Morgunblaðið - 16.03.1993, Qupperneq 42
42
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. MARZ 1993
fclk í
fréttum
Lars Karlsen og dóttir hans Nína gægjast hér upp fyrir rúnstykkið
væna. Til samanburðar eru tvær brauðkollur í venjulegri stærð ofan
á rúnstykkinu.
Risarúnstykkið
Lars Karlsen þykir nokkuð óvenju-
legur bakari í heimalandi sínu,
Danmörku. Nýlega tók hann sig
til og hnoðaði deig í brauðkollur
af þeirri gerð sem margir nefna
rúnstykki. í stað þess að búa
margar litlar bollur úr deiginu
skellti hann því í einu lagi í ofninn
og viti menn — úr ofninum kom
heimsins stærsta rúnstykki, heil
40 kíló að þyngd. Lars hefur þeg-
ar tilkynnt afrekið til Heimsmeta-
bókar Guinnes og væntir þess að
komast þar á síður.
„Berið hver
annars byrðar“
Þjóðmálanefnd kirkjunnar heldur ráðstefnu
um málefni atvinnulausra í Norræna húsinu
miðvikudaginn 17. mars kl. 13.30-18.00
í samvinnu við landssambönd launþega
og atvinnurekenda.
Ávörp flytja:
Hjörtur Eiríksson, framkvæmdastjóri Vinnu-
málasambands samvinnufélaga, og
Ögmundur Jónasson, formaður BSRB.
Umfjöllunarefni:
I. Gildi vinnunnar
1.1 Pétur Pétursson heilsugæslulæknir:
Þáttur vinnunnar fyrir almennt heilbrigði.
1.2 Hólmfríður Gunnarsdóttir, verkefnisstjóri
vinnuvemdarársins:
Andleg líðan og aðbúnaður á vinnustað.
1.3 Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson prestur:
Vinnan í ljósi mannskilnings kristinnar trúar.
II. Afleiðingar atvinnuleysis og félagsleg úrræði
II. 1 Eyjólfur Guðjónsson, fulltrúi fólks í atvinnu-
leit:
„Sá er eldurinn heitastur er á sjálfum brennur“
11.2 Jón Björnsson, félagsmálastjóri á Akureyri:
Hin/élagslega hlið atvinnuleysis.
11.3 Sr. Ólafur Oddur Jónsson sóknarprestur:
Viðbrögð við atvinnuleysi.
III. Þjónusta kirkjunnar og stuðningstilboð
III. 1 Halldór Kr. Júlíusson sálfræðingur:
Miðstöðvar fyrir fólk í atvinnuleit.
111.2 Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson prófastur:
Tengsl kirkju og atvinnulífs.
111.3 Ragnheiður Sverrisdóttir fræðslufulltrúi:
Þjónusta kirkjunnar í nágrannalöndum.
Fyrirspurnir og almennar umræður.
Ráðstefnan er öllum opin og án þátttökukostnaðar.
Læknanemarnir Andri
Konráðsson, Kristján Þ.
Guðmundsson og Hilmar
Kjartansson eru í F2-hópn-
um í tilraunum.
LÆKNANEMAR
Hátíðardagskrá í Perlunni
Félag læknanema hélt upp á 60
ára afmæli félagsins í Perlunni
síðastliðinn fimmtudag og var heið-
ursgestur dr. med. Bjarni Jónsson
fyrrverandi yfirlæknir, en hann átti
sæti í fyrstu stjórn félagsins. Fyrsti
formaður félagsins var Ólafur
Geirsson læknir, en núverandi for-
maður er Guðjón Karlsson.
Líkt og í'öðrum deildarfélögum
við Háskólann hefur Félag lækna-
nema starfað að kennslumálum,
fræðslumálum og félagsmálum og
að auki frá upphafi skipulagt ráðn-
ingu læknanema í afleysingastöður.
Þá hefur félagið gefið út fræðiritið
Læknanemann frá árinu 1938 og
hafa að jafnaði komið út tvö tölu-
blöð á ári.
FYRIRSÆTUR
Móðirin
fetar í fót-
spor dótt-
urinnar
Valerie Campbell, móðir fyrir-
sætunnar þekktu, Naomi
Campbell, hefur nú fetað í fótspor
dóttur sinnar sem ljósmyndafyrir-
sæta. Valerie, sem er 41 árs, segir
að þetta breyti í engu sambandi
þeirra mægðna. „Eg verð hvorki
kollegi Naomi né vinnufélagi. Ég
er fyrst og fremst móðir hennar og
hvenær sem hún þarf á mér að
halda verð ég til staðar fyrir hana,“
segir Valerie.
Naomi ólst upp í mikilli fátækt
ásamt einstæðri móður, sem flutti
til London frá Jamaica þegar Naomi
var fimm ára. Faðir hennar, sem
var kínverskur í aðra ættina, yfir-
gaf Valerie áður en vitað var að
hún var ófrísk. Af þeim sökum hef-
ur hann sennilega ekki hugmynd
um hversu fræga dóttur hann á.
Aðstæður Naomis hafa breyst veru-
lega í kjölfar frægðarinnar og þeirr-
ar fjárfúlgu sem hún vjnnur sér inn
daglega.
Valerie Camp-
bell, sem hefur
snúið sér að fyr-
irsætustörfum,
lítur ekki út fyrir
að vera fertug.