Morgunblaðið - 15.12.1992, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1992
misuiKunjit.
Aðventutónleik-
ar í Kristskirkju
Tónlist
Ragnar Björnsson
Ekki er maður fyrr kominn inn
fyrir tvennar útidyr Kristskirkju en
helgi þessarar einstaklega fallegu
kirkju breiðist yfir mann og til þess
þarf hvorki tóna né orð, slíkum
andblæ hefur byggingarmeistari
allra meistara fyllt þetta hús. Sé
laust sæti sest maður, lætur þennan
andblæ hússins líða um sig og Guð
allra guða virðist taka við áhyggjum
manns og amstri. En þú vaknar
skyndilega upp við hávært klapp,
allt í kringum þig, — stjómandi tón-
leikanna gekk fram fyrir Fílharmón-
íusöngsveitina, hljóðfæraleikara og
áheyrendur. Mínar hendur urðu svo
þungar að ég gat ekki bifað þeim
til þess að taka þátt í klappinu og
blæja helginnar fannst mér Iyfta sér
upp í hvelfingar kirkjunnar. Kannske
var þetta ofurviðkvæmni í undirrituð-
um, eða getur verið að sumar kirkjur
séu ekki hannaðar fyrir klapp? Tón-
leikamir hófust á orgelleik Douglas
A. Brothchie, sem undirritaður veit
engin deili á, en hann lék Prelúdíu
og fúgu eftir Buxtehude, látlaust en
af öryggi. Að mínu viti eiga blandað-
ir kórar annað hvort að vera mjög
fjölmennir, með ótakmarkað tón-
magn til mesta „píanós", eða fá-
mennir með mjög skóluðum einstakl-
ingum. Þessi millistærð af kórum er
eiginlega svolítið vandræðaleg,
hvorki er hljómmagnið fyrir hendi,
né að skólun sé það mikil að kórinn
valdi veikum söng, hann verður matt-
ur og hljómlaus. Þetta eru að mér
finnst, því miður einkenni Söngsveit-
arinnar Fílharmóníu í dag. Raddimar
eru of mattar, „fókusa" ekki vel og
jafnvægi milli radda ekki í besta lagi.
Bassinn þyrfti að vera yngri og
hljómmeiri, svo og altinn og þrátt
fyrir nokkum fjölda í sópran vantaði
silfrið í línuna. Ágætir hljóðfæraleik-
aramir skiluðu sínu vel, þrátt fyrir
að stjómandinn Úlrik Ólason hafi
líklega takmarkaða kunnáttu í að
stjóma hljómsveit. Þrátt fyrir þessar
aðfínnslur var ánægjulegt að heyra
mörg atriði tónleikanna og sérstak-
lega má þá nefna Helgisögu og Ave
Maríu eftir Leif Þórarinsson svo og
einsöng Sigrúnar Hjálmtýsdóttur,
sem tók þátt í megni efnisskrárinn-
ar. Ekki er þó ástæða til að fjölyrða
um söng Sigrúnar að þessu sinni,
en gæta þarf þess að missa ekki
stuðning við aðstæður samskonar og
í Kristskirkju, þar sem hljómburður-
inh virðist syngja fyrir söngvarann.
Nokkra jólasálma flutti kórinn í lok-
in, einnig með þátttöku viðstaddra
tónleikagesta sem klöppuðu einnig
ákaft fyrir eigin þátttöku. Á eitt vil
ég benda söngstjóranum, það er að
samkvæmt kenningunni má stjórn-
andi ekki snúa lófanum að kórnum
þegar hann stjómar, nema til þess
að þagga niður í kómum. Þetta á
að vera einfalt að lagfæra.
KAUPMIÐLUN
LÖGGILD FASTEIGNA-, SKIPA- OG FIRMASALA
AUSTURSTRÆTI17 - SÍMI 62 17 00
SALA: PETUR H. BJÓRNSSON. LÖGMAÐUR: RÓBERTÁRNI HREIÐARSSON.
NÝTT Á SÖLUSKRÁ:
Heimarnir. Glæsileg 4ra herb. íbúö á 8. hæð í lyftublokk. Mjög mikiö útsýni. Sér-
lega vandaðar innréttingar. Verö 8,5 millj.
Þingholtin. Sérlega glæsileg 63 fm einstaklíb. Selst með fullkomnu innbúi. Laus
fljótlega.
Krummahólar. 3ja herb. fbúö á 5. hæð ásamt bílskýli. Verö 6,7 millj.
Fossvogur. 3ja-4ra herb. íbúð í góðu fjölbhúsi á þessum eftirsótta staö.
OKKUR VANTAR FYRIR ÁKVEÐNA KAUPENDUR:
Vesturbær. Góða sérhæö, 120-150 fm, gjarnan á Melum eða Högum.
Vesturbær. Raöhús eða einbýli 120-140 fm.
Garöabær. Góða 2ja herb. íbúð í fjölbhúsi.
Atvinnuhúsnæöi m. góðum leigusamningi. Ýmislegt kemur til greina.
Góöa 2ja-3ja herb. íbúð m. áhvílandi húsnlánum.
FYRIRTÆKI TIL SOLU:
Lítil matvöruverslun á góöum staö. Örugg velta. Hagst. fyrir samhent hjón.
Söluturn á góöum staö í Múlahverfi. Góö velta. Lottó.
Söluturn/ísbúö, mjög vel þekkt, í miöbænum. Góð velta, há meöalálagning.
Pizzastaöur meö mikla sölu út.
Efnalaug á góðum staö. Arövænlegt fjölskyldufyrirtæki. Örugg afkoma.
Tiskuverslun við Laugaveg.
Bílaþjónusta - pústþjónusta í stóru húsnæði. 2 lyftur. Ýmsir möguleikar.
Bílasala í Skeifunni. Lítill rekstrarkostnaður.
Bónstöö á góðum staö meö mikla möguleika. Ákveðin sérstaða.
Fyrir rafeinda- eða sjónvarpsvirkja
Verslun með tölvuforrit, umboðssölu á notuöum tölvi.'búnaöi og viðgerðir á tölvum
og búnaöi. Viðgerðasamningur viö tölvuumboö. Gott tækifæri fyrir réttan aöila.
Erum meö á skrá fjölda kaupenda aö ýmiss konar fyrirtækjum s.s. heildverslun,
fiskbúö, ölkrá, litlu veitinga- og/eöa kaffihúsi.
Fjöldi annarra fasteigna og fyrirtækja á skrá
ORGELTONLEIKARI
H AI. LGRÍMSKIRKJTI
________Tónlist____________
Jón Ásgeirsson
Ég man Skólavörðuholtið er
Leifur heppni stóð þar einn,
umkringdur urð og nær einu
mannlífsumsvifin voru í leir-
brennsluhúsi Guðmundar frá
Miðdal. Á aðra hönd Leifi gnæfði
þungbúinn og þögull listakastali
Einars Jónssonar. Nökkuð fyrir
aftan Leif var steinnámsgryfja
og þar mátti heyra hvellan stál-
hljóm sleggju og meitils er grjót
úr námunni var mótað til gatna-
gerðar og annarra nytsemda. Ég
man andlit steinsmiðanna, sem
voru mér sem meitluð í hamra-
vegg. Steinsmiðirnir fóru og gry-
fjan varð leiksvæði okkar og þar
voru háð stríð en síðan upphófst
alvörustríð og hermenn byggðu
sér borg að baki Leifi. Þegar
þórdunur stríðsins voru hljóðnað-
ar var ákveðið að byggja kirkju
og lítil kapella reis í suðaustur-
enda gryfjunnar.
Enn átti ég erindi upp á Skóla-
vörðuhæð en nú til að biðja Pál
Halldórsson um að lána mér
nótur af „Ave-Mariunni“ eftir
Schubert. Éitthvað minntist ég
á kirkjuna og hann tjáði mér að
kapellan væri aðeins lítill hluti
þeirrar kirkju, sem reisa ætti þar
á hæðinni, aðeins kjallari undir
altarinu. Hann sýndi mér líkan
af kirkjunni og allt í einu ljóm-
aði andlit hans er hann sagði:
„Hugsaðu þér hvers konar orgel
þarf í slíka kirkju.“ Páll Halldórs-
son þjónaði kirkju Hallgríms í
37 ár en það tók 51 ár að láta
drauminn um orgelið rætast' og
því verki lauk Hörður Áskelsson.
I leik hans mátti greina þann
sama Ijóma og ég sá í svip Páls,
ljóma hrifningar, þegar tíminn
sem aðskilur draum og veruleika
hverfur. Kirkjan hefur fengið
sitt orgel og enduróman hennar
hefur á samri stundu endurskap-
ast, svo að kirkja og orgel verða
eitt.
Hörður Áskelsson er góður
orgelleikari og lék hann á vígslu-
tónleikunum sl. sunnudag verk
eftir Pedro de Araujo, Francois
Couperin, Johann Sebastian
Bach, Cesar Franck, Pál ísólfs-
son og nýtt verk eftir Þorkel
Sigurbjörnsson. í þessum verk-
um var margbreytileikinn í radd-
skipan hljóðfærisins útfærður en
leikur Harðar reis þó hæst í
Fantasíu og fúgu í g-moll eftir
J.S. Bach. Þriðji kórallinn, í a-
moll, eftir Franck og Inngangur
og passakaglían eftir Pál hljóm-
uðu glæsilega. Vígsluverk Þor-
kels, sem hann nefnir Snertur,
er skýrt í formi, sem var undir-
strikað með vel valinni raddskip-
an. Með þessum tónleikum hefst
nýtt tímabil í íslenskri tónlistar-
sögu, ekki aðeins vegna orgelsins
heldur og vegna þess að enduró-
man kirkjunnar svarar orgelinu
með þeim hætti að unun er á
að hlýða. Undirritaður sat bæði
fremst, rétt undir orgelinu, og
inni við altarið og var sama hvort
leikið var með fullri raddskipan
eða fínlegri raddbrigðum, allt
barst þetta svo fagurhljómandi
og hreint, að vart verður til nokk-
urs jafnað hér á landi.
Margir hafa lagt þar til, svo
að íslendingar hafa nú eignast
glæsilega kirkju og orgel, sem
hæfír henni og á engan er hallað
þó orgelleikara kirkjunnar sé
sérlega þakkað og óskað til ham-
ingju. Dugnaður hans, trú á
hljómgun kirkjunnar og tónleik-
amir sl. sunnudag bergmála mér
hrifningarljómann í svip Páls
Halldórssonar, er einnig mátti
merkja í svip áheyrenda og ekki
síst íieik Harðar Áskelssonar.
Spumingakeppmn okkar
Bókmenntir
Sigurður Haukur Guðjónsson
Safnað hafa: Guðjón Ingi Ei-
ríksson og Jón Sigurjónsson.
Kápumynd: Offsetþjónusta hf.
— Búi Kristjánsson. Umbrot og
filmuvinna: Offsetþjónustan hf.
Prentun og bókband: Prent-
smiðjan Oddi hf. Útgefandi:
Æskan.
Þetta er bráðskemmtileg og
fræðandi bók og víst er um það
að sá sem kann svörin öll við
spumingunum 600 er æði fróður,
við flesta viðtalshæfur.
Höfundar skipta bókinni í 10
kafla, einn er fyrir unga; annar
fyrir spekinga; unnendur íþrótta,
tónlistar og kvikmynda, svo eitt-
hvað sé nefnt. Já, sviðið er breitt.
Þeir gleyma heldur ekki því er
nemum kemur að gagni í skóla,
nei, takmarkið er að fræða og
gera fræðsluna að leik.
Uppsetningin er snjöll, því tvær
og tvær gátur líkar að þyngd fylgj-
ast að, og spyrillinn hefír svörin
við höndina, tölusett og birt á
sömu opnu sem gátan, svo að ekk-
ert fari nú á milli mála. í einum
þáttanna þjálfa höfundar fólk í að
velja milli þriggja svara, háttur
sem mér skilst að mjög sé í tízku
í skólum nú.
Um efni þáttanna get ég verið
stuttorður, sumir vekja engan
áhuga hjá mér, aðrir gera mig að
augum og eyrum. „En svo er
margt sinnið sem skinnið“ og bók-
in var aldrei ætluð mér einum, og
ég geri mér fulla grein fyrir því,
að margur gleðst yfír því sem ég
veiti litla athygli. En fyrir það ber
að þakka, að höfundar gera sér
grein fyrir litrófí lífsins.
Eigum við að koma í leik? Á
hvaða reit er drottningarpeð svarts
í upphafi skákar? Hvaða kaupstað-
ur á íslandi hefír upphafsstafínn
D? Hvað heitir karldýr hvalsins?
Hvort hefír hærra bræðslumark,
gull eða silfur? Við hvern er mán-
uðurinn ágúst kenndur: 1. Ág-
ústus keisara Rómaveldis. X. Aug-
ust Strindberg, hinn virta sænska
rithöfund. 2. Agústínus af Kant-
araborg erkibiskup. Hvaða ódauð-
lega ljósálf skapaði Hollendingur-
inn Gerint Theodor Rotman? Hvers
vegna syngja sumir fuglar svona
mikið rétt fyrir dauða sinn? Hvað
er það besta við holdmikla svarta
kú? Hvar getur maður alltaf fund-
ið hamingju? Látum leik lokið en
af mörgu er að taka.
Villa er á síðu 12, a hefír læðst
þar í burt. Prentun og frágangur
allur mjög góður og kápan er bráð-
skemmtileg. Fjörleg, fræðandi
bók, sem á eftir að gleðja marga.