Morgunblaðið - 11.05.1993, Blaðsíða 29
28
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. MAI 1993
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. MAÍ 1993
29
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Árvakur h.f., Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Björn Vignir Sigurpálsson.
Kringlan 1, 103 Reykjavík. Símar: Skiptiborð 691100. Auglýsingar:
691111. Áskriftir 691122. Áskriftargjald 1200 kr. á mánuði innan-
lands. í lausasölu 110 kr. eintakið.
Forseti Islands og
lögin um EES
egar frú Vigdís Finn-
bogadóttir, forseti ís-
lands, hafði staðfest með
undirskrift sinni lögin um
þátttöku íslands í Evrópska
efnahagssvæðinu í janúar-
mánuði sl. fjallaði Morgun-
blaðið um þær kröfur, sem
þá voru gerðar á hendur for-
seta um að knýja fram þjóð-
aratkvæðagreiðslu um málið
með því að beita 26. grein
stjórnarskrárinnar. í
Reykjavíkurbréfi Morgun-
blaðsins hinn 17. janúar-sl.
sagði m.a.: „Þeir, sem beina
slíkri áskorun til forseta ís-
lands, hver sem hann er
hverju sinni, sýna þeim, sem
embættinu gegnir, mikið til-
litsleysi, ekki sízt vegna
þess, að hver forseti hlýtur
að líta á það sem meginhlut-
verk sitt að vera sameining-
artákn þjóðarinnar.“
Deilur um EES eru að
baki. Málið hefur^ verið af-
greitt á þjóðþingi íslendinga
af rétt kjörnum fulltrúum
með lögformlegum hætti.
Forseti Islands hefur stað-
fest lögin með undirskrift
sinni. Fyrir nokkrum dögum
staðfesti forseti lög um við-
bótarákvæði, sem fyrst og
fremst eru tæknilegs eðlis
og til eru orðin vegna af-
stöðu Svisslendinga. Þegar
fyrir lá, að slík lög yrðu sett
og þyrfti að staðfesta með
undirskrift forseta brá svo
við, að hópur fólks gekkst
fyrir undirskriftasöfnun, þar
sem forseti var enn hvattur
til þess að tryggja að þjóðar-
atkvæðagreiðsla færi fram
um EES-málið. Með þessum
síendurteknu kröfum er for-
seta íslands sýnt mikið til-
litsleysi.
Þegar frú Vigdís Finn-
bogadóttir undirritaði lögin
í janúar, flutti hún sérstaka
yfirlýsingu á ríkisráðsfundi,
þar sem hún gerði skýra
grein fyrir afstöðu sinni til
þeirra áskorana, sem hún
hafði þá fengið. Forseti
sagði: „Frá stofnun lýðveldis
á Islandi hefur embætti for-
seta íslands verið í mótun.
Þar hefur jafnt og þétt
styrkzt sá meginþáttur emb-
ættisins að vera óháð og
hafið yfir flokkapólitík og
flokkadrætti, en um leið
samnefnari fyrir íslenzka
þjóðmenningu, mennta- og
menningarstefnu íslend-
inga, tákn sameiningar en
ekki sundrungar. Glöggt
vitni um það eðli embættis-
ins er, að enginn forseti hef-
ur gripið fram fyrir hendur
á lýðræðislega kjörnu Al-
þingi, sem tekið hefur sínar
ákvarðanir með lögmætum
hætti.“
Eftir þessa yfirlýsingu
forseta í janúarmánuði, hefði
mátt ætla, að andstæðingar
þátttöku okkar í EES sýndu
forseta íslands þá virðingu
og nærgætni að vega ekki í
knérunn. Þeir hafa hins veg-
ar valið þann kost að halda
fyrri áskorunum til streitu.
Forseti íslands, frú Vigdís
Finnbogadóttir, hefur í einu
og öllu rækt skyldur sínar
við íslenzku þjóðina og það
háa embætti, sem hún gegn-
ir, með meðferð sinni á við-
kvæmu máli. Hún hefur
staðfest lög, sem Alþingi
hefur sett með undirskrift
sinni en jafnframt notað
tækifærið til að koma á
framfæri athugasemdum
þess hluta þjóðarinnar, sem
var andvígur samningunum
um EES. Þegar í hlut á þjóð-
kjörinn þjóðhöfðingi, sem á
fyrst og fremst að vera sam-
einingartákn þjóðarinnar
allrar, er ekki hægt að hafa
uppi frekari kröfur. Frú Vig-
dís Finnbogadóttir er forseti
þjóðarinnar allrar en ekki
sérstakra hópa. í þeim anda
hefur hún sinnt embættis-
skyldum sínum með festu
og glæsibrag.
Það er ekki til of mikils
mælzt, að þeir, sem staðið
hafa fyrir hinni seinni undir-
skriftasöfnun, láti nú af
frekari tilraunum til að
blanda forsetanum inn í
deilumálin um EES. Það eru
hagsmunir þjóðarinnar allr-
ar, að forsetaembættið sé
hafið yfir dægurdeilur
stjórnmálanna. Einstakling-
ar og hvers kyns samtök
eiga að virða þessa stöðu
þjóðhöfðingjans. Nóg er sun-
drungin í þessu landi á öðr-
um vígstöðvum. Þjóðin og
einstakir þjóðfélagsþegnar
eiga að temja sér að um-
gangast forsetaembættið í
samræmi við þetta mikil-
væga hlutverk þess.
Skákmótið á St. Mailin
Helgi einn
í 1. sætinu
HELGI Ólafsson vann opna
skákmótið á eyjunni Saint Mart-
in í Karíbahafinu sem lauk á
laugardag og Margeir Pétursson
varð í öðru sæti á sama móti.
120 keppendur voru á mótinu,
þar af 16 stórmeistararar.
Helgi Ólafsson gerði jafntefli við
bandaríska stórmeistarann Boris
Gulko í síðustu umferð mótsins og
endaði með 7 'h vinning af 9 möguleg-
um. Margeir Pétursson gerði jafntefli
við bandaríska stórmeistarann Joel
Benjamin í síðustu umferð og endaði
með 7 vinninga ásamt Gulko, Jermol-
inski frá Rússlandi, Ehlvest frá Eist-
landi og Shabalov frá Lettlandi. Mar-
geir var úrskurðaður í 2. sæti á stig-
um.
Jón L. Árnason vann bandaríska
undrabarnið Josh Waitzkin í síðustu
umferð og endaði í 7.-13. sæti með
6'/2 vinning. Karl Þorsteins tapaði
fyrir Jermolinski í síðustu umferð og
endaði í 14.-25. sæti með 6 vinninga.
Stór vatns-
æð á vegi
bormanna
ísafirði.
BORMENN í Vestfjarðagöngum
komu óvænt í sprungið basaltlag
í síðustu viku þar sem mikið
magn var af vatni. Þrátt fyrir
að 80-90 sekúndulítrar af 10
gráðu heitu vatni sturtaðist yfir
bormennina tókst þeim að gera
þrjár boranir um 10 metra við
þessar erfiðu aðstæður, en nú
hefur verið ákveðið að stansa
við og bora lárétta tilraunaholu
til að kanna hve lagið er þykkt.
Ekki er um misgengi að ræða og
er erfitt að spá um hvort vatnsmagn-
ið, sem er álíka og nemur notkun
ísfirðinga, helst í álíka magni eða
fjarar út. Nú er vika síðan vatnsflóð-
ið bytjaði, en þó hefur það ekkert
sjatnað. Staðurinn er undir miðju
Búrfelli í Súgandafjarðarafleggjar-
anum. Áfram verður unnið af fullum
krafti við borun áleiðis til Breiðadals
en heildarlengd ganganna er nú um
3,8 kílómetrar.
Úlfar.
Kristján Jóhannsson syngur í Aidu eftir Verdi í París
Að lokinni sýningu
KRISTJÁN Jóhannsson áritar leikskrá fyrir íslendinga frá Lúxemborg í móttökunni í
París að lokinni sýningu á óperunni Aidu eftir Guiseppi Verdi á laugardagskvöld.
Rúmlega fjórtán þúsund
áhorfendur fögnuðu
mikilfenglegri sýningu
París, frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritar.a Morgunblaðsins.
KRISTJÁN Jóhannsson óperusöngvari söng í síðustu viku
hlutverk Radamesar í óperunni Aidu eftir Guiseppi Verdi á
þremur sýningum í íþrótta- og hljómleikahöllinni í Bercy í
París. Fjölmiðlum á Frakklandi ber saman um að þetta sé
einhver mikilfenglegasta uppfærsla á Aidu sem sést hefur.
Kristján söng síðustu sýningu
sína á laugardagskvöld fyrir fullu
húsi en höllin tekur rúmlega ljórtán
þúsund manns þegar hver bekkur
er setinn. íslendingar, búsettir á
meginlandi Evrópu, fjölmenntu á
síðustu sýningu Kristjáns og bar
öllum saman um að kvöldið hefði
verið ógleymanlegt. Sýningin, sem
tekur rúmlega þijár klukkustundir
í flutningi, hélt áhorfendum hug-
föngnum frá upphafi til enda. Krist-
jáni og öðrum flytjendum var ákaft
fagnað í lokin. Áhorfendur létu í
ljós hrifningu sína með þessa maka-
lausu leiksýningu oftar en einu sinni
á meðan á sýningunni stóð.
Hin rúmgóða íþróttahöll var nýtt
til fulls til þess að skapa sýning-
unni sem raunverulegast umhverfi.
Sex hundruð manna kór í skipuleg-
um fylkingum presta, ambátta og
hermanna skapaði senur sem þeir
sem á horfðu munu seint gleyma.
Að öllum líkindum eru aðstæður til
söngs ekki sem bestar í íþróttahúsi
og vafalaust mikið á söngvarana
lagt í því efni. Eftir undirtektum
áhorfendanna að dæma var árang-
urinn samt sem áður með afbrigð-
um góður.
Kristjáni fagnað
Að sýningunni lokinni bauð
Sveinn Björnsson, sendifulltrúi og
núverandi forstöðumaður íslenska
sendiráðsins í París, íslendingunum
til móttöku. Kristjáni Jóhannssyni
var tekið með lófaklappi og húrra-
hrópum af löndum sínum þegar
hann kom til móttökunnar. Islend-
ingar eru ekki lengur bara stórir í
fomsögum og fiski heldur eigum
við líka söngvara á heimsmæli-
kvarða.
Ósvör býður 78 milljónir í
frystiliús EG1 Bolungarvík
Bolungarvík.
SAMÞYKKT var samhljóða á fjölmennum hluthafafundi í
útgerðarfélaginu Ósvör hf. í Bolungarvík, sem haldinn var
sl. sunnudag, að auka hlutafé félagsins úr 5 í 80 milljónir
kr. Jafnframt var samþykkt heimild til sljórnar að auka
hlutaféð um 40 milljónir kr. síðar á árinu þannig að það
verði 120 milljónir kr. Á fundinum var skýrt frá því að stjórn
félagsins hefði boðið 78 milljónir kr. í frystihús þrotabús
Einars Guðfinnssonar hf. Bæjarstjórn mun taka afstöðu til
forkaupsréttar að togurunum Dagrúnu og Heiðrúnu í þess-
ari viku. Nágrannasveitarfélög hafa haft samband við bæjar-
stjóra og lýst yfir áhuga á samvinnu og jafnvel að leggja
fram hlutafé í útgerðarfélagið gegn skiptingu afla.
Nú eru 193 hluthafar í Ósvör og
frestur til að kaupa hlutafé rennur
út 1. júní. Fljótlega verður sent bréf
til allra hluthafa þar sem þeim verð-
ur boðið að taka þátt í hlutafjáraukn-
ingunni.
Björgvin Bjarnason, stjórnarfor-
maður Ósvarar hf., rakti í skýrslu
sinni til fundarins gang mála frá því
félagið var stofnað og fram á þennan
dag og ræddi framtíðarhorfur. Fram
kom að stjórnin hefði gert tilboð í
frystihús þrotabús EG upp á 78 millj-
ónir kr.
Djarfar ákvarðanir
Ólafur Kristjánsson bæjarstjóri
sagði að við stofnun Ósvarar hefði
orðið eðlileg verkaskipting milli bæj-
arstjórnar og fyrirtækisins. Stjórn
Samkvæmt kröfuskrá námu lýstar
kröfur í þrotabú Hóla hf. 693 milljón-
um kr. alls. Bústjórinn, Jón Sigfús
Siguijónsson, samþykkti kröfur að
Ósvarar hefði unnið að faglegu mál-
unum, útreikningum og tilboðsgerð.
Hældi hann stjórninni fyrir vinnu
sína og sagði að tilboð fyrirtækisins
í togarana hefði verið eðlilegt. Sagði
Ólafur að bæjarstjórnarmenn hefðu
unnið að málunum á hinum pólitíska
vettvangi.
Rakti hann erfiðleika bæjarsjóðs
sem jók skuldir sínar um 50% vegna
erfiðleika Græðis hf. í þeim tilgangi
að halda kvóta í byggðarlaginu.
Varðandi það hvort bæjarstjórn
myndi nýta forkaupsrétt sinn að tog-
aranum Dagrúnu sem þrotabúið hef-
ur selt Grindvíkingum og Heiðrúnu
sem til stóð að ganga frá sölu á til
Háagranda hf. í Hafnarfirði í gær,
sagði Ólafur að málið yrði rætt
næstu daga. í þessu samhengi sagði
fjárhæð 451 milljón, þar af voru
veðkröfur rúmlega 450 milljónir og
forgangskröfur um hálf milljón. Hann
tók ekki afstöðu til almennra krafna,
hann að Bolvíkingar stæðu nú
frammi fyrir því að þurfa að taka
djarfar ákvarðanir, leggja allt undir
og ljóst væri að þeir yrðu enn og
aftur að standa þétt saman til að
halda í sitt.
Ólafur sagði í samtali við Morgun-
bíaðið í gær að stefnt væri að því
að bæjarstjórnin tæki afstöðu til for-
kaupsréttarins í þessari viku, fyrir
fund með þingmönnum kjördæmisins
sem áformaður er næstkomandi
laugardag. Ólafur sagði einnig að
nágrannabæjarfélög hefðu haft sam-
band til að lýsa yfir áhuga sínum á
samvinnu og jafnvel að leggja fram
hlutafé í útgerðarfélagið, með það í
huga að skiptast á hráefni. Hann
sagði að ekki yrði tekin afstaða til
slíks fyrr en ákvörðun hefði verið
tekin um nýtingu forkaupsréttar að
skipunum.
Fram kom í ræðu Ólafs að árið
1090 hefðu verið 570 ársverk í Bol-
ungarvík og samkvæmt úttekt sem
Byggðastofnun hefði að beiðni bæj-
arstjórnar gert á stöðunni nú mætti
ætla að 230 störf væru í hættu ef
skipin færu. í skýrslunni kemur einn-
ig fram að rekja megi 38% af at-
vinnutekjum Bolvíkinga til útgerðar
togaranna. Ólafur sagði að bæjar-
stjóri og formaður Verkalýðs- og
sjómannafélags Bolungarvíkur hefðu
nýverið skrifað hvatningu til forsæt-
sem voru 242 milljónir kr., þar sem
ljóst er að ekkert fæst greitt upp í
þær. Bústjóri hafnaði rúmlega 70
milljóna kr. veðkröfu sem hann telur
að tilheyri þrotabúi Einars Guðfinns-
sonar hf.
Eignir félagsins voru mikið veð-
settar og ljóst að andvirði eigna dug-
ar ekki fyrir öllum veðkröfum. Bú-
stjóri hefur verið að fá tilboð í eignirn-
ar og mun hann kynna þau fyrir
veðkröfuhöfum í næstu viku.
isráðherra um að huga að stöðu
Bolungarvíkur.
Karvel úr stjórn
Á fundinum tilkynnti Karvei
Pálmason, fyrrverandi alþingismað-
ur, úrsögn úr stjórn félagsins en
hann er jafnframt stjórnarmaður í
Byggðastofnun. í samtali við frétta-
ritara sagðist hann hafa tekið þessa
ákvörðun að vandlega athuguðu
máli enda teldi hann sig ekki síður
getað tekið afstöðu og þjónað Bolvík-
ingum eins og öðrum með þessum
hætti. Hann benti á að nóg mannval
væri í_ Bolungarvík til að fylla sæti
sitt í Ósvararstjórn en hann ætti tvö
ár eftir af kjörtímabili sínu í stjórn
Byggðastofnunar.
Gunnar
Atvinnulíf
umaldamót
til umræðu
áfundi VSÍ
AÐALFUNDUR Vinnuveit-
endasambands íslands fer fram
á Hótel Sögu í dag og hefst
fundurinn með ræðu formanns,
Magnúsar Gunnarssonar.
Klukkan 13.30 flytur Davíð
Oddsson forsætisráðherra
ræðu á aðalfundinum.
Að lokinni ræðu forsætisráð-
herra verða flutt erindi um at-
vinnulífið um aldamót. Jakob Jak-
obsson, forstjóri Hafrannsókna-
stofnunar, fj'allar um afrakstur
íslandsmiða við aldamót. Hannes
G. Sigurðsson, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri VSí, flytur erindi
sem hann nefnir „Vinnumarkaður
og hagvöxtur — sjö ára sýn,“ og
loks íjallar Þorkell Sigurlaugsson,
framkvæmdastjóri þróunarsviðs
Eimskipafélags íslands, um sókn-
arstefnu í atvinnumálum, mai'k-
mið og möguleika.
Síðdegis fara svo fram aðal-
fundarstörf þar sem kynnt verður
skýrsla stjórnar fyrir liðið starfs-
ár. Þar verður m.a. lögð fram til-
laga framkvæmdastjórnar um
lækkun árgjalda.
Þrotabú Éinars Guðfinnssonar hf. og Hóla í Bolungarvík
Landsbankinn lýsir 700
milljóna króna kröfum
LANDSBANKINN lýsti hæstu kröfunni í þrotabú Hóla hf., eign-
arhaldsfélag Einars Guðfinnssonar hf. í Bolungarvík, eða tæp-
lega 300 milljónum kr. Bankinn lýsti 400 milljóna kr. kröfu í
EG og eru kröfur bankans því um 700 milljónir alls. Kröfur
Fiskveiðasjóðs í Hóla hf. voru rúmar 80 milljónir og um 330
milljónir alls í bæði fyrirtækin. Kröfur ríkissjóðs í Hóla voru
64 milljónir kr., Sparisjóðs Bolungarvíkur 33 milljónir og Líf-
eyrissjóðs Bolungarvíkur 25 milljónir kr.
Mikil stemmning á hátíð eldri borgara sem hófst með fjöldagöngu í
Fjölmargir sóttu
hátíð í góðu veðri
MIKIL stemmning var á miðbæjarhátíð eldri borgara, sem
hófst í fyrradag, að sögn Guðmundu Þórisdóttur í Borgar-
húsinu. Veður var með besta móti og tóku fjölmargir þátt
í peysufatagöngu karla og kvenna yfir sextugt niður
Laugaveginn. Sagði Guðmunda jafnframt að þátttakendur
hefðu verið glaðir og reifir og dagurinn því tekist vel.
Ár aldraðra
Miðbæjarhátíðin, sem hófst 9.
maí og lýkur næstkomandi laugar-
dag, er haldin í tengslum við ár
aldraðra í Evrópu og með henni
vilja eldri borgarar senda borgarbú-
um kveðju. Einnig má geta þess
að á hveijum morgni kl. 9.30 verð-
ur morgunkaffi á Hótel Borg og
Café París þar sem ýmsir nafntog-
aðir einstaklingar munu fá sér
kaffisopa.
Góð þátttaka
Að sögn Guðmundu Þórisdóttur
í Borgarhúsinu hófst gærdagurinn
kl. 8 með morgungöngu um mið-
borgina í fylgd Péturs Péturssonar
þular og slógust um 30 manns í för
með honum.
Einnig var góð þátttaka í morg-
unkaffinu eða um 60 manns til
samans á fyrrgreindum kaffihús-
um, Sagði hún jafnframt að þátt-
taka hefði verið mest hjá eldri kyn-
slóðinni það sem af er vikunnar,
þó hefði mátt sjá til hinna yngri,
einkum og sér í lagi barnabarn-
anna.
Morgunblaðið/Svernr
Morgunkaffi í miðbæjarviku
F.V.: Davíð Oddsson forsætisráðherra, Pétur Pétursson þulur og Pét-
ur H. Ólafsson, framkvæmdastjóri nefndarinnar sem sá um skipulagn-
ingu miðbæjarvikunnar, í kaffi á Hótel Borg í gærmorgun.
miðborg Reykjavíkur á sunnudag
Morgunblaðið/Sverrir
Minjagripur
RÚTAN á myndinni er í einkaeign og lagði eigandi hennar mikið á
sig til þess að vera með, lét flytja bílinn alla leið ofan úr Lundar-
reykjadal.
Samkeppni um hús
sem Hæstaréttur taki
í notkun vorið 1995
HLEYPT hefur verið af stokkunum samkeppni um hönnun
húss fyrir Hæstarétt íslands. Húsið á að rísa á lóðinni bak við
Landsbókasafnið, þar sem nú eru bílastæði, og á það að vera
fullbúið í apríl 1995, sama ár og Hæstiréttur verður 75 ára.
Rétt til þátttöku í samkegpninni
hafa félagar í Arkitektafélagi íslands
og aðrir arkitektar sem áunnið hafa
sér réttindi til að leggja aðalteikning-
ar fyrir bygginganefndir. Fimm
manna dómnefnd velur úr innsend-
um tillögum og nema verðlaun 2,4
milljónum króna, þar af eru 1. verð-
laun ekki lægri en 1,2 milljónir. Auk
þess er dómnefnd heimilt að kaupa
tillögur fyrir allt að 600 þúsund krón-
ur.
290 milljónir
Ólafur Jensson, trúnaðarmaður
dómnefndar, sagði að gert væri ráð
fyrir að Hæstiréttur þyrfti 1.900
fermetra húsnæði. „í samkeppnis-
gögnum „er gert ráð fyrir að hæð
hússins taki mið af byggingum í
kring. Verktakakostnaður við húsið
er áætlaður 290 milljónir króna, en
þá er ótalinn hönnunarkostnaðurinn
og lausabúnaður í húsið.“
Ólafur sagði að dómnefnd ætlaði
sér skamman tíma til að fara yfir
innsendar tillögur. Þeim á að vera
búið að skila 6. júlí, en tilkynnt verð-
ur um niðurstöðu dómnefndar 28.
júlí. „Það er gert ráð fyrir að húsið
verði tilbúið á 75 ára afmælisári
Hæstaréttar 1995 og verði vígt í
apríl það ár,“ sagði Ólafur Jensson. í
Dómnefnd skipa þau Steindór:
Guðmundsson, forstöðumaður fram-
kvæmdadeildar Innkaupastofnunar'
ríkisins, Dagný Leifsdóttir, deildar-;
stjóri í dómsmálaráðuneytinu, Hrafn
Bragason hæstaréttardómari, Garð--
ar Halldórsson, húsameistari ríkis-
ins, og Tryggvi Tryggvason arkitekt _