Morgunblaðið - 11.05.1993, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. MAI 1993
51
KR.350
KR. 350
FERÐIN TIL VEGAS
HONEYMOON IN VEGAS
* * ★ MBL.
Frábær gamanmynd með
Nicolas Cage og James
Caan.
Sýnd kl. 5, 7,9 og 11.
MIDJARÐARH AFIÐ - mediterraneo
Stórkostleg Óskarsverðlaunamynd.
Sýnd kl. 5,7,9 og 11.
ENGLASETRIÐ
★ ★ ★ Mbl.
Sæbjörn Mbl. ★ ★ ★ „Engla-
setrið kemur hressilega
á óvart.“
Sýndkl. 5,9 og 11.10.
CHAPLIN
Aðalhlv.: Robert Downey Jr.
Sýnd kl. 5 og 9.
Síðasta sýning.
ISLENSKA OPERAN sími ll 475
Sardasfurstynjan
eftir Emmerich Kálmán
í kvöld kl. 20, uppselt. Aukasýningar vegna
mikiliar aðsóknar: Fös. 14/5 kl. 20 og lau. 15/5 kl. 20.
ALLRA SÍÐASTA SÝNINGARHELGI.
Miðasalan opin frá kl. 15-19 daglega, en til kl. 20 sýningard.
Sfmi 11475. Greiðslukortaþjónusta. LEIKHÚSLÍNAN 99 10 15
LEIKFEL. AKUREYRAR s. 96-24073
• LEÐURBLAKAN óperetta eftir Johann Strauss
Kl. 20.30: í kvöld uppsclt, fós. I4/5, lau. I5/5 örfá sæti laus, mið.
19/5, fös. 21/5, lau. 22/5. FÁAR SÝNINGAR EFTIR.
Miðasala opin alla virka daga kl. 14-18 og sýningardaga frá
kl. 14 og fram að sýningu.
Sýning á tölvu-
vömm fyrir skóla
DAGANA 12. og 13. maí verður haldin sýning á tölvum
og hugbúnaði fyrir skóla í Fundar- og ráðstefnusal ríkis-
stofnana, Rúgbrauðsgerðinni, Borgartúni 6, Reykjavík.
■ FELAGSRAÐ Póst-
mannafélags íslands gagn-
rýndi harðlega drög að frum-
varpi til laga um stofnun
hlutafélags um rekstur
Pósts og síma á fundi sínum
27. apríl. Ráðið leggur telur
drögin meingölluð og kalla á
margar athugasemdir varð-
andi málefni og atvinnuör-
yggi starfsfólks, stjórnun
fyrirtækisins og framtíð. í
fréttatilkynningu er því al-
farið hafnað að samgöngu-
ráðherra einn skipi fimm
manna stjórn fyrirtækisin's
og starfsfólk komi þar hvergi
nærri. Varað er við því að
hlutabréf verði seld á hluta-
bréfamarkaði og geti þannig
lent í höndum erlendra aðila.
Ennfremur er nefnt að ekki
sé hægt að svipta starfsfólk
áunnum réttindum með einu
pennastriki og hugmyndum
um skerðingu verkfallsréttar
einstakra félagsmanna er
alfarið hafnað. Ráðið óttast
að í kjölfar breytinganna
versni þjónusta við lands-
byggðina og verði jafnframt
dýrari.
Undanfarin ár hefur
Apple-umboðið unnið að því
að auka framboð á kennslu-
hugbúnaði fyrir skóla og
hefur m.a. notið samstarfs
Námsgagnastofnunar og
Kennaraháskóla Islands í því
sambandi. Þessir þrír aðilar
'munu á sýningunni kynna
afrakstur þeirrar samvinnu
og fleira sem áhugavert má
telja fyrir menntastofnanir.
Auk þess munu nokkrir aðil-
ar sem þróað hafa hugbúnað
fyrir skóla kynna sín forrit.
Á sýningunni mun Apple-
umboðið kynna Macintosh-
tölvubúnað og ýmsar nýj-
ungar í kennsluhugbúnaði.
Þar er helst að nefna forritið
Ritvöll, sérhannað íslenskt
ritvinnsluforrit, islenskufor-
BÍL mótmælir sýningarbanni
STJÓRN Bandalags íslenskra listamanna mótmæl-
ir þeirri ákvörðun útvarpsráðs að banna sýningu
á sjónvarpsþættinum: Hver á að sýna? sem auglýst-
ur var á dagskrá Ríkissjónvarpsins, þriðjudaginn
4. maí sl.
Bandalagið styður ein-
dregið þá hugmynd að kom-
ið verði á fót kvikmynda-
húsi, sem hafi það aðal-
markmið að sýna íslenskar
kvikmyndir og listrænar
erlendar myndir.
Mikilvægt er að opinber
umræða eigi sér stað um
þetta mál og þeim mun
verra að fyrrnefndur sjón-
varpsþáttur, sem stjórn
Bandalagsins hefur séð, og
fjallar um slíkan rekstur,
fáist ekki sýndur í Ríkis-
sjónvarpinu.
Stjórn Bandalags ís-
lenskra listamanna skorar á
útvarpsráð að endurskoða
afstöðu sína til sýningar
þessa þáttar.
(Fréttatilkyiuiing)
rit, stærðfræðiforrit, teikni-
forrit fyrir börn, kennslu-
hugbúnað á geisladiskum,
fjölbreytta tungumála-
kennslu og margt fleira. Þá
verður Appleumboðið með
sérstakan bás til kynningar
á hugbúnaði fyrir tónlistar-
skóla þar sem m.a. verður
kynning á nýju íslensku for-
riti til nemendaskráningar
og sýnt hvernig nota má
tölvuna við tónsmíðar og í
tengslum við hljómborð.
Námsgagnastofnun
kynnir íslenskan kennslu-
hugbúnað sem stofnunin
hefur á boðstólum eða mun
bjóða á næstunni, svo sem
fjölfræðiforritið Viskubrunn,
ABC kennsluforrit fyrir
yngri börn, stærðfræðifor-
ritið Grafsvegi, Lestrarglím-
ur o.m.fl.
Kennaraháskóli íslands,
Gagnasmiðja kynnir starf-
semi sína í þróun hugbúnað-
ar og þá tækni sem notuð
er við gerð á kennsluhug-
búnaði.
Einnig verður sérstök
kynning á íslenska mennta-
netinu, tölvuneti sem tengir
íslenska skóla saman.
Sýningin er opin frá
klukkan 10 til 17 báða dag-
ana og aðgangur er ókeypis
á meðan húsrúm leyfir.
(Fréttatilkyiúiing)
Girnilegt hlaðborð á Indverska veitingahúsinu
(við hliðina á Regnboganum).
Aðeins 1.150 kr., innifalinn bíómiði á þriðjudagstilboð.
g|® BORGARLElKHUSIÐsími 680-680
LEIKFÉLAG REYKjAVÍKUR
Stóra svlð kl. 14:
RONJA RÆNINGJADÓTTIR
eftir sögu Astrid Lindgren. Tónlist: Sebastian.
Aukasýn. sun. 16/5 fáein sæti laus, lau. 22/5, sun. 23/5.
Allra síðustu sýningar.
Miðaverð kr. 1.100,- sama verð fyrir börn og fullorðna.
Litla sviðið kl. 20:
DAUÐINN OG STÚLKAN eftir Ariel Dorfman
Fim. 13/5, uppselt, lau. 15/5 uppselt. Aukasýningar: fim.
20/5, fös. 21/5, lau. 22/5. Allra síðustu sýningar.
Miðasalan er opin alla daga frá kl. 14-20 nema mánudaga
frá kl. 13-17. Miðapantanir í síma 680680 alla virka daga
frá kl. 10-12. Aðgöngumiðar óskast sóttir þrem dögum
fyrir sýningu.
Faxnúmer 680383. - Greiðslukortaþjónusta.
LEIKHÚSLÍNAN sími 99 1015
MUNIÐ GJAFAKORTIN - TILVALIN TÆKIFÆRISGJÖF.
NEMENDALEIKHUSID
LINDARBJE
PELIKANINN
eftir A. STRINDBERG
Leikstjóri: Kaisa Korhonen.
Sýn. kl. 20.30: Sýn. fim. 13/5,
fös. 14/5, sun. 16/5.
Miðapantanir í síma 21971
allan sólarhringinn.
Siðleysi fjallar um atburði sem
eiga ekki að gerast en gerast
þó samt. - Myndin sem
hneykslað hefur fólk um allan
heim. Aðahlv. Jeremy Irons
(Dead Ringers, Reversa! of Fort-
une), Juliette Binoche (Óbæri-
legur léttleiki tilverunnar) og
Miranda Richardson (The Cry-
ing Game).
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.10.
Bönnuð innan 12 ára.
Einstök sakarinálamynd,
sem hvarvetna hefur
fengið dúndrandi aðsókn
og frábsera dóma fyrir
frumleika og nýstárleg
efnistök.
Ein af tíu bestu 1992 hjá 31 gagnrýnanda íUSA.
„Besta mynd 1992.“ - Siskel og Ebert.
★ ★★★ - EMPIRE.
Sýnd kl. 5,7,9 og 11. - Bönnuð innan 16 ára.
ÞRIÐJUDAGS-
TILBOÐ
Á ALLAR MYNDIR -
MIÐAVERÐ KR. 350.
HÖRKUTÓL
Einhver magnaðasta
mynd sfðan Easy Rider.
Sýnd kl. 5,7, 9 og 11.
Bönnuð innan 16 ára.
FLISSILÆKNIR
Sýnd kl. 9 og 11.
Bönnuð innan 16 ára.
iltiflls&ðASdililKtlilti'
SIMI: 19000
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
Á ALLAR MYNDIR
DAMAGE - SIÐLEYSI
NEMÓLITLI
★ ★★ Al Mbl.
íslenskt tal og söngur.
Sýnd 5 og 7.
★ ★ ★ /2 MBL.
★ ★★ Pressan
★ ★★ Tíminn
UR DAGBOK
LÖGREGLUNNAR Í REYKJAVÍK:
Mörg innbrot voru til-
kynnt um helgina, eða 13
talsins. Þá var einnig mikið
um skemmdarverk og rúðu-
brot, eða 13 og 11.
Skemmdir voru aðallega
unnar á bifreiðum af ölvuðu
fólki, sem lítið virtist vita í
þennan heim né annan. Það
sama var upp á teningnum
varðandi rúðubrotin. All-
nokkur ölvun var á meðal
fólks aðfaranótt laugar-
dags og sunnudags. Þannig
þurfti lögreglan 63 sinnum
að hafa bein afskipti af ölv-
uðu fólki utan annarra til-
vika þar sem ölvað fólk kom
við sögu, s.s. vegna
ölvunaraksturs, hávaða
utan dyra og innan,
skemmdarverkanna, rúðu-
brotanna og 6 líkamsmeið-
inga.
12 ökumenn, sem stöðv-
aðir voru, eru grunaðir um
að aka undir áhrifum
áfengis. Einn til viðbótar
hafði lent í óhappi áður en
til hans náðist.
Kæra þurfti 57 ökumenn
fyrir að aka of hratt um
helgina. Tölur hjá einstaka
ökumanni sýndu allt að 120
km/klst. innan borgar-
markanna. Ekki á að þurfa
að taka fram hvað um öku-
skírteini þeirra sömu varð.
Síðan lögreglan í Reykjavík
tók upp á því að halda skrá
um umferðarlagabrot 1.
mars sl. eru tveir 18 og 19
ára ökumenn komnir að
hættumörkum, þ.e. þeir
hafa þrisvar sinnum verið
staðnir að umferðarlaga-
brotum á tímabilinu. Á ann-
að hundrað ökumenn hafa
verið kærðir tvisvar sinn-
um. Öll umferðarlagabrotin
eru vegna of hraðs aksturs
utan eitt, en í því tilviki var
annar tvímenninganna
kærður fyrir að aka gegn
rauðu ljósi. Ef þessir tveir
ökumenn halda áfram að
brjóta af sér í umferðinni
er stutt í að þeir tapi öku-
réttindum sínum.
Alls eru 469 tilkynningar
eða verkefni færð til bókun-
ar í dagbókina frá föstudegi
til mánudags. Einungis lítið
brot af þeim koma fyrir
sjónir lesenda, en með dag-
bókinni er reynt að gefa
almenningi svolitla innsýn
í þann veruleika, sem lög-
reglumenn eru að fást við
um helgar.
Aldraðir komu saman á
Hlemmtorgi eftir hádegi á
sunnudag og gengu síðan
í fylkingu niður Laugaveg
og að Lækjartorgi. Fjöl-
menni var í göngunni og
var háttsemi þátttakenda
öll til mikillar fyrirmyndar.
Auk þess voru ýmsar
sýningar og uppákomur í
borginni á laugardag og
sunnudag þar sem fjöldi
manns safnaðist saman.
Fór allt vel fram.
Sameiginlegt umferðar-
átak lögreglunnar á Suð-
vesturlandi hefst á mið-
vikudag og stendur í viku.
Athygli verður sérstaklega
beint að vinnuvélum, rétt-
indum stjórnenda þeirra,
skráningarnúmerum bif-
reiða og negldum hjólbörð-
um.
TJöföar til
XI fólks í öllum
starfsgreinum!