Morgunblaðið - 10.12.1992, Page 30

Morgunblaðið - 10.12.1992, Page 30
30 MÖRGUNBLAÐIÐ FÍMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1992 KARL BRETAPRINS OG DIANA SKILJA AÐ BORÐI OG SÆNG Leiðir Karl og Díana í Hong Kong í nóvember. Sagt er, að tímasetn- ing skilnaðarins hafi verið ákveðin með tilliti til sona þeirra, Vilhjálms og Hinriks, 10 og 8 ára, í von um að mesta fjöl- miðlafárinu verði lokið þegar þeir fara í jólafrí á sunnudag. skilur Reuter Karl og Díana uppgötv- uðu fljótlega að þau höfðu vaJið rangan maka Lundúnum. The Daily Telegraph. ÞEIR sem eru kunnugir Karli Bretaprins og Díönu prinsessu segja að þau hafi bæði uppgötvað fljótlega eftir brúðkaupið að þau hæfðu ekki hvort öðru og hefðu valið rangan maka. Hægt hefði verið að breiða yfír þá staðreynd ef Díana hefði ekki komið öllum á óvart með því að heilla bresku þjóðina og koma af stað svokölluðu „Díönuæði". Reuter Brúðkaup aldarinnar Karl Bretaprins kyssir brúði sína, Díönu, eftir að þau voru gefin saman 29. júlí 1981. Brúðkaup þeirra vakti óhemju athygli út um allan heim og tilstandið minnti marga á fal- legu ævintýrin um ungu prinsana og saklausu stúlkumar sem gengu í hjónaband og lifðu hamingjusömu lífí allt til ævi- loka. Ástarsögu þeirra lauk þó á annan hátt en í gömlu sögun- um. Díana var nítján ára óreynd stúlka þegar hún giftist Karli, sem var 32 ára og hegðaði sér á flestan hátt eins og mun eldri maður. Hann hafði átt margar vinkonur og vingott við að minnsta kosti tvær gift- ar konur; en hann var eina ástin í lífi hennar. Hún var komin af fráskildum foreldr- um og giftist inn í nokkurs konar „fjölskyldufyrirtæki", sem lifði við strangan aga og hafði Iífstíl sem jafnvel háað- allinn er ekki lengur vanur. Karl átti aðeins miðaldra og alvörugefna vini, en vinir hennar voru ungir og gáska- fullir. „Hún heldur mér ung- um,“ sagði Karl í sjónvarps- viðtali skömmu eftir að trúlof- un þeirra var gerð opinber. En þegar hann minntist á ást- ina bætti hann tvisvar við: „Hvað svo sem það merkir." Fyrrverandi starfsmenn Karls hafa sagt að hann myndi vera fullkomlega sáttur við tilveruna ef hann hefði veiðistöngina sína til reiðu, pólóhestana sína söðlaða og fimm punda seðil til að leggja í söfnunarbaukinn við messu. Hún hafði hins vegar engan áhuga á þessum hugðarefnum prinsins. Fljótlega eftir brúðkaupið kom í ljós að vandamál þeirra fólst ekki í því að þau höfðu ekki sömu áhugamál, heldur því hversu fá áhugamál hún hafði, segir fréttaskýrandi The Daily Telegraph. Hún hafði einna mest yndi af róm- antískum skáldsögum, ballet og dægurlögum en giftist al- vörugefnum og gamaldags manni. Karl hafði yndi af sveitinni en Díana var borg- arbam, sem kaus frekar rokk- tónleika en reiðtúr í nátt- úrunni. Karl vildi helst dvelja í Bal- moral-kastala í Skotlandi, að- setri hjónanna, og fann til innilokunarkenndar þegar hann var í Lundúnum. Díönu leið hins vegar álíka illa í Balmoral. Þegar Díana heimsótti Kanada árið 1983, aðeins tveimur árum eftir brúðkaup- ið, viðurkenndi hún í samtali við Brian Peckford, forsætis- ráðherra Nýfundnalands, að sér fyndist „mjög erfitt að axla þann vanda að vera prinsessan af Wales“. Á þess- um tíma var hún einmana, henni leiddist og fannst hún vera ráðþrota. Karl var um- hyggjusamur í fyrstu en varð brátt þreyttur á sálarangist hennar, lystarstoli og hræðslu við að koma fram opinberlega. Ári eftir brúðkaupið, 1982, komst fyrst á kreik orðrómur um hjónabandserfíðleika þeirra. Vinur þeirra vísaði á þessum tíma til hjónabands þeirra sem „misskilnings frá upphafi til enda“. Karli, sem hafði lifað pip- arsveinslífi svo lengi, fannst hjónabandið þvingandi. Þegar hann var spurður um hjónalíf- ið eftir að Vilhjálmur prins fæddist svaraði hann: „Það er í lagi, en truflar veiðamar!" Prinsinn hefur sjálfur við- urkennt að hann sé þijóskur og Díana sýndi að hún var ekki eftirbátur hans í þeim efnum. Sex árum eftir brúð- kaupið var svo komið að þau voru æ sjaldnar saman. Svo virðist að bók Andrews Mortens um ævi Díönu, sem gefin var út fyrr á árinu, hafi ráðið úrslitum um hjónaband- ið. Orðrómur komst á kreik um að hún hefði sjálf heimilað útgáfu bókarinnar og var hann staðfestur aðeins þrem- ur dögum eftir að fyrsti út- drátturinn var birtur í bresk- um dagblöðum. Þá heimsótti hún gamla vinkonu sína, Ca- rolyn Bartholomew, sem veitti höfundinum upplýsingar um hjónabandserfíðleika hjón- anna. Fáir eiginmenn hefðu getað þolað þá auðmýkingu sem þessi bók var fyrir Karl, hvað þá tilvonandi konungur. Yfirlýsing frá Buckingham-höll Von um að árás- um á einkalíf hjónanna linni London. Reuter. ÞAÐ var John Major forsæt- isráðherra Bretlands sem skýrði frá því opinberlega í breska þinginu í gær að Kari Bretaprins og Díana prinsessa hefðu ákveðið að skilja að borði og sæng. „Frá Buckingham-höll kem- ur sú tilkjmning að prinsinn og prinsessan af Wales hafi tekið þá tregafullu ákvörðun að skilja að borði og sæng,“ hóf Major mál sitt. „Hinar konunglegu hátignir áforma ekki að skilja lögskilnaði og stjómskipuleg staða þeirra breytist ekki. Þessi ákvörðun var tekin í fullri vinsemd og bæði munu taka áfram fullan þátt í uppeldi bama sinna. Hinar konunglegu hátignir munu hvort f sínu lagi gegna opinbemm skyldum sínum og öðru hveiju munu þau bæði vera viðstödd fjölskylduvið- burði og koma fram saman opinberlega. Þótt drottningin og hertog- inn af Edinborg harmi þessa ákvörðun hafa þau skilning á erfiðleikunum sem leiddu til hennar. Hennar hágöfgi og hans konunglega hátign vona sérstaklega að nú megi ljúka árásum á einkalíf prinsins og prinsessunnar. Þau eru þeirrar trúar að einkalíf og tillitssemi séu nauðsynleg forsenda þess að hinar konunglegu hátignir geti séð bömum sínum fyrir hamingjuríku og traustu upp- eldi og á sama tíma haldið áfram að sinna heilshugar op- Reuter Þingheimur fullur samúðar Major sagði þingmenn reiðu- búna að styðja Karl og Díönu i erfíðleikum þeirra. inbemm skyldum sínum.“ Að lestrinum loknum bætti forsætisráðherrann við nokkr- um orðum. Major sagði að ákvörðunin um skilnað að borði og sæng hefði engin áhrif á tilkall til krúnunnar, engin ástæða væri til að ætla annað en að Karl og Díana yrðu krýnd konungur og drottning í fyllingu tímans. Ennfremur héldu synir þeirra sínum rétti til krúnunnar eftir föður sinn. Forystugrein The Daiiy Telegraph Ólíklegt að Díana verði drottning BRESKA dagblaðið The Daily Telegraph fjallar um skilnað Díönu og Karls að borði og sæng í forystu- grein í dag, fimmtudag. Þar segir að ólíklegt megi teljast að Díana prinsessa verði nokkurn timann drottning. I forystugreininni segir m.a.: „Það hefur reynst prinsinum og prinsessunni um megn að stilla saman ólíkan smekk sinn og áhugamál. Eftir að hafa reynt í nokkur ár að halda andlitinu út á við, þrátt fyrir óhamingju einkalífs- ins, gerði óvægin fjölmiðl- aumfjöllum og almenn um- ræða þeim óhjákvæmilegt að binda enda á óbærilega stöðu og reyna að koma Iffshlaupi sínu í virðingar- meira og heiðarlegra form." Síðar segir: „Hinn gíf- urlegi fjölmiðlaþrýstingur, sem ríkisarfahjónin hafa þurft að búa við, hefur átt sinn þátt í að auka á vanda þeirra við að viðhalda erf- iðu hjónabandi. Við lifum á tímum þar sem fólk í opin- berum stöðum er af tillits- leysi svipt réttinum til einkalífs. Það, að slitna tók upp úr sambandi þeirra, má hins vegar eftir sem áður rekja til þess að þau gátu ekki náð saman, frek- ar en til utanaðkomandi aðstæðna. Það er ekki hægt að af- greiða yfirlýsingu Bucking- hamhallar í gær athuga- semdalaust. Það er ekki trúverðugt að ganga út frá því, að þetta hafi engin áhrif á hina stjómskipu- legu stöðu, eða, eins og forsætisráðherrann gaf í skyn í þinginu, að prinsess- an af Wales muni einhvem tímann geta orðið drottn- ing. Konungsfjölskyldan hefur nú þurft að takast á við mikil og erfið vandamál tengd hjónabandsslitum. Það fordæmi er til staðar, að taka beri eitt skref í einu. Allt bendir til að drottningin muni vera áfram við völd um mörg ókomin ár. Ef sú verður raunin, gefst nægur tími til að íhuga hina stjórn- skipulegu stöðu, sem kæmi upp, ef prinsinn og prins- essan skildu lögskilnaði. Það er líklegt að Vilhjálmur prins verði kominn til manns á meðan drottning- inn situr enn við völd, sem myndi opna nýja möguleika varðandi arftaka hennar.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.