Morgunblaðið - 03.12.1992, Qupperneq 56
Æ égj|f taritmililftfrUÞ EIMSKIP
Jpt^ VIÐ GREIÐUM ÞÉR LEIÐ
MORGUNBLADIÐ, AÐALSTRÆTI 6, 101 REYKJAVfK
StMI 691100, SlMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTl 85
FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1992
VERÐ I LAUSASOLU 110 KR.
Kristján Jóhannsson vinnur söng- og leiksigur í Chicago
Tilboð frá
frægnstu
óperuhús-
um heims
KRISTJÁN Jóhannsson vann
frækilegan söng- og leiksigur í
The Lyric Opera of Chicago,
síðastliðinn laugardag, í hlut-
verki Gústafs III, þegar Grímu-
dansleikur Verdis í uppfærslu
Soiy'u Frisell var frumsýndur. í
kjölfar þessa sigurs hefur
Metropolitan-óperan í New
York boðið Kristjáni að syngja
sama hlutverk árið 1995. „Eg
hugsa að ég taki þessu boði
Metropolitan, það er að segja
ef ég kem því inn í prógrammið
þjá mér árið 1995,“ sagði Krist-
ján í samtali við Morgunblaðið.
Danny Newman blaðafulltrúi
Chicago óperunnar á vart orð til
þess að lýsa frammistöðu Krist-
jáns. „Kristján Jóhannsson vann
sögulegan sigur. Þakið ætlaði af
húsinu, slík voru fagnaðarlætin,"
sagði Danny Newman, m.a. í sam-
tali við Morgunblaðið.
Kristján sagði, að strax upp úr
áramótum færi hann til Vínarborg-
ar, til þess að syngja í frumsýningu
Vínaróperunnar á Toscu, þann
fjórða janúar nk. Kristján mun
syngja í Metropolitan-óperunni í
New York í febrúar og mars á
næsta ári. „Mér hafa borist þijú
tilboð um að syngja í Covent Gard-
en-óperunni í London, sem ég hef
fullan hug á að taka. Þar á meðal
er um að ræða eina nýja upp-
færslu, sem er auðvitað geysilega
spennandi verkefni. Það þarf varla
að geta þess hversu þýðingarmikið
það er fyrir feril tenórsöngvara að
syngja á frumsýningu í nýrri
óperuuppfærslu," segir Kristján.
Sjá ennfremur miðopnu:
Kristján Jóhannsson slær í
gegn í Chicago.
Reuter
Kristján og synir
Kristján Jóhannsson í hlutverki Gústafs III í Grímudarisleik Verdis í Lyric Opera of Chicago. í
fangi Kristjáns er Víkingur, þriggja ára sonur hans, og drengurinn sem mænir upp til konungs
er Sverrir, fimm ára sonur Kristjáns, en báðir strákamir taka þátt í Grímudansleiknum. Stúlkan
sem leggur vinstri hönd sína á öxl Sverris litla, er barnfóstra fjölskyldunnar, Sif Bachmann.
Lyftan
truflar
víðóms-
tóninn
STARFSFÓLK Sjónvarpsins við
Laugaveg 176 hefur verið beðið
að nota ekki lyftu hússins að
kvöldlagi þegar sent er út í víðómi
eða stereó. Ástæðan er sú að vart
hefur orðið hljóðtruflana í
víðómssendingum og hafa þær
verið raktar til lyftumótoranna.
Fylkir Þórisson tæknifræðingur
hjá Sjónvarpinu sagði að unnið væri
að því að setja truflanadeyfi á lyftu-
mótorana. Hann sagði að lagnir frá
lyftumótorunum lægju upp á þak
hússins þar sem víðómssendir Sjón-
varpsins væri staðsettur og þess
vegna kæmu fram hljóðtruflanir.
Af þessum sökum hefur lyfta
hússins verið stöðvuð að kvöldlagi
og starfsfólki gert að ganga á milli
hæða. Fylkir sagði að húsið væri
upphaflega ekki byggt fyrir þá starf-
semi sem þar væri og auk þess væri
alltaf að þrengjast um starfsemina.
Vaxandi verkefnaskortur hjá verktökum um land allt
25-30% samdráttur
og fólkí sagt upp
0
Starfsmönnum Istaks hefur fækkað um
VERKTAKAFYRIRTÆKIÐ ístak hf. hefur þurft að segja upp
starfsmönnum I haust og vetur vegna samdráttar I verklegum fram-
kvæmdum. Er búist við að um 100 færri starfsmenn verði í vinnu
þjá fyrirtækinu eftir næstu áramót en störfuðu hjá því síðastliðið
sumar þegar mest var. Um 25-30% samdráttur er hjá verktakafyrir-
tækjum að sögn Arnar Kjærnesteds, formanns Verktakasambands-
ins, og verktakafyrirtæki um allt land hafa þurft að grípa til víðtæk-
ari uppsagna starfsfólks en dæmi eru um á þessum árstíma. Þá
segir Orn að fyrirtækin hafi þurft að grípa til uppsagna fyrr en
^éiyulega á haustin.
Örn sagði í samtali við Morgun-
blaðið að ástandið væri einna verst
í jarðvinnu og byggingariðnaði þar
sem sala nýrra íbúða hefur verið
treg að undanfömu. Þá sagði Öm
að engin stórverkefni væm fram-
undan og því mjög dökkt útlit í
atvinnugreininni.
Starfsmönnum hjá ístaki hefur
fækkað jafnt og þétt að undan-
fömu en 50-60 starfsmenn munu
starfa hjá ístaki eftir áramótin,
að sögn Páls Siguijónssonar for-
stjóra fyrirtækisins.
100 frá í sumar
Nokkrir starfsmenn ístaks
hættu um síðustu mánaðamót
og fleiri láta af störfum um ára-
mótin að sögn Páls. Hann sagði
að fækkunin í haust hefði verið
verulega meiri en á undanförn-
um tíu áram.
„Þegar mest var í sumar störf-
uðu 150 til 160 manns hjá okkur
en það verða 50 til 60 manns í
vinnu eftir áramótin," sagði Páll.
Stærsta verkefni fyrirtækisins er
gerð jarðganga á Vestfjörðum en
auk þess annast það byggingu
húss Morgunblaðsins í Kringlunni
og hefur einnig nokkur smærri
verkefni, að sögn Páls Siguijóns-
sonar.
Sjúkraliðar fylltu þingpallana við umræðumar í gær.
vmnu að nýju
SJÚKRALIÐAR hefja störf að nýju í dag, en þeir mættu ekki til vinnu
síðustu tvo daga vegna kjarabaráttu sinnar. Samningafundur er boðað-
ur í deilu þeirra hjá ríkissáttasemjara kl. 14 í dag.
Kristín Guðmundsdóttir, formað-
ur Sjúkraliðafélags íslands, sagði í
samtali við Morgunblaðið skömmu
fyrir miðnætti, að í framhaldi af við-
ræðum sínum við ýmsa aðila í gær
hefði hún á tilfinningunni að viðræð-
ur væra að komast á skrið. Sagði
hún að vonandi væri ekki langt í að
samningar tækjust.
Kristín sagði að sér hefði komið
á óvart hversu gífurleg samstaða
og vakning hefði verið meðal sjúkra-
liða þessa tvo daga. Samstaða var
á meðal fundarmanna í gærkvöldi
um að hefja störf á ný í dag.
Sjá nánar á bls. 24 og 32.