Morgunblaðið - 11.05.1993, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. MAÍ 1993
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Færanleg skoðunarstöð
Enda þótt flestir séu sammála um að ákjósanlegast sé að skoða bíla
innandyra í bifreiðarskoðunarstöðvum er sá kostur ekki alltaf fyrir
hendi, m.a. vegna ófærðar. Því hefur verið brugðið á það ráð að koma
á fót færanlegri bifreiðaskoðunarstöð og var hún á ferð í Árneshreppi
á Ströndum í vikunni. Hér hefur verið stungið niður fæti við félags-
heimilið Ámes og er Skúli Guðmundsson skoðunarmaður í óða önn
að skoða Landrover-jeppa í eigu Úlfars bónda Eyjólfssonar á Kross-
nesi. Á meðan hafa Olafur Thorarensen (t.v.) og Guðbrandur Kristins-
son (t.h) auga með honum.
ÓS Húseiningar hf. voru lýstar gjaldþrota á föstudag
Tvö tílboð liggja fyr-
ir í eigur þrotabúsins
BRAGI Hannesson, forstjóri Iðnlánasjóðs, segir að sjóður-
inn muni halda að sér höndum hvað varðar ráðstafanir á
eigum þrotabús OS Húseininga. Þetta sé gert þar sem tvö
tilboð liggja nú fyrir í eigur þrotabúsins. Fyrir helgina
undirritaði Iðnlánasjóður hins vegar viljayfirlýsingu um
að hann væri reiðubúinn til viðræðna um sölu á eigum
þrotabúsins til hóps sem Valdimar Bergstað, stjórnarfor-
maður Málningar hf., veitir forstöðu.
Samkvæmt viljayfirlýsingunni
var rætt um að kaupverð á eignum
ÓS Húseininga, það er verksmiðju
og lager, næmi um 340 milljónum
króna en Iðnlánasjóður er stærsti
kröfuhafinn í þrotabúið með kröf-
ur sem nema yfir 200 milljónum
króna.
Bragi Hannesson segir að þegar
þeir áttu í viðræðum við Valdimar
hafi áhugi annarra á kaupum á
eigum þrotabúsins ekki legið fyrir.
Hugmyndin hafi verið að sjóðurinn
myndi leysa til sín eignir sem hann
á veð í. Nú sé hins vegar komið
tilboð í eignirnar sem er heldur
hærra en 340 milljónir og því hafi
sjóðurinn ákveðið að láta málið í
hendur bústjóra þrotabúsins. Hitt
tilboðið er frá eigendum Steypu-
stöðvarinnar.
Tilboð á faxi
Jón Auðunn Jónsson, annar
bústjóra þrotabúsins, segir að
þeim hafi borist tilboð frá eigend-
um Steypustöðvarinnar á faxi í
gærdag og þótt.eigi eftir að leggja
endanlegt mat á það sýnist það
hagstæðara en hitt tilboðið. Jón
Auðunn segir að í dag muni bú-
stjórarnir eiga fund með fulltrúum
Iðnlánasjóðs til að fá fram afstöðu
sjóðsins til þessara tilboða. Einnig
þurfi að ræða við aðra stóra veð-
hafa í þrotabúinu eins og Lands-
bankann áður en næstu skref
verða ákveðin.
VEÐUR
VEÐURHORFUR I DAG, 11. MAl
YFIRLIT: Yfir Færeyjum er vaxandi 1.038 mb hæðarsvæði sem hreyfist
vestur. Milli Vestfjarða og Grænlands er grunn lægð sem eyðist.
SPÁ: Um landið vestanvert verður vestlæg átt, gola eða kaldi og þoku-
súld með köflum frameftir degi en síðdegis gengur í norðvestangolu,
og um kvöldið léttir til. Um landið norðanvert verður norðlæg átt, gola
eða kaldi og smáskúrir, einkum á annesjum. Suðaustanlands gengur í
norðvestangolu eða kalda og léttir til þegar Itða tekur á daginn. Hiti
verður á bilinu 7-19 stig. Hlýjast austanlands.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á MIÐVIKUDAG, FIMMTUDAG OG FÖSTUDAG: Hæg norð-
læg átt og skýjað en þurrt að mestu um norðanvert landið en víða létt-
skýjað syöra. Hiti 2 til 5 stig norðanlands en 5 til 10 stig syðra.
Nýir veðurfregnatímar: 1.30,,4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30,
22. 30. Svarsími Veðurstofu ísiands — Veðurfregnir: 990600.
Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað
r r r * r *
r r * r
r r r r * r
Rigning Slydda
* * *
* *
* * *
Snjókoma
Alskýjað
V ^ V
Skúrir Slydduél Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
og fjaðrirriar vindstyrk,
heil fjöður er 2 vindstig.^
10° Hitastig
V Súld
= Þoka
itig..
FÆRÐA VEGUM: (Kl. 17.30 igær)
Víðast hvar er ágæt færð á landinu og þeir vegir færir sem venjulega
eru færir á þessum árstíma. Á vestanverðu landinu hafa orðið skemmdtr
á vegum vegna vatns og aurskriðna en viðgerð er víðast lokið.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í sima 91-631500 og
í grænni línu 99-6315. Vegagerðín.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
hiti veður
Akureyri 16 skýjeð
Reykjavlk 9 rigning
Björgvin 18 heiðskirt
Helsinki 19 hálfskýjað
Kaupmannahöfn 21 léttskýjað
Narssarssuaq • 8 léttskýjað
Nuuk *3 skýjað
Ósló 20 léttskýjað
Stokkhólmur 20 léttskýjað
Þórshöfn 8 aiskýjað
Algarve 17 skúr
Amsterdam 22 léttskýjað
Barcelona 14 rlgning
Berlín 23 skýjað
Chicago 21 hálfskýjað
Feneyjar 24 léttskýjað
Frankfurt 24 léttskýjað
Glasgow 16 skýjað
Hamborg 22 léttskýjað
London 18 skýjað
Los Angeles 18 heiðskirt
Lúxemborg 21 léttskýjað
Madrid 18 skýjað
Malaga vantar
Mallorca 21 léttskýjað
Montreal 12 skýjað
NewYork 17 skýjað
Orlando 20 léttskýjað
Paría 22 léttskýjað
Madelra 16 þrumuveður
Róm 22 léttskýjað
Vín 22 skýjað
Washington 18 heiðskírt
Winnipeg 8 léttskýjað
t DAG kl. 12.00
Heimild: Veðurstofa íslands
(Byggt á veðurspá kt. 16.15 í gær)
Sléttanesinu ÍS breytt í frystiskip
Kostnaður áætl-
aður 150 milljónir
KOSTNAÐUR við að breyta skuttogaranum Sléttanesi ÍS
í frystiskip var áætlaður 150 milljónir króna en skipið er
nú á leið til Islands frá Póllandi eftir breytingar. Útgerðar-
félag skipsins vill ekki upplýsa hver verði endanlegur kostn-
aður við breytingarnar.
Sléttanesið er gert út af Fáfni
hf. sem er í eigu Kaupfélags Dýr-
firðinga á Þingeyri. Ándrés Guð-
mundsson fulltrúi hjá KD sagði við
Morgunblaðið, að koma yrði í ljós
hvernig áætlanir um rekstur skips-
ins eftir breytingarnar stæðust en
þær hefðu verið gerðar áður en kom
til verulegs niðurskurðar á þorsk-
kvóta á síðasta ári.
Fjölgað verður í áhöfn Slétta-
nessins úr 15 í 24 manns. Andrés
sagði aðspurður, að á móti myndi
vinnsla í Hraðfrystihúsinu minnka.
Von er á skipinu frá Póllandi til
Akraness næstkomandi fímmtudag
en þar verður gengið frá vinnslulínu
skipsins, sem var keypt hjá Þor-
geiri & Ellert hf.
Skemmdir
unnar á
bifreiðum
ÞRETTÁN skemmdar-
verk voru unnin í Reykja-
vík um helgina, flest á
bifreiðum.
Skemmdarvargarnir brutu
loftnet og rúðuþurrkur af bif-
reiðunum og ljósin voru einnig
brotin á sumum þeirra.
Tug’ir milljóna í sektir
vegna umferðarbrota
ÖKUMENN í Reykjavík greiddu rúmar 42,5 milljónir króna
í sektir vegna umferðarlagabrota' á síðasta ári. Líkur eru
á að enn bætist við á næstu dögum, því þá ætlar lögreglan
á Suðvesturlandi að vera með sameiginlegt umferðarátak.
Frá og með morgundeginum,
liðvikudegi, verður lögreglan í
Leykjavík, sem og lögregla á svæð-
iu frá Selfossi til Keflavíkur, með
érstakt umferðarátak. Athyglinni
erður sérstaklega beint að vinnu-
élum, réttindum stjórnenda þeirra,
kráningarnúmerum bifreiða og
legldum hjólbörðum.
Ómar Smári Ármannsson, ac
stoðaryfirlögregluþjónn í Reykjs
vík, segir að á síðasta ári hafi ökr
menn á þessu svæði greitt ur
60-70 milljónir í sektir. „Þama 6
því hægt að spara dágóðan skildin
á auðveldan hátt, því það eina sei
þarf að gera er að fara að umferðai
reglum," sagði hann.
Brutust inn meðan
fólk brá sér af bæ
BROTIST var inn í íbúðarhús í Mosfellsbæ á sunnudags-
kvöld og þaðan stolið sjónvarpi, myndbandstæki, tölvu,
skartgripum og fleiru.
Ibúar hússins voru fjarverandi
frá kl. 16-20 og þegar þeir komu
aftur höfðu þjófarnir látið greipar
sópa. Ekki varð vart við mannaferð-
ir við húsið á þessum tíma, en ná-
grönnum þótti rauður Suzuki-jeppi,
sem ekið var hægt um götuna,
grunsamlegur.
Rannsóknarlögregla ríkisins fer
nú með rannsókn málsins.