Morgunblaðið - 15.12.1992, Qupperneq 2
2.... .............................. "MÖRGÚNBLAÐIÐ'ÞRIÐJUDAGÚR 15. DESEMBER 1992
Sjómaður sóttur
í Gæsluþyrlunni
í 10 vindstigum
ÞYRLA Landhelgisgæslunnar sótti í gær fótbrotinn sjómann um
borð í togarann Má SH um 40 sjómílur suður af Grindavík í versta
veðri. Samkvæmt mælingum skipstjóra togarans var vindhraðinn
65 hnútar, 12 vindstig, skömmu áður en þyrlan flaug yfir skipið
en Benóný Ásgrímsson flugstjóri þyrlunnar kveðst telja að þegar
þyrlan var yfir skipinu hafi vindhraðinn verið 9-10 vindstig.
Hann segir að þótt vindhraðinn hafi verið þetta mikill hafi ekki
eiginleg hætta verið á ferðum þótt erfitt hafi verið fyrir lækni
síga um borð og að hífa sjúklinginn í þyrluna á börum.
Að sögn stjómstöðvar Land- ur um borð í þyrluna og síðan lagt
helgisgæslunnar barst tilkynning
frá skipstjóra Más SH 127 um að
koma þyrfti sjómanni undir læknis-
hendur en hann hafði slasast og
hlotið opið beinbrot um ökkla. Eft-
ir að læknir hafði rætt við skip-
stjórann var talið vafasamt að bíða
þá 7-9 tíma sem tekið hefði skipið
að komast inn til hafnar eftir því
að maðurinn kæmist undir læknis-
hendur og var því ákveðið að þyrl-
an sækti hann. Þyrlan fór í loftið
kl. 13.03 og þar sem Fokker-vél
Landhelgisgæslunnar hafði
skömmu áður lent í ísingu á þess-
um slóðum var hún þyrlunni tii
aðstoðar á leiðinni að Má.
Þegar að togaranum kom seig
Sigurður E. Sigurðsson læknir nið-
ur í skipið í u.þ.b. 10 vindstigum.
Manninum var komið á börur, hífð-
af stað á Borgarspítalann þar sem
lent var klukkan 14.30. Benóný
Ásgrímsson vildi í samtali við
Morgunblaðið gera lítið úr því að
aðstæður hefðu þessu sinni verið
erfiðar fyrir sjúkraflug og sagði
að í því sambandi skipti mestu að
þrátt fyrir hvassviðri hefði ekki
snjóað.
Hins vegar sagði hann að Sig-
urður E. Sigurðsson læknir hefði
lagt sig í hættu við að síga niður
í skipið og kvaðst Benóný nú eins
og margoft áður hafa dáðst að því
hve læknar þeir sem störfuðu með
áhöfn þyrlunnar væru reiðubúnir
að leggja sig í mikla hættu við
erfið skilyrði í umhverfi sem þeir
hefðu einatt litla þjálfun í að starfa
við.
Morgunblaðið/Halldór Nellett
Sigið við erfiðar aðstæður
Sigurður E. Sigurðsson læknir sígur niður í togarann í um 10 vindstigum
suður af landinu.
Alþingismenn ræddu samning um Evrópskt efnahagssvæði fram á nótt
Utanríkisráðherra vill ljúka
málinu fyrir 21. desember
ÖNNUR umræða frumvarps um evrópskt efnahagssvæði hófst á
Alþingi í gærkvöldi og gert var ráð fyrir að hún stæði lengi fram
eftir. Utanríkisráðherra telur nauðsynlegt að þingið taki endanlega
afstöðu til samningsins fyrir áramót og vill helst Ijúka málinu fyrir
ráðherrafund Evrópubandalagsins 21. desember. Formaður utanrík-
isinálanefndar segir Alþingi ekkert að vanbúnaði til að afgreiða
málið. Forseti Alþingis gerir ráð fyrir að annarri umræðu um EES
verði fram haldið í dag ef henni hafi ekki lokið í nótt.
Salóme Þorkelsdóttir þingforseti
segir að vel verði að halda á spöðun-
um ef takast eigi að afgreiða EES,
fjárlög, skattamál og álögur fyrir
jól. Takist það ekki verði Alþingi
að sitja alveg fram til hátíðarinnar
og milli jóla og nýárs. Hún segir
að gert hafi verið ráð fyrir að fara
í þriðju efnisumræðu fjárlaga 18.
desember, en allt geti gerst úr þvi
sem komið er.
Jón Baldvin Hannibalsson utan-
ríkisráðherra segir að nú verði
EES-málið keyrt gegnum þingið.
Fyrir liggi áskorun utanríkisráð-
herra EFTA-landa um að afgreiðslu
þess sé flýtt og ljóst sé að ekki
þurfi að breyta efni samningsins
vegna fráhvarfs Sviss.
Jón Baldvin tók ekki þátt í um-
ræðum utan dagskrár á Alþingi í
gær um EES og sagði blaðamönn-
um að ástæðan væri sú að hann
léti stjómarandstöðuna ekki gabba
sig í þingskapaumræður til þess að
eyða tíma Alþingis. „Ég er einfald-
lega að fara þess á leit að málið
sjálft verði rætt efnislega."
Utanríkisráðherra segir að farið
hafí verið að óskum stjórnarand-
stöðunnar og umfjöllun Alþingis um
EES hvað eftir annað verið látin
bíða. Fullyrðingar um að málið sé
ekki þingtækt hafi ekki við rök að
styðjast. Ljóst sé af áliti lögfræð-
inga að samningurinn standi að
þjóðarétti og hvað Iagatækni varði
þótt Svisslendingar hafi hafnað
honum. Engar efnislegar breyting-
ar þurfí að gera á honum, heldur
tæknilegar: Með bókun ríkjaráð-
stefnu í janúar um að ákvæði varð-
andi Sviss verði óvirk og um giidis-
töku síðar á árinu en ekki í blábyrj-
un þess.
Svisslendingar urðu því fegnir,
að sögn ráðherrans, að landið yrði
ekki feilt úr samningnum, en grein-
ar sem tækju til þess aðeins lagðar
til hliðar. „Þeir vilja halda opnum
dyrum og hafa áheyrnarfulltrúa á
fundum."
Jón Baldvin segir mikilvægt að
Alþingi ljúki málinu fyrir áramót
til að fjöldi þeirra EFTA-ríkja sem
ætla að vera með liggi fyrir á ríkja-
ráðstefnu EFTA og EB sem fyrir-
huguð er í upphafi næsta árs. Af-
staða allra EFTA-landa nema ís-
lands hafi nú verið staðfest form-
lega og ekki sé hægt að tefla í tví-
sýnu fullgildri aðild íslendinga að
ráðstefnunni í ársbyrjun. Frekari
óvissa um afstöðu Islands gæti
dregið úr áhuga hinna EFTA-Iand-
anna á samstarfmu. Að auki séu
innlend og erlend fordæmi fyrir því
að fullgilda samninginn þótt eitt
land hafí helst úr lestinni, Finnland
og Liechtenstein hafi gert það eftir
brotthvarf Sviss og öll ríkin stað-
fest í síðustu viku að fækkunin
raskaði ekki samningnum. íslend-
ingar hafí fyrir tuttugu árum gert
fríverslunarsamning við EB þótt
Noregur hefði hafnað aðild að
bandalaginu.
Ráðherrann leggur áherslu á að
best væri að Alþingi lyki þriðju
umræðu, veiti forseta heimild til að
fullgilda samninginn að íslenskum
lögum og þjóðarétti fyrir 21. desem-
ber. Þá hittast ráðherrar EB-landa
og segir Jón Baldvin að hafi öll
aðildarríkin í EFTA fullgilt samn-
inginn sé auðveldara að standa
gegn hugsanlegum breytingartil-
lögúm EB og hugmynd um að önn-
ur EFTA-ríki greiði hlut Sviss í
eftirlitsstofnun, dómstól og hugsan-
lega þróunarsjóði.
Sjá einnig blaðsíðu 40.
Lyfjastuldur á
Landspítalanum
Maður var
handtekinn
með lyfin
NOKKRU magni af dýrum stungu-
lyfjum var stolið af Landspítalan-
um um helgina en meðal lyfjanna
voru hormónalyf eða sterar og
verðmæti þeirra áætlað vera um
300.000 krónur. í gærdag handtók
síðan lögreglan mann sem reynd-
ist vera með lyfin með sér í poka.
Fíkniefnalögreglan fékk mál þetta
til meðferðar og segir Björn Hall-
dórsson yfirmaður deildarinnar að
maður þessi hafí ekki viðurkennt
stuldinn á lyfjunum í yfírheyrslum í
gærdag. Hvað framhald málsins
varðar segir Bjöm að maður þessi
eigi óafplánaðan dóm og muni hann
verða sendur í fangelsi til að sitja
hann af sér.
Handtaka mannsins var með þeim
hætti að hann var gestkomandi í
húsi einu I óþökk húsráðenda. Köll-
uðu þeir til lögreglu til að fjarlægja
manninn úr íbúð sinni og er lögregl-
an kom á staðinn fann hún pokann
með lyfjunum.
Færeyjar
BP sagl
hafa fund-
ið olíulind
BRESKT sérfræðirit í olíuiðn-
aði, Drilling Weekly, segist
hafa áreiðanlegar heimildir
fyrir því að breska olíufélagið
BP hafi fundið risastóra olíu-
lind rétt utan færeyskrar
efnahagslögsögu, á land-
grunninu milli Hjaltlandseyja
og Færeyja. Frá þessu var
greint í kvöldfréttum Ríkisút-
varpsins í gær en Morgunblað-
inu tókst ekki i gærkvöldi að
afla nánari upplýsinga um
staðsetningu oliulindar þess-
arar. Eyjólfur Konráð Jónsson
alþingismaður sagðist í sam-
tali við Morgunblaðið telja, að
þetta sé mál sem kalli á að
ríkisstjórn íslands eigi strax í
dag að hefja undirbúning að
kanna málið með viðræðum
við Breta, Dani fyrir hönd
Færeyinga og íra.
Eyjólfur Konráð sagði að jafn-
vel þótt vera kunni að lindin sé
utan við það hafsvæði sem ís-
lendingar hafa einkum gert til-
kall til séu svæðin jarðfræðilega
nátengd. Fulltrúum fyrrgreindra
þjóða beri að ræða málið þar sem
allir aðilar að þeim alþjóðlegu
viðræðum sem fram hafa farið
um þetta svæði og íslendingar
hafa átt aðild að hafi lýst því
yfír að enginn þeirra muni aðhaf-
ast þar neitt án vitundar hinna.
í dag
Hallgrímskirkja
Stærsta orgel landsins var vígt í
Hallgrímskirkju á sunnudag. 32
Evrópskt efnahagssvæði
Íbúar Liechtenstein geta ekki iokið
afgreiðslu EES fyrr en að loknum
samningum við Svisslendinga. 35
Jólin____________________________
Ljós voru tendruð á jólatrjám á
ýmsum stöðum um helgina, meðal
annars á Austurvelli í Reykjavík. 70
Leiðari__________________________
Óviðunandi ríkissjóðshalli.
Staðfesting á EES hið fyrsta. 36
íþróttir
► Þrír íslendingar með
heimsliðinu í sigurleik. Eyja-
menn kæra kvennalið Vals eft-
ir bikarleik. Michael Stich vann
sér inn 126 milljónir ÍSK.
Agreinmgur um vaxtaafslátt af láni Þróunarsjóðsins
Ovíst er hvort frumvarpið
kemur fram fyrir áramót
ÓVÍST er hvort frumvarp um Þróunarsjóð sjávarútvegsins verður til-
búið fyrir áramót en málið er í vinnslu að sögn Þorsteins Pálssonar
sjávarútvegsráðherra. Ágreiningur er m.a. við fulltrúa sjávarútvegsins
um greiðslur sjávarútvegsfyrirtækja á vöxtum af því fjögurra inillj-
arða króna láni sem ríkið leggur sjóðnum til og verður aflað með er-
lendri lántöku. „Við höfum verið í viðræðum við fjármálaráðuneytið
um fyrirkomulag lántöku, greiðsluskuldbindingar og lánskjör og þau
mál eru í viðræðum á milli ráðuneytanna og því á vinnslustigi,“ segir
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra. Ráðherra sagði aðspurður að
vel væri hægt að afgreiða fjárlagkfrumvarp fyrir næsta ár þótt þessi
mál væru ekki frágengin.
Arnar Sigurmundsson, formaður verið kynnt málið hafi verið talað
Samtaka fískvinnslustöðva, segir að um að þetta lán yrði vaxtalaust í
þegar fulltrúum sjávarútvegsins hafi þijú ár. „Okkur var sagt að það hefði
komið til mótvægis við að þurfa að
yfirtaka afskriftareikninginn í
Byggðastofnun,“ sagði hann. Sagði
Arnar ennfremur að málið virtist
vera óleyst í ríkisstjórninni.
Sjávarútvegráðherra kom á fund
stjómar Samtaka fiskvinnslustöðva
sl. föstudag og eftir fundinn sagði
Arnar ljóst að þróunarsjóðsmálið
væri á hægri siglingu í viðræðum á
milli ráðuneyta og af orðum sjávarút-
vegsráðherra á fundinum megi ráða
að það verði örugglega ekki kynnt á
Alþingi fyrir jól.