Morgunblaðið - 15.12.1992, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 15.12.1992, Blaðsíða 1
80 SIÐUR B STOFNAÐ 1913 287. tbl. 80. árg. ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1992 Prentsmiðja Morgunbladsins Svíumekki boðiðupp á danskar lausnir Stokkhóimi, Vín. Reuter. FRANZ Andriessen, sem fer með utanríkismál í framkvæmda- stjórn Evrópubandalagsins, sagði í gær að ekki kæmi til greina að Svíar fengju undan- þágur frá Maastricht-samkomu- laginu af því tagi sem Dönum voru veittar í Edinborg á laugar- dag. Tilefni þessara orða var að Carl Bildt, forsætisráðherra Svíþjóðar, sagði að nú ættu Svíar, sem sótt hafa um EB-aðild, einnig kost á að ákveða sjálfir hvort þeir vildu taka þátt í hernaðarbandalagi eða ekki. Bildt sagði að Svíar hefðu hins veg- ar áhuga á að eiga aðild að sameig- inlegri utanríkis- og varnarmála- stefnu. Hann fagnaði þeirri ákvörð- un leiðtoga Evrópubandalagsins að hefja aðildarviðræður við Svía, Austurríkismenn og Finna um ára- mót. Norðmenn verða að bíða vegna þess að framkvæmdastjórn EB á eftir að gefa umsögn um umsókn þeirra. Sjá fréttir á bls. 34 • • Rússneski utanríkisráðherrann flytur kaldastríðsræðu á ROSE-fundi Tilgangurinn að sýna hvað harð- línumenn vilja Stokkhólmi. Reuter. ANDREJ Kozyrev utanríkisráðherra Rússlands olli uppnámi á fundi Ráðstefnunnar um öryggi og samvinnu í Evrópu (RÖSE) í Stokkhólmi í gær með málflutningi sem talinn hefði verið eðlilegur þegar kalda stríðið stóð sem hæst. Byijaði hann á hótunum um hernaðaríhlutun og refsiaðgerðir gegn fyrrverandi lýðveldum Sovétríkjanna til þess að endurreisa þar rússnesk yfirráð. Þegar ræðunni var lokið voru fundar- gestir sem þrumu lostnir. Skömmu síðar kom Kozyrev aftur í ræðustól og sagðist hafa verið að lýsa þeirra sýn sem við blasti ef umbótasinnar misstu völdin í hendur harðlínumönn- um í Moskvu. Ekki hefði verið um að ræða viðhorf rússnesku stjórnarinnar. Skaut viðstöddum skelk í bringu Reuter Kozyrev (til vinstri) gengur glaðhlakkalegur af fundi með Margarethi af Ugglas, utanríkisráðherra Svía. Skömmu áður hafði Rússinn haldið magn- aða kaldastríðsræðu án þess að meina orð af því sem hann sagði. „Hann var að vekja menn af værum blundi,“ sagði Galína Síd- orova, talsmaður rússnesku sendi- nefndarinnar á RÖSE-fundinum. Hún sagði að Kozyrev hefði haldið ræðunni leyndri fyrir rússnesku sendinefndinni og því göptu nefnd- armenn sjálfir af undrun er hann var í ræðustóli. Sjálfur sagði rússn- Jeltsín Rússlandsforseti lýtur í lægra haldi fyrir fulltrúaþinginu Nýr forsætisráðherra boð- ar breytta efnahagsstefnu eski utanríkisráðherrann að ræðan „væri nokkuð nákvæm útlistun á kröfum hófsamari harðlínumann- anna í Moskvu". Á sér ekki fordæmi Gunnar Gunnarsson sendiherra íslands hjá RÖSE sagði að í röðum stjómarerindreka minntust menn ekki uppákomu af þessu tagi á fundi sem þessum. Sagði Gunnar að menn nefndu þær skýringar á ræðunni að Kozyrev hafi viljað sýna við hvað væri að etja í Rússlandi og einnig væri talað um að hann hefði viljað leiða rússneskum öfgasinnum fyrir sjónir hvað stefnubreyting af þessu tagi þýddi, þ.e. hvaða viðbrögðum mætti búast við á Vesturlöndum. Gunnar sagði að fyrstu ræðumenn á eftir fyrri ræðu Kozyrevs hefðu látið sem ekkert væri en síðan hefði eistneski fulltrúinn mótmælt. Moskvu. Reuter. Fulltrúaþing Rússlands valdi í gær nýjan forsætis- ráðherra landsins, Viktor Tsjernómyrdín að nafni. Sagði hann að efnahagsum- bætur stjórnarinnar myndu nú breyta um svip. Sagðist hann hlynntur markaðshag- kerfi en það yrði að fara hægar í sakirnar og styrkja framleiðslugreinarnar. Bú- ist er við að á næstu dögum verði gerðar miklar breyt- ingar á ríkissljórn Rúss- lands að öðru leyti, helstu umbótasinnarnir muni allir segja af sér. Vestrænir stjórnarerindrekar í Moskvu lýstu í gær þungum áhyggj- um yfir þróun mála í Rúss- landi. „Þetta er gríðarlegt áfall,“ sagði einn þeirra í samtali við Reuters-frétta- stofuna. Róttækir umbótasinnar á þingi saka Borís Jeltsín forseta Rússlands um að hafa svikið Jegor Gajdar frá- farandi forsætisráðherra. Sam- kvæmt samkomulagi sem Jeltsín gerði við forseta þingsins um helg- ina stakk hann upp á fjórtán mönn- um í embætti forsætisráðherra. Þegar greidd voru atkvæði milli þeirra í gær hlaut Viktor Tsjernó- Reuter Nýr ráðamaður í Kreml Viktor Tsjernómyrdín, nýr forsætisráðherra Rússlands, tekur á móti Helm- ut Kohl, kanslara Þýskalands, á flugvelli i Moskvu. Kohl kom þangað í opinbera heimsókn í gær en árla í gærmorgun vissi hann ekki hver myndi taka á móti honum í Moskvu. myrdín 721 atkvæði eða hreinan meirihluta. Gajdar varð í þriðja sæti. Jeltsín hefði getað sett Gajdar í embætti engu að síður um stund- arsakir en svo virðist sem hann hafi gert sér grein fyrir að nú væri tímabært að þoka fyrir kröftugri sókn afturhaldsafla á fulltrúaþing- inu. Tsjernómyrdín er meðal forystu- manna í stóriðnaði og stuðnings- maður öflugustu fylkingar þingfull- trúa, Borgarasambandsins undir forystu Arkadís Volskís. Hún hefur m.a. reynt að auka miðstýringu á ný og krefst þess að gjaldþrota og gersamlega úrelt risafyrirtæki fái áfram fjárstuðning svo að ekki komi til lokunar og atvinnuleysis milljóna manna. Tsjernómyrdín tók við emb- ætti ráðherra orkumála í maí sl. er Jeltsín reyndi að ná sáttum við Borgarasambandið með því að taka þijá miðju- og afturhaldsmenn inn í ríkisstjórn. í samkomulagi Jeltsíns og þing- forsetans frá þvi um helgina er tek- ið fram að harðorðar yfirlýsingar þingsins og áskoranir forsetans til þjóðarinnar í harðri valdabaráttu sem staðið hefur frá því að þing- fundir hófust 1. desember séu tekn- ar aftur og skuli ekki rifjaðar upp. Þjóðaratkvæði verði um grundvall- aratriði nýrrar stjórnarskrár hinn 11. apríl næstkomandi. Forsetinn og stjórnlagadómstóllinn muni bera texta spuminganna sem lagðar verði fyrir þjóðina undir Æðsta ráð- ið, sem er starfandi þing landsins og afsprengi fulltrúaþingsins. Æðsta ráðið má samkvæmt sam- komulaginu ekki samþykkja ný lög er breyta núverandi jafnvægi milli framkvæmdavalds, löggjafarvalds og dómsvalds. Norska tréð á haugana Amsterdam. Reuter. Borgarráðið í Amsterdam hefur ákveðið að henda á haugana jólatré sem borgin fékk að gjöf frá Þrándheimi. „Okkur fannst það svo ljótt,“ sagði talsmaður borgarráðsins í gær. Sagði hún að borgar- ráðsmenn hefðu rætt ákvörðun sína við .starfsmenn norsku ræðismannsskrifstofunnar í borginni og hefðu þeir heldur ekki getað fellt sig við tréð. í stað norska trésins er nú kom- ið hollenskt jólatré. Stefna Þýskalands gagnvart Bosníu Afsögn ráðherra til að mótmæla aðgerðaleysi Bonn. Rcuter. RÁÐHERRA póst- og símamála í Þýskalandi, Christian Schwarz- Schilling, sagði af sér í gær til að mótmæla aðgerðaleysi þýsku stjórnarinnar í málefnum Bosníu. Ráðherrann gagnrýndi veika íu. Kohl svaraði því til að viðleitni stjórn Helmuts Kohls kanslara og Þjóðveija og Sameinuðu þjóðanna sagðist skammast sín fyrir að vera hefði lítinn árangur borið vegna í ríkisstjórn sem gerði ekki meira grimmdar þeirra sem bæru ábyrgð til að stöðva hörmungamar í Bosn- á stríðinu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.