Morgunblaðið - 15.12.1992, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1992
Eigi skal höggva
eftir Steinar
Harðarson
íslensk þjóð er í kröggum. Afli
hefur minnkað, þjóðartekjur hafa
dregist saman, það ríkir atvinnu-
leysi og spara þarf á öllum sviðum
þjóðlífsins. Að mörgu er að hyggja
í viðamiklum rekstri ríkisins og
sums staðar hefur tekist að draga
úr kostnaði, auka hagræðingu og
ráðdeild. En það eru takmörk fyr-
ir öllu og ekki sama hvernig að
er farið. Þegar spara skal innan
heilbrigðiskerfisins þarf að gera
þær kröfur til þeirra sem stjórna
þjóðarbúinu að þeir horfí lengra
en rétt fram fyrir tær sér.
Það er samdóma álit flestra,
sem um landsmál fjalla, að flóttinn
frá landsbyggðinni til suðvestur-
hornsins sé þjóðarvandamál. Þetta
vandamál er að mörgu leyti sam-
anspyrt við skort á félagslegri
þjónustu og menntunarmöguleik-
um. Það er ekkert vafamál að
betri félagsleg þjónusta, betri
menntunarmöguleikar og fleiri
tækifæri til að njóta menningar
eru þau atriði sem einna þyngst
vega ef draga á úr fólksflótta úr
sveitunum og snúa við þeirri öfug-
þróun að allir flykkist á suðvestur-
hornið. Það virðist einnig ríkur
skilningur á því meðal ráðamanna
þjóðarinnar að nauðsynlegt sé að
auka fjölbreytni í atvinnulífí á
landsbyggðinni. í því skyni hafa
ríkisstofnanir verið fluttar frá
Reykjavík og það er yfirlýst stefna
að halda því starfí áfram. Það eru
sennilega allir sem til þekkja sam-
mála um það að stofnun háskólans
á Akureyri hafi styrkt byggðina á
Norðurlandi og dregið úr flóttan-
I um suður. Það gildir auðvitað
sama lögmál um félagslega þjón-
ustu svo sem sjúkraþjónustu, öldr-
| unarþjónustu og endurhæfíngu.1
Þeir sem þurfa að nýta sér þjón-
ustu sjúkrahúsa, ungir sem aldnir,
j - krefjast þeirra sjálfsögðu réttinda
að geta notið þeirrar þjónustu í
sinni heimabyggð. Þann rétt hefur
þjóðin fyrir löngu viðurkennt og
það eru áragtugir síðan byggð
voru sjúkrahús í öllum landsfjórð-
ungum. Að sönnu var mjög sér-
hæfð þjónusta lengi vel aðeins í
boði í Reykjavík og það sættu
menn sig við vegna eðlis hennar.
Á síðustu árum hefur þó ýmis
þjónusta sem áður fékkst aðeins
í Reykjavík verið byggð upp á
landsbyggðinni. Þar má m.a. nefna
öldrunar- og endurhæfíngarþjón-
ustu sem byggst hefur upp á Krist-
nesspítala í Eyjafírði. Þeir sem
þurfa endurhæfíngar við, ungir
jafnt sem aldnir, þurfa ekki lengur
að hrekjast frá ættingjum og vin-
um, þeir þurfa ekki að dveljast
langdvölum fjarri heimahögum en
geta tekist á við vandamálin í sínu
rétta umhverfi. Eldri sjúklingar
sem þurfa mikla hjúkrun eru ekki
neyddir til að flytjast búferlum í
aðra landsfjórðunga. Þeir njóta
umönnunar nálægt sinni heima-
byggð og hafa auðveldlega sam-
band við ættingja og vini.
Þegar þær fréttir bárust til
Norðurlands að til stæði að skera
mjör fjárframlög eða jafnvel
leggja niður starfsemi Kristnessp-
ítala setti margan hljóðan. í for-
undran spurðu menn hvort sjón-
deildarhringur ráðamanna í höfuð-
borginni næði ekki lengra en upp
að Keldnaholti? Var þetta aðferðin
til að styrkja búsetu og atvinnulíf
á landsbyggðinni eða jafna að-
stöðu þegnanna? Hvaða fagleg rök
voru fyrir því að hætta rekstri
Kristnesspítala? Jú, „hann var of
dýr“! Dýr fyrir hveija og miðað
við hvað? Rekstrarkostnaður spít-
alans er sagður hærri en annarra
sambærrilegra. Því skal rekstrin-
um hætt. Ber að skilja það svo
að ætíð skuli leggja niður þann
spítala sem dýrastur er í rekstri
án tillits til eðlis starfseminnar eða
þýðingar hans fyrif heilbrigðis-
málin í byggðarlaginu? Hvaða
Steinar Harðarsson
„Kristnesspítali er
hvorki blikksmiðja né
fiskvinnsluhús þar sem
hægt er að meta starf-
semina eingöngu í pen-
ingum eða arðsemi.
Spítalinn er þýðingar-
mikill hluti af heilbrigð-
is- og velferðarkerfinu
á Norðurlandi.“
spítala skal þá leggja niður næst,
ef meira skal spara, Sjúkrahúsið
í Vestmannaeyjum eða Borgar-
spítalann? Eða kannski Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri. Trúa
menn því virkilega að allir spítalar
geti verið jafn dýrir eða ódýrir í
rekstri? Halda menn í alvöru að
sjúkrahús og endurhæfíngarstofn-
anir verði allar reknar og mældar
með reglustikum? Vilja menn líta
framhjá því hvað það kostar auka-
lega að leita til lækninga í aðra
landsfjórðunga og hvaða álag það
er á sjúklinga að dveljast langdvöl-
um íjarri heimahögum, ættingjum
og vinum. Eða er allt í lagi að
spara kostnað ríkisins en auka
kostnað einstaklinga og fjöl-
skyldna?
Kristnesspítali er í uppbygg-
ingu. Það er ekki óeðlilegt að slík
stofnun sé dýrari í rekstri á upp-
byggingarskeiði en sambærilega
stofnun á höfuðborgarsvæðinu.
Ef borin er saman þjónusta við
aldraða eftir landshlutum kemur
í ljós að fjöldi rúma á hveija 100
íbúa, 70 ára og eldri, er að meðal-
tali 10,4 á landinu öllu. Á Norður-
landi-eystra er fjöldinn í dag, 9,8
rúm. Það er því ekki þannig að
Norðlendingar búi við einhver for-
réttindi hvað þetta varðar. Ef
rekstri Kristnesspítala verður hætt
lækkar sú tala í 8,6, mun lægri en
í öðrum landshlutum, að frátaldri
Reykjavík, sem yrði lægst með 8,1
rúm. Margir, sem til þekkja í
Reykjavík, fullyrða að þar ríkir
neyðarástand í hjúkrunarmálum
aldraðra. Vegna takmarkaðra
starfsmannaheimilda er húsrými á
Kristnesspítala aðeins nýtt að 2/3
hlutum. Það skýrir vafalaust að
hluta til háan rekstrarkostnað. Ef
framlög til spítalans verða skorin
niður um 40-50 milljónir króna,
en spítalanum ekki lokað strax,
verður sennilega að loka endur-
hæfíngardeildinni og nýting verð-
ur þá aðeins 73 af rými. Það er
næsta auðvelt að draga þá álykt-
un, að við það hækki kostnaður
við hvert rúm stórkostlega og stutt
í að lokun Kristnesspítala verði
óumflýjanleg.
Það verður að gera þá kröfu til
þeirra sem bera ábyrgð á vel-
ferðarmálum þjóðarinnar að þeir
horfí á vandamálin í sínu rétta
samhengi. Kristnesspítali er
hvorki blikksmiðja né fískvinnslu-
hús þar sem hægt er að meta
starfsemina eingöngu í peningum
eða arðsemi. Spítalinn er þýðing-
armikill hluti af heilbrigðis- og
velferðarkerfínu á Nörðurlandi og
þörfín á öldrunarþjónustu og end-
urhæfíngu er vaxandi. Það verður
einnig að taka fullt tillit til mann-
legra sjónarmiða og virða þær
óskir Norðlendinga að geta notið
þessarar sjálfsögðu þjónustu nærri
heimabyggð.
Það hefur áður verið reitt hátt
til höggs í íslandssögunni. Stund-
um hafa slík högg fallið að sá sem
hjó hafí ekki þótt mikill maður af.
Allir ærlegir menn vona að svo
fari ekki í þetta sinn. Norðlending-
ar biðja sér og Kristnesspítala
griða.
Höfundur er sveitarsljóri
Öxarfjarðarhrepps.
skólar/námskeið
dans
ýmislegt
■ Danssýningar. Bjóðum upp á dans-
sýningar við ýmis tækifæri. Suður-amer-
ískir dansar og sígildir samkvæmisdansar
(ballroom dansar). Danspör á öllum aldri.
Dansskóli Jóns Péturs og Köru.
Uppl. í símum 36645 og 685045.
■ Dansskóli Jóns Péturs og Köru.
Mikið úrval af dansskóm fyrir dömur,
herra og börn og ýmsir fylgihlutir: Net-
sokkabuxur, semalíusteinar, kjólfata-
skyrtur og allt tilheyrandi. Dansbúningar
til leigu. Sendum um allt land.
Si'mar 36645 og 685045.
NÁMSAÐSTOÐ
■ IMámsaðstoð við grunn-, framhalds-
og háskólanema. Flestar námsgreinar.
Einkatímar - hópar.
Reyndir réttindakennarar.
Innritun í sfma 79233 kl. 14.30-18.30.
V> Nanendaþjónustan sf.
W*AW>AUGL YSINGAR
Leigubílaakstur
Tilboð óskast í leigubílaakstur á höfuðborgar-
svæðinu fyrir Stjórnarráð íslands, stofnanir
þess og fyrirtæki.
I Tilboðseyðublöð eru afhent á skrifstofu vorri,
Borgartúni 7, Reykjavík.
Tilboð verða opnuð á sama stað kl. 11.00 f.h.
' 6. janúar 1993 í viðurvist viðstaddra bjóðenda.
INIMKAUPASTOFIMUIM RÍKISIIMS
________BORGARTUNI 7. 105 REYKJAVÍK_
UTBOÐ
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h.
byggingadeildar borgarverkfræðings, óskar
eftir tilboðum í málum á leiguíbúðum Reykja-
víkurborgar.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri,
Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 5.000,-
skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað miðviku-
daginn 6. janúar 1993, kl. 11,00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirk|iivetji 3 Simi2S800
Læknar - læknar
Læknafélag Reykjavíkur boðar til fundar
þeirra félagsmanna, sem starfa skv. samn-
ingi LR og TR um sérfræðilæknishjálp.
Fundarefni:
Frumvarp til laga um tilvísanaskyldu.
Sparnaðarleiðir í heilbrigðiskerfinu.
Fundurinn verður haldinn í Domus Medica í
dag, 15. desember, og hefst hann kl. 20.00.
Áríðandi að allir mæti.
Stjórn og samninganefnd.
Matreiðslu-
menn
Almennur félagsfundur um efnahagsaðgerð-
.ir ríkisstjórnarinnar og fræðslumál verður
haldinn í Þarabakka 3, miðvikudaginn
16. desember kl. 20.30.
Félagar fjölmennið.
Hundaræktarfélag
íslands
heldur félagsfund á Hótel Lind
miðvikudaginn 16. desember
kl. 20.00.
Fundarefni: Eggert Gunnarsson,
dýralæknir, talar um smáveiru-
sótt (parvóveiru) í hundum og
bólusetningu gegn hundasjúk-
dómum.
Kaffihlé. Önnur mál.
Allt hundaáhugafólk er velkomið
á fundinn.
AD KFUK
Holtavegi
Munið jólafundinn í safnaöar-
heimili Askirkju í kvöld kl. 20.30.
Vönduð og skemmtileg dagskrá.
Jólahelgistund i kirkjunni í umsjá
sr. Árna Bergs Sigurbjömssonar.
□ Hamar 5992121519 I Jf.
□ EDDA 5992121519 I Jólaf.
I.O.O.F. Rb. 4 = 14212158 - Jv.
I.O.O.F. Ob. 1 = 17412158'/z=JV
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Samvera fyrir eldri safnaðar-
meðlimi kl. 15.00.
Stjórnin.