Morgunblaðið - 07.04.1993, Side 12

Morgunblaðið - 07.04.1993, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 1993 Margrét Reykdal: Allan ársins hring. Olíumálverk, 1992-93. Margrét Reykdal _________Myndlist_______________ Eiríkur Þorláksson í Hafnarborg, menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar, stendur um þessar mundir yfir sýning á verkum listakonunnar Margrétar Reykdal, en nú eru fimm ár liðin síðan hún hélt síðast einkasýningu hér á landi. Margrét stundaði sitt listnám í Noregi á árunum 1968-76, og á þeim árum stundaði hún einnig nám í listasögu og lauk kennaraprófi í myndmennt. Hún hefur komið hing- að heim og haldið einkasýningar, auk þess sem hún hefur tekið þátt í samsýningum, bæði hér og í Nor- egi. Margrét hefur þó að mestu búið í Noregi alla tíð, en nú býr hún í Frysja listamannamiðstöðinni í Osló, auk þess sem hún starfar við Samtímalistasafnið þar. Á sýningunni í Hafnarborg getur að iíta tuttugu og tvö verk. Það er gott jafnvægi yfir heildarsvip sýn- ingarinnar, og oftar en ekki opna verkin áhorfandanum leið inn í heim minninganna, sem kunna að sækja á hvem og einn fjarri ættlandinu. Þessar minningar snúast bæði um fólk og um stemmningar, sem kunna að tengjast árstíðum, stöðum eða jafnvel veðrabrigðum. Finna má áhrif frá Edvard Munch í verkum eins og „Hótelherbergið“ (nr. 18), og landslagsminnin bera stundum með sér svip af því sem Eiríkur Smith hefur verið að fást við þótt litaval kunni að vera nokk- uð annað. Eðli myndefnisins er þó ávallt persónulegt, einkum þar sem landslag og hringrás náttúmnnar eru tengd saman, eins og í „Allan ársins hring“ (nr. 10) og í „Falið" (nr. 19). Staða mannsins í náttúrunni er einnig hugstæð listakonunni, og oft sett fram á þann hátt, að maðurinn virðist einangraður eða áhrifalítill í umhverfí sínu. í „Óviðrinu" (nr. 6) dregur hver sig inn í sína skel, í stað þess að leita samtakamáttarins. Margrét setur fram fjölskrúðug mynstur og litaskipan í þeim mynd- um, sem hún hefur unnið með akrýl og þurrkrít. Hin mannlega nálægð er ekki alltaf fögur; hið svarta skip í verkinu „Á ströndinni" (nr. 2) er áminning um þann spillingarmátt, sem felst í verkum mannsins í nátt- úrunni. Hér er á ferðinni sýriing sem ber þess merki að listakonan kann vel til verka; Iitameðferð er góð, einkum í olíulitunum, myndskipun er sterk og heldur uppi spennu , og viðfangs- efnin eru skemmtileg blanda nátt- úrusvipa og tregablandinna endur- minninga, sem vinna vel saman. Sýningu Margrétar Reykdal í Hafnarborg í Hafnarfírði lýkur á annan páskadag, þann 12. apríl, og eru listunnendur hvattir til að líta við. Aðalheiður Skarphéðinsdóttir í Sverrissal Hafnarborgar, fer senn að Ijúka sýningu á verkum lis- takonunnar Aðalheiðar Skarphéð- insdóttur, sem hún nefnir „Á heiðu vori“. Aðalheiður stundaði nám við Myndlista- og handíðaskólans 1967-71, en fór síðar í nám í textíl- hönnun við Konstfackskolan í Stokkhólmi. Listakonan hefur tekið þátt í miklum fjölda samsýninga hér á landi og erlendis, en þetta mun að- eins vera fjórða einkasýning hennar. Eins og fleiri íslenskir listamenn þá hefur Aðalheiður notið gestrisni Norrænu Listamiðstöðvarinnar í Sveaborg við Helsinki í Finnlandi, en þar dvaldi hún um þriggja mán- aða skeið haustið 1991, og er sýn- ingin að mestu afrakstur þeirrar dvalar. Þegar listamenn geta sinnt hugð- arefnum sínum ótruflaðir af öðru verður oft nokkur breyting á verk- um þeirra, og má ætla að svo eigi við hér. Aðalheiður sýnir að þessu sinni fyrst og fremst verk unnin með akríl og krít; þessir miðlar gefa henni gott tækifæri til að túlka þann léttleika og þau mildu lit- brigði, sem hafa leitað á hana á dvalartímanum í Sveaborg. Hafíð og hinir bláu litir skeija- garðsins við Helsinki koma víða fram sem undirstaða verkanna, og einnig má víða greina bylgjuhreyf- ingu, sem léttir oft heildarsvipinn. Þannig má benda á „Atlot“ (nr. 2) ogjafnvel „Minningarbrot" (nr. 17). Inn á milli ber við himin léttari form þríhymdra segla, eins og í „Á heiðu vori“ (nr. 12), og í enn öðrum verk- um er vísað á táknrænan hátt til vitans, sem á að lýsa okkur leið, líkt og í „Næturstund“ (nr. 42). í höndum Aðalheiðar skapar lit- krítin iðandi og frjálsleg verk, þar sem myndbygging er góð og spenna í myndfletinum; eitt best verkið í þessum miðli er eflaust „Finnskur tangó“ (nr. 29), þar sem hin sterka fígúra listakonunnar nýtur sín ágætlega. Þetta sýning, er glöggt dæmi þess að á stundum getur hin norræna samvinna, sem oft er um- deild, gefíð listamönnum tækifæri til að endurnærast og endumýjast, sem þeir fengju trauðla að öðrum kosti. Hér hefur listakonan náð að nýta sér gistidvölina með ágætum. Sýning Aðalheiðar Skarphéðins- dóttur í Sverrissal Hafnarborgar í Hafnarfirði stendur til annars í páskum, 12. apríl. Malmblasarar 1 Hafnarborg á skírdag Girnileg- efnisskrá - segir bandaríski stjórnandinn Frank L. Battisti Málmblásarar og slagverksmenn koma saman á tónleikum í menn- ingarmiðstöð Hafnarfjarðar, Hafnarborg, á morgun, skírdag, kl. 13.30. Eru þetta fimmtu ár- legu skírdagstónleikar málm- blásara síðan 1988, og hafa með- limir hljómsveitarinnar æft sam- an í dymbilviku fyrir þessa tón- leika, undir leiðsögn bandaríska stjórnandans Frank L. Battisti. Á efnisskránni er „Ganzon sep- timi octavi toni a 12“ eftir G. Gabrieli, Þrír madrigalar eftir J. Wilbye, „Nonet“ eftir W. Rieg- ger, „Symphony" eftir J. Koets- ier. „Divertimento" eftir K. Husa, „Serenade" eftir R. Star- er, og Sinfónía eftir W. Hartley. í yfir 35 ár hefur Frank L. Batt- isti pantað og stjómað frumflutn- ingi á fjölda verka eftir mörg af helstu tónskáldum þessarar aldar, og má þar m.a. nefna Leslie Bass- et, Robert Ceely, William Thomas McKinley, Vincent Percichetti, Michael Colgrass, Daniel Pingham, Gunther Schuller, Ivan Tcheripnin og Alec Wilder. Meðal höfunda verka sem hann stjórnaði frum- flutningi á veturinn 1992-1993 má nefna Rogin Holloway, Sir Michael Tippet og John Harbison. Þá hefur Battisti nýlega pantað verk frá Witold Lutoslawski. „Á þessari öld eigum við í fyrsta skipti í sögunni tónskáld sem hafa áhuga á tré- og málmblásturshljóðfærum sem und- irstöðu alvarlegra tónsmíða," segir Battisti þegar blaðamaður færir þennan mikla Ijölda virtra nútíma- tónskálda í tal við hann. „Og meiri- hluti þeirra verka sem eru á efnis- skrá málmblásarasveita eru frá þessari öld. Hluti af skýringunni er sú staðreynd að hljóðfæri þessi voru ekki fullkomnuð fyrr en eftir •miðja 19. öld og alit fram á 20. öld, en einnig spilaði inn í að hið hefðbundna fyrirkomulag hljóm- sveita bauð upp á samþætting málmblásturshljóðfæra og strengjahljóðfæra, þar sem streng- imir voru yfirleitt í forgrunni. Einn- ig hefur áhrif, að á síðustu tveimur áratugum hefur orðið mikil þensla á þessu sviði tónlistar og litlar sveitir hafa skotið upp kollinum eins og gorkúlur. Tónskáldin eru því hætt að líta á þennan vettvang sem takmarkaðan, auk þess sem tilkoma litlu sveitanna, sem margar hveijar eru frábærar, fjölgar flutn- ingi hvers verks, á meðan þeir geta hrósað happi ef verk samið sérstak- lega fyrir sinfóníuhljómsveit er Frank L. Battisti leikið einu sinni eða tvisvar á ævi þeirra.“ Battisti nefnir meðal ann- ars verk sem kallast „Music for Prague“ og var samið fyrir málm- blásarasveit og hefur verið flutt um 9.000 sinnum síðan það var frumflutt. Hann er inntur eftir ástæðum þess að hann hefur að eigin frum- kvæði pantað jafn mörg verk og raun ber vitni. „í upphafi 6. áratug- arins fannst mér mjög mikilvægt að þróa efnisskrá hljómsveitarinn- ar, því hljómsveitir verða ekki framúrskarandi ef þær leika ein- ungis verk sem eru umskrifuð fyr- ir þær. Á þeim tíma var nánast lit- ið á málmblásarasveitir sem lúðra- sveitir er léku marsa í almennings- görðum á sólskinsdögum. Ég hóf því að panta verk, og held að ég hafi beðið um að ein 50 verk yrðu samin síðan. Sum tónskáldin þekkti ég persónulega og átti greiðan aðgang að þeim, en önnur hafði ég samband við og sagði einfald- lega; þetta getum við, þetta gerum við og síðan var því hrint í fram- kvæmd. Að óska eftir verki er að mínu mati eitt hið mikilvægasta sem stjórnandi getur gert - ég meina, hvernig liði þér ef þú hefðir pantað 5. sinfóníu Beethovens? Stórvirki sem þú elskaðir og dáðir og væri meðal þeirra fremstu í tón- bókmenntunum? Hitt sem ég tel vera mikilvægt í þessu sambandi, er að nemendur í tónlistarskólum geti kynnst því sem hæst ber í tón- smíðum nútímans, eigi sér fyrir- myndir sem þeir geta skoðað í ná- vígi og lært af til að þróa eigin hæfileika. Hljóðritanir koma ekki í staðinn fyrir lifandi tónlistarfiutn- ing, því nemendur þurfa að kynn- ast hefðinni sem fylgir hljómsveit- um og læra af reynslu og sýn.“ Hið girnilegasta á matseðlinum Battisti er stjómandi blásarasve- itar New England tónlistarháskól- ans í Boston í Bandaríkjunum. Sveitin hefur skipað sér sess sem ein helsta sveit sinnar tegundar þar vestra, og þykir bæði framsækin og vönduð. Væri fólk áhugasamt um að kynna sér hvað væri að gerast á þessu sviði tónlistar, myndi það hiklaust snúa sér þang- að, en fáir skáka hljómsveitinni hvað varðar tónleikahald og ferða- lög í Bandaríkjunum. Á starfsferli sínum hefur Battisti einnig stjórnað fjölda háskóla-blásarasveita í Bandaríkjunum, á Englandi, Norð- urlöndunum, í Mið-Austurlöndum, Ástralíu, Kína, Suður-Kóreu og Sovétríkjunum. I fyrra var hann sæmdur heiðursdoktorsnafnbót við Ithaca College í New York, og eru gagnrýnendur sem og starfsbræð- ur hans á einu máli um mikilvægi framlags hans til samtímatónlistar. Battisti er nú í hálfs árs leyfí frá störfum og dvelur sem gestafýrir- lesari við Clare Hall í Cambrigde á Englandi. Hann segir að efnis- skrá tónleikanna í Hafnarborg sé afar fjölbreytt og öll tónlistin þess eðlis að almenningur sem og at- vinnumenn geti hlustað sér til ánægju. „Þama er ekkert róttækt o g ekkert frámunalega sérhæft eða fráhrindandi. Verkin á efnisskránni sameina mismunandi stefnur í tón- list, og hljóðfæraskipan er breytileg í hveiju verki, þó að málmblásturs- hljóðfæri séu undirstaða þeirra allra. Má einna helst líkja þessu við að fara á veitingahús og smakka allt það girnilegasta á matseðlinum, ekki til að verða saddur heldur til að gæða sér á mismunandi bragði réttanna. Hljómsveitin hérna er mjög góð, og á háu, fagmannlegu stigi og einstaklega gaman að vinna með þeim fyrir vikið. Það er einnig gam- an að vita að enginn í hljómsveit- inni hefur leikið tónlistina sem er á efnisskránni áður, og það er skemmtilegt að gefa tónlistar- mönnum kost á kynnast einhveiju sem þeir leika ekki hversdags." Yestmannaeyjar Leikfélagið sýnir Ofviðrið Vestmannaeyjum. LEIKFÉLAGT Vestmannaeyja frumsýndi í gær leikritið Ofviðrið eftir William Shakespeare, í þýðingu Helga Hálfdanarsonar. Leikritið er 129. verkefni Leikfélagsins. Ofviðrið, sem er ævintýragaman- leikur, er síðasta verk Shakespeares. Æfíngar á leikritinu hófust um miðj- an febrúar og hefur verið æft stíft. Kári Halldór leikstýrir verkinu en Sveinn Tómasson fer með aðalhlut- verkið. Tónlistarflutningur í verkinu er undir stjórn John Lewis tónlistar- kennara. Fríða Sigurðardóttir, fram- kvæmdastjóri sýningarinnar, sagði að leikritið væri eitt stærsta verkefni sem félagið hefði tekið sér fyrir hend- ur. „Þetta hefur verið mikil vinna en hún skilar sér líka í skemmtilegu leikriti. Í leikritinu er mikið af alls- kyns „effektum“ sem við höfum ekki verið með áður,“ sagði Fríða. Leikfélagið áætlar að verða með margar sýningar um páskana. Grímur Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Úr leikritinu Oviðrinu. 4-BLAA LONIÐ & ^ NÁTTÚRUPARADÍS í GRINDA VÍK Opið alla páskana frá klukkan 10-21

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.