Morgunblaðið - 11.05.1993, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. MAI 1993
45
Atriði úr Loftskeytamanninnum
Loftskeytamaðurinn
í Regnboganum
REGNBOGINN frumsýnir
norsku verðlaunamyndina “The
Telegraphist" eða Loftskeyta-
maðurinn eins og hún kallast á
íslensku, miðvikudaginn 12. maí.
Myndin er byggð á skáldsögu
Knud Hamsun „Draumóramað-
urinn“.
Myndin fjallar um Ove Rolandsen
sem er meira en bara venjulegur
loftskeytamaður í litlu afskekktu
þorpi norður í Noregi. Hann er
drykkfeldur uppfinningamaður,
höggþungur heimspekingur og
kvennaflagari sem jafnvel prestfrúin
vill ekki vera óhult fyrir.
Holdið er veikt en sú sem Rolands-
en þráir er dóttir almættisins í þorp-
inu, hin gullfallega, lofaða Elísa. En
Rolandsen er maður úrræðagóður.
Þessi gamanmynd var kosin vin-
sælasta myndin á 10. Norrænu kvik-
myndahátíðinni sem haldin var í
Reykjavík 1993. (Fréttatilkynning)
Samnorræn aætlun um
kjarnorkuslysavarnir
SKÝRSLA matsnefndar eftir fyrstu norrænu æfinguna um viðbrögð
við kjarnorkuslysum er komin út. Fyrsta norræna æfingin um við-
brögð við kjarnorkuslysum var haldin í Danmörku, Finlandi, Is-
landi, Noregi og Svíþjóð 14. janúar sl. I æfingunni var lögð áhersla
á miðlun upplýsinga, ákvaðanatöku og samband milli Norðurland-
anna eftir kjarnorkuslys.
Það er löng hefð fyrir norrænu
samstarfi en ekki hafa verið gerðar
samnorrænar áætlanir um viðbrögð
við kjarnorkuslysum. í skýrslu mats-
nefndarinnar er fjallað um bakgrunn
æfíngarinnar og einstaka þætti
hennar. Lagt er mat á framkvæmd
einstakra þátta æfíngarinnar. Al-
mennt má segja að æfingin hafi tek-
ist vel í hveiju iandi en samband
milli landanna fyrir ákvarðanatöku
hefði mátt vera meira.
Niðurstaða matsnefndarinnar er
___________Brids
Umsjón Arnór G. Ragnarsson
íslandsmót í paratvímenningi
1993 .
íslandmótið í paratvímenningi var
haldið í Sigtúni 9, helgina 8.-9. maí.
Metþátttaka var í þessu móti og var
fullt hús í Sigtúninu, 62 pör. Spilaður
var barómeter, 2 spil á milli para, alls
122 spil. Fyrri daginn voru Dröfn
Guðmundsdóttir og Ásgeir Ásbjörns-
son lengst af á toppnum og voru með
góða forustu á laugardagskvöld. Ester
Jakobsdóttir og Sverrir Ármannsson
voru þó ekki langt undan og í innbyrð-
is setu snemma á sunnudag fengu þau
stóran plús og fyrsta sætið sem þau
héldu alveg til loka og urðu íslands-
meistarar í paratvímenning 1993 með
813 stig. í öðru sæti urðu Dröfn Guð-
mundsdóttir og Ásgeir Ásbjömsson
með 764 stig og í þriðja sæti Jacqui
McGreal og Þorlákur Jónsson með 709
stig.
Næstu pör urðu:
Halla Bergþórsdóttir - Vilhjálmur Sigurðsson 619
Ljósbrá Baldursdóttir - Jakob Kristinsson 447
Gunnlaug Einarsdóttir - Hrólfur Hjaltason 418
Valgerður Kristjónsdóttir - Bjöm Theodórsson 413
Soffía Guðmundsdóttir - Jón Ingi Bjömsson 395
Hjördís Eyþórsdóttir - Ásmundur Pálsson 382
Keppnin gekk mjög lipurlega þrátt
fyrir fjöldann með góðri stjórn keppn-
isstjórans Kristjáns Haukssonar og
reiknimeistarinn Sveinn R. Eiríksson
setti í fluggírinn og náði að reikna
allt út jafnóðum. Góð þátttaka var af
landsbyggðinni í þessu móti og er ljóst
að þessi keppni er að verða vinsælasta
íslandsmótið.
Vetrarmitcell Bridssambands
íslands
Góð mæting var að venju í vetrar-
mitcell Bridssambands íslands föstu-
sú að ekki sé víst að það takist að
samræma ákvarðanatöku á Norður-
löndum eftir kjarnorkuslys. Norrænt
samstarf á mörgum sviðum á þó að
koma í veg fyrir alvarlegan misskiln-
ing milli landanna. Upplýsingar
gengu greiðlega á milli landanna við
æfinguna. Æfingin tókst vel og var
mikilvæg, því hún benti á þætti í
norrænu samstarfi sem þörf er að
bæta enn frekar.
(Fréttatilkynning)
dagskvöldið 7. maí. Sumir notuðu
tækifærið til að æfa sig fyrir paratví-
menninginn þó svo að 20 tíma spila-
mennska væri framundan yfir helgina.
alls mætu 40 pör og urðu úrslit þessi:
N/S riðill
Jón Stefánsson - Sveinn Sigurgeirsson 533
Soffía Guðmundsdóttir - Jón Ingi Bjömsson 503
ÁrsællVignisson-TraustiHarðarson 501
FriðrikJónsson-ValdimarElíasson 466
BjömSvavarsson-SvavarBjömsson 455
A/V riðill
Helgi Hermannsson - Hjáimar S. Pálsson 527
Rúanr Einarsson - Haraldur Gunnlaugsson 519
KjartanJóhannsson-SævarJónson 501
Guðbrandur Guðjohnsen - Magnús Þorkelsson 482
Páll Þór Bergsson - Sveinn Þorvaldsson 479
Bridsfélag Kópavogs
Sl. fimmtudag hófst þriggja kvölda
vortvímenningur með þátttöku 22
para. Spilaður er Mitchell-tvímenning-
ur.
Staðan N/S:
Ragnar Jónsson - Þröstur Ingimarsson 322
Sigurðurívarsson-JónSt.Ingólfsson 288
Elín Jóhannsdóttir - Herta Þorsteinsdóttir 284
A/V:
Jacqui McGreal - Kristín E. Þórarinsdóttir 316
Unnur Sveinsdóttir - Helgi Samúelsson 307
Sigriður Möller—Freyja Sveinsdóttir 298
Bridsdeild
Húnvetningafélagsins
Spilaður var 14 para tvímenningur
sl. miðvikudag og urðu úrslit eftirfar- andi:
Valdimar Jóhannsson - Karl Adolphsson 191
Kári Siguijónsson - Eysteinn Einarsson 186
Guðlaugur Nielsen - Óskar Karsson 186
Páll Siguijónsson - Rúnar Hauksson 184
Meðalskor 156
Næsta miðvikudag verður einnig
spilaður eins kvölds tvímenningur.
Spilað er í Skeifunni 17 kl. 19.30.
Sífelld endurnýjun og
uppbygging í KaJdárseli
|
Frá sumarbúðunum í Kaldárseli sem eru í hrauninu fyrir innan
Hafnarfjörð skammt frá Helgafelli.
í Kaldárseli, sumarbúðum KFUM
og KFUK félaganna í Hafnar-
firði, dvelja jafnan 38 börn en
starfið þar hefst í byrjun júní og
stendur innritun nú yfir. Á síð-
ustu 10 til 15 árum hefur orðið
mikil endurnýjun og uppbygging
í Kaldárseli og hefur hún verið
kostuð með framlögum frá
stuðningsmönnum starfsins og
styrkjum frá Hafnarfjarðarbæ.
„Fyrstu börnin dvöldu í Kaldárs-
eli sumarið 1925 en meðal annarra
var það séra Friðrik Friðriksson
sem átt mikinn þátt í að hér var
farið af stað með starf,“ segir
Sveinn Alfreðsson sem lengi hefur
starfað í Kaidárseli. „Fjarlægðin
milli Kaldársels og miðbæjar Hafn-
arfjarðar er hátt í 10 km og fyrstu
árin var ekki um veg að ræða alla
leið heldur fóru menn fótgangandi
síðasta spölinn í Kaldársel. Lengst
af var hér aðeins lítill skáli fyrir
svefn- og eldunaraðstöðu en hann
hefur þrívegis verið stækkaður og
þannig hefur smám saman verið
hægt að fjölga í dvalarflokkunum.
Öll aðstaða hefur batnað mikið,
sérstaklega eftir tilkomu íþrótta-
skálans."
Sveinn segir að börnin sem dvelja
í Kaldárseli séu bæði úr Hafnarfirði
og öðrum bæjarfélögum á höfuð-
borgarsvæðinu og hafi aðsókn verið
góð alla tíð. Drengjaflokkar eru i
júní og júlí og stúlknaflokkar frá
júlílokum og fram í ágúst og eru
börnin á aldrinum 7 til 12 ára. En
við hvað una börnin sér í Kaldárseli?
„Eins og í öðrum sumarbúðum
KFUM og K félaga er ákveðin dag-
skrá á hveijum degi, biblíulestrar
og kvöldvökur þar sem blandað er
saman uppfræðslu í trúnni og leik.
í Kaldárseli geta börnin síðan unað
við leiki í hrauninu og hellunum
allt umhverfis skálann, slípað til
móbergssteina og búið til fallega
hluti, buslað í Kaldánni og farið í
gönguferðir á Helgafell, Búrfell og
aðra skemmtilega staði í nágrenn-
inu og knattspyrnuvöllurinn er mik-
ið notaður. Hér þarf því engum að
leiðast."
Rafmagn er ekki í Kaldárseli en
matur er eldaður við gasofn og
skálinn hefur verið hitaður með ol-
íufýringu. „Við fengum dísilrafstöð
fyrir þremur árum og gerum okkur
vonir um að geta tekið inn rafmagn
áður en mörg ár líða en ennþá eru
4 km í rafmagn. En hér er matur
eldaður á gasi og það er nú í tísku
í dag, þannig að þetta er ekki svo
gamaldags hjá okkur lengur!" segir
Sveinn Alfreðsson að lokum og
minnir á að innritun standi nú yfir
á skrifstofu KFUM og K bæði í
Hafnarfirði og Reykjavík.
Láttu okkur sjá um hófið. Höfum
til umráða stórgkesilegan sal
fyrir 20 - 200 manns.
Meðal viðskiptavina okkar í vetur.
O Haukar og FH
O Starfsmannafélag Toyota
O Byggðaverk
O Eurocard
O Úrval - Útsýn
O Siglflrðingafélagið
O Félag eldri borgara
O Alþýðuflokkurinn
O Framsóknarflokkurinn
O Sjálfstæðisflokkurinn
O Hárgreiðslustofan Krista
O Blóðbankinn
O Hestaniannafélagið Sörli
O Lionsklúbburinn Ásbjöm
ásamt mörgum öðrum góðum gestum.
Hraunliolt
-veisluþjónusta
Dalshrauni 15, símar: 650644 & 65-4740, Fax: 650645