Morgunblaðið - 10.12.1992, Síða 7

Morgunblaðið - 10.12.1992, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1992 7 2 J olamyndir í Stöðvar 2 Um jólin frumsýnir Stöð 2 fjölda frábærra bíómynda. ' Spennumyndir, ástarmyndir, gamanmyndir og ævintýramyndir. Þú sérð allar þær bestu á Stöð 2. Hafmeyjar (Mermaids). Stóra og litli, Cherog Bob Hoskins fara á kostum í þessari grátbroslegu mynd. Leðurblökumaðurinn (Batman). Leðurblökumaðurinn tekst á við óþjóðalýð Gothamborgar. Jack Nicholson er óborganlegur í hlutverki Jókersins fláráða. Uppvakningar (The Awakenings). RobertDe Niro og Robin Williams í sannsögulegri mynd sem lætur engan ósnortinn. Uns sekt er sönnuð (Presumed Innocent). Harrison Ford leikursaksóknara sem grunaður er um að hafa myrt ástkonu sína. En hann er saklaus ... uns sekt er sönnuð. Alríkislöggurnar (Feds). Lögregluskóli FBI er ekkert barnaheimili og því fá vinkon- urnar Ellie og Janis að kynnast. Stórskemmtileg gamanmynd. Stórkostleg stúlka (Pretty Woman). Rómantísk gamanmynd með Juliu Roberts og Richard Gere. Frábær mynd, frábær tónlist, frábær skemmtun. Lömbin þagna (Silence of the Lambs). Einn magnaðasti tryllir allra tíma. Hugtakið spenna fær nýja merkingu við það að horfa á þessa mynd. Purpuraliturinn (The Color Purple). Whoopy Goldberg vinnur leiksigur í þessari ógleymanlegu mynd um blökkukonuna Celie. Logandi hræddir (The Ljving Daylights). Það er aðeins einn maður sem getur hindrað að heimsstyrjöld brjótist út og það er James Bond. Morðsaga (One, Two, Buckle My Shoe). Hver myrti tannlækninn? Ótal spurningum er ósvarað þegar Hercule Poirot kallar alla á fund í koníaksstofuna. „Morðinginn er..." Hver er stúlkan? (Who's ThatGirl?). Spennandi gamanmynd með hinni einu og sönnu Madonnu. Jólatilboð á fjölrása myndlyklum á meðan birgðir endast. 14.750 kr. stgr. Fást hjá Heimiiistækjum hf.og umboðsmönnum umfand allt.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.