Morgunblaðið - 03.12.1992, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1992
37
Ambjörg Einars-
dottir -
Það sló okkur öll mikið að heyra
um andlát ömmu og ein af mínum
fyrstu hugsunum var: „Góði Guð
bjóddu henni ömmu minni uppá
góðan stað, hún á það svo skilið.“
Atvinnuleysi
Allir skráð-
ir hjá vinnu-
miðlunum
RÁÐNINGARSTOFUM og vinnu-
miðlunum sveitarfélaga ber að
skrá alla sem til þeirra leita vegna
atvinnuleysis. Mishermt var í blað-
inu í gær að einungis þeir sem
hefðu bótarétt væru skráðir. Sam-
kvæmt úrtakskönnun Hagstof unn-
ar voru 4,5% landsmanna atvinnu-
lausir í nóvember, en hjá vinnu-
miðlunum voru 2,7% á skrá.
Minnmg
Lífsvilji hennar og andlegt þrek
var gífurlegt, eins veik og hún var
búin að vera í mörg ár.
Enga þekkti ég eins nægjusama
og hana og hjá henni áttu allir
skjól. Aldrei heyrði ég hana bak-
tala annað fólk, og alltaf fann hún
eitthvað gott í öllum.
Hjá henni og afa var annað
heimili okkar systkinanna í æsku,
og hjá þeim var ætíð mikill gesta-
gangur.
Nú er höggvið stórt skarð í til-
veru okkar, og þá sérstaklega afa,
sem misst hefur svo góðan lífsföru-
naut sem hana eftir þessa hálfu
öld sem búskapur þeirra hefur
varað. Það huggar mig að vita
hvað ég hef verið lánsöm að kynn-
ast konu eins og henni, og ég veit
að við eigum eftir að hittast aftur
á öðrum stað fyrir handan, og því
kvíði ég ekki.
Þó ég sé látinn, harmið mig ekki með tár-
um. Hugsið ekki um dauðann með harmi
og ótta, ég er svo nærri að hvert eitt ykkar
tár snertir mig og kvelur, þótt látinn mig
haldið... En þegar þið hlæið og syngið
með glöðum hug, sál mín lyftist upp í mót
til ljóssins: Verið glöð og þakklát fýrir allt
sem lífið gefur, og ég, þótt látinn sé, tek
þátt í gleði ykkar yfir lífinu...
(Óþekktur höfundur.)
Kveðja,
Berglind Hilmarsdóttir.
Gunnar Helgason hjá Ráðningar-
stofu Reykjavíkurborgar segir að
ekki þurfi síður að hjálpa þeim sem
fái ekki atvinnuleysisbætur, það sé
auðvitað reynt. Hins vegar sé ljóst
að mörgum sem ekki fá bætur, verk-
tökum til dæmis, þyki ekki taka því
að láta skrá sig. Nú séu á annað
hundrað manns, sem ekki fái bætur,
skráðir hjá stofunni.
í frétt blaðsins í gær um atvinnu-
leysi um mánaðamótin var sagt að
í Reykjavík hefðu 1.087 konur og
909 karlar verið skráðir hjá Ráðning-
arstofu Reylqavíkur 1. desember.
Þama víxluðust tölur, karlarnir voru
1.087 og konumar 909. Þetta er
talið jafngilda 3,5% atvinnuleysi í
borginni.
Fornleifa-
sýning opnuð
á laugardag
Sýning á fornleifum frá Reykjavík
og Viðey verður opnuð í Nýhöfn
næstkomandi laugardag, 5. desem-
ber kl. 14. í Morgunblaðinu í gær
var ranghermt að sýningin yrði
opnuð í dag.
Þú svalar lestraiþörf dagsins
ásíöum Moggans'
Norræna stofnunin
á Álandseyjum
auglýsir eftir
forstöðumanni
Norræna stofnunin á Álandseyjum (NIPÁ) var sett á fót með
samningi milli Norrænu ráðherranefndarinnar og Landsstjórn-
ar Álandseyja. Starfsemi stofnunarinnar, sem er fjármögnuð
af Norrænu ráðherranefndinni, hófst árið 1985.
Hlutverk NIPÁ, sem er í Mariehamn er að efla menningarlíf á
Álandseyjum í samvinnu við menningarlif á hinum Norðurlönd-
unum. Starfsemin tengist félagslífi menningarsamtaka á
Álandseyjum og tekur aðallega til almennrar menningarstarf-
semi, en hefur einnig ákveðin tengsl við kennslu og rannsóknir.
Til að sjá um þessi verkefni er nú auglýst eftir forstöðu-
manni, sem ásamt ritara verður eina fasta starfsfólk stofnunar-
innar. Æskilegt er að forstöðumaðurinn hafi starfað að menn-
ingarmálum og hafi reynslu af stjórnun. Kunnátta í dönsku,
norsku og sænsku er skilyrði, og kunnátta í öðrum norrænum
málum er kostur.
Forstöðumaðurinn er ráðinn til fjögurra ára, frá og með haust-
inu 1993. Laun og önnur ráðningarkjör fara eftir reglum um
ráðningu við norrænar stofnanir og eftir hæfni umsækjenda.
Staðan er í finnskum launaflokki A 26 (nú 169.224-216.108
FIM á ári, eftir aldursþrepi). Til viðbótar geta komið sérstakar
greiðslur.
Opinberir starfsmenn eiga rétt á leyfi frá störfum við ráðningu
í norræna stöðu og fá yfirfærð öll réttindi til heimalandsins.
Umsóknir sendist til: Nordens Institut pá Áland, Strandgatan
25, SF-22100 Mariehamn, Áland, Finland, í síðasta lagi 10.
janúar 1993. Nánari upplýsingar veitir Soren Hvenekilde, for-
stöðumaður Norrænu stofnunarinnar í síma +358 28 25242,
fax +358 28 13301 eða Gunnevi Nordman, stjórnarmaður í
SÍma +358 28 25000 eða +358 28 43864.
V
J
RAFMAGNSEFTIRLIT RÍKISINS
RAFVIRKJAR -
RAFVERKTAKAR
Próf í fagtæknilegum áföngum til löggildingar í
rafvirkjun verður haldið í Tækniskóla íslands
mánudaginn 14. des. 1992 kl. 13.15-14.30.
Þátttakendur leggi fram staðfest gögn um að
þeir hafi lokið námskeiðunum eða sambærilegu
námi.
Rafmagnseftirlit ríkisins.
AUKUG4RDUR
VIÐ SUND
HVÍTA HÚSIÐ /