Morgunblaðið - 15.12.1992, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1992
27
Hugleiðingar
um ökukennslu
eftir Guðmund G.
Pétursson
Það gleður mig svo sannarlega
að nú skuii vera kominn skriður á
að mennta ökukennara. Allt frá
árinu 1956, er ég var í Svíþjóð að
kynna mér ökuskóla og menntun
ökukennara, hef ég barist fyrir
aukinni menntun ökukennara og
aukinni ökukennslu sem skyldunám
í sérstökum ökuskólum eða í fram-
haldsskólum landsins.
Umferðarfræðsla í framhalds-
skólum sem undirbúningur fyrir
bílpróf gerir nemendum námið létt-
ara og styttir ökukennsluna.
1. október síðastliðinn gerðu
Umferðarráð og Kennaraháskóli
íslands með sér samstarfssamning
um að Kennaraháskólinn tæki að
sér kennslu fyrir verðandi ökukenn-
ara, auk endurmenntunar fyrir
starfandi ökukennara. Vonir standa
til að fyrsta ökukennaranámið fyrir
nýnema geti hafist haustið 1993.
Eg tel að sú skipan sem nú er fram-
kvæmd í prófum til venjulegs prófs
sé af hinu góða, sem og sú áherslu-
breyting sem orðið hefur á prófun-
um.
Nú er fyrst og fremst hugað að
kunnáttu nemenda í umferðar- og
öryggismálum, sem er undirstaða
ökukennslunnar ásamt góðri og
réttri meðferð bifreiðarinnar.
Eftir að grein birtist í Morgun-
blaðinu 31. október síðastliðinn um
æfingaakstur undir eftirliti for-
eldra, halda margir að nú þurfi
enga ökukennara. Það er trú mín
að foreldrakennslan verði viðbót við
þá ökukennslu sem er í dag. Eg
Flugleiðir úr
Lækjargötu
á Laugaveg
Söluskrifstofa Flugleiða flyt-
ur í dag frá Lækjargötu 2 að
Laugavegi 7, þar sem Lands-
bankinn hefur haft aðsetur. Þar
með lýkur nær hálfrar aldar
veru Flugleiða og forvera fé-
lagsins í Lækjargötunni.
Flugfélag íslands opnaði sölu-
skrifstofu í Lækjargötu 4 árið
1944. Árið 1962 var skrifstofan
flutt í húsið númer 2 og hefur
verið þar síðan. Nýja húsnæðið að
Laugavegi 7 er rúmlega 300 fer-
metrar og verður söluskrifstofan á
jarðhæð húss'ins. í kjallara verður
aðstaða fyrir starfsfólk og vara-
búnaði fyrir tölvukerfi Flugleiða
verður komið fyrir þar sem áður
voru öryggishólf Landsbankans.
í frétt frá Flugleiðum kemur
fram, að söluskrifstofan við Lækj-
argötu var lengi eina söluskrifstofa
félagsins og hefur frá upphafi ver-
ið söluhæsta skrifstofan.
-------♦ ♦ «------
Affi og amma
Allt fyrlrminnsta barnið.
Sérfræðiþjónusta og góður magnafsláttur.
v Verslið þar sem úrvaliö er mest.
ÁHu von á barni?
Sórfræðiþjónusta.
Pabbi og mamma
Allt fyrir nýtædda barnið
ÞUMALÍNA,
Leifsgötu 32, s. 12136.
hef ekkert á móti því að foreldrar
megi kenna börnum sínum á bifreið-
ina á fáförnum götum eða þar sem
engin umferð er. Þeir gætu kennt
börnum sínum hvað bifreið sé og
hvernig skuli meðhöndla hana, svo
fyllsta öryggis sé gætt. Einnig að
benda á nokkrar af þeim hættum
sem stafa af því að nota bifreiðina
ekki rétt. Það verður hins vegar
aldrei hægt að útiloka að ökukenn-
ari hafi umsjón með og kenni nem-
endum fýrir bílprófíð. Hitt er annað
mál að hafí verið nauðsynlegt að
kenna 17 ára unglingum 24 tíma á
bifreiðina árið 1955 þá sé ekki ann-
að en í dag þurfí ökukennslan að
miðast við lágmarkstíma, sem væri
í það minnsta 15 til 17 tímar. Þessu
til viðbótar kæmi foreldrakennslan.
Með þessu sköpum við öruggari
ökumenn sem eiga að hafa gott
vald á bifreiðinni, svo framarlega
að farið sé eftir öllum leikreglum.
Góð menntun ökukennara ætti
að bæta ökukennsluna og æfinga-
akstur nemenda sem lokið hafa bíl-
prófi frá prófdeildinni. Nemendurn-
ir væru undir eftirliti hjá foreldrum
sínum í eitt ár og þá á merktri bif-
reið sem gæfi til kynna að viðvan-
ingur væri undir stýri. Slíkt gæti
bætt umferðina og öryggi hennar
mjög mikið.
Síðan er spurning hvernig er
best að koma þessu í framkvæmd.
Þar tel ég Slysavamaráð íslands
ásamt Ökukennarafélagi íslands
„Hér að framan hef ég
reifað hugleiðingar
mínar og spurningar.
Ég tel rétt að við
ígrundum gaumgæfi-
lega málefni öku-
kennslunnar í landinu
þar sem við stöndum á
krossgötum.“
eigi að boða til umræðufundar með
pallborðsumræðu þar sem t.d. væri
rétt að ræða eftirfarandi:
1. Hvernig á foreldrakennslan að
fara fram?
2. Eiga foreldrar að kenna börnum
sínum fyrst og síðan ökukennarinn
eða öfugt?
3. Ef foreldrar ætla að kenna börn-
um sínum, þurfa þeir þá að fara á
námskeið hjá prófdeildinni?
4. Eiga foreldrar að æfa börnin sín
í eitt ár eftir að það hefur tekið
próf eða á einungis að hafa eftirlit
með börnunum.
5. Á að merkja bifreiðina sérstak-
lega þegar barnið ekur, ef svo er
þá hvernig? Hversu lengi?
6. Þurfa foreldrar að setja sérstök
kennslutæki í bifreiðina líkt og öku-
kennarar þurfa að gera?
Hér að framan héf ég reifað
hugleiðingar mínar og spurningar.
Ég tel rétt að við ígrundum gaum-
gæfilega málefni ökukennslunnar í
landinu þar sem við stöndum á
krossgötum. Við verðum að velja
það ljós sem færir okkur fræðslu
og öryggi í umferðinni og umfram
allt að ökuskírteini veiti okkur gæfu
og hamingju.
Höfundur er ökukennari.
Hiigmy ndabanki
ii JOLAGJAFA!
■ ÆSK UL YÐSFELA G Garða-
kirkju heldur árlegan jólafund sinn
í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli í
Garðabæ í dag, þriðjudag, kl. 20.30.
Boðið verður upp á veitingar á fund-
inum. Allir unglingar í Garðabæ eru
velkomnir, en félagið starfar meðal
unglinga í þremur efstu bekkjum
grunnskóla. Kjörorð félagsins er:
Fyrir Guð. Fyrir náungann. Fyrir
ættjörðina.
UTVARPSVEKJARI
RM 5009
Gunnar Asgeirsson hf.
Borgartún 24 • 105 Reykjavík
Slmi: 91-626080 • Fax: (91) 629980
Umboðsmenn u m lan d allt !
HEIMILISTÆKI HF. / Reykjavík • HEIMSKRINGLA / Kringlunni • RAFBÚÐ SAMBANDSINS / Reykjavík • PÓLLINN / ísaflrði
• RAFBÚÐ JÓNASAR Þ. / Patreksfirði • RADlÓKJALLARINN/A'í/7avft • VALBERG /Ólafsfirði • KÞ SMIÐJAN /Húsavik
• BRIMNES / Ve.vmannaeyjum • SKAGARADlÓ/Akrariesi • RAFSJÁ/Sauðárkróki
• KAUPFÉLAG ÁRNESINGA/.Sí//oíh • RADlÓNAUST/Akureyri.