Morgunblaðið - 16.03.1993, Síða 30

Morgunblaðið - 16.03.1993, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPn fflVINNULÍF ÞRIÐJUDAGUR 16. MARZ 1993 1 Lansinoh „Natures second skin" Græðandi og mýkjandi áburður á þurra og sprungna húð. Faest í Þumalínu og flestum apótekum landsins. Hringið og fáið ókeypis sýnishorn. ÝMUS H.F.,sími 91-643607. MOBIRA Nyr farsími TALSMADUR NÝRRA TÍMA IMiklu minni, mun léttari, en alltaf sömu gæðin. Aldrei betra verð. It Háteeknitif Ármúla 26, 108 Reykjavík, sími 675000 -Tæknin eykst, tækin minnka. Sjónarhorn Samningur um pappírs- laus viðskipti eftir Jónas Fr. Jónsson NÝR viðskiptamáti hefur að und- anförnu verið að ryðja sér til rúms hér á landi sem og erlend- is, en þá eiga viðskipti sér stað á pappírslausan hátt á milli tölva. Innan Evrópubandalagsis hefur sérstök áhersla verð lögð á það að auka útbreiðslu þessa við- skiptamáta og á vegum Samein- uðu þjóðanna starfa ýmsir vinnu- hópar við gerð samræmdra kóða fyrir tölvuskeyti. Skjalalaus viðskipti og hagur af þeim Pappírslaus viðskipti eru gagn- kvæmar sendingar á viðskiptaupp- lýsingum milli tölva. Þessar send- ingar eru byggðar á fyrirfram ákveðnum og samþykktum stöðl- um. Pappírslaus viðskipti eru hins vegar aðeins að litlu leyti tölvu- tækni, því hér er fyrst og fremst um að ræða vinnuhagræðingu í við- skiptum. Hér er því um verkefni stjórnenda að ræða en ekki sérstakt tölvudeildarmál. Með pappírslausum viðskiptum eykst hraði í viðskiptum, þannig að gögn og upplýsingar berast mun fyrr á milli viðskiptaaðila. Gögnin sem berast eru nákvæmari og minni hætta er á villum þegar þau eru send á milli tölva. Beinn sparnaður verður á póstkostnaði, ýmsum geymslukostnaði auk möguleika á betri birgðastýringu. Sem dæmi um beinan sparnað má nefna það að Bjöm Magnússon, forstöðumaður tölvudeildar Heklu hf., hefur sagt að með pappírslausum tollafgreiðsl- um fyrirtækisins hafi sparast ígildi eins starfsmanns. Er þá einungis átt við vinnusparnað við tollskýrslu- gerð en til viðbótar kemur hagræð- ing í birgðahaldi og almenn vinnu- hagræðing. Notkun hafin á íslandi Notkun á pappírslausum við- skiptum er nú þegar hafin á ís- landi, þó að í litlum mæli sé. Hægt er að fá tollafgreiðslu á þennan máta, auk þess sem yfir 30 íslensk fýrirtæki nota þennan viðskipta- máta sín á milli. Nú nýlega ákváðu forsvarsmenn Hagkaupa að koma á þessum viðskiptamáta á milli sín og birgja sinna. Evrópski samskiptasamningurinn A vegum framkvæmdastjórnar Evrópubandalagsins hefur á undan- förnum árum verið unnið að gerð staðlaðs samnings um samskipti viðskiptaaðila sem notfæra sér skjalalausan viðskiptamáta. í samskiptasamningnum er lagð- ur grunnur að réttarstöðu aðila sem vilja hagnýta sér þennan viðskipta- máta. í honum er að finna skilgrein- ingar á réttindum og skyldum samningsaðila og helstu atriði sem viðskiptaaðilar þurfa að hafa í huga. Viðskiptaaðilum er hins veg- ar í sjálfsvald sett hvort þeir nota samskiptasamninginn eða hluta hans eða gera ítarlegri samning. Efni samningsins Samskiptasamningurinn fjallar aðeins um það samkomulag aðila að nota hinn pappírslausa viðskipta- máta. í þessu sambandi verður því að greina strax á milli samskipta- samningsins og viðskiptasamnings- ins, sem fjallar um gerð vöru, gæði, magn, afhendingarmáta og greiðslufyrirkomulag. Samskiptasamningurinn fjallar um þá skeytastaðla sem viðskipta- aðilar ætla að nota við tölvusend- ingarnar og hvaða aðferðir á að nota við gagnaflutning. í samn- ingnum er kveðið á um hvernig eigi að staðfesta móttöku skeytis og hvernig eigi að tryggja öryggi þeirra. Þar er einnig fjallað um færslu sérstakrar gagnadagbókar, geymslu skeyta og sönnunargildi skeytanna. Jónas Fr. Jónsson Samskiptasamningurinn í íslenskri útgáfu Hinn evrópski samskiptasamn- ingur er nú nýkominn út á ís- lenskri tungu, bæði samningurinn og skýringar við hann. Hann hefur verið yfirlesinn og aðlagaður að ís- lenskum aðstæðum af laganefnd Icepro, nefndar um bætt verklag í viðskiptum, og er að finna í viðauka við SMT-handbókina um pappírs- laus viðskipti, sem Icepro gaf út. Framundan er mikil gróska á sviði pappírslausra viðskipta og má bú- ast við byltingu á þessu sviði á næstu 2-3 árum. Til þess að hafa vaðið fyrir neðan sig vil ég hvetja aðila í viðskiptalífinu til þess að kynna sér efni samskiptasamnings- ins, áður en þeir hefja slík við- skipti. Best er að ganga tryggilega frá samskiptagrundvellinum í upp- hafí, einkum á meðan þessi við- skiptamáti er að slíta barnsskónum. Höfundur er lögfræðingur Versl- unarráðs íslands og varaformaður Icepro-nefndar. Erlent Lítíll hagvöxt- uríJnpnn HAGVÖXTUR í Japan var 1,5% á síðasta ári, sá minnsti í næstum tvo áratugi eða síðan í olíukrepp- unni 1974. Búast flestir við, að afturbatinn verði hægur og minna verði talað um .japanska efnahagsundrið" á næstunni. Efnahagssérfræðingar segja, að samdrátturinn nú sé af öðrum rót- um runninn en áður en Japanir hafa jafnan komið tvíefldir frá hverri raun hingað til. Ástæðan sé ekki nema að litlu leyti utanaðkom- andi, verðsveiflur og sterkt jen, heldur heimaalinn kerfisvandi. Gíf- urleg hækkun á verðbréfum og fasteignum á síðasta áratug sprakk eins og blaðra þegar vextirnir hækkuðu og fasteignaverð í borg- um hefur fallið um 50%. Það hefur aftur haft alvarlegar afleiðingar fyrir banka og ljármálastofnanir og stórskert útlánagetu þeirra. Sumir sérfræðingar taka þannig til orða, að „efnahagsundrið" muni samt halda áfram í þeim skilningi, að Japönum muni takast að nýta hagvaxtarmöguleika sína enn um hríð. Á hinn bóginn hafí þessir möguleikar verið að minnka stöðugt á síðustu áratugum. V Gott úrval diesel-rafstöðva í ýmsum stærðum. Hagstætt verð. Varahlutir og þjónusta. Þjónustusamningar. -ASALAN H.F. Leitið RAFSTÖÐVAR upplýsinga hjá okkur. ÁNANAUST 1, REYKJAVÍK. SÍMI 91-26122

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.