Morgunblaðið - 11.05.1993, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 11.05.1993, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. MAÍ 1993 7 EKK3 FJÓRHJÓLADRIFINN HELDUR FRAMHJÓIADRIFINN MEÐ SPÓLVÖRN 850 GLE STATION - BYGGÐURÁ 40 ÁRA REYNSLU Volvo 850 GLE station er án efa einn vandaðasti station-bíll í heimi. í fjörutíu ár hefur Volvo verið leiðandi í hönnun bíla af þessari gerð. Volvo kynnir nú þann fullkomnasta frá upphafi, Volvo 850 GLE station. Hönnunin á þessum bíl hefur tekist afburða vel, glæsilegt og rennilegt útlit, kraftur og þægindi auk hins mikla rýmis eru aðalsmerki hans. Volvo 850 GLE station hentar sérstaklega vel fólki sem vill hafa mikið pláss fyrir farangur og farþega, hann er því upplagður í ferðalögin og útiveruna og auðvitað fyrir fjölskyldur af öllum stærðum. ( FRAMHJÓLADRIF MEÐ SPÓLVÖRN Vélin er kraftmikil 5 strokka, 20 ventla, 143 hestafla með beinni innspýtingu, sem skilar bílnum vel áfram þó að hann sé fullhlaðinn, en er samt ótrúlega sparneytin (9,5 lítrar í blönduðum akstri). Afar fullkomin 4 gíra sjálfskipting. með vali um 3 akstursstillingar ásamt vökvastýri er staðalbúnaður í Volvo 850 GLE station. Auk þess er hann ríkulega búinn fullkomnum hljómflutningstækjum, upphituðum sætum með plussáklæði, samlæstum hurðum, tvívirkri miðstöð og mörgu fleirú. Volvo 850 GLE station er framhjóladrifinn með spólvörn sem gerir hann sérlega hæfan í vetrarakstri. ABS OG SIPS HLIÐARÁREKSTRARVÖRN í Volvo 850 GLE station er að finna byltingu í öryggi fyrir farþega. Munar þar mestu um hina nýju hliðarárekstrarvörn SIPS (Side Impact Protection System) sem felst í því að farþegarýmið, eða öryggisbúrið sem farþegarnir sitja í, er sérstaklega hannað og styrkt með hliðarhögg í huga. Auk þessa má nefna ABS hemlalæsivörn sem er staðalbúnaður í Volvo 850 GLE station, öryggisbeltastrekkjara, sjálfvirka aðlögun öryggisbelta, öruggasta aftursæti í heimi með þriggja punkta öryggisbeltum og höfuðpúðum fyrir þrjá farþega og innbyggðan barnabílstól. Verö: 2598.000 kr stgr. kominn á götuna. VOLVO BRIMBORG HF • FAXAFENI 8 • SÍMI (91) 685870

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.