Morgunblaðið - 16.03.1993, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. MARZ 1993
9
Reykjavíkurdeild RKÍ
Námskeið í skyndihjálp
Reykjavíkurdeild RKÍ gengst fyrir námskeiði í skyndihjálp sem
hefst miðvikudaginn 17. mars, kennt verður 4 kvöld. Kennsludagar
verða 17., 18., 20. og 22. mars. Námskeiðið telst vera 16 kennslu-
stundir. Þátttaka er heimil öllum 15 ára og eldri. Násmkeiðið verð-
ur haldið i Ármúla 34, 3. hæð (Múlabæ).
Námskeiðsgjald er 4.000 kr.,
skuldlausir félagar í RKÍ fá 50%
afslátt. Hægt verður að ganga í
félagið á staðnum. Einnig fá nem-
endur í framhaldsskólum 50% af-
slátt. Þetta gildir einnig um há-
skólanema gegn framvísun á
skólaskírteini. Meðal þess sem
kennt verður á námskeiðinu er
blástursmeðferðin, endurlífgun
með hjartahnoði, hjálp við bruna,
blæðingum úr sárum og mörgu
öðru. Einnig verður fjallað um það
hvernig koma megi í veg fyrir
helstu slys. Að námskeiðinu loknu
fá nemendur skírteini sem hægt
er fá metið í ýmsum skólum.
Tekið skal fram að Reykjavíkur-
deild RKÍ útvegar leiðbeinendur til
að halda námskeið í fyrirtækjum
og hjá öðrum sem þess óska.
(Fréttatilkynning)
r
Sj álfstæðisfélagsins í Kópavogi
l.tbl- JAKÚARIW) SJAOCTÆEHSFIjQKKURINN (KÓPAVOGI
Verkefni ríkisstjómar:
Bætt kiör ungs fólks
tÍBkv* ataútað ngm nmdiiiur. og I
Fortíðarvandinn á herð-
um unga fólksins
Fréttabréf sjálfstæðisfélags Kópavogs
fjallar m.a. um stöðu ungs fólks á líðandi
stundu atvinnuleysis og rýrnandi þjóðar-
tekna með umframeyðslu þjóðarinnar
síðustu áratugi og tilheyrandi skulda-
þagga á herðunum. Ungt fólk eigi mun
erfiðara en áður með að eignast þak yfir
höfuðið. Og stóraukin skuldsetning heim-
ilanna dragi úr kaupum á vörum og þjón-
ustu og fækki störfum í þjónustugreinum.
Gjörbreyttar
þjóðfélagsað-
stæður
Aukinn útflutningur
unninnar sjávarvöru
(frystra sjávarafurða),
uppbygging orkuvera, al-
menn þensla í þjónustu-
greinum og vamarliðs-
framkvæmdir færðu ís-
lendingum umtalsverða
hagsæld á fyrstu áratug-
unum eftir heimsstyijöld-
ina síðari. Nú er öldin
önnur. Samdráttur í sjáv-
arútvegi (minni afli,
lægra verð), frestun
orkuframkvæmda, þjóða-
reyðsla langt umfram
tekjur og ofurþungi er-
lendra skulda liafa rýrt
almeim kjör og valdið
atvinnuleysi.
Þessi neikvæða þróun
er m.a. umfjöllunarefni
fréttabréfs sjálfstæðisfé-
lags Kópavogs (1. tbl.
1993). Þar segir:
„Islendingar hafa lifað
góðu tímana og næstu ár
verða einkum minnisstæð
vegna samdráttar, aukins
atvinnuleysis og versn-
andi lífskjara, einkum
ungs fólks, sem stendur í
fjárfestingum.
Mikið er fjallað um at-
vinnuhorfur ungs fólks
erlendis og í mörg ár
hefur pólitikin verið að
færast í það horf að verða
„neytendapólitík" og sú
þróun mun gerast hér-
lendis í siauknum mæli.
Pólitík hér á landi mun
færast í þessa átt án vafa
og nýlegar aðgerðir ríkis-
stjórnarimiar munu enn
frekar flýta þeirri þróun.
Sjálfstæðisflokkurinn
þarf að standa vörð um
afkomu Ungs fólks. Aðrir
flokkar þykjast liafa
hagsmuni þess að mark-
miði, en hver man ekki
eftir þegar t.d. Ólafur
Ragnar lagði á matar-
skattinn?
Nýlegt dæmi um aðra
flokka er Kvennalistinn.
Þingkonur þess flokks
voru andvígar nýlegum
efnahagsráðstöfunum
ríkisstj órnarinnar og
töldu atvinnuleysi aukast
og hag heimilanna
vei'sna. Hver voru þá rök
þeirra til að samþykkja
vaxtahækkun Lands-
bankans? Var verið að
bæta hag heimilanna?"
Staða unga
fólksins verri
enáður
I fréttabréfinu segir að
skuldsetning þjóðarbús-
ins, deilt á hvern einstakl-
ing, hafi vaxið úr kr.
190.000 árið 1970 í kr.
800.000 árið 1992. Á sama
tíma, einkum hin síðari
ár, hafi skuldsetning
heimilanna jafnframt
vaxið mjög mikið, þrátt
fyrir aukið vinnuframlag.
„Aukin skuldsetning
heimilanna mun draga úr
ráðstöfunarfé einstakl-
inganna og kaupum á
vörum og þjónustu, sem
kallar á aukið atvinnu-
leysi í þjónustugreinum."
Lifsmáti þjóðarinnar,
laun og verðlag hafi þró-
ast með þeim hætti, segir
efnislega í fréttabréfinu,
að flest heimili þurfi að
hafa tvær fyrirvinnur.
20% giftra kvenna hafi
verið útivinnandi árið
1960, 52% 1970, 76% árið
1980, og 82% árið 1992.
Tekjur heimilanna hafi
ekki aukizt að sama
skapi, enda sé vinnuþátt-
taka kvenna meiri í verr
en betur launuðum störf-
um.
Samansafnaðar skuldir
þjóðarbúsins séu vitni um
það að vanda eyðslu um-
fram tekjur og fjárfest-
ingarmistaka hafí verið
velt yfir á framtíðina,
unga fólkið, sem standi
tiltölulega verst að vígi í
óöryggi kreppunnar, m.a.
vegna kostnaðar við
stofnun heimila og nauð-
synlegt, nám.
Fréttabréfið, sem fjall-
ar að meginefni um stöðu
hinna ungu í samfélaginu,
leggur höfuðáherzlu á að
efla memitun, þekkingu
og starfshæfni einstakl-
inganna, til að takast á
við vandamál og við-
fangsefni framtiðarimiar
„og skapa traustan
grundvöll lieimila og fyr-
irtælqa og þjóðfélagsins
í heild, þar sem verðmæti
verði til áður en þeim er
eytt“.
SFR mótmælir hækkun á gjaldtöku presta
MORGUNBLAÐINU hefur bor-
ist eftirfarandi fréttatilkynning
frá Starfsmannafélagi ríkis-
stofnana.
„Fundur í launamálaráði-SFR,
haldinn 11. mars 1993, mótmælir
eindregið heimild dómsmálaráðu-
neytisins á hækkun á gjaldtöku
presta, í staðinn fyrir að bæta laun
þeirra með öðrum hætti.
Á sama tíma og stjórnvöld eru
að koma láglaunafólki á vonarvöl,
með því að hækka skatta og alla
þjónustu, neita því um lagfæringu
á launakjörum sínum, er þjónusta
presta hækkuð um allt að 41%,
sem bitnar þyngst á láglauna-
fólki.“
^ ■
Vinnuvernd
# í verki
I
...ÞIN VEGNA!
Með stáltá
og stálþynnu í sóla
Skeifan 3h - Sfmi 81 26 70 - FAX 68 04 70
Biddu við - Með vaxandi þrá - Ort i sandinn - Ég er rokkari - Fyrir eitt bros - Lífsdansinn - Þjóðhátíð i Eyjum
Helgin er að koma - I syngjandi sveiflu - Sumarfri - Lítið skrjáf i skógi - Með þér - Sumarsæla - Ég syng þennan söng
Á þjóðlegu nótunum - Tifar tímans hjól - Vertu - Ég bíð þín - Á fullri ferð - Ég hefbara áhuga á þér
Látum sönginn hljóma - Nú er ég léttur - Nú kveð ég allt
Kynnar: Þorgeir Ástvaldsson og Margrét Blöndal.
Jvfatseðiíl:
'Rjómasúpa ‘Trincess m/Jinjlakjöti
■Camba- oij tjrísasteik m/rjóma-
sveppum oij rósmarínsósu
/Áppelsínuis m/ súkkulaðisósu
fíCm |mÁND
SÍMI 687111
Hljómsveit
Geirmundar Valtýssonar
leikur fyrir dansi
Þríréttaður kvöldverður kr. 3.900
Verð á dansleik kr. 1.000
Þú sparar kr. 1.000
Miðasala og borðapantanir daglega milli kl. I4-I8 á Hótel Islandi.