundum sem sannað er erlendis að em alls ekki nógu góðar,“ segir Kjartan Valgarðsson smokkainnflytj- andi. Sala á smokkum hér tvö- faldaðist í kjölfar eyðni og áróð- urs fyrir notkun smokksins. Lengi vel var salan 200 þús. smokkar á ári, en fór fljótlega upp í 400 þús., sem er mun minna en hjá nágrannaþjóðum. Árið 1989 vom 449.034 smokkar seldir. Ári síðar 457.241 og í fyrra dró lítillega úr sölu, seldir 436.826 smokkar. Skv. upplýs- ingum landlæknisembættis er yfirgnæfandi meirihluti smokka á markaði í besta gæðaflokki og fara þar fremst vörumerkin Durex og RFSU. Einnig World Best, Wapa, Protex og Maximum sem hafa öll erlenda gæðast- impla. „Þess ber þó að gæta að það er ekkert 100% í þessu lífí. IPteriöran táfi ú tnunpnD {goníuiiiv, sisimnr teítteu^íwv, .nínair yímangjrí aöíuni' tfnun -i Lhionimóinii. Smokkar geta bilað — jafnvel smokkar í hæsta gæðaflokki," segir landlæknir. Að lokum má geta þess að útsölustöðum smokka hefur fjölgað til muna síðan alnæmi kom til sögunnar, en fyrir utan að fást í apótekum eru þeir fáan- legir á flestum bensínstöðvum og skemmtistöðum. ■ JI VERDKÖNNUN VIKUNNAR Persónuleg jólakort eru samkeppnishæf í verði JÓLAKORT með Ijósmyndum eiga miklum vinsældum að fagna og hefur sala slíkra korta aukist á undanförnum árum. Ef einhverjir halda að þau séu dýrari en venjuleg kort, er sá munur ekki mikill, samkvæmt þeim upplýsingum sem Neytendaopna Morgunblaðsins aflaði sér. Fyrir utan að vera mun persónulegri en önnur kort, er verðið hreint ekki sem verst „enda ríkir mikil samkeppni í þessum bransa“, eins og einn kaupmaður orðaði það. Og hann bætti við: „Menn eru í raun að gefa þessi kort. Það kostar 41 kr. að búa til hverja mynd og kortið ásamt umslagi kostar 22,50 kr. með virðisauka- skatti i innkaupum eða alls 63,50 kr. Á sama tíma eru menn að selja þetta út á lægra verði.“ Ekki er óalgengt að ýmis félaga- samtök bjóði til sölu hefðbundin jólakort á 40-60 krónur. Þá virðist verð á jólakortum í verslunum vera eins misjafnt og þau eru mörg. Til dæmis kosta stök kort í einni bóka- búð frá 28 kr. upp í 150 kr. og í sömu búð kosta tíu korta pakkar frá 295 kr. til 478 kr. í annarri bókaverslun kosta stök kort frá 85 kr. til 300 kr. og fímm til tíu korta pakkar frá 250 kr. í 500 kr. Algengt er að framköllunarfyrir- tæki bjóði upp á jólakort með mynd, sem viðskiptavinur velur úr eigin myndasafni. Neytendaopnan kann- aði verð á nokkrum stöðum, en tek- ið skal fram að hér er aðeins um stikkprufu að ræða því þjónustuað- ilar eru mun fleiri. Innifalið í verði, sem hér er birt, er fjölföldun mynd- ar, kort með texta og umslag. Oft- ast eru umslögin með gylltri, áletr- aðri jólamynd. Verslanir Hans Petersen bjóða sex gerðir af jólakortum, 10 x 15 cm, á þrenns konar verði, 69 kr. 75 kr. og 85 kr. Lágmarkspöntun er 10 kort, en ef pöntuð eru 30 stykki eða fleiri fæst 10% afsláttur. 15% afsláttur er gefínn á 50 kort og 20% afsláttur á 100 kort. í gegn- um árin hefur hluti andvirðisins /mz Gleðileg jól fnrurlr kommdi ár *$> /íáu, runnið til einhvers tiltekins líknarfé- lags og í ár renna 5 kr. af hveiju korti til Gigtarfélags ís- lands. Verslunin Fram- köllun á stundinni, Ármúla 30, er með sjö tegundir jóla- korta, 10 x 15 cm, og kostar hvert 60 kr. 5% afsláttur er á 50 kort og 10% afsláttur á 100 kort. Verslunin Mið- bæjarmyndir, Lækj- argötu 2, selur fjór- ar tegundir 10 x 15 s

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.