Morgunblaðið - 11.05.1993, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. MAÍ 1993
23
Dagpeningakostnaður samgönguráðuneytisins
Meirihluti greiðslna til
starfsmanna Vegagerðar
Ferða- 09 dagpeningakostnaður "
á samgonguraðuneytisins 1992^
Dagpeningar .FerðSfostn. Dagpeningar Ferðakostn.
innanlands innanlands erlendis erlendis
Flugmálastjóm 3.338.000 1.801.000 15.985.000 9.327.000
-þar af B-hluti 413.000 39.000 5.548.000 1.968.000
Vita- og hafnarmál 516.000 527.000 719.000 472.000
Vegagerðin 74.048.000 4.706.000 8.905.000 3.050.000
Ferðamálaráð 512.000 129.000 1.471.000*
Samgönguráðun., aðalskrifstofa 374.000 336.000 1.927.000 2.514.000
HeMd: SamgönguwCuneytið • Ósundurliöuð samtala ferða- og dagpeningakostnaðar
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Stjórn Viðlagatryggingar íslands.
Aftari röð frá vinstri: Gísli Ólafs-
son, Geir Zoega og Úlfar Thorodd-
sen. Fremri röð frá vinstri: Ingi
R. Helgason, Guðmundur Þ.B.
Ólafsson og Alexander Stefánsson.
A innfelldu myndinni tekur Ólafur
Lárusson við styrknum úr hendi
Geirs Zoega.
Styrkur til upp-
græðslu í Eyjum
FERÐA- og dagpeningakostn-
aður samgönguráðuneytisins
var alls tæpar 134 milljónir
króna á síðasta ári. I fyrir-
spurnatíma á Alþingi í síðustu
viku kom fram að af 368 ein-
staklingum, sem fengu meira
en 400.000 krónur í dagpeninga
frá ríkinu á síðasta ári, voru
149 á vegum samgönguráðu-
neytisins. Þarna er einkum um
starfsmenn Vegagerðarinnar
að ræða, en dagpeningagreiðsl-
ur til þeirra námu tæplega 83
milljónum á síðasta ári, þar af
voru 74 milljónir vegna uppi-
halds innanlands.
Að sögn Rúnars Guðjónssonar
í samgönguráðuneytinu var mest-
ur hluti ferða- og dagpeninga-
greiðslna vegna reglubundinna
verkefna stofnana ráðuneytisins.
Hjá Flugmálastjórn eru ferða- og
dagpeningagreiðslur einkum
vegna ferða á fundi með flug-
málayfirvöldum annarra landa og
vegna eftirlits með flugvöllum
innanlands. Hluti greiðslnanna er
vegna B-hluta Flugmálastjórnar,
sem snýr að samstarfi við ICAO,
alþjóðasamtök flugmálastjórna.
Sá kostnaður er færður sem fjár-
festingarkostnaður vegna nýrrar
flugstjórnarmiðstöðvar, þar með
talið dagpeningagreiðslur til
starfsmanns, sem dvaldi erlendis
þtjár vikur af hveijum fjórum á
síðasta ári við hönnun fluggagna-
kerfis. ICAO greiðir 80% af kostn-
aði við B-hlutann.
Hjá Vita- og hafnarmálaskrif-
stofu voru dagpeningagreiðslur
einkum vegna funda erlendis með
hafnarmálayfirvöldum, einstaka
námsferða og eftirlitsferða vegna
hafnarframkvæmda innanlands.
Kostnaður vegna Ferðamála-
ráðs var vegna ferðakostnaðar
þeirra fimm fulltrúa í ráðinu, sem
skipaðir eru af ráðherra, vegna
samskipta við ferðamálaráð er-
lendis og vegna ferða á ferða-
málasýningar.
Eftirlitsmenn Vegagerðar
með 800.000 í dagpeninga
Greiðslur vegna Vegagerðar-
innar eru mikill meirihluti dagpen-
inga- og ferðagreiðslna á vegum
samgönguráðuneytisins, eða alls
tæplega 91 milljón króna. Að sögn
Rúnars eru greiddar 74 milljónir
í dagpeningakostnað innanlands,
einkum vegna eftirlitsmanna
Vegagerðarinnar, sem eru stund-
um við eftirlit úti á landi allt sum-
arið og geta þá fengið 800-900
þúsund krónur í dagpeninga, en
þeir þurfa sjálfir að greiða uppi-
hald. Einnig er nokkuð um ferðir
starfsmanna Vegagerðarinnar til
umdæmisskrifstofa. Helmingur
dagpeninga- og ferðakostnaðar
Vegagerðarinnar erlendis var
vegna námsferða.
Kostnaður aðalskrifstofu sam-
göngumálaráðuneytisins vegna
dagpeninga og ferðalaga innan-
lands er einkum vegna fulltrúa í
nefndum ráðuneytisins, sem þurfa
að sækja fundi í Reykjavík utan
af landi. Kostnaður vegna ferða
erlendis er að stórum hluta vegna
undirbúnings gildistöku Evrópska
efnahagssvæðisins, en einnig
vegna reglubundins samstarfs í
samgöngu- og fjarskiptamálum á
norrænum og evrópskum vett-
vangi.
Vestmannaeyjum.
VIÐLAGATRYGGING íslands
hélt aðalfund sinn um borð í Her-
jólfi á leið til Eyja fyrir skömmu.
Á fundinum var samþykkt að veita
2,5 milljóna króna styrk til upp-
græðslu í Vestmannaeyjum.
Guðmundur Þ.B. Ólafsson, for-
maður stjórnar Viðiagatryggingar,
sagði að stjórninni hafi þótt það vel
við hæfi að halda aðalfund sinn í
Eyjum þar sem 20 ár væru frá eld-
gosinu á Heimaey og Viðlagatrygg-
ing væri arftaki Viðlagasjóðs sem
stofnaður var í gosinu til að bæta
Eyjamönnum það tjón sem af gosinu
hlytist. Guðmundur sagði að Viðlaga-
trygging hefði heimild til að taka
þátt í fyrirbyggjandi starfi og með
því að veita styrk til uppgræðslu í
Vestmannaeyjum væri verið að vinna
fyrirbyggjandi starf því árlega hefðu
orðið miklar skemmdir í Eyjum af
völdum vikurfoks úr Eldfelli. Guð-
mundur sagði að Viðlagatrygging
hefði einnig veitt 2,5 milljóna styrk
til uppgræslustarfsins í Eyjum á síðT
asta ári en þá hefði Vestmannaeyja-
bær lagt 10 milljónir til uppgræðslu
í Eldfelli.
Geir Zoega, framkvæmdastjóri
Viðlagatryggingar, afhenti Ólafi
Lárussyni, bæjarfulltrúa, styrkinn að
loknum aðalfundinum og þakkaði
Ólafur fyrir hönd bæjarins.
Grímur
Vorskemmtun í Ömmu Lú á föstudagskvöldum. 3ja rétta kvöldverður
ásamt skemmtiatriði og dansleik til kl. 03:00 á kr. 1993.
Verður einungis til 11. júní n.k.
Krónur
m
Föstudagsgestir 1995
næstu föstudagskvöld
^ Jori'éílir
dskisúpa með stórri hörpuskel og gulrótar-linguini,
Andaconfit með fersku salati og sinnepssósu.
^ Reyktur lax í kartöflutertu og graslauksrjóma.
Gnocchi pasta með parmesan-rjómasósu og pesto.
Grillaður nautahryggsvöðvi hjúpaður vilhsveppum.
Steiktar grísalundir í netju með rosmarin sveppafyllin^
Pönnusteiktur silungur með sætri paprikusósu.
Kalkúnabringa „Tiyska".
Egiee Oeaesson OG Jónas Þórir
föstudaginn 14. maf
BOGOMIE FONT (in person)
föstudagana 21. maí og 4. júní
SlGRÚN Fí JÁEMTÝSDÓTTIR (Diddú)
föstudaginn 28. maí
Bergþór Páesson, Egiel Óeaesson
OG TÓNAS ÞÓRIR
miðvlkudaginn 19. maí og íöstudaginn 11. júní
öfíirréiíir
Marquise súkkulaðiterrine.
Skoskur vanillubúðingur með hunangskökum
Pönnukaka með brómberjum og vanilluís.
MatreSálumeLftari,
Haukur VSLkton
Boráapantanir í síma 689-686
\ \ \