Morgunblaðið - 15.12.1992, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1992
Þróunargjald lækk-
ar laun fiskimanna
Vélstjórar
mótmæla
FUNDUR sljórnar Vélstjórafé-
lags Islands mótmælir harðlega
hugmyndum ríkisstjórnar um
stofnun þróunarsjóðs til úreld-
ingar á fiskiskipum og vinnslu-
stöðvum. Sjóðinn eigi að fjár-
magna með sérstöku veiðileyfa-
gjaldi og það muni án tillits til
hvernig það sé innheimt hafa
áhrif til lækkunar á kjör fiski-
, manna.
Síðan segir: „Fiskimenn hafa
engu ráðið um fjárfestingar í sjáv-
arútvegi hvorki í veiðiskipum né
fiskvinnslum í landi og munu því
- bregðast með öllum tiltækum ráð-
um gegn aðgerðum sem leiða til
lækkunar á kjörum þeirra.“
Þá er mótmælt harðlega fram-
- komnum hugmyndum Landssam-
bands íslenskra útvegsmanna um
að fyrirhugað þróunargjald verði
i dregið af aflaverðmæti áður en til
hlutaskipta kemur. Því er engu
að síður fagnað að hugmyndir LIÚ
skuli koma fram nú áður en málið
er endanlega afgreitt á Alþingi
sem muni leiða til þess að öll tví-
mæli verði tekin af um vilja lög-
gjafans hvað þetta varðar.
Einnig er þess krafíst að félags-
menn fái sömu launabreytingar
og Hæstiréttur hafí dæmt BHMR.
. JÓld’
þrennan
Skemmtileg í SKÓINN
kjörin með JÓLAKORTINU
og gerir JÓLAPAKKANN
ennþó meira spennandi.
Stærsta orgel á íslandi vígt í Hallgrímskirkju á sunnudag
Orgelverk
hafa borist
fra Japan
STÆRSTA orgel á íslandi var vígt á sunnudag í Hallgríms-
kirkju og þangað geta menn farið klukkan tólf á hádegi eða
sex síðdegis alla vikuna til að heyra í því. Annað kvöld klukk-
an hálf níu verða vígslutónleikar frá síðari hluta sunnudagsins
endurteknir. Orgelið var smíðað í Þýskalandi og segja þeir
sem til þekkja að það sameini hið besta i þýskum hljómi og
frönskum. Ýmislegt hefur verið gert til að bæta hljómburð í
Hallgrímskirkju þannig að 5.200 pípur, úr nálarstærð í tíu
metra tröll, fái notið sín þegar leikið er á hljóðfærið. Sögur
af því hafa borist víða, tónlistarmenn sýna því áhuga og bor-
ist hafa orgelverk fyrir það alla leið frá Japan.
Orgelið í Hallgrímskirkju var
vígt við hátíðamessu á sunnu-
dagsmorgun af séra Jónasi Gísla-
syni vígslubiskupi. Bamakór og
Mótettukór kirkjunnar söng og
flutt var verk eftir Þorkel Sigur-
bjömsson, þar sem gamla orgelið
í kirkjunni kallaðist á við hið nýja,
sem smám saman tók yfir. I lok
messunnar var tekið við framlög-
um til Hjálparstofnunar kirkjunn-
ar. Vígslutónleikar voru haldnir
síðdegis og organisti kirkjunnar,
Hörður Áskelsson, endurtekur þá
á morgun, miðvikudag.
Smíði orgelsins í Bonn tók um
tvö ár að sögn séra Karls Sigur-
bjömssonar og í Hallgrímskirkju
kom það í júlí. Þýskur sérfræðing-
ur tók til við stillingu þess fyrir
þremur mánuðum og nú hljómar
tónlist sem leikin er á það tvisvar
á dag. Þannig verða stuttir hádeg-
is- og síðdegistónleikar í þessari
viku, auk annarra athafna þar
sem leikið er á orgelið. Séra Karl
segir að það verði mikið notað við
guðsþjónustur og haldnir verði
tónleikar reglulega, síðasta
sunnudag hvers mánaðar.
Söfnun í orgelsjóð hófst 1948
og síðasta átakið fyrir tveimur
ámm. Þá var farið að selja pípur
í orgelinu og segir séra Karl tals-
vert um að fólk kaupi pípur til
tækifærisgjafa eða tileinki ein-
hveijum. Enn eru þó margar
óseldar enda yfir fímm þúsund í
hljóðfærinu. Það gnæfír fímmtán
metra hátt yfir kirkjudyrunum,
en arkitektar húsameistara ríkis-
ins höfðu samráð við þýsku Klais-
verksmiðjuna um fyrirkomulagið.
Séra Karl segir greinilegt að
spurst hafí víða um kjörgripinn í
Hallgrímskirkju, organistar, tón-
smiðir og hljómplötufyrirtæki hafí
lýst áhuga á að nýta orgelið. Stórt
breskt útgáfufyrirtæki kirkjutón-
listar, Priory Records, vilji til
dæmis taka upp orgelspil í Hall-
grímskirkju, geysigóð þátttaka
hafi verið í samkeppni um orgel-
verk sem úrslit fáist í kringum
áramót og jafnvel hafí borist tón-
verk alla leið frá Japan.
Nýja orgelið í Hallgrímskirkju er 15 metra hátt með 5.200 pípum.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Hörður Áskelsson,
organisti í Hall-
grímskirkju, við
nýja orgelið ásamt
smiðnum, Hans
Gerb Klais, og frú
Vigdísi Finnboga-
dóttur, forseta Is-
lands.
Frá' vigslutónleik-
unum á sunnudag-
inn.
Nú er það loksins komið! Launakerfi fyrir Windows
Launakerfið "Peningapokinn"
Kerfið er íslensk hönnun, íyrir íslensk íyrirtæki af öllum stærðum.
Verk- og kerfisffæðistofan SPOR, Síðumúla 1, 108 Reykjavík. Sími 91 - 68 62 50