Morgunblaðið - 10.12.1992, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1992
47
bama um að halda fund með mér
og lögfróðum mönnum til að fá ein'-
hveija úrlausn í þessum málum.
Hann sagðist ekki geta gert neitt
nema fá eitthvað í hendurnar um
májið.
Ég bað þá foreldrana að gefa
skýrslu um málið frá sinni hlið og
gerði móðirin það og lét mig hafa.
Ég sendi afrit af henn til Bergs um
leið og ég ítrekaði mörgum sinnum
beiðni um fund.
Það næsta sem gerðist er að mér
berst í hendur níðbréf sem móðir
ungu dagmóðurinnar hafði gert um
þetta mál og mína afgreiðslu á
því. Þótti mér auðsýnt að skýrsla
móðurinnar hefði komist í hendur
hennar eða dóttur hennar. Kom síð-
ar í ljós að umsjónarfóstran hafði
fengið skýrslu móðurinnar hjá
Bergi og farið með það til dagmóð-
urinnar, án þess að hafa nokkum
tíma samband við foreldra bams-
ins. Umsjónarfóstran hafði einnig
látið í té heimilisföng dagmæðra í
Reykjavík til að koma níðbréfinu
til þeirra.
Móðir ungu dagmóðurinnar hélt
síðan fund með dagmæðmm þar
sem ég var ekki boðuð eða stjóm
mín. DV segir að þar hafí verið
samþykktar vítur á mig og for-
mennsku mína en ekkert hefur bor-
ist til samtakanna formlegt um
þennan fund. Síðan hringdi sami
blaðamaður til mín og tilkynnti mér
að listi væri í gangi með undirskrift-
um um 100 dagmæðra.
Foreldrarnir hafa enga úrlausn
fengið og Dagvist bama virðist
ekki sjá ábyrgð hjá sér til að reyna
að leysa þeirra mál.
Ég álít að þetta sé svo alvarlegt
að ekki sé hægt annað en að það
komist á hreint hver réttur bama
sé í raun í þessari dagvist, hver
réttur dagmóður sé og hver réttur
foreldra þegar svona eða hliðstæð
mál koma upp. Ef það er raunin
að svona málsmeðferð verði liðin
er erfítt fyrir alla að fá traust á
þessari dagvist. Ég hef beðið dag-
vistarstjóm að afgreiða þetta mál
og einnig hef ég beðið borgarstjóra
Reykjavíkur að sjá sér fært að tala
við mig, Berg Felixson og formann
dagvistarstjómar, Önnu K. Jóns-
dóttur.
Einnig hef ég beðið Félagsmála-
ráðherra að sjá sér fært að yfírfara
málið svo að það gæti orðið til þess
að ekki verði aftur svo illa haldið
á málum. Ég vil fá á hreint hvað
ég hef gert rangt og einnig ætti
það að vera akkur í fýrir forystu-
fólk sveitarfélaga hvað sé rétt og
rangt í svona deilumálum. Foreldrar
vistbamsins hafa orðið fyrir miklu
áfalli vegna framgangs þessa máls
og sitja nú uppi með að hafa engan
rétt. Ég tel að unga dagmóðirin
hafí hlotið skaða af að fá leyfí til
dagvistarinnar án þess að fá betri
vitneskju um umfang hennar.
Mig tekur það sárt ef að margar
dagmæður aðhyllast þau óheiðar-
legu vinnubrögð sem að mínu mati
hafa verið viðhöfð. Það er ekki dag-
mæðrastéttinni til framdráttar að
öryggi bama sé ábótavant eða að
viðskiptavinir þeirra missi traust á
stéttinni.
Aðalfundur verður haldinn í des-
ember en vegna anna minna get
ég ekki nú sagt hvenær. Biðst ég
afsökunar á þessu seinlæti en vegna
mikilla anna í haust og nú þessa
leiðindamáls hefur ekki gefíst tími
fýrr.
Ég mun ekki gefa kost á mér til
áframhaldandi formennsku en vona
að næsti formaður verði einhver
sem hefur unnið með samtökunum
og hefur sýnt heiðarleika og dugn-
að. í samtökin em í dag skráðir
511 félagar.
Ég þakka öllum sem hafa starfað
með mér þessi ár bæði í samtökun-
um og utan þeirra að uppbyggingu
dagvistar í heimahúsum á öllu land-
inu. Fyrir mér em öll dagvistar-
heimili landsins jafn mikilvæg.
Höfundur er formaður Samtaka
dagmæðra í Keykjavík og
formaður Landssamtaka
dagsvistar í heimahúsum.
í SULNASAL
Jólakrásir, skemmtiatriði, tónlist og dans.
Laugard. 12. og 19. desember.
Nú endurtökum við jólaskemmtunina í SÚLNASAL
með glæsilegu jólahlaðborði með norrænum og nú
amerískum jólaréttum, skemmtun og dansleik,
sannkölluð jólastemming. Að sjálfsögðu er hið
heimsfræga Beaujolais Nouveau á boðstólum og á
Sögulegu afmælisverði kr. 1992.
SKEMMTIATRIÐI:
Söngvararnir
Bergþór Pálsson og Egill Ólafsson koma fram
í fyrsta sinn í dúett og syngja sig inn
í hjörtu gestanna með léttum sígildum lögum.
Jónas Dagbjartsson og Jónas Þórir
leika á fiðlu og flygil.
Og Björgvin Halldórsson
með hljómsveit leika fyrir dansi til kl 3. 00.
Verð aðeins 2. 500, - kr.
GÓÐAlfÍŒMMTUN!
'
£
-lofar góðu!
/ HAGATORG S
M I 2 9 9 0 0
Sjö þúsund manns í Landssam-
tökunum Heimili og skóla
LANDSSAMTÖKIN Heimili og
skóli voru stofnuð 17. september
sl. Strax var hafist handa um fé-
lagaöflun og foreldrum grunn-
skólanemenda boðin þátttaka i að
byggja upp sterk hagsmunasamtök.
Hreyfingin hefur fengið byr undir
báða vængi og félagar eru nú orðn-
ir 7.500, segir í fréttatílkynningu.
Helstu markmið Heimilis og skóla
eru að miðla upplýsingum til foreldra
og koma sjónarmiðum þeirra á fram-
færi við yfirvöld. Umfjöllun um böm
og unglinga hefur beinst að neikvæð-
um þáttum og skuldinni er oft skellt
á foreldra sem ekki hafa átt neinn
málsvara. Eigi aðstæður íslenskra
bama að breytast þarf að leggja
meiri áherslu á það sem vel er gert
og benda jafnframt á raunhæfar
lausnir til úrbóta þar sem þeirra er
þörf.
Landssamtökin Heimili og skóli
hafa skrifstofu í Sigtúni 7 og formað-
ur samtakanna, Unnur Halldórsdótt-
ir, er þar í fullu starfí. Foreldrar leita
í vaxandi mæli eftir upplýsingum og
aðstoð og sömuleiðis berast erindi
frá skólayfírvöldum.
Þörfín fyrir einsetinn, heilsdags-
skóla er það sem brennur hvað mest
á foreldrum, einkum í þéttbýli, og
ljóst er að þetta verður eitt af bar-
áttumálum samtakanna. Ef mark er
takandi á stefnuyfirlýsingum allra
stjórnmálaflokka á íslandi ætti sá
róður að reynast auðveldur. Orðin
tóm duga ekki lengur, foreldrar vilja
sjá athafnir.
Flutningur á rekstri grunnskóla
yfir til sveitarfélaga vekur margar
spurningar í dreifbýli og er mikil-
vægt að foreldrar taki virkan þátt í
þeirri umræðu.
Heimili og skóli stefna að því að
koma á fót umboðsmannakerfi úti á
landi þannig að í hvetju fræðsluum-
dæmi eigi foreldrar aðgang að einum
eða fleiri fulltrúum sem geta aðstoð-
að þá í sambandi við skólamál.
A sl. 3 mánuðum hefur þriðjungur
íslenskra heimila méð böm ágrunn-
skólaaldri tengst Heimili og skóla.
(Fréttatilkynning)
Blítt og strítt
eftir Vilhjálm Hjálmarsson
Vilhjálmur Hjálmarsson fyrrverandi ráðherra hefur hér
skráð tíu mannlífsþætti um ólík efni - úr lífi fólksins í
landinu, í blíðu og stríðu. Hann segirt.a.m. frá
meinlegum örlögum og óhappaatburðum, mannfundum
og félagsstarfi og rekur þjóðsögur.
Vilhjálmi er einkar lagið að segja frá með alþýðlegum og
glettnum hætti. Metsölubækur hans, Frændi Konráðs -
föóurbróðir minn og „Hann er sagður bóndi", bera
því glöggt vitni.
_______Blítt og strítt_____
er skemmtileg og fróðleg bók!
---------iÆSKANÍ-------:---
_