Morgunblaðið - 03.12.1992, Side 35
T æplega
sjötíu þúsund
jólastjörnur ræktaðar
1 ár eru ræktaðar 69000 jóla-
sljörnur hér eða svipað magn og
í fyrra. Að sögn Magnúsar Ágústs-
sonar ylræktarráðunauts hjá
Bændasamtökunum eru 90-95%
þeirra dökkrauðar á lit en einnig
eru hvítar, bleikar, ljósrauðar og
tvílitar jólastjörnur.
Þegar jólastjama er keypt þarf að
huga að því að henni verði ekki kalt
á leið úr versluninni og í hús. Hún
má ekki fara út í gadd í plasti og
alls ekk geyma hana í köldum bíl á
meðan verslað er. Þegar heim kemur
þarf jólastjaman að vera á frekar
björtum stað og ekki nálægt opnum
glugga eða ofni. Best er að vökva
hana í undirskál og ef pottahlífar em
notaðar á ekki vökva í hlíf heldur
taka hana uppúr og hella umfram-
vatni af. Jólastjömur þola ekki að
standa í bleytu. Áburð þarf ekki að
gefa fyrr en seinnipart í janúar og
það er ákjósanlegt að vökva hana úr
ylvolgu.
Getur ert slímhúð
Jólastjama er mikil prýði en hún.
getur valdið alvarlegum eitmnum í
börnum setji þau jurtina upp í sig
og borði. Samkvæmt upplýsingum
sem fengust hjá Slysavarnarfélaginu
getur jólastjama ert slímhúð.
Eituráhrif á slímhúð geta valdið
miklum óþægindum. Tunga og slím-
húð í munni og hálsi geta bólgnað;
lokist öndunarvegur er hætta á köfn-
un. Ógleði, uppköst, niðurgangur og
verkir í meltingarfærum koma fram
sé jurtinni eða hluta hennar kyngt.
Afleiðingar koma ekki alltaf strax í
ljós (15-20 mín). Áhrif geta varað í
nokkra sólarhringa.
Meðferð: Gefið strax vatn eða
mjólk að drekka. Ef mikið hefur ver-
ið gleypt, reynið að framkalla upp-
köst (setja fingur í kok). Gefið 3-10
kolatöflur eftir aldri barns. Kolatöfl-
ur taka í sig eiturefni úr líkamanum
og eru skaðlausar. Þær fást í apótek-
ur og ættu að vera til á heimilum.
■
grg
cm, á 60 kr. stykkið. Enginn magn-
afsláttur er veittur.
Ljósmyndabúðin, Ingólfsstræti 6,
selur sjö gerðir jólakorta, 10 x 15
cm, og er verð frá 46 kr. upp í 59
kr. fyrir hvert kort. Enginn magnaf-
sláttur er veittur.
Ljósmyndavömr, Skipholti 31,
bjóða 14 mismunandi jólakort.
9 x 13 cm kortin kosta 39 kr.,
10 x 15 cm kortin 65 kr. og einfalt
kort með mynd og texta er á 65
kr. stykkið. Magnafsláttur þegar
pöntun ’fer yfir 50 kort, en sá afslátt-
ur er samkomulagsatriði og fer eft-
ir stærð pöntunar.
Ljósmyndavöruverslunin Amatör,
Laugavegi 82, selur 12 gerðir jóla-
korta, bæði ísjensk og erlend. Eldri
birgðir eru á 55 kr. en þau íslensku
fást á 69 kr. stykkið. Stór útlend
kort án texta með fóðruðu umslagi
kosta 95 kr. 10-15% magnafsláttur
er veittur ef pöntun er yfir 50 stykki.
Hraðfilman, Drafnarfelli 12, er
með þrenns konar verð á tíu gerðum
korta, 49 kr., 60 kr. og 64 krónur.
10% magnafsláttur er veittur á 30
stykki, 15% á 50 stykki og 20%
magnafsláttur er veittur þegar pönt-
un fer í 100 eintök.
Verslunin Filmur og framköllun,
Strandgötu 19 í Hafnarfírði, býður
fjórtán tegundir korta, 10x15 cm,
á 62 kr. stykkið. Um er að ræða
fast verð og því engan magnafslátt.
■
f
MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF
FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1992
35
Ávaxtakaka
Kristjönu Millu
ÞESSA ávaxtaköku hefur Krist-
jana Milla Thorsteinsson bakað í
fjölda ár þegar líða fer að jóhim.
Helst þarf að baka hana strax,
eigi að nota hana um jólin, því ef
hún á að vera góð þarf hún að
bíða í fjórar vikur á köldum stað.
Ávaxtakaka
500 g rúsinur
250 g rúsínur með steinum
(mó nota venjulegar)
125 g kúrennur
'Abolli dökkt romm eða koníak
500 g sykraður ananas
250 g sykruð rauð kirsuber
125 g sykraður sitrónubörkur
125 g sykraður appelsinubörkur
2 bollar hveiti
’/s tsk. múskathýði (mace)
'h tsk. kanill
'/i tsk. sódaduft
125 g afhýddar, gróft saxaðar
möndlur
125gvalhnetur
'A bolli smjör eða smjörliki
I bolli sykur
1 bolli púðursykur
______________5 egg_____________
1 msk. mjólk
1 tsk. möndludropar (ef vill)
Romm eða koníak
250 g möndlumassi og skraut ef
skreyta ó kökuna
1. Setjið rúsínur og kúrennur í bleyti
í rommið eða koníakið í stóra skál.
Setjið lok yfir eða hafið ávextina í
plastpoka ofan í skálinni. Látið
standa yfir nótt.
2. Takið til bökunarform sem ætlun
er að nota og klæðið þau með smurð-
um bökunarpappír. Nota má eitt
stórt hringform a.m.k 26 cm í þver-
mál, tvö 22 sinnum 12 sinnum 7 sm
brauðform sem tekur hvert helming
deigsins eða lítil form sem taka hvert
■jeinn fjórða deigsins. Það er hentugt
að gera ef ætlunin er að gefa vinum
eða vandamönnum köku í jólagjöf.
3. Skerið ávexti og möndlur og bæt-
ið í skálina hjá rúsínunum.
4. Sigtiðsaman lVíz bollaaf hveiti *
með kryddi og sódadufti. Setjið til
hliðar. Hitið ofninn í 140 gráður.
5. Blandið afganginum af hveitinu
létt saman við ávextina.
6. Hrærið smjör í stórri skál þar til
það er létt. Bætið sykri og púður-
sykri hægt í og hrærið þar til það
er létt og loftmikið.
7. Bætið í eggjum, mjólk og möndlu-
dropum og hrærið vel.
8. Bætið hveiti í með hrærivélina í
hægagangi. Hellið deigi yfir ávext-
ina. Blandið vel með stórri sleif og
eða höndunum.
9. Setjið deigið i tilbúin formin og
pressið vel niður.
10. Bakið stóraformið í 3 klst. og
15 mín., brauðformin í 2 klst. og 15
mínútur og minnstu formin í 2 klst.
Kökurnar eru bakaðar þegar pijónn
kemur út þurr þegar honum er stung-
ið í miðjuna.
11. Látið kökumar standa 30 mínút-
ur í formunum áður en þær em tekn-
ar úr og bökunarpappírinn tekinn af.
12. Þegar kökumar em kaldar er
þeim vafíð inn í tvöfalt gasstykld
vætt í rommi eða koníaki. Settar í
vel lokaðan kassa og geymdar a.m.k.
4 vikur á köldum stað. Ef gasstykk-
ið þornar má væta það.
13. Skreyta má kökumar með
marsípanhjúp og setja kirsuber eða
annarskonar kökuskraut ofaná.
Erfitt getur reynst að fá allar teg-
undir af ofannefndum ávöxtum en
nota það sem fæst og blanda saman
eftir getu. g
Góð ráð
í Hagkaupum
ÞESSA dagana er verið að setja upp
í verslunum Hagkaups kassa og
spjöld undir nafninu Góð ráð. Við-
skiptavinir geta komið hugmyndum
sínum á framfæri um það sem betur
má fara á sérstök spjöld og sett þau
síðan í kassa sem merktir eru Góð
ráð. í hveijum mánuði verða veitt
verðlaun fyrir bestu hugmyndina. ■
Kynning
Dekrað við
bragðlaukana
Sigurður Hall verður
íverslun okkar
í Lágmúla 8 í dag
kl. 15.30-17.30.
B R Æ .Ð U R N I R
f©) ÖRMSSONHF
B R Æ.Ð U R N I R
Lágmúla 9, sími 38820.
dögun
3GEKЮ
HREINS
ÁPUKKE
2SAMAN
DVÍTKAL
TILBOÐ
VIKUNNAR
VAPCO
-r
HAGKAUP
- alít í einniferó