Morgunblaðið - 15.12.1992, Síða 20

Morgunblaðið - 15.12.1992, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1992 Orðskviðir og spekimál Bókmenntir Erlendur Jónsson Vel mælt. Tilvitnanir til íhugun- ar og dægradvalar. 262 bls. Sigurbjörn Einarsson tók saman. Setberg. Reykjavík, 1992. »Mér þykir best að tala um ekki neitt, það er hið eina, sem ég veit eitthvað um.« Svo mælti Oskar Wilde. Ætli þetta verði ekki flokkað undir þversögn? Spekin varð til í fornöld. Nútíminn er merkilegri en svo að hann þurfi á speki að halda. Hins vegar er enginn skortur á kenningum. Þær rísa og hníga eins og öldur hafsins. Menn eru hættir að leita til frumspekinnar; telja það ekki svara kostnaði. Hins vegar er alltaf verið að framleiða lausnir — við allra hæfi! Biskupinn okkar fyrrverandi, séra Sigurbjöm Einarsson, hefur tekið sér fyrir hendur að safna spakmælum úr ýmsum áttum og nefnir Vel mælt. Sem að líkum ISLAND • ICELAND • ISLANDE LJÓSMYNOADAGATAL ■ PH0T0 CALENDAR FOTOKALENDER ■ CALENDRIER Á PH0T0S Manstu afmælisdagana - merkisdagana? ttl dagato' fro*',s' CölsUY'd®- ,ndarda°na- hcW*1"* LJÓSMYNDADAGATAL með 13 Ijósmyndum . eftir Rafn Hafnfjörð ’ LISTADAGATAL með 12 meistaraverkum Kjarvals y^r. fcfcO,- Skemmtilegar gjafir til vina og vandamanna heima og erlendis Betri landkynning er vandfundin! Fást í bókabúðum og minjagripaverslunum LISTADAGATAL • ART CALENDAR KUNST KALENDER • CALENDRIEB D’ART n UTBRfl hf ■Ni PRENTSMIÐJA HðFÐATÚNI 12 — 105 REYKJAVÍK SfMAR 22930, 22865, FAX 622935 lætur er í riti þessu kristilegur undirtónn. Mætti raunar furðu gegna ef biskup leitaði ekki fyrst til sinna helgu fræða. En þarna eru fleiri kvaddir á ‘ vettvang, miklu fleiri, eins og fyrmefnd orð Óskars Wilde vitna gerst um. í raun er þetta mest almenn lífsspeki. Mann- lega þættinum eru í raun gerð víð- tækari skil en guðsorðinu. Eftir Storm P. eru t.d. höfð þessi orð sem eiga svo prýðisvel við íslendinga um þessar mundir: »Það er hlálegt, að með þeim tiltölulega fáu orðum, sem til eru í málinu, skuli vera hægt að segja svo margt vitlaust.« Þótt ekki sé allt vitlaust sem sagt er nú á dögum er sterkur sannleiks- kjarni í orðum þessum. Hvers vegna tímarnir afneita klassískri speki en kalla á allt þetta merking- arsnauða málæði? Því er ekki svar- að í Vel mælt sem varla var heldur við að búast! Var það ef til vill lýðskrumið og hóphyggjan? Þegar hvort tveggja þrýtur, rök og skyn- semi, er grípið til vígorða. Vígorðin og auglýsingin eru spekimál nútím- ans. Til dæmis: »Vertu með!« Sem þýðir: Vertu eins og aðrir, eltu aðra! Menn mega hvorki gleðjast né hryggjast svo þeim sé ekki boð- ið að »vera með«. Ef einhver verð- ur til að skrá sögu 20. aldar skyldi hann velja þetta að einkunnarorð- um: Vertu með — þá er hann í raun búinn að lýsa öldinni. Að sönnu vitnar séra Sigurbjörn þónokkuð í tuttugustu aldar höf- unda. í kafla, þar sem dregin eru saman spakmæli um hylli og frama, velur hann meðal annars þessar Ný tímarit ■ HA USTHEFTI Mál- fregna, tímarits Islenskrar málnefndar, er komið út. Þetta er síðara hefti 6. ár- gangs. Meðal efnis í þessu hefti er íslensk kynning á norrænum grunnskólum eftir Baldur Jóns- son, frásögn af kynningu ís- lenska stafrófsins og íslenskra nafnasiða í grunnskólum á Norðurlöndum. Birt er grein sem nefnist Orð og íðorð eftir Magnús Snædal og Öm Bjarna- son ritar greinina Orðasmíð í læknisfræði. Auk þess eru í heftinu stuttar greinar sem nefnast Um íslenskt heiti á ECU og Bréf til Ottós A. Mic- helsens, báðar eftir Baldur Jónsson, og loks eru að vanda Ritfregnir, Spurningar og svör og Sitt af hveiju. Málfregnir koma út tvisv- ar á ári. Argjald er 600 krón- ur. Nýir áskrifendur geta snúið sér til Islenskrar mál- stöðvar, Aragötu 9, Reykja- vík. Ritsljóri Málfregna er Baldur Jónsson, prófessor. ljóðlínur eftir Ingimar Erlend Sig- urðsson: Upphefð öll að innan kemur. í orðum þessum er sannarlega fólgin viska. Ósennilegt er þó að margur vilji taka hana upp sem hagnýta lífsreglu. Þvert á móti reyna flestir að skoða sig í spegli almenningsálitsins; og meta þá manngildi sitt eftir því eða með öðrum orðum — sækja þangað upp- hefð sína. Spakleg orð Ingimars Erlends verða þá að skoðast eins og hver önnur tímaskekkja, fortíð í samtíðinni. Hugsun mannsins á 20. öld greinist á óteljandi vegu og felur í sér jafnmargar mótsagnir. Marg- ur kemur ekki auga á neinn tilgang með lífi sinu. Gömul heilræði hljóma eins og þversagnir and- spænis kröfum þeim sem til manns eru gerðar í daglegu lífi. Viðbrögð margra eru að flýja sitt eigið sjálf með því að vera sífellt á fljúgandi ferð. Og hugsa alls ekki neitt! Fólk játar gildi fornra dygða en kemur ekki til hugar að fara eftir þeim. Margir foreldrar vilja t.d. að börn sín læri kristin fræði. En hvað segðu þeir ef ungviðið tæki þetta allt bókstaflega og heimtaði af for- eldrunum að þau gæfu fátækum eigur sínar? Þeirri spurningu þarf ekki að svara. En afleiðing tví- skinnungsins verður oft og tíðum sú að menn tala fagurt en hyggja flátt. Og fá þá að sannreyna það sem Victor Hugo orðaði svo og biskupinn tekur upp í bók sinni: »Illgjarnir njóta myrkrar ham- ingju.« Enda þótt þessi bók séra Sigur- björns taki mið af kristinni sið- fræði er hvergi horft framhjá hinu óstýriláta og frumstæða í mann- legu eðli. Eða eins og Helgi Hálf- danarson orðaði svo prýðilega í kveri sínu: »Breyskleikasyndir koma þráfallt fyrir hjá guðhrædd- um mönnum, en ásetningssyndir hjá óguðlegum.« Nýjar bækur Forseta íslands, Vigdísi Finnbogadóttur, var fært fyrsta eintak- ið af Sögu Stykkishólms. Á myndinni eru með forsetanum: Ólaf- ur H. Sverrisson, bæjarsljóri, Ellert Kristinsson, forseti bæjar- sljórnar, Rakel Olsen, formaður sögunefndar, Ólafur Ásgeirsson og Ásgeir Ásgeirsson. hólmi eftir Þóru Pétursdóttir Thoroddsen. Verð 5.900. Áskriftarverð 4.700 krónur. - Árni. ■ Fyrsta bindi ritverksins Aikraness er komið út. Höf- undur verksins er Jón Böð- varsson fyrrum skólameist- ari. Þetta fyrsta bindi ritverksins fjallar um tímabilið frá land- námi til ársins 1885. Síðan munu tvö síðari bindin fjalla um tímann frá 1885-1942 ann- ars vegar og og Akraneskaup- stað frá 1942-1992 hinsvegar. Fáir gera sér grein fyrir því hve mikið Akranes kom við sögu bæði á söguöld og 19. öld. Á þeim tíma lágu þræðir valda og áhrifa um Akranes en minn hefur farið fyrir þeim þætti í almennri söguritun. Jón varpar skýru ljósi á þátt Akra- ness á ýmsum tímum og dregur upp góða lýsingu á því um- hverfi sem Skagamenn lifðu og hræðust í. Bæjarstjórn Akraness gerði á árinu samning um ritun verksins og fyrr á þessu ári tók Prentverk Akraness að sér útgáfu ritverksins. - J.G. ■ FYRSTA bindi Sögu Stykkishólms eftirÁsgeir Ásgeirsson og Ólaf Ásgeirs- son erkomið út. ogheitir Kauphöfn og verslunarstað- ur 1596-1845. Þetta bindi, sem heitir Kaup- höfn og verslunarstaður 1596- 1845, er það fyrsta af þremur fyrirhuguðum. Það skiptist í þijá meginhluta, Skip í Grunna- sundsnesi og Kauphöfn, sem Ólafur er höfundur að, og Verslunarstaður, sem Ásgeir er höfundur að. Aftast eru svo skýringar og skrár, m.a. um myndir og heimildir og nafna- skrá. Það er Stykkishólmsbær, sem gefur bókina út, og hef- ur sérstök sögunefnd starfað á vegum bæjarins að útgáf- unni en hana skipa þau Rak- el Olsen, formaður, Einar Karlsson og Eyþór Bene- diktsson. Þetta fyrsta bindi er 429 blaðsíður. Kápumynd er Skip á legunni í Stykkis- Sinfóníuhljómsveit íslands Jólatónleikar í Langholtskirkju Jólatónleikar Sinfóníuhljóm- sveitar íslands verða haldnir í Langholtskirkju fimmtudaginn 17. desember kl. 20. Sljórnandi tónleikanna verður Hákon Leifs- son, sem í fyrsta skipti stjórnar opinberum tónleikum hjá SÍ. Ein- söngvari verður Tómas Tómas- son bassasöngvari, sem einnig „debuterar" með hljómsveitinni á þessum tónleikum. Skólakór Kársness mun einnig taka þátt í tónleikunum. Á efnisskrá verða: Brandenborg- arkonsert nr. 3 og Aría úr Jólaóra- toríunni eftir Johann Sebastian Bach; Sigfried Idyll eftir Richard Wagner; þættir úr Hnotubijótnum eftir P. Tsjajkovskíj; jólasálmar og jólalög eftir ýmsa höfunda. í frétta- tilkynningu segir, að verkin sem flutt verða, séu á einn eða annan hátt tengd jólum, þannig að bæði böm og fullorðnir megi hafa ánægju af. Hákon Leifsson hóf ungur tón- listarnám. Hann lagði stund á hom- leik bæði hér heima og við Konung- lega Tónlistarskólann í Kaup- mannahöfn. Tónsmíðar nam hann Gallerí Sævars Karls Myndverk Hörpu Bjömsdóttur Sýning á verkum myndlistar- konunnar Hörpu Björnsdóttur eru til sýnis í Galleríi Sævars Karls, Bankastræti 9, til 31. des- ember 1992. Harpa er fædd 13. júlí 1955. Hún stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla íslands 1976-’81. Hún hefur dvalið við störf í Kjarvalsstofu í París, í Róm og Sveaborg. Harpa fékk starfslaun 1992. Harpa hefur tekið þátt i fjölda samsýninga. Hún hefur haldið einkasýningar í Gallery Gerly, Kaupmannahöfn, í Gallerí Borg, á Kjarvalsstöðum, í Gallerí 15 og Gallerí Allrahanda, Akureyri. í fréttatilkynningu segir að mynd- verk á sýningunni séu einum þræði trúarleg, öðrum þræði ekki, en þar sé sjón sögu ríkari. Harpa Björnsdóttir við eitt myndverk sitt. hjá Atla Heimi Sveinssyni, í Vínar- borg og um tveggja ára skeið stund- aði hann nám í djasstónsmíðum í Bandaríkjunum. Árið 1989 lauk Hákon meistaragráðu í hljómsveit- arstjórn við New England Conserv- atory { Boston í Bandaríkjunum. Einnig hefur hann sótt einkatíma í því fagi hjá Jorma Panula og Gunther Schuller. Hákon hefur stjórnað tónlistarhópum af ýmsu tagi, meðal annars Islensku hljóm- sveitinni, Nýja músíkhópnum, kammersveitum á Listahátíð ’88 og ’92, einnig stjómaði hann upp- færslu á „Systur Angelicu“ hjá Óperusmiðjunni. Tómas Tómasson hóf söngferil sinn í Kór Menntaskólans í Hamra- hlíð undir stjórn Þorgerðar Ingólfs- dóttur. Síðastliðin fjögur ár hefur Tómas stundað nám í Tónlistarskól- anum í Reykjavík undir handleiðslu Elísabetar Erlingsdóttur. Hann hef- ur starfað með kór íslensku óper- unnar frá 1990. Tómas söng hlut- verk Sparafuciles í Rígólettó, Sar- asto í Töfraflautunni og nú síðast Lodovicos í Ótelló í uppfærslum Islensku óperunnar. Skólakór Kársness var stofnaður fyrir 15 árum. Hann hefur sungið víða og gert garðinn frægan undir stjórn kórstjórans, Þórunnar Björnsdóttur. Síðast nú í byijun nóvember söng hann við opnun Norrænu listahátíðarinnar í Lond- on. Að þessu sinni taka um 50 börn á aldrinum 11-16 ára þátt í tónleik- unum. Kynnir í Hnotubijótnum eftir Tsjajkovskíj verður hljómsveitar- stjórinn, Hákon Leifsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.