Morgunblaðið - 15.12.1992, Síða 54

Morgunblaðið - 15.12.1992, Síða 54
54 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1992 ( \ \ WWF I 03.12. 1992 q! • - 't. «ö o ivwf I 03.12. 1992 <j.' ^ Tvenns konar útgáfudagsstimplar 3. des. 1992. Samstarf póststjómarinn- ar og WWF-stofnunarinnar Frímerki Jón Aðalsteinn Jónsson í þætti 26. nóv. sl. var sagt frá fjórum fálkafrímerkjum, sem voru væntanleg á markað 3. des. Útgáfan er í sjálfu sér góðra gjalda verð, en þarfnast samt nokkurrar skýringar til frí- merkjasafnara og póstnotenda. Ég gat þess, að sérstakur póstst- impill yrði notaður og einhveijum gæti þótt það undarlegt, að í þeim stimpli væri mynd af bjam- dýrsunga. Ég biðst afsökunar á fáfræði minni í dýrafræði, því að þetta er í reynd mynd af pöndu, sem vissulega er sömu ættar. Hún mun aðeins þekkt villt í Tíbet og Kína, en er svo í nokkrum dýragörðum. Pandan mun vera í mikilli hættu eða hafa verið það til skamms tíma. Þess vegna hefur stofnunin World Wide Fund for Nature tek- ið pönduna upp í merki sitt, en hún beitir sér fyrir vemdun villtra dýra, sem era í útrým- ingarhættu. í sambandi við þessa útgáfu vaknar upp ein spuming a.m.k. í tilkynningu póststjómarinnar er tekið fram, að útgáfa þessara fálkafrímerkja, sem vissulega bera merki WWF-stofnunarinn- ar, sé „liður í samstarfi við“ téða stofnun. Nú er spumingin þessi. Hvemig er þessu samstarfi hátt- að? Þv£ aðeins er spurt, að sama dag og margnefnd frímerki komu út, 3. des., birtist hér í Mbl. grein eftir dr. Sturlu Friðriksson, sem er fulltrúi WWF-stofnunarinnar hér á landi. Þar segir hann frá þessum samtökum og talar um sjóð en ekki stofnun, eins og í tilkynningu póststjómarinnar segir. Rekur Sturla markmið sjóðsins eða samtakanna og seg- ir m.a. orðrétt — að lokum tóku samtökin að sinna náttúravemd almennt, þar sem sýnilegt var að vemdun umhverfís hefði veig- amikla þýðingu fyrir velferð alls mannkyns". Enn fremur segir hann: — Samtökin stuðla nú að vemdun ýmissa sjaldgæfra líf- vera og búsvæða þeirra eða sér- stæðra náttúraundra og reyna að afla þekkingar á og stuðla að vemdun þýðingarmikilla þátta í lífheimi jarðar.“ Þá tekur hann fram, að samtök þessi njóti ekki ríkisstyrkja, en treysti eingöngu á frjáls firamlög einstaklinga og félaga um heim allan. Margur virðist styrkja sjóðinn vel, því að hann hefíir þegar að sögn Sturlu varið yfír sex milljörðum ísl. króna til náttúravemdar. Síðan rekur Sturla ýmsar þær leiðir, sem famar era til þess að efla sjóðinn. M.a. nefnir hann, að rík- isstofnanir geti óbeint styrkt þessi samtök með myntsláttu og útgáfu frímerkja, sem höfði til náttúravemda og þau sfðan seld á fijálsum markaði. Orðrétt seg- ir hann síðan: — Söfnuram út um allan heim þykja slíkir gripir sérlega eftirsóknarverðir og verðmætir. Eykur þessi sam- vinna sölu umræddrar vöra sem gefur framleiðanda góðan hagn- að, en WWF fær sína þóknun fyrir framlagið á nafninu og merkinu.“ Grein sína endar full- trúi WWF á íslandi á þessum orðum: Er þvl þakkarvert að Póstur og sími hér á landi gefur út þessi sérstæðu og eftirsóknar- verðu frímerki til ágóða fyrir gott málefni, vemdun umhverfís til heilla öllu jarðlífi og þar með mannkyninu.“ Ég skal verða manna síðastur til þess að mæla gegn þessu göf- uga verkefni. En samt vakna upp ýmsar spumingar, sem ég vil fyrir hönd frímerkjasafnara og notenda póstsins beina til for- ráðamanna Pósts og síma. í ofan- nefndri grein kemur skýrt fram, að tilgangur þessarar síðustu og sérstæðu útgáfu er auðvitað sá fyrst og fremst að seilast ofan í vasa frímerkjasafnara, sem ætla má að verði óðfúsir í að verða sér úti um hana af ýmsum ástæð- um. En svo er aðalatriðið og það lang alvarlegasta í málinu. Af ummælum Sturlu má helzt ráða, að WWF hafí selt Póst- og síma- málastofnuninni nafn sitt og merki á frímerkin fyrir ákveðna fjárhæð. Hins vegar kemur hún ekki fram á sjálfum frímerkjun- um, svo sem sem ævinlega hefur verið venja hér á landi, þegar póststjómin hefur viljað styrkja göfug málefni. Má hér nefna Hjálparfrímerk- in frá 1933, Líknarfrímerkin frá 1949, Hollandshjálp 1953, Skál- holtsfrímerkin 1956, Rjúpuna 1965 og Kríufrímerkin 1972. í sambandi við allar þessar útgáfur kemur fram, hver hlutur póstsins er, og hann átti auðvitað að nota sem burðargjald. Yfírverðið rann síðan til annars verkefnis, sem var burðargjaldinu óviðkomandi. Þannig sáu notendur (og safnar- ar) hversu mikið fé rann frá þeim til styrktar því málefni, sem fram kemur á frímerkinu (eða blokk- inni). Hér virðist póststjórnin hafa farið inn á nýja braut, sem vissu- lega má deila um. Ég hef nú fengið skýringu á því, í hveiju þessi stuðningur við WWF er fólgin. Þessi sjóður kaupir ein- hvem hluta af upplagi frímerkj- anna og fær um leið afslátt af kaupunum. Þessi frímerki selur WWF síðan með einhveijum hætti á fijálsum markaði. Þannig rennur þá a.m.k. afsláttur póst- stjómarinnar inn í sjóðinn. All- margar póststjómir munu hafa bragðizt við málaleitan WWF með sama hætti. Þannig fóra Færeyingar að 1990, þegar þeir gáfu út fjögur hvalafrímerki. Þau bera merki WWF. Ekki hef ég á móti því, að þessu ágætu samtök fái einhvem styrk frá póststjóm okkar. Hins vegar hefði verið skemmtilegra, að það hefði orðið með ákveðnu yfirverði á hveiju verðgildi, svo sem venja hefur verið, en ekki með einhverri ótilgreindri upp- hæð beint úr sjóðum póststjórn- arinnar. Það skal hins vegar ját- að, að þess konar styrktaraðferð hefur aldrei gefizt vel hér á landi. Að lokum er rétt, að það komi hér fram, að sams konar styrkt- araðferð mun einnig hafa átt sér stað, þegar póststjómin gaf út frímerki í baráttu gegn hungurs- neyð 1963 £ samvinnu við FAO og notað þá merki þeirra sam- taka Sérstimpillinn 3. des. si. Loks er ein spuming £ sam- bandi við þessa útgáfu. Sérstakur útgáfudagsstimpill var að venju notaður, og var fangamark WWF ásamt pöndunni í miðju hans. En hvemig stendur á því, að — prentstimpill“ sá, sem notaður var af Frímerkjasölunni við stimplunina, er 5 mm minni en sá, sem notaður var við venjulega handstimplun á sjálfan útgáfu- daginn? Um leið er allt letur minna á fyrri stimplinum. Gera verður ráð fyrir, að hér hafí orð- ið „slys“ við gerð stimpilsins, en ekki minnkar nú árátta safnar- anna við það, a.m.k. þeirra, sem safna stimplum sérstaklega. Mér er tjáð, að þetta hafí einu sinni áður komið fyrir. Að sjálfsögðu eiga slík mistök sem þessi ekki að geta átt sér stað. Vonandi verður betur fylgzt með næstu gerð útgáfudagsstimpla EIKTÖLVUR CrazyBoy ferðaleiktölvur med LCD skjá Heyrnartæki og rafhlöður fylgja. Nintendo GameBoy samhæfðar. CrazyBoy med 4 leikjum verö aöeins kr. 9.995,- CrazyBoy með 16 leikjum verö aöeins kr. 12.500,- Meiríháttar leikjjaúrval á frábœru verði!!; CrazyBoy leiktölvur fyrir sjonvarp Nintendo samhæföar. stýripinni og tengingar viö sjónvarp fylgja. Stereó útgangur. A/v útgangur. CrazyBoy m/22 leikjum verö aöeins kr. 9.950,- CrazyBoy m/42 leikjum verö aöeins kr. 10.900,-'' crazyBoy m/82 leikjum : verö aöeins kr, 13.500,- H F ÁRMÚLA 11 - SÍMI 6S1SOO Hrossarækt 1 Danmörku Jafnvægislist að rækta gott tölt Gunnar og Marit Jónsson frumkvöðlarnir í íslandshestamennskunni sótt heim _________Hestar_____________ Valdimar Kristinsson EKKI er hægt að fjalla um rækt- un íslenskra hesta 1 Danmörku eða hestamennskuna þar án þess að upp komi nöfn Maritar og Gunnars Jónssonar. Þau voru frumkvöðlar í Islandshesta- mennskunni og segja má að þau hafi verið vakin og sofin yfir öllu þvi er viðkemur íslenska hestinum i Danmörku. Þau stóðu að stofnun Dansk Islandsheste- foreningen, útgáfu tímaritins Tölts og hafa séð um útgáfu þess að stórum hluta alla tið. Þá hafa þau verið virk í starfsemi FEIF (Evrópusambands eigenda ís- lenskra hesta). Gunnar sat þar lengi í stjórn og Marit er núver- andi formaður samtakanna. Var því vel við hæfí að heim- sækja þau þar sem þau búa í Sten- holt i útjaðri Hilleröd á Norður Sjá- landi. Byijað var á að ganga um hagana með Gunnari þar sem 19 hross vora á beit á 6,2 hektöram lands. Þetta land dugar hrossunum til beitar allt árið meðan beitar nýtur við en auk þess heyja þau hluta þessa lands og era sjálfum sér nóg um hey. Sjálf eiga þau 12 hross en 7 era í eigu annarra. Gunn- ar og Marit hafa alla tíð fengist við ræktun í smáum stíl á íslenska vísu. Þau segja að allt hafí þetta byijað á íslandi 1960 en þá höfðu þau heyrt um eiginleika íslenska hestins og löngun vaknað til að eignast einn slíkan. Þess má reynd- ar geta að Gunnar er hálfur íslend- ingur og íslenskur ríkisborgari en hann er fæddur á íslandi og var hér til fjögurra ára aldurs. Marit er aftur norsk og norskur ríkisborg- ari. Gunnar Bjarnason fyrrverandi hrossaræktarráðunautur sem er náfrændi Gunnars fór með þau 'til Páls Sigurðssonar sem þá bjó í Varmahlíð en var gjaman kenndur við Fornahvamm og síðar Krög- gólfsstaði í Ölfusi. Páll var ekki heima og því var áætluninni breytt og Sigurður Óskarsson i Krossanesi heimsóttur þess í stað. „Sigurður byrjaði á að bjóða okkur í stuttan útreiðartúr til að kanna getuna en daginn eftir kom hann með tvö hross handa okkur og fórum við með honum í þriggja tíma túr um Skagafjörðinn í fallegu veðri. Kom- um við meðal annars við á Vind- heimamelum sem síðar varð svo einn aðal mótsstaður íslands. Eftir þennan . eftirminnilega reiðtúr ákváðum við að kaupa tvo íslenska hesta sem fluttir vora til Hamborg- ar og þaðan með lest til Danmerkur en þeir komu ekki til okkar fyrr en 1961 og þar með voram við byijuð í hestamennskunni og höfum síðan lifað og hrærst i þessu,“ segir Ma- rit þegar hún lýsir upphafinu að hestamennsku þeirra. Brúðargjöfin snjöll hugmynd A þessum tima var lítið um ís- lenska hesta í Danmörku og að sjálfsögðu enginn skipulagður fé- lagsskapur sem vann að málefnum eða útbreiðslu hans. Árið 1966 snúa þau Marit og Gunnar sér að ræktun en fram til þess tíma höfðu þau aðeins stundað útreiðar á þeim hest- um sem þau höfðu keypt. Þegar hér var komið sögu fór þeim fjölg- andi sem fengu sér íslenska hesta. „Það má segja að boltinn hafí farið að rúlla fyrir alvöra þegar Gunnar Bjamason fékk þá frábæra hug- mynd að íslenska rikið gæfí Mar- gréti drottningu tvær hryssur í brúðkaupsgjöf. Hryssunum var komið fyrir hjá okkur og var hér stöðugur straumur blaðamanna og ljósmyndara til að mynda og for- vitnast um hryssumar. Þetta var stórsniðug hugmynd hjá Gunnari og einhver besta auglýsing sem hægt var að fá fyrir íslenska hest- inn á þessum tíma,“ segir Gunnar hlæjandi og hann bætir við: „Að sjálfsögðu vogaði enginn sér að gagnrýna eða hallmæla nýju hest- um drottningarinnar." „Það var svo árið eftir sem við stofnuðum Dansk Islandshestefor- ening hér í Stenholt 35 eigendur íslenskra hesta þannig að félagið verður 25 ára á næsta ári,“ segir Marit og hún heldur áfram „Gunnar var kosinn fyrsti formaður félagsins en ég tók að mér að sjá um ræktun- arstarfið. Árið eftir hófum við út- gáfu á tímaritinu Tölti, fyrst gáfum við út sex blöð á ári en nú koma þau tíu út árlega. Við eram bæði hætt í stjórn DI en höfum hinsveg- ar séð um blaðaútgáfuna allt fram á þennan dag,“ segir Marit. Tvær ræktunarstefnur í Stenholt Ekki hefur lengi verið rætt um ræktunarmálin þegar í ljós kemur að tvær ræktunarstefnur eru í gangi í Stenholt. Marit segist vilja rækta falleg og traust hross með eðlisgott tölt ekki endilega hreyf- ingamikil en þægilegan vilja, með öðram orðum hross sem fjöldinn leitar að, góðum útreiðarhrossum. Gunnar vill hinsvegar hafa hrossin örviljug en þó viðráðanleg og að- gerðamikil á gangi með mikilli hreyfíngu, alvöra hross eins og þau era stundum kölluð hér á íslandi. „Ég hef kennt ræktun íslenskra hrossa hér i Danmörku um árabil,“ segir Marit þegar hún vill rökstyðja sína stefnu „og þegar ég bið fólk að lýsa því hvernig hross það vill eignast segjast 80% þeirra vilja hross svipað því sem ég óska mér og kýs að rækta, 10-15% kjósa sér viljug keppnishross og 5-10% vilja aðrar hestgerðir s.s. kappreiðave- kringa, þolreiðarhross eða hross AXFORLAG Vottar Jehóva segja að Jesús hafi ekki risið upp - heldur gufað upp. FRELSA OSS FRÁ ILLU k A

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.