Morgunblaðið - 15.12.1992, Page 34
MORGUNBl-AÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. DESKMBKR 1992
„Míkíll dagxir
fyrir Dani“
Kaupmannahöfn. Frá Sigrúnu Davíðsdóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
STÓR orð voru hvergi spöruð, þegar Poul Schlíiter forsætisráð-
herra Dana kynnti dönskum blaðamönnum í Edinborg niðurstöður
leiðtogafundar EB um miðnættið á Iaugardag. „Mikill dagur fyrir
Dani“, sagði ráðherrann um leið og hann tilkynnti að leiðtogar
hinna ellefu aðildarlandanna að Maastricht-samkomulaginu hefðu
fallist á fyrirvara Dana á fullnægjandi hátt. Á sunnudaginn sam-
þykktu svo sjö af þeim átta flokkum, sem eiga fulltrúa á Þjóðþing-
inu, að niðurstöður fundarins uppfylltu skilyrði Dana.
Á sunnudeginum samþykktu
miðstjórnir Jafnaðarmannaflokks-
ins og Róttæka vinstriflokksins
niðurstöður leiðtogafundarins ein-
róma. Þessir tveir flokkar, ásamt
Sósíalíska þjóðarflokknum, stóðu
að því sem kallað var þjóðarsátt
Dana, en hana lagði ríkisstjórnin
á borð leiðtogafundarins. Svars
þriðja flokksins, Sósíalíska þjóðar-
flokksins var beðið með eftirvænt-
ingu, því þó öruggt þætti að for-
maður hans, Holger K. Nielsen,
og varaformaður, Steen Gade,
'væru niðurstöðunum samþykkir,
var álitið að hugsanlega væri urg-
ur í flokksstjóminni, bæði vegna
vafa um að niðurstöðumar væru
lagalega bindandi, en eins vegna
löngunar til að ná til þeirra kjós-
enda, sem ekki gera sig ánægða
með hana. Svo reyndist ekki. Rúm-
lega þijátíu greiddu atkvæði með,
en fjórir á móti. Á eftir minnti
Holger K. Nielsen á að andstæð-
ingar sínir hefðu hlegið að sér
fyrir að segja að Danir gætu hafn-
að samkomulaginu og síðan samið
um sérkröfur, en þau orð hefðu
nú gengið eftir.
Nú er Framfaraflokkurinn eini
flokkurinn, sem mælir með þvi að
Danir hafni^ niðurstöðu leiðtoga-
fundarins. í sjónvarpsumræðum
sagði Pia Kjærsgaard formaður
flokksins ekkert annað duga til
að standa vörð um danska vel-
ferðarþjóðfélagið og hindra hinar
Evrópuþjóðirnar í að stofna sam-
bandsríki Evrópu. Eftir að Sósíal-
íski þjóðarflokkurinn samþykkti
niðurstöðurnar í gær er flokkurinn
ekki lengur sammála málflutningi
2. júní-hreyfingarinnar, sem stofn-
uð var sem andóf gegn Maastricht-
samkomulaginu. Forráðamenn
hreyfingarinnar hafa gefið í skyn
að þeir muni nú stofna stjórnmála-
flokk til að fylgja stefnu sinni eft-
ir. Niðurstöðumar nú komi aðeins
Dönum til góða, en hreyfingin vill
stöðva hin löndin í að tengja bönd-
in milli landanna enn fastar.
Þó formenn flokkanna þriggja,
sem stóðu að málamiðluninni, hafi
allir undirstrikað að afstaða þeirra
nú mótist eingöngu af EB-stefnu
flokkanna, gátu þeir þó ekki mót-
mælt því að niðurstaðan v_æri þeim
hvatning til samstarfs. í leiðara
dagblaðsins Politiken í gær var
sagt að nú þegar Sósíalíski þjóðar-
flokkurinn væri ekki lengur aðeins
til í að mótmæla heldur einnig til-
. búinn til aðgerða opnaði það
möguleika fyrir uppstokkun í
dönskum stjórnmálum. Poul Nyr-
up Rasmussen formaður Jafnaðar-
mannaflokksins lét þess getið að
Holger K. Nielsen hefði staðið
glæsilega að málum innan flokks
hans.
Schliiter hefur nefnt að hægt
verði að greiða atkvæði um niður-
stöðumar í apríl eða maí. Ákvörð-
unin um hvenær þjóðaratkvæða-
greiðslan fer fram verður tekin í
næstu viku. Jafnframt hefur hann
nefnt að Dönum gefist ekki kostur
á að kjósa oftar og að höfnun
þýði viðskilnað við EB.
Lifði af barsmíðar
Sómölsk kona grípur búrhníf sér til varnar í mið-
borg Mogadishu, höfuðborg Sómalíu, í gærmorgun
en má ekki við margnum. Æstur lýður taldi þarna
vera portkonu á ferðinni sem legið hefði um nótt-
ina með liðsmönnum frönsku útlendingadeildarinn-
ar. Hrópaði múgurinn „hóra, hóra“, tætti utan af
henni fötin, barði hana og sparkaði í hana. Lög-
reglumenn komu henni til bjargar, sökuðu hana
um að hafa selt blíðu sína og stungu henni inn. í
fyrstu var talið að konan hefði verið tekin af lífi
en fulltrúi kvenréttindasamtaka sem heimsótti
hana á lögreglustöð sagði það rangt. Leiðtogi
frönsku útlendingaherdeildanna í Mogadishu neit-
aði því að konan hefði gist hjá mönnum sínum.
Hún hefði leitað skjóls í stöðvum þeirra í gærmorg-
un, verið sett upp í heijeppa og henni ekið nokkur
hundruð metra en síðan hefði hún verið elt uppi
af þeim sem töldu sig eiga óuppgerða sök við
hana. Um er að ræða fyrsta alvarlega atvikið er
bendir til óvildar í garð fjölþjóðahersins sem kom-
inn er til Sómalíu til að tryggja að neyðarhjálp
berist sveltandi íbúum. „Við drepum alla útlend-
inga sem snerta konurnar okkar,“ æptu innfæddir
að blaðamönnum en aðförin að konunni átti sér
stað fyrir utan hótel þeirra í Mogadishu í gær.
Almenn ánægja innan EB með niðurstöður Edinborgarfundarins
Leiðtogafundurmn tal-
inn styrkja stöðu Majors
Edinborg. Reuter, The Daily Telegraph.
LEIÐTOGAR Evrópubandalags-
ins (EB) náðu málamiðlun varð-
andi flest þau atriði sem deilt
hafði verið um fyrir fund þeirra
í Edinborg um helgina og eru nið-
urstöðurnar túlkaðar sem mikili
sigur fyrir John Major, forsætis-
ráðherra Bretlands, sem var í for-
sæti á fundinum. Major sagði að
loknum fundinum að hart hefði
HELSTU AKVARÐANIR EDINBORGARFUNDARINS
Leiðtogar Evrópubandalagsins enduðu tveggja daga fund sinn í Edinborg
meö tímamótasamkomulagi og björguöu Maastricht- samkomulaginu.
lTOtvIiU<»
ÚTVfKKUN.
Danir fá undanþágu frá mark-
miðum Maastricht- samkomu-
lagsins um pólitískan og efna-
hagslegan samruna.
f fjárhagssamkomulagi til sjö ára
eru tekjur EB frystar á núverandi
stigi, 1,2% af þjóöarframleiðslu
næstu tvö árin. Þær verða síðan
stighækkaðar í 1,27% árið 1999.
Þá verður stofnaður sjóður fyrir
fjögur fátækustu EB-ríkin.
VALDDREIFING
Nýjar reglur eiga að taka gíldi
: þess efnis að EB láti einungis
mál til sín taka ef aðildarríkin
geta ekki náð markmiðunum ein
og sér. Lagt er til að fella niður
ýmsar gildandi reglur.
STAÐSETNING STOFNANA
Staðsetning núverandi stofnana
staðfest. Þau ríki sem ekki hýsa
stofnun nú þegar hafi forgang
þegar fleiri bætast við.
Aðildarviðræður viö Austurríkis-
menn, Svía og Finna hefjast
1. janúar. Viðræður við Norð-
menn hefjast síðar á árinu.
mmm
Reynt verður að örva hagvöxt
með því að styrkja ýmsa upp-
byggingu. Til þess veröur varið
sem samsvarar 37 milljöröum
dollara í gegnum Evrópska
fjárfestingarbankann og nýjan
evrópskan fjárfestingasjóö.
hbhhíhhhbh
Sumum ráðherrafundum sjón-
varpað og upplýsingar um
atkvæöagreiðslu gerðar opinberar.
EB-lög verða einfaldari og skýrari.
Þýskaland fær 18 þingmenn til
viðbótar vegna sameiningar-
innar. Flest önnur ríki fá einhverja
þingmenn til viðbótar.
Mælt með auknum þrýstingi á
Serbíu og bosníska Serba,
kérfisbundnar nauðganir á
* múslimskum konum í Bosníu
fordæmdar, Makedóníu boðin
efnahagsaðstoð, en ekki viður-
kenning vegna andstööu Grikkja
við nafn lýöveldisins.
1—«8—
______ Leiðtogarnir lýsa yfir einörðum
■ stuðningi viö umbótaáætlun a
® Boris Jeltsins Rússlandsforseta. í=
verið tekist á. Loks hefði hins
vegar tekist að finna leið sem
gerði Dönum kleift að samþykkja
Maastricht-samkomulagið, koma
fjármálum bandalagsins í heil-
brigt og viðráðanlegt form út öld-
ina og opna fyrir fjölgun aðildar-
rikja.
Jafnvel stjórnarandstöðuþing-
menn hrósuðu Major fyrir að halda
þannig á málum að fundur, sem hefði
mjög auðveldlega getað endað með
ósköpum, endaði með samkomulagi
um öll helstu deilumál. Margir voru
líka þeirrar skoðunar að niðurstöður
Edinborgarfundarins myndu stuðla
að því að efasemdir margra Breta
um sambandsríki Evrópu fengju
framvegis betri undirtektir. Breskir
stjómmálaskýrendur spáðu því samt
sem áður að andstaðan innan Ihálds-
flokksins við Maastricht-samkomu-
lagið myndi halda áfram á fyrri hluta
næsta árs, en þá er stefnt að því að
staðfesta samninginn. „Það hefur
ekkert breyst,“ sagði James Cran,
einn helsti andstæðingur Maastricht
í röðum íhaldsþingmanna. Ráðherrar
virtust hins vegar vongóðir um að
samningurinn myndi loks ná í gegn,
jafnvel þó að það yrði ekki fyrr en
næsta sumar, og vísuðu á bug kröf-
um um að staðfestingu yrði flýtt.
„Þegar upp er staðið þá er hvorki
hægt að vera ruddalegur við né ýta
á eftir þinginu," sagði t.d. Norman
Lamont fjármálaráðherra.
Bresku ráðherramir setja traust
sitt á að Danir samþykki Maastricht
í nýrri þjóðaratkvæðagreiðslu þar í
landi, sem líklega mun fara fram í
apríl. Douglas Hurd utanríkisráð-
herra sagði á sunnudag að Bretar
myndu einungis staðfesta samkomu-
lagið ef danska þjóðin samþykkti
það. Ef Danir höfnuðu samkomulag-
inu væri það fallið og Danir yrðu
ekki skildir eftir úti í kuldanum.
Reuter
Major signrsæll
John Major forsætisráðherra Bret-
lands heldur sigri hrósandi á loka-
blaðamannafund Edinborgarfundar-
ins.
Bretar eru eina EB-þjóðin, að Dönum
undanskildum, sem ekki staðfestir
Maastricht fyrir áramót, og sættu
þeir nokkurri gagnrýni fyrir vikið á
fundinum.
Bretar og Frakkar settu fram
kröfu um að Bretum yrði gefínn
ákveðinn frestur til að staðfesta
Maastricht en féllu svo frá henni.
Francois Mitterrand Frakklandsfor-
seti sagði hins vegar að ef Danir og
Bretar samþykktu ekki sáttmálann
myndu hinar þjóðimar tíu halda
áfram að „byggja upp Evrópu á
grundvelli Maastricht". Tók Helmut
Kohl, kanslari Þýskalands, undir
þetta sjónarmið. Douglas Hurd sagði
í viðtali við breska útvarpið BBC að
þetta væri möguleiki en, að Bretar
myndu ekki taka þátt. Það væri ekki
pólitískt raunhæft að ætla að setjast
niður og semja nýjan sáttmála án
Dana. Hann sagði þó að það væri
mjög varasamt fyrir Breta ef þeir
yrðu ásamt Dönum skildir eftir út-
undan á meðan önnur ríki EB tækju
mikiivægar ákvarðanir.
Engholm vill auka
við samkomulag
Bonn.Keut«r.
Samkomulag stjórnar og stjórnarandstöðu í Þýskalandi um breyting-
ar á innflyfjendalöggjöfinni virðist nú vera í hættu eftir að Björn
Engholm, formaður Jafnaðarmannafiokksins (SPD), setti fram nýjar
kröfur í gær, sem flokkur Helmuts Kohls kanslara, telur sig ekki geta
sætt sig við.
Engholm hefur sætt harðri gagn-
rýni frá vinstri væng flokks síns sem
sakar hann um að hafa gefist upp
gagnvart hægrimönnum í málinu.
Hann hvatti í gærtil að samkomulag-
ið við stjómina yrði endurbætt. Vill
Engholm m.a. gera samkomulag við
nágrannaríkin Pólland og Tékkóslóv-
akíu um skiptingu kostnaðar vegna
flóttamanna sem koma til Þýska-
lands gegnum þau ríki og er vísað
til baka. Er þetta vegna þess að
hvorugt ríkið hefur fjárhagslegt bol-
magn til að standa undir þeim mikla
fjölda flóttamanna, sem búist er við
að verði vísað til baka.