Morgunblaðið - 15.12.1992, Side 70

Morgunblaðið - 15.12.1992, Side 70
70 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 1992 Tónleikar í Selfoss- kirkju ^ Selfossi. ÁRLEGIR aðventutónleikar voru haldnir í Selfosskirkju að við- stöddu fjölmenni. Á fýrri hluta tónleikanna komu fram grunnskólabörn í tveimur bjöllukórum og barnakór söng und- ir stjórn Jónínu Guðmundsdóttur. Kór eldri borgara söng undir stjóm Sigurveigar Hjaltested. Þá söng Kór Fjölbrautaskóla Suðurlands undir stjórn Jóns Inga Sigurmunds- sonar. - Sig. Jóns. -..♦ ■ 4------ Sauðárkrókur; Kveikt á jólatré frá Kongsberg Sauðárkróki. ÁTTUNDA árið í röð hefur Sauð- árkróksbæ borist vegleg gjöf, fag- urt jólatré, frá Kongsberg, vinabæ sínum í Noregi. Tréð var reist á Kirkjutorgi og um síðustu helgi voru yósin tendruð með viðhöfn. Athöfnin hófst með því að bama- kór söng jólalög og Blásarasveit tón- listarskólans lék. Félagar úr skátafé- laginu Eilífsbúum stóðu heiðursvörð með norska og íslenska fána. Knútur Aadnegard forseti bæjar- stjómar ávarpaði viðstadda bæj- arbúa, sem vom íjölmargir þrátt fyr- ir heldur kalsalegt veður. Knútur þakkaði þann hlýhug sem bæjaryfir- völd í Kongsberg sýndu nú enn einu sinni með þessari glæsilegu gjöf. Að loknu ávarpi Knúts vom ljósin tendmð og skömmu síðar birtust jólasveinar, sem að vísu vom heldur fyrr á ferð en vanalega, en komnir engu að síður og sungu þeir fyrir yngstu gestina og gáfu ávexti. Margir fylgdust með þegar ljósin á jólatrénu frá Oslóborg voru kveikt. Fólk lét veðrið ekki aftra sér frá að taka þátt í hátíðarhöldum á Austurvelli. Um sjö þúsund á Austurvelli KVEIKT var a jolatrenu við Austurvöll á sunnudag. Um 7.000 manns voru við athöfnina þegar jólatréð, sem er gjöf frá Oslóar- borg, var afhent. Ingunn Hagen, eiginkona Öy- vind Stokke, sendiráðsritara norska sendiráðsins, afhenti jóla- tréð, sem er gjöf frá Oslóarborg. Markús Örn Antonsson, borgar- stjóri, veitti trénu viðtöku fyrir hönd borgarbúa. Við athöfnina vora jólasveinamir mættir til að skemmta yngri kynslóðinni. Auk þess spilaði Lúðrasveit Reykjavíkur og Dómkórinn söng. Þrátt fyrir kulda og Ieiðindaveð- ur lét yngsta kynslóðin sig ekki vanta á Austurvöll þegar ljósin á jólatrénu vom kveikt og fylgdist af áhuga með athöfninni og jóla- sveinunum á þaki Kökuhússins. Jólasveinamir vora að sjálfsögðu mættir líka og skemmtu börnunum. Selfoss Kveikt á jólatré úr Ingólfsfjalli Morgunblaðið/Frimann Ólafsson Börain þyrptust að Stúfi og Stekkjastaur þegar þeir komu færandi hendi í Grindavíkurkirkju. Jólatré frá Hirtshals gleður Grindvíkinga Grindavík. KVEIKT var á perum jólatrésins í Grindavík síðastliðinn sunnudag. Tréð stendur að vanda við Ránar- götu. Það er gjöf frá Hirtshals, vinabæ Grindavíkur í Danmörku. Fyrirhugað var að hafa athöfn við tréð sjálft á sunnudaginn en vegna hvassviðris var horfið frá því og at- höfnin flutt í Grindavíkurkirkju. Blásarasveit tónlistarskólans lék fyr- ir gesti sem fylltu kirkjuna og bama- kór söng. Sr. Jóna Kristín Þorvalds- dóttir flutti því næst hugvekju tengda jólum. Þegar bamakórinn söng varð vart við mikla ókyrrð í kirkjunni því gest- ir af yngri kynslóðinni urðu varir við kynlega sveina í rauðum fötum sem vom að sniglast fyrir utan kirkj- una. Þar vom þeir komnir sveinarn- ir Stekkjastaur, Giljagaur og Stúfur með poka á baki. Þeir steðjuðu inn í kirkjuna við mikla hrifningu og elti halarófa þá út þar sem þeir dreifðu karamellum til þeirra sem vildu og sagði enginn nei. - FÓ Selfossi. KVEIKT var á jólatrénu í mið- bænum á Selfossi síðastliðinn laugardag. Þann dag komu jóla- sveinarnir í bæinn og tóku þátt í athöfninni ásamt barnakór Sel- fosskirkju. Er þetta árlegur við- burður i bæjarlífinu og að vanda fylgdist fjöldi bæjarbúa með. Sigríður Jensdóttir forseti bæjar- stjórnar flutti ávarp og gat þess meðal annars að jólatréð í ár væri fengið úr skógræktinni á Snæfoks- stöðum. Tréð er vel á níunda metra og var gróðursett árið 1960 af ungl- ingum frá Selfossi. Þrátt fyrir frekar slæmt veður var fjölmennt við þessa árlegu at- höfn og börnin kunnu vel að meta galsafengna jólasveina sem tóku þau tali. - Sig. Jóns. Morgunblaðiö/Frfmann Ólafsson Vitringarnir og hirðamir mynda hring um Maríu og Jósef í helgi- leik sem var fluttur í sunnudagaskólanum í Grindavík. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Börnin kunnu vel að meta heimsókn jólasveinanna. Helgileikur í sunnu- dagaskóla Grindavíkur Grindavík. STARFI sunnudagaskólans í Grindavík á þessu ári lauk á þriðja sunnudegi í aðventu með því að færður var upp helgileikur sem túlkaði fæðingu frelsarans. Sunnudagaskólinn hefur starfað með miklum blóma í haust og það sem af er vetri. Þátttakendur í helgi- leiknum vom fjölmárgir og reyndar tóku allir sem mættu í kirkjuna þátt með því að mynda röð fram kirkju- gólfið þar sem vitringarnir, María og Jósef og hirðarnir gengu um í helgileiknum. Sungnir vom söngv- amir Bjart er yfir Betlehem og I Betlehem er barn oss fætt. Að leikn- um loknum var lesin saga um fjöl- skyldu sem gleymdi því að jól em haldin til að minnast komu frelsar- ans í heiminn en ekki til að dansa í kringum gullkálfinn, og var nú eins og endranær þörf ábending.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.