Morgunblaðið - 15.12.1992, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ VlDSKlPn/JDVINNUIÍF ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1992
43
Gæðamál
Gæðastjórnun hjá
Nóa Síríusi
eftir Rúnar Ingibjartsson
Eitt af markmiðum með verkefn-
inu Þjóðarsókn í gæðamálum er að
kynna aðgerðir ýmissa fyrirtækja
og stofnana á sviði gæðamála í
tengslum við faghópa Gæðastjórn-
unarfélags íslands. Iðnaðarhópur
félagsins hefur undirbúið þessa
kynningu undir heitinu fyrirtæki
vikunnar. Fyrirhugað er að kynna
aðferðir fleiri fyrirtækja og stofn-
ana á nýju ári. Fyrirtækið Nói Sír-
íus verður kynnt að þessu sinni, en
þar starfa u.þ.b. 100 starfsmenn.
Gæðastjórnun í hávegum höfð
Fyrirtækið hefur nú starfað í um
70 ár og það hefur löngum verið
stjórnendum og starfsmönnum fyr-'
irtækisins ljóst að árahgur í fram-
leiðslu og sölu slíkrar vöru sem
sælgæti er næst aðeins með því að
vanda til hennar. Vendipunktur
varð í starfseminni árið 1970 þegar
ísland gerðist aðili að EFTA og tíu
ára aðlögun að opnu markaðssvæði
hófst. Einnig stóð fyrirtækið
frammi fyrir miklum breytingum
árið 1980 þegar óheft samkeppni
við innflutning varð að veruleika.
Þessari samkeppni var mætt með
því að leggja enn meiri áherslu á
vöruvöndun og vöruþróun. Önnur
þáttaskil urðu síðan árið 1988, þeg-
ar stjórnendur fyrirtækisins ákváðu
að taka upp gæðastýringu. Samið
var við Gunnar H. Guðmundsson
hjá Ráðgarði um leiðbeiningar og
ráðgjöf. Fljótlega þróuðust málin í
þann farveg að nota ISO 9001 stað-
alinn sem grunn að þeirri vinnu.
Fyrirtækið mótaði gæðastefnu sem
byggð er upp með það að markmiði
að styrkja þá forystu sem fyrirtækið
hefur áunnið sér í tímans rás í fram-
leiðslu og sölu á ýmiss konar sæl-
gæti. Þetta byggist á því að neytend-
ur þekki fyrirtækið sem framleiðanda
gallalausrar vöru sem fellur þeim í
geð. Til að fylgja þessu eftir hefur
verið tekin saman gæðahandbók í
samræmi við staðalinn. Viðamestu
þættir gæðahandbókarinnar eru:
•Almenn lýsing á gæðakerfinu.
•Verklýsingar um það bil eitt
hundrað vörutegunda.
• Eftirlitsáætlanir.
•Kaflar um vöruþróun, heilbrigð-
iskröfur, framleiðsluskráningar
o.fl.
TÆKIFÆRI OKKAR TÍMA
Þær breytingar sem orðið hafa
með upptöku gæðakerfisins eru
einkum þær að nú er betra skipulag
á eftirliti, skráningar á því sem
gert er eru betri og þess er betur
gætt en áður að starfsmenn viti
hvernig þeir eigi að standa að fram-
leiðslunni á hinum mismunandi
stigum.
Árangurinn lætur ekki
á sér standa
Besti mælikvarðinn á árangur er
e.t.v. sá að á fyrstu þremur árunum
sem gæðastýringunni var beitt
fækkaði starfsmönnum í fram-
leiðslu um 10% á sama tíma og
framleiðslan jókst. Ástæðurnar eru
margar. Skipulagðari framleiðslu-
hættir, minni tafír vegna mistaka
í framleiðslu, aukin vélvæðing og
bætt starfsaðstaða. Allir þessir
þættir voru skoðaðir sem verkefni
til úrlausnar en ekki sem tilfallandi
atburðir eins og oft vill verða.
Gæðakonfekt
Til að lýsa betur hvernig gæða-
stýring virkar.í raun er jólakonfekt-
Reykjavíkurborg
Útgjöld borgarsjóðs til SVR höfðu
farið vaxandi frá árinu árinu 1982
fram til ársins 1990 en markmið
núverandi stjórnar SVR er að
minnka kostnað borgarinnar vegna
almenningsvagnanna. Sveinn Andri
segir að ekki sé óraunhæft markmið
að framlag borgarinnar verði
20%-30% árið 1994. Einn þáttur í
bættri afkomu er tilkoma hins svo-
kallaða Græna korts. Að sögn Sveins
Andra Sveinssonar hefur VSÓ,
Rekstrarráðgjöf hf., unnið úttekt á
notkun Græna kortsins sem sýnir
að meðalferðafjöldi á kortið er 52
ferðir á mánuði. „Meðalfargjaldið á
mánaðarkortið er því 55,6 krónur
ið gott dæmi, en skipta má gæða-
stýringunni í fjóra meginþætti:
• Kröfur eru settar um val hráefna
og umbúða.
•Við móttöku hráefna er athugað
hvort þau uppfylli gerðar kröfur.
• Framleiðslueftirlit er nákvæmt
við hveija hinna 14 tegunda af
konfektmolum.
•Pökkunareftirlit er í takt við kröf-
ur fyrirtækisins.
Gæðastýring er fyrst og fremst
staðfesting og skráning á þeim
vinnubrögðum sem hafa verið við
lýði. Gæðastýring er einnig tæki til
þess að fínna skipulega hvar skór-
inn kreppir að í framleiðslunni og
bæta þá hnökra sem fínnast. Oft
næst þannig hagræðing sem kemur
öllum til góða, ekki síst neytendum.
Við gæðastýringu er einnig nauð-
synlegt að horfa fram á veginn því
þarfir og óskir neytenda breytast
stöðugt og meginhlutverk fyrirtæk-
isins er að koma til móts við þær.
Af nýjungum fyrir þessi jól má
nefna að útliti nær allra konfekt-
kassa hefur verið breytt, dökkt og
ljóst konfekt er nú boðið í sama
kassa í fyrsta sinn og nýtt ódýrara
kremfyllt konfekt kemur á markað
undir heitinu Gullmolar.
Framtíðin
Næstu skref við þróun gæðakerf-
isins eru að halda áfram á þeirri
braut sem mörkuð hefur verið. Ljóst
er þó að altækri gæðastjómun verð-
ur beitt í meira mæli en verið hefur
og sú aðferðafræði aðlöguð að nú-
verandi gæðakerfi fyrirtækisins.
Eins og gefur að skilja er svona
gæðavinnu aldrei lokið, en sú gullna
regla er í gildi innan fyrirtækisins
að sífelldar endurbætur í smáskref-
um skila meiri árangri en risastökk
með löngum hléum.
Höfundur er matvælafræðingur
og starfar sem gæðastjóri hjá Nóa
Síríusi.
Einar
Farestveit & Co.hf.
Borgartúni 28 S 622901 og 622900
Greiðsla til SVR
lækkar um 27,6%
FJÁRHAGSÁÆTLUN Strætisvagna Reykjavíkur (SVR) hefur verið
lögð fyrir borgarráð. Gert er ráð fyrir að tekjur SVR verði rúmar
672 milljónir. Þar af verði framlag borgarsjóðs um 256 mil(jónir eða
um 38%. Á síðasta ári var framlag borgarinnar um 48,5% af tekjum
SVR. Sveinn Andri Sveinsson stjórnarformaður SVR þakkar árangur-
inn aukinni hagræðingu og kerfisbreytingu á fargjöldum.
en var 50-60 krónur með gömlu
afsláttarmiðunum eftir því hvort
keypt væru stór eða lítil afsláttar-
kort. Ég býst við að þetta muni
breytast og meðalfargjaldið lækka
þegar fólk lærir í auknum mæli að
nota kortið," sagði Sveinn Andri.
f könnuninni kom í ljós að 43%
farþega SVR nota kortið og 52%
farþega hjá Almenningsvögnum.
Áður voru afsláttarmiðar um
50-60% af greiddum fargjöldum en
það voru bæði dýrari og ódýrari
miðarnir. Um 6.000-7.000 Græn
kort seljast á mánuði en meðalverð-
ið er 2.860.
Tilkynning um útboð markaðsverðbréfa
HLUTABRÉF
í Ámesi hf.
Heildarnafnverð nýs hlutafjár: Kr. 35.000.000,-.
Sölugengi: 1,85.
Sölutímabil: 8. desember 1992
Umsjón meö útboði: Landsbréf hf.
8. mars 1993.
Útboðslýsing vegna ofangreindra hiutabréfa liggur frammi
hjá Landsbréfum hf. og umboðsmönnum Landsbréfa hf.
í Landsbanka íslands um allt land.
B
ARNES HF.
LANDSBRÉF HF.
Landsbankinn stendur meö okkur
Sufturlandsbraut 24, 108 Reykjavik, sími 91-679200, tax 91-678598
Löggilt veröbréfafyrirtæki. Aðili aö Veröbréfaþingi íslands.