Morgunblaðið - 10.12.1992, Side 48

Morgunblaðið - 10.12.1992, Side 48
48 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1992 PF '.•ppr íiNfiMaR'iin nr ítnnAnnTMf/.N rwiAmvtiiaflQM Ræktunarstarf í skugga skílníngsleysis A íslenski fjárhundurinn „móðurþjóð“ og verndara? eftir Jóhönnu G. Harðardóttur Eins og flestum er kunnugt var; það Englendingurinn Mark Wat- son sem vakti athygli íslendinga á því að hér á landi væri til sérstak- ur og merkilegur stofn hunda í mikilli útrýmingarhættu. Watson fór um landið þvert og endilangt og safnaði saman öllum þeim hundum sem hann taldi enn vera með óblandað blóð í æðum og hóf ræktun íslenska fjárhunds- ins. Hann fékk sér til aðstoðar nokkra dugmikla íslenska hunda- vini og voru þar Sigríður Péturs- dóttir á Ólafsvöllum og Páll A. Pálsson í broddi fylkingar. Stofnuð var lokuð ættbók hundsins og ræktuninni var framfylgt eftir ströngustu reglum til bjargar þessum deyjandi stofni. Margir lögðu mjög hart að sér og fórnuðu mikilli vinnu og fjármunum í rækt- unarstarfið þrátt fyrir lítinn skiln- ing yfírvalda og almennings í land- inu. Allt starfíð var unnið af áhugafólki sem tók það að sér af ást og virðingu fyrir þessum sér- stæða og greinda hundi. íslenski íjárhundurinn og ís- lenski hesturinn voru fyrrum líf- trygging íslendingsins í þessu harðbýla landi og án þessara föru- nauta hefði þjóðin ekki lifað vistina af. Hundurinn hefur marga ómet- anlega kosti sem voru manninum mikils virði, hann var dugmikill smali í erfíðu landslagi, hann var kröftugur og ratvís ferðafélagi og hélt hestalestum á réttri leið, hann rak úr túnum, gætti búijár og lét vita af mannaferðum auk þess sem hann yljaði hejmilisfólki í köldum húsakynnum. íslenski fjárhundur- inn var líka besti vinur mannsins eins og sést á gömlum sögnum, hann var trúr og tryggur félagi húsbænda sinna og blíður vinur og leikfélagi bamanna og þessu hlutverki sinnir hann enn í dag. Og nú_ er komið að skuldadög- unum, íslendingar verða að gjalda hundinum sínum þá skuld sem þeir eiga óuppgerða við hann. Frá því ræktunarstarfið hófst af alvöru eru liðnir rúmir ijórir áratugir og enn er það eingöngu unnið af sjálfboðaliðum og áhuga- fólki sem leggur á sig erfíði og mikla vinnu til að halda þessum dýrmæta þjóðararfí á lífí. Enn er áhugi og skilningur yfírvalda eng- inn, að minnsta kosti hefur ís- lenska ríkið ekki talið ástæðu til að styrkja ræktunina með neinum hætti fram að þessu. Þetta verður að teljast undarleg og skammarleg frammistaða, þar sem íslendingar eru ábyrgir fyrir ræktun hundsins gagnvart öðmm þjóðum, en þær líta á okkur sem vemdara íslenska flárhundsins og leita til okkar um aðstoð og leið- beiningar enda er hundurinn mjög vinsæll erlendis. Hér á landi hefur áhuginn einn- ig aukist mikið undanfarin og deild íslenska íjárhundsins innan HRFÍ starfar nú af mjög miklum krafti. Þessi aukni áhugi birtist á margan hátt, t.d. hafa verið sýndir óvenju margir íslenskir fjárhundar á sýn- ingum HRFÍ undanfarið. Ungviði, hvolpar og unghundar (vaxtar- broddar ræktunarinnar) hafa vak- ið athygli á sýningum og á þessu ári hafa þrír íslenskir fjárhundar öðlast meistaratign (champions- hip). Nú era innán við 320 hreinrækt- aðir íslenskir fjárhundar í landinu, en það er þó meiri fjöldi en nokkra sinni áður. Þessi tala er ekki áreið- anleg þar sem skráning er mjög ófullkomin vegna fjárskorts starf- seminnar. Talan er þrátt fyrir allt sorglega lág þar sem margar aðr- ar þjóðir eiga mun stærri stofna en við s.s. Svíar, Danir og Norð- menn. Af þeim 35-45 hvolpum sem fæðast hér á landi á ári hveiju era að jafnaði 10-15 seldir til út- landa, enda er ásókn í þá mikil erlendis og freistingin því stór fyr- ir ræktenduma. Til að geta ræktað hundinn hér af krafti og skynsemi þarf að kynna þjóðinni hann og fínna hon- um leið inn í þjóðfélagið að nýju. íslenska flárhundinum á íslandi er nú ekki gert hærra undir höfði en innfluttum hundategundum, en þær getum við endalaust sótt til útlandar ef illa fer og beram þar enga ábyrgð. Ræktendum hefur aldrei verið liðsinnt og þeim eigendum ís- lenskra Ijárhunda sem búa í þétt- býli er beinlínis hegnt fyrir áhug- ann og þátttökuna í ræktunar- störfum með svokölluðum „hunda- leyfísgjöldum" sem allir hundaeig- endur einir allra gæludýraeigenda „Yið getum ekki látið um okkur spyijast leng- ur að þetta vinsæla hundakyn sé vanrækt í heimalandi sínu. Við verðum að geta horft kinnroðalaust framan í heiminn þegar stofn ís- lenska fjárhundsins ber á góma. verða að greiða af dýram sínum. Þessi skattur hefur orðið til þess að áhugasamir einstaklingar hafa af fjárhagsástæðum orðið að tak- marka hundaeign sína" við einn hund jafnvel þótt þar hefði verið hægt að fóstra fleiri hunda. Deild íslenska fjárhungsins inn- an HRFÍ væntir þess að íslensk stjómvöld reki af sér slyðraorðið og standi undir þeirri ábyrgð sem ræktun þjóðarhundsins er. Við getum ekki látið um okkur spyij- ast lengur að þetta vinsæla hunda- kyn sé vanrækt í heimalandi sínu. Við verðum að geta horft kinn- roðalaust framan í heiminn þegar stofn íslenska Ijárhundsins ber á góma. Ég vona svo sannarlega að ábyrgðartilfínning ráðamanna vakni meðan enn er von og áður en við missum niður þann kraft sem enn er í starfínu og þá virð- ingu sem við enn höfum sem „móð- urþjóð“ hundsins. Éf við bregðumst í ræktun ís- lenska fjárhundsins verður það þjóðinni til háborinnar skammar erlendis og ævarandi vitni um tví- skinnung Islendinga í umhverfís- málum og vemdun dýrastofna. Höfundur er formaður dcildar íslenska fjárhundsins innan HRFÍ. GEFUMIS k - 'LAND IJOLAGJOF l iÓIATILB00^*® Iplllk — KfW . .1 ,,, . M ,r v:;; 9 afalkort af öllu landinu með örnefiiaskrá í vandaðri möppu SKRIFBORÐSMOTTA Tilvalin gjöf handa skólaböraum \jaiht sem skrifstofumönnum. v Verð kr 1900.- KORTASAGA ÍSLANDS I. og II. bindi eftir Harald Sigurðsson. Stórvirki í íslenskri menningarsögu. Verð kr 14.500.- INNRÖMMUÐ ÍSLANDSKORT fyrir heimili og vinnustaði Verð frá kr 4900.- ÍSLANDSKORT FRÁ FYRRIÖLDUM Glæsileg iistaverk kortagerðarmanna miðalda. Verð frákr 1500.-1 GEFUM ÍSLENSKAR JÓLAGJAFIR OPIÐ 10-18 Mánud - Föstud GREIÐSLUKORTAÞJÓNUSTA SENDUM SAMDÆGURS í PÓSTKRÖFU UM LAND ALLT KORTAVERSLUN • LAUGAVEGI 178 • REYKJAVIK • SIMI: 91 - 680 999 GARÐATORG - GAR9ABÆ, SÉRVERSLANIR: OPIÐ LEIMGUR Laugardaginn 12. des. kl. 10-18 Sunnudaginn 13. des. kl. 13-17 Laugardaginn 19. des. kl. 10-22 Sunnudaginn 20. des. kl. 13-17 Þriðjudaginn 22. des. kl. 10-22 Þorláksmessu 23. des. kl. 10-23 Aðfangadag 24. des. kl. 9-12 ‘Venld ve£6o**téet r

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.