Morgunblaðið - 13.02.1993, Síða 32

Morgunblaðið - 13.02.1993, Síða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 1993 Minning Jón Jónsson frá Vestri-Loftsstöðum Fæddur 10. ágúst 1908 Dáinn 1. febrúar 1993 Jón Jónsson frá Loftsstöðum lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Kumbaravogi 1. febrúar síðastlið- inn. Engum er það gefið, sem mætir á fömum vegi öldungi sem farinn er að grána í vöngum með staf í hendi og hraðar ekki för sinni vegna sjóndepru, að sjá hver hann er eða hver hann var í raun og veru. Það á því oft við það sem Hallgrímur Pétursson sagði. Ókenndan mann þó aumur sé, aldrei tii legðu háð né spé, þú veist ei hvem þú hittir þar, heldur en þessir gyðingar. Loftsstaðir voru frá upphafí ís- landsbyggðar stór staður vegna landkosta og aðstöðu til sjósóknar. Þá kom það einnig til að staðinn sátu löngum stórbrotnir menn og höfðingjar. Foreldrar Jóns voru heiðurshjónin Jón Jónsson Jónsson- ar hreppstjóra og Ragnhildur Gísla- dóttir frá Rauðabergi í Fljótshverfí. Systkini Jóns sem upp komust voru Jón eldri (Nonni), Kristín, Sigríður, Anna og Gísli. Foreldramir vom miklar merkismanneskjur. Faðir Jóns stundaði bókhaldsstörf á yngri áram hjá Eyrarbakkaverslun og þótti þar liðtækur. í þá daga vora skrifstofumenn ekki vopnaðir tölv- um og reiknivélum. Þá var það höndin og höfuðið, og hvorugt brást hjá Loftstaðabóndanum. Rithöndin var hrein og stílfögur og mátti lesa sem prent væri. Og lengi var það í minnum haft hvað Ragnhildur var glæsileg þegar hún gekk skartklædd upp að altar- inu í Gaulveijabæjarkirkju, þegar hún bar Gisla, yngsta bamið sitt, til skímar. Ragnhildur var líka meira en venjuleg húsmóðir. Henn- ar áhugamál spönnuðu yfír miklu víðtækara svið, meðal annars fékkst hún við lækningar, safnaði grösum og sauð líf. Þegar Loftsstaðasystk- inin uxu úr grasi urðu þau bráð- þroska og framúrskarandi tápmikið fólk, og meðan hópurinn stóð allur saman að búskapnum skaraði bú- skapurinn langt fram úr því sem almennt gerðist. Og einnig var t Okkar hjartkæra mófiir, AMALÍA ÞORLEIFSDÓTTIR, áðurtil heimilis á Mánagötu 21, er látin. Ingveldur Guðmundsdóttir, Elm G. Staneck. t Eiginkona mín, ÓLAFÍA ÓLAFSDÓTTIR, Grenigrund 33, Akranesi, lést í Sjúkrahúsi Akraness þann 11. febrúar. Fyrir hönd sona, móður, systkina og annarra vandamanna, Karvei L. Karvelsson. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, AXEL A. ÓLAFSSON frá Bakkakoti, Staf holtstu ng u m, lést á heimili sínu, Borgarbraut 30, miðvikudaginn 10. febrúar. Fyrir hönd aðstandenda, Kristin Kristjánsdóttir. t Maðurinn minn, faðir okkar, sonur og bróðir, JÓN AGNAR EGGERTSSON formaður Verkalýðsfélags Borgarness, er látinn. Ragnheiður S. Jóhannsdóttir, Eggert Sólberg Jónsson, Magnús Elvar Jónsson, Aðalheiður L. Jónsdóttir og systkini hins látna. t Elskuleg eiginkona mfn, móðir, tengamóðir, amma og langamma, ÞORBJÖRG BJÖRNSDÓTTIR, Bollakoti, Fljótshlíð, andaðist f Sjúkrahúsi Selfoss fimmtudaginn 11. febrúar. Ragnar Jónsson, Vilmunda Guðbjartsdóttir, Árni Ólafsson, Ólafur Þorri Gunnarsson, Sigrún Þórarinsdóttir, Ragnar Björn Egilsson og barnabörn. stundað þar nokkurt útræði, og eins og áður er að vikið, vora Loftsstað- ir umtalsverður útgerðarstaður, en mun eins og annarstaðar við suður- ströndina hafa náð hámarki um eða fyrir síðustu aldamót, en þá urðu róðraskip flest í Loftsstaðasandi 24, þijú á Baugsstöðum og 59 á Stokkseyri. Gæti það vel hafa átt við að kveða þar fagra sjómanna- söngva í líkingu við hugljúfa ljóðið: Heyrið morgunsöng á sænum sjáið bruna fley, undan hæpm byijar blænum burt frá strönd og ey. Sólin skreytir skiparaðir skín hver þanin voð, söngljóð kveða sjómenn glaðir, snjallt á hverri gnoð. Systkinahópurinn frá Loftsstöð- um var vel hlutgengur í menningar- starfí sveitarinnar. Jón eldri (Nonni) var organisti í Gaulveijabæjarkirkju í áratugi. Gísli sá um músík á skemmtistöðum á samkomum um árabil. Ungur hneigist Jón til smíða og undi sér vel í smiðjunni á Lofts- staðahlaði og varð svo úr að hann réðst til járnsmíðanáms hjá sveit- unga sínum, valmenninu Markúsi ívarssyni forstjora Héðins í Reykja- vík, og minntist hann Markúsar oft sem velgerðarmanns síns og ann- arra. Loftsstaðaheimilið var í farar- broddi með vélvæðingu við búskap- inn, meðal annars var það heimili á undan öðram að eignast bifreiðar og kom það mest í hlut Jóns að fara með bílana aog tækin. Svo gerðist það að í kaupavinnu réðst að Loftsstöðum ein af dætrum byggðarlagsins, Sesselja Hróbjarts- dóttir, lífsglöð og talið var af kunn- ugum að tápinu hefði ekki veirð tyllt í hana. Þama fann hún vett- vang sem hún kunni að meta og upp frá því skildu þau Jón ekki. Þau gengu í hjónaband og stofnuðu sitt heimili, fyrst á Selfossi, en fljót- lega að Kaðalstöðum á Stokkseyri, Eystri Grand, síðast og lengst í Söndu. Fyrstu árin stundaði Jón akstur eigin bifreiða, síðan réðst hann til starfa hjá smiðjum Kaupfé- lags Árnesinga. Það varð svo til láns, ekki hvað síst fyrir okkur bændurna á Stokkseyri, að KÁ færði út kvíamar og stofnaði útibú á Stokkseyri frá smiðjum KA og Jón settur þar forstjóri. Verður því aldrei lýst eða fullþakkað hvað Jón innti þessa þjónustu vel af hendi, þar var í fyrirrúmi trúmennskan, velviljinn og hjálpsemin. Það slys henti hér í sveit þegar verið var að hraða sér við að koma þurra heyi í hlöðu með dráttarvélum, þar á meðal dráttarvél með ámoksturs- tækjum með tengdri heykvísl, að einn tindur kvíslarinnar rakst á hol í lærið á ungum pilti upp við mjöðm og þræddi lærið með lærlegg og kom út um hnélið, svo að út úr stóð breiddin fremst á tindinum. Læknirinn sem að þessu kom stóð ráðþrota. Það var bragði við, en gætti þess samt vandlega að taka allt með sem kynni að þurfa að nota, logsuðu, og allt tilheyrandi, þjalir smergel o.fl. Skar Jón svo með gasinu tindinn í sundur, slípaði síðan endann á tindinum með smergel og þjölum. Síðan var hægt t Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir, VILBORG ÁRNADÓTTIR frá Bergsstöðum, andaðist 11. febrúar sl. í Sjúkrahúsinu á Hvammstanga. Börn og tengdabörn. t Elskulegur sonur okkar, FRIÐRIK ÁRNI PÁLMASON frá Norðurgröf, lést hér í bænum þann 11. febrúar sl. Útförin verður auglýst síðar. Fyrir okkar hönd, systkina hins látna og annarra vandamanna, Elín Þ. Bjarnadóttir, Pétur Pálmason. t Eiginmaður minn, STEFÁN SIGURÐSSON héraðsdómslögmaður, Vesturgötu 23, Akranesi, lést 8. febrúar síðastliðinn. Jarðarförin fer fram frá Akraneskirkju mánudaginn 15. febrúar kl. 14.00. Erla Gisladóttir. t Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og útför móðir minnar, ömmu okkar og langömmu, GUÐRÚNARÞÓRÐARDÓTTUR frá Ranakoti, Stokkseyrl. Sérstakar þakkír til starfsfólks Hrafnistu í Reykjavík. Valdimar Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn. að fara að bjarga drengnum frá þjáningum og kvölum. Var mjög óttast ef illt hlypi í þetta mikla svöð- usár væri tvísýnt hvort drengurinn héldi fætinum og hnéskel og liðbönd grera. En það er skemmst frá að segja að þetta hafðist svo ótrúlega vel við, sjúkrahúsvistin varð til muna skemmri en við var búist. Einnig hækju- og staftímabilið og gengur síðan óhaltur. Seinna sagði Jón frá því að þetta atvik og vinnan við að bjarga drengnum hefðu verið það vandasamasta og minnisstæð- asta af öllu sem hann hefði fengist við um ævina. Ungur maður var Jón frá Lofts- stöðum hávaxinn, beinvaxinn, fremur grannholda. Hafði mikið dökkt hár, bláeygur, svipmikill og augnasvipurinn mjög svo hýr. Hann erfði í miklum mæli einkenni Vestri- Loftsstaðafólksins, vinfesti og tryggð. Og fleira var frá Loftsstöð- um, hann var karlmenni að burðum. Á síðustu misserum hefur heilsu Sönduhjónanna hrakað og hafa því dvalist á Kumbaravogi um nokkurt skeið og hefur nú hugarheimur Jóns öllu öðru fremur verið bundinn við börnin og fjölskyldur þeirra. Þeim varð fjögurra barna auðið, þau eru: Jón Áskell, maki Guðbjörg Kristins- dóttir, þeirra börn era 3; Gunnar Valur, maki Fanney Ármannsdóttir, þeirra börn era 2, þau slitu samvist- ir; Sigríður Kristín, maki Ólafur Auðunsson, þeirra börn era 4; Ragnhildur, maki Jón Hallgríms- son, þeirra börn era 6, þau slitu samvistir. Við hjónin og börnin okkar viljum að leiðarlokum þakka Jóni sam- fylgdina og vináttu alla. Stýr mínu fari heilu heim í höfn á friðarlandi. Þar mig í þinni gæslu geim Ó, guð minn allsvaldandi. (V.Briem) Blessuð sé minning góðs manns. Jón Ingvarsson, Skipum. í dag eram við að kveðja heiðurs- manninn Jón Jónsson, Söndu, Stokkseyri. Jón var fæddur að Vestri-Loft- stöðum í Gaulveijabæ, 10. ágúst 1908. Kynni mín af Jóni hófust er leið- ir okkar Siggu dóttur hans lágu saman 1967. Þá var Jón verkstæðis- formaður á viðgerðarverkstæði sem Kaupfélag Árnesinga rak á Stokks- eyri og var hann búinn að sjá um það í mörg ár. En ári seinna keypti Jón hús og tæki og rak það sjálfur í nokkur ár. Það var gott að koma í Söndu, mér var alltaf vel tekið af Jóni og Sesselju Hróbjartsdóttur eftirlifandi konu hans. Mér er það minnisstætt hvað hann var alltaf duglegur og hjálpsamur við alla. Það gátu allir leitað til hans hvenær sem var og með nánast hvað sem var. Þegar eitthvað fór úrskeiðis eða bilaði hvort sem það var í leik eða starfi þá var gott að leita til Jóns og hann kom á staðinn, lagaði það sem þurfti og þáði oft ekki annað en þakklæti og hlý orð í stað- inn, því að honum fannst oft hlý orð meira virði en peningar. Þeir vora honum ekki allt þó að hann vildi geta framfleitt sér og sínum með rausn. Svona var Jón alltaf tilbúinn að hjálpa. Það var eins og hann skildi svo vel vandræði ann- arra. Það er margs að minnast eft- ir 25 ára kynni, því að Jón var góður félagi og vinur. Ég og fjöl- skylda mín þökkum honum allar góðu stundimar sem við áttum sam- an, því það var oft glatt á hjalla þar sem Jón var. Hann var alltaf hreinskiptinn í tali, lét engan eiga hjá sér, en var fljótur að fyrirgefa. Jón var trúaður og trúði því að líf væri eftir það jarðneska, svo að við sem eftir lifum vitum að hann er í góðum höndum og búinn að hitta þá sem á undan era gengnir til guðs. Við kveðjum þig með orðum skáldsins. Far þú í firiði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Ólafur Auðunsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.