Morgunblaðið - 16.03.1993, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. MARZ 1993
17
sl. í stað þess að fækka íbúðunum.
Þessi ákvörðun húsnæðismála-
stjórnar hefur nú verið staðfest af
ríkisstjórninni.
Frá þessari vaxtahækkun væri
hægt að falla og fara aðrar leiðir.
en ég spyr, er það skynsamlegt
vegna atvinnustigsins í landinu að
fækka félagslegum íbúðum eða er
það sanngjarnt gagnvart þeim
mikla fjölda láglaunafólks sem bíð-
ur eftir félagslegum íbúðum?
Ég tel einnig mikilvægt að fram
komi að þó nauðsynlegt hefði verið
að hækka einnig vexti á leiguíbúð-
um sem eru um 6-700 talsins, s.s.
Búsetaíbúðum og leiguíbúðum
stúdenta, aldraðra og fatlaðra, þá
féllst ríkisstjórnin á tillögu mína
um að það yrði ekki gert, enda fá
leigjendur ekki húsaleigubætur
með líkum hætti og eigendur fá
vaxtabætur.
Hver er greiðslubyrðin?
Steingrímur J. spyr í grein sinni
hvort íjölskylda með 900 þús. kr.
árstekjur sé sanngjarn markhópur.
Staðreyndin er sú að fólk með
undir 1200 þús. kr. árstekjur fær
ekki aukna greiðslubyrði eftir 1.
árið þegar tekið er tillit til vaxta-
bóta og raunar léttist greiðslubyrð-
in hjá fólki með undir 1 milljón í
árstekjur um allt að 13 þús. kr. á
ári þar sem vaxtagreiðslur verða
nú stærri hluti greiðslunnar en
áður.
Hjá fólki með tekjur á bilinu
12-1800 þús. kr. eykst greiðslu-
byrði hins vegar frá 1.200 til 3.500
kr. á mánuði miðað við 6 m.kr. lán
að tekju tilliti til vaxtabóta.
Höfundur er félagsmálaráðherra.
tillit til þeirra spáa sem gerðar eru.
Dæmi um grundvallaratriði sem
eru þekkt í fiskifræði: Umhverfis-
þættir hafa ekki síður áhrif á stærð
flestra fiskistofna en veiðar. Aukin
afköst við fiskveiðar hafa leitt til
ofveiði á mörgum fiskistofnum.
Náttúruleg dánartala hjá þeim ald-
urshópum þorsks sem við veiðum
mest af er þekkt með það mikilli
nákvæmni að óvissan í þeirri tölu
skiptir afar litlu þegar ákvörðun um
heildarafla er tekin.
Flestir telja sjálfsagt að taka tillit
til útreikninga Hafrannsóknastofn-
unar þótt óvissa í þeim sé veruleg
og margir fyrirvarar gerðir (þótt
Magnús fullyrði reyndar annað).
Þótt umhverfisþættir skipti jafnvel
meira máli fyrir stofnstærð en veið-
ar þá geta veiðarnar skipt sköpum
og við getum aðeins haft áhrif á
veiðamar.
Höfundur er dósent við Háskóla
tslands.
Itrekuð ábending
eftir Þorgeir
Þorgeirson
Ég sé að gamall vinur minn,
Hugsjónarmaðurinn Björn Brynj-
ólfur, er að rita um séra Hallgrím
og maltið góða í Morgunblaðið
þann 11. mars. Allur er málflutn-
ingur hans eins og Hugsjónar-
manni best sæmir.
Eina rangfærslu verð ég þó að
leiðrétta: Björn Brynjólfur segir
að Þorgeir Þorgeirson hafi fundið
sig „knúinn til mótmæla" vegna
útúrsnúnings Flosa á heilræðavísu
Hallgríms sáluga Péturssonar.
Þetta er rangt. Eg hef aldrei mót-
mælt þessu né heldur öðru hnoði
áhrærandi séra Hallgrím. Lét það
meira að segja óátalið þegar hér
reis eitt smekklausasta kirkju-
skrímsli á jarðríki í nafni þess
ágæta klerks. Enda lifír Hallgrím-
ur sálugi þetta hvorutveggja af. Á
hinn bóginn vildi ég benda þeim
sem á annað borð eru að mót-
mæla þessu og þvíumlíku á lögin
um höfundarétt. Sé þeim í raun
alvara með sárindi sín ættu þeir
að krefjast lögmætrar refsingar.
Og meira en það gætu þeir gert,
því líklega má krefjast upptöku á
öllum þeim tækjum sem notuð
hafa verið til birtingar „ósómans".
Þannig gæti ríkið eignast Stöð 2
að loknum málaferlum herra Ólafs
Skúlasonar vegna þessa hnoðs
með Hallgrím sáluga.
Þá fengi Björn Brynjólfur og
þeir Hugsjónarmenn svigrúm til
að stofna nýja „frjálsa" sjónvarps-
stöð þar sem bókmenntasagan
yrði kennd í gegnum þjóðlegar
auglýsingar frá morgni til kvölds:
„Ó, Kók vors lands, ó lands vors Kók;
vér lofum þitt blessaða, hressandi nafn!“
eða
„Skein yfir landið sól á sumardegi,
og SAAB á fömum vegi!“
ellegar þá:
„Allt eins og blómstrið eina,
ástapungur og kleina."
(frá Sveinsbakaríi)
Það væri mikið tilhlökkunarefni
fyrir Hugsjónarmenn og aðra þjóð-
rembinga í auglýsingabransanum.
Svo ekki sé nú talað um hagyrð-
inga og kvikmydagerðarmenn
þessa lands, sem Bjöm Brynjólfur
eðlilega ber mjög fyrir brjósti. Ég
mundi að sönnu ekki fagna þessu,
nema þá í einstökum tilvikum sem
vel tækjust, en fráleitt fínna mig
„knúinn til andmæla".
Þorgeir Þorgeirson
„Hins vegar hefi ég
bent þessum
„þj óðrembuauglýsinga-
mönnum“ á það að rétt
væri að afnema höf-
undaréttarlögin áður
en þessi framleiðsla
hefst í stórum stíl. Hún
brýtur í bága við þau.“
Hins vegar hefi ég bent þessum
„þjóðrembuauglýsingamönnum" á
það að rétt væri að afnema höf-
undaréttarlögin áður en þessi
framleiðsla hefst í stórum stíl. Hún
brýtur í bága við þau.
Þá ábendingu vildi ég mega ít-
reka nú.
Höfundur er rithöfundur.
MEG frá ABET
UTANÁHÚS
FYRIRLIGGJANDI
co Þ.Þ0RGRÍMSS0N & C0
Ármúla 29 - Reykjavík - simi 38640
ERT ÞU STÆRRI
EN SIGGISVEINS???
..ef ekki, þá er Clio nógu stór fyrir þig
Sigurður Sveinsson hefur í mörg ár verið ein
skærasta handboltastjarna okkar íslendinga.
Hann vantaði fólksbíl fyrir sig og fjölskylduna
og valdi fimm dyra Renault Clio.
"Renault Clio er ótrúlega rúmgóður miðað
við stærð. Hann er sparneytinn, kraftmikill
og lipur fjölskyldubíll á einstaklega
hagstæðu verði" segir Siggi.
Verö frá kr. 869. H2P
RENAULT
RENAULT
•fer í kostum
Bílaumboðið hf
Krókhálsi 1-110 Reykjavík - Sími 686633
Söludeildin eropinallavirkadagakl. 08-18 og laugardagakl. 13-17.
HEIMSMEISTARI 1992
Helgarfargjöld til Skandinavíu.
NORÐURLANDAFARGJÖLD SAS* Keflavík - Kaupmannahöfn 26.940.- Keflavík - Stokkhólmur 30.060,-
Keflavík - Osló 26.940.- Keflavík - Gautaborg 26.940.-
Keflavík - Kristiansand 26.940.- Keflavík - Malmö 26.940.-
Kefiavík - Stavanger 26.940,- Keflavík - Vásterás 30.060,-
Keflavík - Bergen 26.940,- Keflavík - Norrköplng 30.060.-
Keflavík - Helslnkl 30.680,- Keflavík - Jönköplng 30.060.-
Keflavík - Tampere 30.680,- Keflavík - Kalmar 30.060.-
Keflavík - Turku 30.680.- Keflavík - Váxjö 30.060.-
Keflavík - Vaasa 30.680.- Keflavík - Orebrö 30.060.-
*Verö mlöaö vlö allt aö 5 daga hámarksdvöl (4 nætur) aö meötalinni aöfaramótt sunnudags. Enn betrl kjör fyrlr hópa, 15 manns eöa flelrl. Innlendur flugvallarskattur er 1.250 kr. og danskur flugvallarskattur 680 kr.
Fjölmargir gistimögulelkar.
Verð á glstingu á mann er frá 2.600 kr. nóttin
í 2ja manna herbergi.
Hafðu samband við söluskrifstofu SAS
eða ferðaskrifstofuna þína.
SAS á íslandi - valfrelsi í flugi!
Laugavegl 172 Sími 62 22 11